Morgunblaðið - 17.04.2021, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
4.$--3795.$
England
Everton – Tottenham.............................. 2:2
- Gylfi Þór Sigurðsson var fyrirliði Ever-
ton og skoraði bæði mörkin.
Staðan:
Manch. City 32 23 5 4 67:23 74
Manch. United 31 18 9 4 61:34 63
Leicester 31 17 5 9 55:37 56
West Ham 31 16 7 8 51:39 55
Chelsea 31 15 9 7 50:31 54
Liverpool 31 15 7 9 53:37 52
Tottenham 32 14 8 10 54:37 50
Everton 31 14 7 10 43:40 49
Arsenal 31 13 6 12 43:35 45
Leeds United 31 14 3 14 49:49 45
Aston Villa 30 13 5 12 43:33 44
Wolves 31 10 8 13 31:41 38
Crystal Palace 31 10 8 13 33:52 38
Southampton 31 10 6 15 39:56 36
Brighton 31 7 12 12 33:38 33
Burnley 31 8 9 14 25:42 33
Newcastle 31 8 8 15 32:51 32
Fulham 32 5 11 16 24:42 26
WBA 31 5 9 17 28:59 24
Sheffield Utd 31 4 2 25 17:55 14
B-deild:
Blackburn – Derby................................... 2:1
Reading – Cardiff ..................................... 1:1
Þýskaland
RB Leipzig – Hoffenheim........................ 0:0
Staða efstu liða:
Bayern München 28 20 5 3 80:36 65
RB Leipzig 29 18 7 4 52:23 61
Wolfsburg 28 15 9 4 49:26 54
Eintr.Frankfurt 28 14 11 3 59:40 53
Dortmund 28 14 4 10 58:41 46
B-deild:
Darmstadt – Greuter Fürth ................... 2:2
- Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Holland
B-deild:
Telstar – Excelsior .................................. 1:1
- Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior.
Eindhoven – Jong Ajax........................... 3:0
- Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki í
leikmannahópi Jong Ajax.
Belgía
B-deild:
Club Brugge U23 – Union St. Gilloise... 0:4
- Aron Sigurðarson lék fyrstu 78 mínút-
urnar með St. Gilloise og skoraði fjórða
markið. USG sem hefur fyrir löngu tryggt
sér sæti í A-deildinni.
Danmörk
B-deild:
Viborg – Esbjerg ..................................... 4:0
- Andri Rúnar Bjarnason var ónotaður
varamaður hjá Esbjerg en Kjartan Henry
Finnbogason er frá vegna meiðsla. Ólafur
H. Kristjánsson þjálfar liðið.
_ Efstu lið: Viborg 62, Silkeborg 53, Esb-
jerg 52, Helsingör 39, Fredericia 32.
Undankeppni HM kvenna
Umspil, fyrri leikir:
Ungverjaland – Ítalía........................... 46:19
Tyrkland – Rússland............................ 23:35
Svartfjallaland – Hvíta-Rússland ....... 29:23
Austurríki – Pólland............................. 29:29
Vináttulandsleikur kvenna
Króatía – Brasilía ................................. 24:21
Spánn
Barcelona – Cisne................................ 43:21
- Aron Pálmarsson var hvíldur og lék ekki
með Barcelona.
_ Efstu lið: Barcelona 55, Bidasoa 41, La
Rioja 38, Huesca 38, Granollers 37.
Frakkland
B-deild:
Nancy – Nice ........................................ 34:32
- Elvar Ásgeirsson skoraði fjögur mörk
fyrir Nancy og gaf eina stoðsendingu.
- Grétar Ari Guðjónsson varði 14 skot í
marki Nice og var með 30% vörslu.
_ Efstu lið: Saran 35, Pontault 32, Nancy
32, Cherbourg 29, Massy Essonne 28, Di-
jon 26, Nice 21.
Þýskaland
B-deild:
Dormagen – Aue.................................. 28:26
- Arnar Birkir Hálfdánsson gaf tvær stoð-
sendingar fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði eitt skot í marki liðsins. Rúnar Sig-
tryggsson þjálfar Aue.
%$.62)0-#
Spánn
Valencia – Obradorio.......................... 97:82
- Martin Hermannsson lék ekki með Val-
encia vegna meiðsla.
NBA-deildin
Utah – Indiana.................................. 119:111
Atlanta – Milwaukee ........................ 109:120
Cleveland – Golden State ................ 101:119
LA Lakers – Boston......................... 113:121
Phoenix – Sacramento ..................... 122:114
4"5'*2)0-#
SVÍÞJÓÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Tíu íslenskar knattspyrnukonur
leika í sænsku úrvalsdeildinni um
þessar mundir en þar hefst keppnis-
tímabilið í dag. Með þessu er mesti
fjöldi íslenskra leikmanna í deildinni
jafnaður en árið 2012 léku einnig tíu
Íslendingar í deildinni.
Hafa ber í huga að metið getur
fallið síðar á tímabilinu ef fleiri ís-
lenskir leikmenn bætast í hópinn í
„sumarglugganum“.
Eflaust á þátttaka Íslands í loka-
keppni EM á Englandi á næsta ári
sinn þátt í þessari fjölgun en þetta
sama gerðist þegar Ísland lék í
fyrsta skipti á EM í Finnlandi árið
2009. Þá fjölgaði leikmönnum í
sænsku deildinni mjög og níu ís-
lenskar landsliðskonur spiluðu það
ár með sænskum liðum.
Næsti toppur kom 2012 eins og
áður var getið, árið fyrir lokakeppni
EM í Svíþjóð þar sem Ísland komst í
átta liða úrslit.
Nú hefur íslenskum leikmönnum í
deildinni fjölgað um helming á milli
ára, úr fimm í tíu. Sex munu leika í
fyrsta sinn í deildinni og koma þær
allar frá íslenskum liðum, og þá
verður Sif Atladóttir með Kristian-
stad á ný en hún var í barneignarfríi
á síðasta ári.
13 og 11 hjá Elísabet og Sif
Þetta er ellefta tímabil Sifjar í
röðum Kristianstad en hún slær þó
ekki þjálfaranum við því Elísabet
Gunnarsdóttir er að hefja sitt þrett-
ánda tímabil sem þjálfari liðsins.
Kristianstad náði sínum besta ár-
angri frá upphafi í fyrra, hafnaði í
þriðja sæti og leikur fyrir vikið í 1.
umferð Meistaradeildarinnar í
fyrsta skipti síðsumars. Elísabet var
valin þjálfari ársins í deildinni í lok
síðasta tímabils en uppbygging
hennar á liðinu hefur vakið verð-
skuldaða athygli og viðurkenningu í
Svíþjóð.
Kristianstad fékk Sveindísi Jane
Jónsdóttur frá Keflavík, auk þess að
Sif er komin aftur í hópinn með alla
sína reynslu. Mikið er fjallað um
Sveindísi í Svíþjóð í aðdraganda
mótsins og flestir fjölmiðlar spá því
að hún setji virkilega mark sitt á lið-
ið og deildina. Þessi 19 ára gamla
stúlka byrjar því atvinnuferilinn
undir talsverðri pressu.
Kristianstad missti Svövu Rós
Guðmundsdóttur til Bordeaux en
hún hefur verið drjúg í sóknarleik
liðsins undanfarin tvö ár. Liðinu er
spáð toppbaráttu og svipuðu sæti og
á síðasta tímabili.
Missir ekki af mínútu
Glódís Perla Viggósdóttir hefur
leikið hverja einustu mínútu með
Rosengård í deildinni síðan hún kom
til liðsins sumarið 2017 og hefur fest
sig í sessi sem einn af bestu varnar-
mönnum deildarinnar. Glódís hefur
unnið meistaratitilinn einu sinni og
sænska bikarinn einu sinni með
Málmeyjarliðinu sem verður í bar-
áttu um titilinn í ár ásamt því að
spila eins og alltaf í Meistaradeild-
inni. Þar féll liðið út í átta liða úrslit-
um á dögunum gegn Bayern
München.
Ótrúleg staða hjá Häcken
Þó Rosengård þyki ávallt sigur-
stranglegt eru sumir sem spá því að
Häcken, sem lék í D-deildinni í
fyrra, verði sænskur meistari í ár.
Félagið tók yfir keppnisleyfi meist-
araliðsins Kopparbergs/Gautaborg í
desember og er í fyrsta sinn með lið í
efstu deild. Häcken fékk marga leik-
menn meistaraliðsins í arf, enda þótt
sumar hafi horfið á braut, og hefur
verið öflugt í vorleikjunum. Diljá Ýr
Zomers kom til liðs við Häcken frá
Val eftir áramótin og stígur sín
fyrstu skref í atvinnumennsku með
liðinu.
Þá mun Häcken taka sæti
Kopparbergs/Gautaborgar í Meist-
aradeild Evrópu og hefur þar keppni
í 2. umferð, eins og Rosengård.
Ótrúleg staða hjá félagi sem var í lok
síðasta tímabils með allt önnur og
lágstemmdari markmið fyrir árið
2021.
Fimm íslensk í fallbaráttunni?
Reiknað er með því að hin fimm
Íslendingaliðin í deildinni raði sér í
fimm neðstu sætin og berjist því fyr-
ir lífi sínu á komandi keppnis-
tímabili. Aðeins eitt lið fellur þó í ár
vegna fjölgunar liða fyrir 2022.
Växjö, sem er talið líklegast
þeirra til að halda velli, endaði í
sjötta sæti í fyrra og fékk til sín Ak-
ureyringinn Andreu Mist Páls-
dóttur í vetur en hún lék með FH á
síðasta tímabili og kynntist aðeins
atvinnumennsku á Ítalíu síðasta vet-
ur. Það var þó stutt stopp hjá And-
reu vegna útbreiðslu kórónuveir-
unnar á Ítalíu.
Örebro, sem endaði í sjöunda sæti
í fyrra, er komið með tvo íslenska
leikmenn. Berglind Rós Ágústs-
dóttir, fyrirliði Fylkis síðustu árin,
er komin til félagsins, sem og lands-
liðsmarkvörðurinn ungi og efnilegi
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, sem einn-
ig kemur frá Árbæjarliðinu.
Piteå varð mjög óvænt sænskur
meistari árið 2018 en hefur síðan
gefið eftir og endaði í áttunda sæti í
fyrra. Liðinu er spáð erfiðri fallbar-
áttu í ár. Landsliðskonan unga Hlín
Eiríksdóttir er komin til Piteå frá
Val og gæti sett mark sitt á sóknar-
leik liðsins.
Djurgården hefur haldið sér
naumlega í deildinni undanfarin ár
og margir spá Stokkhólmsliðinu falli
að þessu sinni. Miðvörðurinn Guð-
rún Arnardóttir leikur sitt þriðja
tímabil með liðinu en markvörðurinn
Guðbjörg Gunnarsdóttir fór hins-
vegar til Arna-Björnar í Noregi í
vetur.
Óvænt ef AIK heldur velli
AIK frá Stokkhólmi er nýliði í
deildinni eftir að hafa unnið B-
deildina á síðasta ári. Liðið er ungt
og reynslulítið og Hallbera Guðný
Gísladóttir var fengin frá Val til að
styrkja það í baráttunni. Hún hefur
áður leikið þrjú tímabil í þessari
deild með Piteå og Djurgården. Ef
Hallbera og samherjar hennar halda
sæti sínu mun það koma verulega á
óvart.
Linköping, Vittsjö, Eskilstuna og
nýliðar Hammarby eru þau fjögur
lið sem ekki eru með íslenska leik-
menn í sínum röðum. Þeim er öllum
spáð lygnum sjó um miðja deild.
Anna Rakel Pétursdóttir lék með
Linköping 2019 en féll síðan með ný-
liðum Uppsala á síðasta ár og er
komin í raðir Vals.
_ Erla Steina Arnardóttir, sem
lék lengi með Kristianstad, er leikja-
hæst íslenskra kvenna í sænsku úr-
valsdeildinni með 171 landsleik.
_ Sif Atladóttir kemur næst með
163 leiki og getur því slegið met
Erlu í ár. Guðbjörg Gunnarsdóttir
er með 152 leiki og Glódís Perla
Viggósdóttir er fjórða með 130 leiki.
_ Margrét Lára Viðarsdóttir er
markahæst Íslendinga í deildinni
með 51 mark en Ásthildur Helga-
dóttir skoraði 46 mörk og Sara
Björk Gunnarsdóttir 34.
Ný íslensk
kvennabylgja
í Svíþjóð
- Tíu íslenskar konur leika í sænsku
úrvalsdeildinni sem hefst í dag
Morgunblaðið/Eggert
Kristianstad Sveindís Jane Jónsdóttir byrjar mótið undir talsverðri pressu
því Svíar búast við miklu af henni á fyrsta tímabilinu í atvinnumennsku.
Ljósmynd/FC Rosengård
Rosengård Glódís Perla Viggós-
dóttir verður vafalítið í toppbaráttu.
Gylfi Þór Sigurðsson var í aðal-
hlutverki hjá Everton þegar liðið
gerði 2:2-jafntefli gegn hans gamla
liði, Tottenham Hotspur, í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Gylfi skoraði bæði mörkin
en leikið var á Goodison Park.
Markvarðahrellirinn Harry Kane
kom Tottenham yfir á 27. mínútu
en Gylfi jafnaði úr vítaspyrnu á 31.
mínútu. Sendi hann franska heims-
meistarann Hugo Lloris í rangt
horn og skaut í hægra hornið.
James Rodriguez fékk vítið fyrir
Everton eftir sendingu frá Gylfa.
Hafnfirðingurinn kom Everton yfir
2:1 með laglegu marki á 62. mínútu.
Gylfi keyrði inn í teiginn og mætti
fyrirgjöf frá Seamus Coleman frá
hægri með því að stýra boltanum í
vinstra hornið með vinstri fæti.
„Sendingin var augljóslega full-
komin. Ég sá varnarmann beint fyr-
ir framan mig og reyndi því að hitta
boltann vel, halda honum niðri og
hitta markið,“ sagði Gylfi m.a. í
sjónvarpsviðtali sem sjá má á
mbl.is. Aftur var það Kane sem
skoraði þegar Tottenham jafnaði
2:2 á 68. mínútu. kris@mbl.is
Gylfi og Kane sáu um að skora mörk-
in í fjörugu jafntefli í Bítlaborginni
AFP
Bros Gylfa var vel fagnað af samherjum sínum og ekki að ástæðulausu.