Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 41

Morgunblaðið - 17.04.2021, Side 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 Óneitanlega var stíll yfir kylfusveini Hideki Matsuyama þegar Matsuyama hafði tryggt sér sigur á Masters. Kylfusveinn- inn er einnig frá Japan. Áður en hann yfirgaf 18. flötina tók hann ofan og hneigði sig fyrir Augusta National í virðingarskyni. Velli sem kylfingar frá öllum heims- hornum hafa glímt við frá 1933. Fatnaður kylfusveina á Mast- ers vekur athygli margra. Hvítu samfestingarnir urðu snemma klæðnaður kylfusveina í golf- klúbbnum á Augusta. Í áratugi var keppendum á Masters ekki leyft að keppa með sína eigin kylfusveina heldur áttu þeir að nýta sér þjónustu kylfusveina klúbbsins. Sem var ekki slæmur kostur því þeir þekktu hverja þúfu og hvern hól á vellinum. Margir kylfusveinanna bjuggu í sárri fátækt í nágrenni vallarins. Arnold Palmer og Jack Nicklaus stóðu fyrir því að koma fyrir leg- steini hjá mönnum sem höfðu verið kylfusveinar hjá þeim á Masters og hvíldu í ómerktri gröf í Augusta. Samfestingarnir komu í veg fyrir að menn væru illa til fara á vellinum auk þess sem hvíti liturinn er heppilegur í hit- anum í suðrinu. Með tímanum var haldið í hefðina og samfest- ingarnir gerðir að skylduklæðn- aði kylfusveina á Mastersmótinu. Kylfusveinar geta verið mis- jafnir. Eitt sinn mætti Birgir Leif- ur Hafþórsson með gamlan vin sinn, Hlöðver Tómasson, sem kylfusvein á mót í Grafarholti. Á hinni snúnu 15. holu, sem er par 5, var Birgir að velta fyrir sér hvort hann ætti að taka á áhættu og reyna við flötina í öðru höggi. Þá gall í Hlöðveri: „No guts, no glory.“ Við svo búið sló Birgir inn á flötina og vann sjálfsagt mótið eins og hans var háttur. Hlöðver hefur ekki tekið að sér fleiri kylfusveinsstörf en sagan lifir. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir leikur til úrslita um sænska meistara- titilinn í blaki með félagsliði sínu Hylte/Halmstad en liðið vann Örebro 3:0 í undanúrslitum í Halmstad. Sigur Hylte/Halmstad var afar sannfærandi en liðið vann fyrsta settið 25:20, annað settið 25:7 og það þriðja 25:18. Jóna Guðlaug átti frábæran leik og var valin kona leiksins en liðið mætir Engelholm í úrslitaeinvígi um sænska meistaratitilinn. Fyrsti úrslitaleikur liðanna fer fram í dag. bjarnih@mbl.is Leikur til úrslita í Svíþjóð Ljósmynd/HHVolley Svíþjóð Norðfirðingurinn gerir það gott í blakinu í Svíþjóð. Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er á óskalista þýska félagsins Schalke samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Miðjumað- urinn, sem er 29 ára gamall, er samningsbundinn Darmstadt í þýsku B-deildinni en samningur hans við þýska félagið rennur út sumarið 2022. Guðlaugur Victor gekk til liðs við Darmstadt frá Zü- rich í janúar 2019 og hefur þótt einn besti miðjumaður deild- arinnar. Schalke leikur að óbreyttu í B-deildinni næsta vetur en liðið er langneðst í þýsku 1. deildinni. Schalke vill fá Guðlaug Victor Morgunblaðið/Eggert Flutningur? Guðlaugur Victor Páls- son myndi ekki flytja langt. HM 2021 Kristján Jónsson kris@mbl.is Kvennalandsliðið í handknattleik mætir Slóveníu í Ljubljana í dag. Er það fyrri leikur liðanna í umspili um laust sæti í lokakeppni HM sem fram fer á Spáni í desember. Örv- henta skyttan Birna Berg Haralds- dóttir er hóflega bjartsýn fyrir leik- ina gegn Slóveníu. Birna segir lið Slóveníu vera gott og hafa bætt sig mjög á undanförnum árum. Á hinn bóginn hefði Ísland getað lent á móti enn erfiðari andstæðingum í umspilinu að hennar mati og niður- staðan sé því ágæt. „Þetta er mjög spennandi enda er orðið langt síðan við fórum síðast á HM. Möguleikarnir eru bara góðir því við hefðum getað dregist á móti andstæðingum sem eru miklu betri en við á þessum tímapunkti. Við eigum alla vega möguleika gegn Slóveníu en það verður mikilvægt að komast vel frá fyrri leiknum. Við viljum ekki vera í slæmri stöðu fyr- ir síðari leikinn hér heima. Við höf- um æft vel og erum vel undirbúnar. Ég er mjög spennt en get við- urkennt að ég er orðin svolítið óþreyjufull að bíða,“ sagði Birna en landsliðið hefur fengið töluverðan tíma til að æfa fyrir leikina og kom þá nánast í beinu framhaldi af leikj- unum þremur í forkeppni HM sem spilaðir voru í Norður-Makedóníu. „Ég er mjög fegin að við skyldum fá þessa undanþágu [frá sóttvarna- reglum] til að æfa saman. Ef lands- liðið hefði ekki verið saman, og við hefðum undirbúið okkur nánast hver í sínu horni í æfingum án snertingar, þá væri verkefnið mun erfiðara. Okkur hefur tekist að nýta tímann vel bæði hvað varðar æfing- ar og fundi.“ Ryðgaðar í tapleiknum Í forkeppninni í Norður- Makedóníu tapaði Ísland fyrir gest- gjöfunum en vann örugga sigra gegn Grikklandi og Litháen. Birna Berg sagði liðið hafa verið ryðgað í fyrsta leik en stígandi hafi verið í leik liðsins þegar á leið. „Mér fannst vera stígandi í þessu. Síðustu tveir leikirnir voru fínir. Þótt mótstaðan væri ekki mikil þá héldum við alltaf áfram og náðum að gefa í. Á móti slakari liðum er hættan sú að falla niður á þeirra plan en við gerðum það ekki. Spila- mennskan var stöðug í þeim leikj- um. Á móti Makedóníu vorum við fín- ar í 45 mínútur. Ég er handviss um að við hefðum unnið þær make- dónsku ef við hefðum mætt þeim í öðrum eða þriðja leik því við vorum svolítið ryðgaðar á móti þeim í fyrsta leiknum. En mér fannst gott að afgreiða hina tvo leikina vel.“ Þekkir andstæðingana Birna Berg hefur leikið víða er- lendis í atvinnumennskunni. Í Nor- egi, Svíþjóð, Danmörku og Þýska- landi. Hefur hún spilað á móti mörgum leikmönnum slóvenska liðsins? „Já ég hef nú sennilega spilað á móti þeim flestum. Auk þess kann- ast maður við nöfnin þar sem mað- ur horfir á handbolta endalaust. Í slóvenska liðinu eru leikmenn sem spila í Meistaradeildinni og maður hefur séð þær þar. Þær þekkja kannski okkur minna,“ sagði Birna en nokkrar þeirra slóvensku eru komnar í undanúrslit í Meist- aradeildinni með sínum félagsliðum. Eru því í hæsta gæðaflokki í íþrótt- inni. „Framundan hjá þeim er að spila í úrslitahelginni í Meistaradeildinni. Vonandi reyna þær þá að hlífa sér eitthvað í þessum leikjum á móti okkur. En við ætlum að berjast í 120 mínútur og sýna hvað í okkur býr. Slóvenía er gott lið og er vax- andi. Þær hafa sýnt á undanförnum árum að þær eru á uppleið. Við mættum þeim fyrir nokkrum árum og gerðum jafntefli en eftir það hafa þær tekið miklum framförum og stimplað sig vel inn á Evrópu- og heimsmeistaramótin,“ sagði Birna Berg Haraldsdóttir ennfremur í samtali við Morgunblaðið á lands- liðsæfingu í Mosfellsbæ í vikunni. Góður aðbúnaður í Slóveníu Mbl.is náði sambandi við Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóra HSÍ, í gær, en hann er fararstjóri í Ljubljana. Íslenska liðið skilaði sér á hótelið eftir miðnætti aðfaranótt föstudagsins eftir tímafrekt ferða- lag eins og gert hafði verið ráð fyr- ir. „Ferðalagið gekk mjög vel og það er ekki yfir neinu að kvarta. Við er- um með frábæran aðbúnað á Grand-hóteli og okkur skortir ekki neitt. Þetta er samt sem áður mikil fjarvera fyrir leikmenn, bæði frá vinnu og sínum fjölskyldum, og ég er virkilega þakklátur leikmönn- unum að gefa kost á sér í þetta verkefni og taka þátt í þessu með okkur. Vonandi tekst okkur að upp- skera eftir því,“ sagði Róbert meðal annars í samtali við Bjarna Helga- son en lengra viðtal við hann er að finna á mbl.is/sport frá því í gær. „Er mjög fegin að við skyldum fá undanþágu“ - Birna Berg hefur spilað á móti flestum leikmönnum Slóveníu á síðustu árum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á Varmá Landsliðskonurnar Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Þórey Rósa Stefánsdóttir, Birna Berg Haraldsdóttir og Eva Björk Davíðsdóttir hita upp fyrir æfingu í Mosfellsbænum í vikunni. Heimsmeistaramót kvenna í handknattleik fer fram á Spáni dagana 2. til 19. desember á þessu ári. Þar leika 32 þjóðir og hafa sex Evrópuþjóðir tryggt sér keppnisrétt. Það eru gestgjafar Spánar, heimsmeistarar Hollands og svo Króatía, Danmörk, Frakkland og Noregur sem fara beint á HM sem bestu liðin á Evrópumótinu 2020. Evrópa fær tíu sæti til viðbótar og mun því eiga helming þátttökuþjóða í lokakeppninni. Um þessi tíu sæti leika tuttugu þjóðir í umspilinu þessa dag- ana. Í gær léku Ítalía – Ungverjaland, Austurríki – Pólland, Tyrkland – Rússland og Svartfjallaland – Hvíta-Rússland fyrri leiki sína. Í dag mætast síðan Tékkland – Sviss, Slóvenía – Ísland, Slóvakía – Serbía, Úkraína – Sví- þjóð, Rúmenía – Norður-Makedónía og Portúgal – Þýskaland. Seinni leikirnir í umspilinu fara fram dagana 18. til 21. apríl. Ísland og Slóvenía leika síðasta leikinn á Ásvöllum á miðvikudagskvöldið kemur, 21. apríl, klukkan 19.45. Síðan eiga eftir að bætast við sex lið frá Asíu, fjögur frá Afríku, þrjú frá Suður- og Mið-Ameríku og eitt frá Norður-Ameríku og Karíbahafi. Þá get- ur Eyjaálfa fengið eitt sæti, eftir gengi liða þaðan í undankeppninni í Asíu, en síðan getur IHF úthlutað einu eða tveimur síðustu sætunum til þjóða sem hafa ekki tryggt sér keppnisrétt. Leiðin í lokakeppni HM 2021 Íslandsmótið í knattspyrnu hefst föstudaginn 30. apríl, átta dögum síðar en upphaflega var áætlað. KSÍ kynnti í gærmorgun nýja nið- urröðun á keppni í úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildinni, og þar verður upphafsleikurinn, milli Vals og ÍA, leikinn á Hlíðarenda umrætt föstudagskvöld. Fyrsta umferðin verður að öðru leyti leikin 1. og 2. maí. Á laugar- deginum mætast HK – KA, Fylkir – FH og Stjarnan – Leiknir R., en á sunnudeginum Víkingur R. – Kefla- vík og Breiðablik – KR. Leikið verður afar þétt fyrsta mánuðinn en frá 30. apríl til 30. maí fara fram sjö umferðir í deildinni, ef engin frekari röskun verður á mótinu. Þá tekur við tveggja vikna hlé vegna landsleikja. Keppni í Mjólkurbikar karla hefst næsta föstudag, 23. apríl, og Mjólkurbikar kvenna fer af stað 26. apríl. KSÍ ákvað í gær að aflýsa því sem eftir var af Lengjubikar karla og kvenna og fella niður Meistara- keppni KSÍ í ár. Keppni í öðrum deildum er sam- kvæmt upphaflegri niðurröðun og raskast ekkert. Pepsi Max-deild kvenna fer af stað 4. maí eins og til stóð og fyrstu deildir karla og kvenna hefjast 6. maí en 2. deild karla fer af stað 7. maí. Leikið mjög þétt í maí- mánuði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.