Morgunblaðið - 17.04.2021, Síða 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
„HANN SKILDI EFTIR BRÉF SEM VAR
STÍLAÐ Á „ÞANN SEM SÉR UM VIÐHALD
HÚSSINS“.“
„JÆJA, ÞAÐ ER KOMIÐ NÓG Í DAG. VIÐ
SJÁUMST NÆSTA FIMMTUDAG.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að elska gæludýrið.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KETTIR GETA
LESIÐ HUGSANIR
OG ÞAÐ ER
BÖLVUN
ÞAÐ ER INNBROTAHRINA
Í HVERFINU HJÁ OKKUR!
HVAÐ HEFUR ÞÚ GERT TIL AÐ
TRYGGJA ÖRYGGI OKKAR?
ÞÚ HEFUR GREINILEGA EKKI SÉÐ NÝJA
ÞJÓFAVARNARKERFIÐ MITT!
meðferðarstofunni „Heilsu og útliti“,
sem eiginkona hans rekur.
Eyjólfur stundar ennþá skíða-
mennsku. „Ég reyni að fara til Ítalíu
eða Austurríkis á hverju ári, en ég
stunda golfið ennþá meira. Ég er bú-
inn að vera í því frá 2001 og spila
ágætlega mikið af golfi á hverju
sumri og reyni yfirleitt að fara til
Kaliforníu á haustin til að spila golf.
Eyjólfur verður með sextugs-
afmælistónleika á veitingastaðnum
Sjálandi í Garðabæ, síðasta vetrar-
dag, 21. apríl. „Þetta verða dinner-
tónleikar, ég verð með gítarinn og
Þórir Úlfarsson verður með mér á
píanó. Við ætlum að taka helstu
Eyfalögin gegnum tíðina og spjalla á
léttu nótunum við tónleika- og
matargesti.“
Fjölskylda
Eiginkona Eyjólfs er Gunnleif
Sandra Lárusdóttir, f. 9.11. 1973,
sem rekur og á meðferðarstofuna
„Heilsu og útlit“ í Kópavogi. Þau eru
búsett í Kópavogi. Foreldrar hennar
eru hjónin Lárus Lárusson, f. 7.6.
1944, vinnuvélstjóri og Stefanía
Agnes Tryggvadóttir, f. 3.9. 1946,
húsmóðir. Þau eru búsett í Garðabæ.
Dóttir Eyjólfs og Gunnleifar
Söndru er Guðný, förðunarfræð-
ingur, f. 12.9. 1999. Dóttir Gunnleifar
Söndru og uppeldisdóttir Eyjólfs er
Stefanía Agnes Þórisdóttir lögfræð-
ingur, f. 1.6. 1995.
Systkini Eyjólfs eru Björg, f. 9.8.
1946, búsett í Reykjavík, Hrafnhild-
ur, f. 17.4. 1948, búsett í Reykjavík,
Helga, f. 1.9. 1952, búsett í Mary-
land, Bandaríkjunum; Hans, f. 17.2.
1956, búsettur á Álftanesi og
Kristján, f. 17.2. 1956, búsettur í
Mosfellsbæ.
Foreldrar Eyjólfs voru Kristján
Björn Þorvaldsson, stórkaupmaður í
Reykjavík, f. 30.5. 1921, d. 11.8. 2003
og Guðný Eyjólfsdóttir húsmóðir, f.
27.10. 1925, d. 4.8. 1992.
Eyjólfur
Kristjánsson
Sólveig Bjarnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jóhannes Þórðarson
skósmiður í Reykjavík
Guðlín Jóhannesdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Eyjólfur Kristjánsson
sparisjóðsgjaldkeri í Hafnarfirði
Guðný Eyjólfsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Guðný Eyjólfsdóttir
húsfreyja á Krossi
Kristján Eiríksson
bóndi á Krossi á Berufjarðarströnd
Guðrún Kristín Guðný Márusdóttir
húskona víða í Skagafirði
Sigvaldi Gunnlaugsson
húsmaður í Dæli í Fljótum
Björg Sigvaldadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þorvaldur Ásgeir Kristjánsson
málarameistari í Reykjavík
Guðríður Þorvaldsdóttir
ljósmóðir í Reykjavík
Kristján Berndsen
verslunarmaður í Reykjavík
Úr frændgarði Eyjólfs Kristjánssonar
Kristján Björn Þorvaldsson
stórkaupmaður í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Á fjalli þennan finna má.
Felling er hann segli á.
Daufur sá í dálkinn ver.
Við dýrategund kenndur er.
Helgi Þorláksson svarar:
Um hrygg á fjalli hópur fer,
hrygg í segli kenna má,
hryggur sá sem hnugginn er,
hryggdýr eru sterk og kná.
Knútur H. Ólafsson á þessa lausn:
Á fjallshrygginn slangra ég slappur í
pínu.
Slétta hrygginn úr seglinu mínu.
Hryggur er sá er í hörmungum lendir.
Til hryggdýra orðið svo bendir.
„Þá er það lausnin,“ svarar Helgi
R. Einarsson:
Hrygginn ég á fjalli finn.
Finnst á segli hryggurinn.
Hryggbrotinn æ hryggur er.
Hryggdýrið það víða fer.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Á Hlíðarfjalli hrygg má sjá.
Hryggur felling segli á.
Hryggur mjög er halur sá.
Hryggdýr síðan nefna má.
Þá er limran:
„Illa nú á mér liggur,
yður þjónað hef dyggur,“
kvað Vakri Skjóni,
skekinn af Jóni,
„minn hryggur er sár og hryggur.“
Og ný gáta eftir Guðmund:
Hver dagur er lengi að líða,
við leiða þarf margur að stríða,
í sóttkví þá gott er að glíma
við gátu og svarvísu ríma:
Skrautbúið skip fyrir landi.
Skýjafloti á randi.
Merki við sjáum í sandi.
Svo er það fas þitt og andi.
Páll skáldi orti:
Guði hjá ég mínum má
mæðu tjá af högum;
neiti hann þá um sína’ ásjá
svo er ég frá með lögum.
Gömul vísa í lokin:
Þófaljóna þýðastur
þýtur um frónið harða;
er hann Skjóni auðþekktur
undir Jóni Skarða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hryggur hlær
en glaður grætur
S IGN | FORNUBÚÐIR 1 2 , HAFNARF IRÐ I | S : 5 5 5 0800 | S IGN@S IGN . I S | S IGN . I S