Morgunblaðið - 17.04.2021, Page 42

Morgunblaðið - 17.04.2021, Page 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Í síkvikri mótun: Vitund og náttúra nefnist sýning sem opnuð verður kl. 10 í dag, laugardag, í sýningarýminu Hvelfingu í kjallara Norræna húss- ins. Þar er varpað fram „svipmynd- um af upplifunum, hugleiðingum og rannsóknum listamanna á sviði myndlistar, tónlistar, hönnunar og sviðslista, sem búa á hinum síkvika útjaðri norðursins“, eins og segir í tilkynningu og er þar einnig bent á að náttúran móti manngert um- hverfi og hið manngerða hafi áhrif á náttúruna, „hvort tveggja nú í eins konar hröðun sem okkur rekur ekki minni til að hafi átt sér stað áður“. Sýnendur eru Berglind María Tómasdóttir, Bryndís Snæbjörns- dóttir & Mark Wilson, Emilie Dalum & Michael Richardt, Inuuteq Storch, Jóhan Martin Christiansen, Ólöf Nordal, Tinna Gunnarsdóttir, Rikke Luther og Thomas Pausz en einnig taka þátt Ana Luisa S. Diaz De Cossio og Khetsin Chuchan. Sýn- ingarstjórar eru Hanna Styrmis- dóttir og Hulda Stefánsdóttir, myndlistarmaður og sviðsforseti akademískrar þróunar í Listahá- skóla Íslands (LHÍ) en nemendur í námskeiði í sýningagerð og sýninga- stjórnun við LHÍ tóku einnig þátt í gerð sýningarinnar. Frestað vegna kófsins Hulda segir sýninguna eiga sér langa forsögu. Hún sé samstarfs- verkefni Listaháskóla Íslands og Norræna hússins í Reykjavík og framlag Listaháskólans til ráðstefnu UArctic (Háskóla norðurslóða) sem verði haldin í Reykjavík um miðjan maí í tilefni af formennsku Íslands í norðurskautsráðinu. Hulda segir að ráðstefnan og sýningin hafi átt að fara fram samhliða ráðstefnu Arctic Circle í október í fyrra sem ekkert varð af vegna kófsins og ráðstefna UArctic hafi verið færð eins langt aftur og mögulegt var. „Við erum með málstofu á ráðstefnunni sjálfri en ákváðum að við yrðum líka að koma okkar framlagi til skila með aðferðum listanna,“ segir Hulda. Stefnumót fjögurra þjóða „Það sem okkur langaði að gera – og við fengum til þess styrk frá nor- rænu ráðherranefndinni – var að stefna saman okkar rannsakendum og listamönnum innan Listaháskól- ans, akademískum starfsmönnum, meistaranemum í einhverjum til- fellum og síðan listamönnum frá þessum vestnorrænu löndum ásamt Danmörku,“ segir Hulda en vestnor- rænu löndin eru Grænland, Ísland og Færeyjar. „Þannig þróaðist þetta verkefni til þess sem nú er orðið, ansi viðamikil sýning með þátttöku listamanna og hönnuða og Hanna Styrmisdóttir kom hér inn sem sýn- ingarstjóri ásamt mér en hún er að stýra nýrri meistaranámsleið í sýn- ingagerð við LHÍ.“ Öll fagsviðin Þátttakendur í sýningunni eru ekki aðeins myndlistarmenn heldur koma þeir úr fleiri greinum. Má sem dæmi nefna að Berglind María Tóm- asdóttir er prófessor í tónlistardeild LHÍ og Tinna Gunnarsdóttir er pró- fessor í hönnunardeild líkt og Thom- as Pausz sem er lektor og fagstjóri meistaranáms í hönnun. „Við vildum draga fram breitt fagsvið listanna,“ segir Hulda og nefnir líka Michael Richardt sem er í meistaranámi í sviðslistum og Emilie Dalum sem er myndlistarmaður í námi í sýninga- gerð. Ana Luisa S. Diaz De Cossio og Khetsin Chuchan munu flytja eigið tónverk, innblásið af verki Tinnu Gunnarsdóttur en þau eru nemendur á meistaranámsbrautinni Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf við tónlistardeild LHÍ. Hulda segist þess fullviss að framlag lista og hönnunar sé mikilvæg rödd í samtali fræðasviða um norðurslóðir í fortíð, samtíð og framtíð. Persónulegar upplifanir Hulda segir að ætlunin sé einnig að benda á áhrifin sem hnattræn hlýnun hafi á sjálfsmynd þeirra sem bygg}ja norðurslóðir. Náttúran hafi áhrif á vitund okkar og móti sjálfs- skilning þjóðanna sem byggja svæð- ið. „Hér eru listamenn einnig að tak- ast á við persónulegri upplifanir sínar innan stóra samhengisins,“ segir hún um sýnendur og því megi líka sjá á sýningunni sögur af sam- félögum og einstaklingum en ekki bara náttúrunni, þótt allt sé þetta samverkandi. „Þetta er sýning sem þarf að gefa tíma, þetta eru margslungin verk,“ segir Hulda að lokum en opnunin í dag verður haldin í samræmi við sóttvarnareglur og er 20 manna fjöldatakmörkun á hverjum tíma. Hvelfing er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 10-17. Morgunblaðið/Eggert Í Hvelfingu Sýningarstjórarnir Hulda Stefánsdóttir og Hanna Styrmisdóttir á sýningunni í Norræna húsinu. Mikilvæg rödd í sam- tali um norðurslóðir - Í síkvikri mótun: Vitund og náttúra í Norræna húsinu Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir opnar sýningu í Listamönnum gall- eríi að Skúlagötu 32 í dag, laugar- dag, kl. 13. Jóhanna starfar bæði í Reykjavík og Antwerpen í Belgíu og hefur hún sýnt verk sín víða, bæði hér á landi og erlendis. Sýningin í Listamönnum galleríi nefnist Hæg hreyfing og sýnir Jóhanna formræn málverk ásamt minni veggverkum þar sem hún tekst á við uppbygg- ingu forma og lita innan marka flat- arins, eins og því er lýst á facebook- síðu sýningarinnar. Jóhanna fæst iðulega við marg- þættar innsetningar þar sem hún fléttar saman ólíkum miðlum, segir þar, svo sem hefðbundnum mál- verkum, viðarskúlptúrum, vídeó- verkum og textum. Segir að í verk- um hennar megi finna óhlutbundnar birtingarmyndir á ljóðrænni tján- ingu út frá því formræna tungumáli sem hún vinni með. Einstök leik- gleði ríki í verkum Jóhönnu sem eigi jafnt í samtali við samtímann sem og listasöguna. Leikgleði Óhlutbundin verk Jóhönnu Kristbjargar einkennast af leikgleði. Formræn málverk og minni veggverk Vorflug á veirutímum er yfirskrift sýningar Jóhönnu V. Þórhallsdóttur, myndlistar- og söngkonu, sem opnuð verður í Gallerí Göngum við Háteigs- kirkju á morgun, sunnudag, milli kl. 14 og 17. Allar sóttvarnareglur eru virtar á staðnum og gestir velkomn- ir. Samkvæmt upplýsingum frá Jóhönnu er hún mikil vorkona. „Hún er fædd í hrútsmerkinu og á einmitt afmæli á opnunardaginn. Tónlistin leikur stórt hlutverk þegar hún mál- ar og þessi verk eru mörg, til að mynda unnin við margs konar tón- list, bæði djass og klassík,“ segir í til- kynningu. Þar kemur fram að um sé að ræða sjöundu einkasýningu Jóhönnu hér á landi, en síðast tók hún þátt í samsýningu í Bad Reichen- hall í Suður-Þýskalandi. „Jóhanna lauk meistaranámi hjá prófessor Heribert Ottersbach í Þýskalandi í nóvember 2019. Áður hefur Jóhanna lokið námi hjá Markúsi Lüpertz í Þýskalandi að afloknu námi hér heima. Jóhanna hefur stjórnað sýn- ingum í Gallerí Göngum frá 2018.“ Sýningin er opin á virkum dögum milli kl. 10 og 16, en eftir samkomu- lagi um helgar. Nánari upplýsingar um afgreiðslutíma má sjá á vefnum: hateigskirkja.is. Vorflug á veirutímum í Gallerí Göngum Hrútur Jóhanna V. Þórhallsdóttir fagnar afmæli sínu með sýningaropnun. Samtal nefnist samsýning Elínar Þ. Rafnsdóttur og Gunnhildar Ólafs- dóttur sem opnuð verður í sal Ís- lenskrar grafíkur í Hafnarhúsi, hafnarmegin, í dag, laugardag, frá kl. 14 til 17. „Elín og Gunnhildur eiga það sam- eiginlegt að náttúran hefur verið inn- blástur í verkum þeirra þó útfærslan sé ólík. Báðar vinna þær í krossviðar- plötur, Elín með tölvustýrða fræsivél og resin en Gunnhildur vinnur með tréristuverkfærum og solarplate. Segja má að grafíklistin hafi gengið í endurnýjun lífdaganna bæði með stafrænni tækni og alls kyns til- raunastarfsemi,“ segir um sýninguna í tilkynningu og að Elín og Gunn- hildur hafi báðar tekið virkan þátt í sýningum hérlendis og erlendis. Sýningin stendur yfir til 2. maí og er salurinn opinn frá fimmtudegi til sunnudags kl. 14-17. Samtal Elínar og Gunnhildar Náttúra Verk eftir Gunnhildi Ólafsdóttur. Davíð sá sem liggur hér á beði sínum á verkstæði handverksmanna í Flór- ens er ekki sá rúmlega fimm metra hái sem Michelangelo hjó út í marm- ara í byrjun 16. aldar. Sú fræga höggmynd meistarans af unga manninum sem felldi risann Golíat með skoti úr slöngvivað stendur í Galleria dell’ Accademia þar í borg en þetta er nákvæm eftirmynd marmarastyttunnar, prentuð með nýjustu tækni út úr þrívíddarprent- ara, úr akrýlresini. Var verkið prentað út í 14 hlutum sem síðan voru felldir saman. Hér bíður Davíð þess að vera þakinn marmaradufti til að eftirmyndin verði sem líkust frummyndinni. Styttan verður síðan send til Dubaí þar sem hún verður á mikilli sýningu, Dubai Expo 2021. Markmiðið er að kynna hvað þrívíddarprentun getur nýst vel og með margskonar hætti í listsköpun og umsýslu með listaverk. AFP Eftirmynd Tæknimenn og listfræðingar sem skönnuðu og prentuðu út í þrívíddarprentara eftirmynd Davíðs sýna verkið hér fjölmiðlafólki. Splunkunýr Davíð prentaður í þrívídd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.