Morgunblaðið - 17.04.2021, Page 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
AF LISTUM
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Hvaða áhrif hefur það á fólk aðlifa í lífslygi? Hvenær hætt-ir manneskja, sem telur sig
þurfa að hylma yfir fortíð sína, að
ljúga aðeins að öðrum og fer einnig
meðvitað eða ómeðvitað að ljúga að
sjálfri sér? Hvernig réttlætum við
gjörðir okkar – nú eða afskiptaleysi
sem haft getur afdrifaríkar afleiðing-
ar? Hvaða aðferðum beitum við til að
deyfa sektarkenndina, kæfa skömm-
ina og útiloka óttann við fordæmingu
annarra? Þetta eru meðal þeirra
spurninga sem sjónvarpsþáttaröðin
Systrabönd í leikstjórn Silju Hauks-
dóttur veltir upp. Þættina, sem eru
sex talsins, skrifaði Silja í samvinnu
við Björgu Magnúsdóttur, Jóhann
Ævar Grímsson og Jóhönnu Friðriku
Sæmundsdóttur. Þeir fóru í sýningu í
heild sinni um páskana í Sjónvarpi
Símans Premium.
Ég ráðlegg þeim sem eiga eftir að
sjá sjónvarpsþáttaröðina og ekki
vilja vita of mikið um innihald hennar
að hætta lestri hér.
Þættirnir gerast að stærstum
hluta í núinu, en reglulega birtast
brot úr fortíðinni og fer slíkum minn-
ingabrotum fjölgandi eftir því sem
fram vindur. Þáttaröðin fer rólega af
stað með kynningu aðalpersóna.
Elísabet, Anna Sigga og Karlotta eru
allar um fertugt og voru samloku-
vinkonur þegar þær voru á alast upp
í Ólafsvík þó leiðir hafi síðan að
mestu skilið. Elísabet (Lilja Nótt
Þórarinsdóttir/Thea Snæfríður
Kristjánsdóttir) virðist hafa alist upp
á fyrirmyndarheimili og valið að feta
í fótspor föður síns og gerast prestur.
Út á við virðist hún hamingjusam-
lega gift Pétri (Sveinn Geirsson),
syni varðstjórans í Ólafsvík, og er
nýsnúin aftur til starfa eftir fæðing-
arorlof. Meðal þeirra sem mæta í
fermingarfræðslu til hennar er stjúp-
dóttirin Viktoría (Gríma Valsdóttir),
sem eiginmaðurinn eignaðist í fram-
hjáhaldi.
Anna Sigga (Jóhanna Friðrika
Sæmundsdóttir/Iðunn Ragnars-
dóttir) starfar sem kokkur á veit-
ingahúsi, en dreymir um að opna
veisluþjónustu sem býður upp á fjöl-
skylduvænni vinnutíma. Hún er ein-
stæð móðir unglingspiltsins Sigga
(Ágúst Örn B. Wigum) og hugsar
einnig um móður sína, Kristrúnu
(Sóley Elíasdóttir), sem glímir við
erfið veikindi. Samskipti mæðgnanna
eru enn lituð af því ofbeldi sem við-
gengst á æskuheimilinu í Ólafsvík.
Karlotta (Ilmur Kristjánsdóttir/
Auður Aradóttir), sem er barnlaus,
starfar sem hjúkrunarfræðingur á
sjúkrahúsi. Hún er óvirkur fíkill í
bata, sem sækir sér hugarró í handa-
vinnu og jóga. Allar þrjár hafa þær
valið sér starf sem felur í sér að hlúa
að manneskjunni bæði andlega og
líkamlega.
Snemma í fyrsta þættinum finn-
ast, skammt frá heimabæ kvennanna
þriggja, líkamsleifar táningsstúlk-
unnar Hönnu (Sóley Ásta Andreu-
dóttir) sem hvarf sporlaust á miðjum
tíunda áratugnum og ekkert hefur
spurst til síðan með tilheyrandi sorg
fyrir Rut, móður hennar (María
Heba Þorkelsdóttir). Áverkar á
höfuðkúpunni benda til þess að
þungt höfuðhögg hafi orðið Hönnu að
bana. Í endurminningabrotum verð-
ur fljótt ljóst að samskipti stúlkn-
anna fjögurra enduðu með voveifleg-
um hætti sumarnótt eina fyrir aldar-
fjórðungi.
Þó þættirnir séu drifnir áfram af
sakamálarannsókn lögreglutvíeyk-
isins Veru (Halldóra Geirharðsdótt-
ir) og Einars (Jónmundur Grétars-
son), vita áhorfendur allan tímann
hverjar eru sekar. Hér er því ekki
spurt hver framdi glæpinn, heldur
miklu fremur hvers vegna var hann
framinn og hverjar hafa afleiðing-
arnar verið fyrir gerendurna, móður
þolandans og bæjarfélagið. Við fáum
að fylgjast með angist kvennanna
þriggja yfir því að upp um þær kom-
ist með þeim afleiðingum að þær
þurfi að taka út refsingu sína sam-
kvæmt lögum, en líka ótta þeirra við
að sannleikurinn muni þýða að lífi
þeirra eins og þær þekkja það sé lok-
ið. Á sama tíma glíma þær við djúp-
stæða sektarkennd, enda fær engin
manneskja flúið sjálfa sig þó vissu-
lega sé hægt að setja upp grímu út á
við og flytjast landshorna á milli.
Handritshöfundarnir eiga sérstakt
hrós skilið fyrir að skrifa mörg bita-
stæð og áhugaverð kvenhlutverk.
Hér birtast okkur m.a. breyskar kon-
ur sem auðveldlega má hafa samúð
með á sama tíma og gjörðir þeirra
eru fordæmdar. Sérlega áhugavert
er að fylgjast með dýnamíkinni í
samskiptum Elísabetar, Önnu Siggu
og Karlottu í núinu, því þær hafa
mismikilla hagsmuna að gæta sem
skapar ákveðið ójafnræði í tengslum
þeirra. Af ýmsum ástæðum er
Elísabet sú sem hefur mestu að tapa
og er því líka sú sem gengur hvað
lengst í því að hylma yfir verknað
þeirra. Tilraunir hennar til að halda
öllu sléttu og felldu á yfirborðinu
birtist í stjórnsemi hennar og því
hvernig hún teflir Önnu Siggu og
Karlottu stöðugt hvorri á móti
annarri til að skapa sjálfri sér skjól.
Annað áhugavert rannsóknarefni
handritshöfundanna er stéttaskipt-
ingin sem birtist í Systraböndum.
Þættirnir vekja okkur þannig til
umhugsunar um það hvort og hvers
vegna sumir þykja merkilegri pappír
en aðrir. Hefði hvarf Hönnu verið
tekið alvarlegar og leitin orðið viða-
meiri ef um hefði verið að ræða dótt-
ur prestsins eða son varðstjóra bæj-
arins í stað dóttur drykkfelldrar
einstæðrar móður sem nýflutt var í
plássið? Ef allar manneskjur eru
jafnar fyrir guði, hvers vegna sætt-
um við okkur þá við kerfisbundið
ójafnræði sem er mannanna smíð?
Loks má nefna að handritshöfund-
arnir vinna afar vel með speglun milli
kynslóða, sem birtist m.a. í því
hvernig stjúpdóttir Elísabetar og
sonur Önnu Siggu lenda í vandræð-
um á djamminu. Sjónum er þannig
markvisst beint að neikvæðum af-
leiðingum áfengisneyslu sem slævt
getur dómgreind fólks með alvar-
legum afleiðingum, þó ekki séu þær
alltaf banvænar. Einnig sjáum við
þau neikvæðu áhrif sem þöggun eldri
kynslóðarinnar getur haft.
Silja Hauksdóttir sýnir hér og
sannar hversu góður leikstjóri hún
er, því leikhópurinn allur skilar frá-
bærri frammistöðu. Eðli málsins
samkvæmt mæðir mest á Lilju Nótt
Þórarinsdóttur, Jóhönnu Friðriku
Sæmundsdóttur og Ilmi Kristjáns-
dóttur í hlutverkum Elísabetar,
Önnu Siggu og Karlottu. Allar ná
þær að miðla sársaukanum, sorginni,
óttanum og skömminni með svo
áhrifaríkum hætti að það lætur eng-
an ósnortinn. Líkt og í kvikmyndinni
Agnes Joy miðlar þögnin oft meiru
en löng samtöl og Silja leyfir okkur
að lesa tjáninguna úr andlitum per-
sóna t.d. meðan þær sitja undir stýri
eða hlusta á hljóðupptökuna af því
sem gerðist nóttina örlagaríku. Sen-
ur flæða iðulega hver ofan í aðra með
þeim hætti að hljóðið byrjar áður en
við sjáum persónurnar sem tala, sem
kallast markvisst á við endurlitin úr
fortíðinni þar sem sömu minninga-
brotin frá sumarnóttinni endalausu
eru líkt og spiluð í hugum æskuvin-
kvennanna aftur og aftur og aftur.
Hljóðheimur Jófríðar Ákadóttur er
sérlega áhrifaríkur þar sem drynj-
andi bassinn líkir eftir hröðum hjart-
slætti og langir skerandi tónar vekja
ónotakennd sem kallast sterklega á
við erfitt umfjöllunarefnið. Hér er
ljóst að vandað hefur verið til verka á
öllum póstum og er þáttaröðin lista-
fólkinu til mikils sóma.
Stuttu eftir frumsýningu serí-
unnar fór af stað umræða á samfél-
agsmiðlum þess efnis að líkindi væru
milli Systrabanda og leikritsins
Hystory eftir Kristínu Eiríksdóttur
sem sýnt var í Borgarleikhúsinu fyrir
sex árum og undirrituð hreifst af.
Verkin eiga það vissulega sameigin-
legt að í forgrunni eru þrjár stúlkur
sem ráðist hafa á þá fjórðu með
alvarlegum afleiðingum. Sá grund-
vallarmunur er hins vegar á verk-
unum tveimur að í Hystory virðast
stúlkurnar hafa skipulagt árásina í
hefndarskyni vegna ástarsorgar
einnar úr hópnum auk þess sem
strax komst upp um verknaðinn með
þeim afleiðingum að mál þeirra rat-
aði fyrir dóm og hefur þannig fylgt
þeim út í lífið. Ekki er hægt að sjá að
árásin í Systraböndum sé með nein-
um hætti skipulögð heldur fremur af-
leiðing rifrildis á fylleríi þar sem talið
beinist aðallega að foreldrum stúlkn-
anna, auk þess sem verknaðurinn
kemst ekki upp fyrr en löngu seinna.
Fyrir vikið er jafnt söguuppleggið,
persónusköpunin og drifkrafturinn í
samskiptum persóna gjörólíkt. Vel
kann hins vegar að vera að höfundar
beggja listaverka séu innblásnir af
sömu árás unglingsstúlkna í raun-
veruleikanum. Alvarleg árás þriggja
unglingsstúlkna á 15 ára stúlku í
miðborg Reykjavíkur haustið 1993,
með þeim afleiðingum að hún lam-
aðist, situr vafalítið enn í mörgum,
sem og stórfelld árás fjögurra ung-
lingsstúlkna í miðbæ Akraness í upp-
hafi árs 1996 á 16 stúlku sem hlaut
lífshættulega höfuðáverka, þeirra á
meðal höfuðkúpubrot. Af nýlegri
dæmum má nefna hópárás unglings-
stúlkna á 15 ára stúlku í Heiðmörk
árið 2009 þar sem þrjár stúlkur höfðu
sig mest í frammi og töldu sig eiga
óuppgerðar sakir við þolandann og
loks hættuleg árás þriggja unglings-
stúlkna á þá fjórðu á bílaplani Lang-
holtsskóla árið 2016.
Fréttir af ofbeldisárásum vekja
ávallt óhug, ekki síst þegar börn og
ungmenni eru í hópi gerenda. Auð-
velt er að skrímslavæða gerendurna,
en dæmin sýna okkur hins vegar að
þau sem ofbeldi beita eru iðulega oft
sjálf líka þolendur. Þó reiði í garð
gerenda sé eðlileg tilfinning er hún, í
bland við fordæmingu og útskúfun,
ekki gagnleg í baráttunni við ofbeldi.
Þar skipta forvarnir, aukið aðhald,
tafarlaus úrræði, raunverulegur
stuðningur, samtöl og virk hlustun
mestu máli.
Ber mér að gæta systur minnar?
Ljósmynd/Juliette Rowland
Sálusorgari Elísabet (Lilja Nótt Þórarinsdóttir) starfar
sem prestur, er gift og annast uppeldi tveggja barna.
Ljósmynd/Juliette Rowland
Umönnun Karlotta (Ilmur Kristjánsdóttir) starfar á
sjúkrahúsi, er barnlaus og glímir við fíknivanda sinn.
Ljósmynd/Sagafilm
Næring Anna Sigga (Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir)
starfar sem kokkur og er einstæð móðir unglingspilts.
Ljósmynd/Birta Rán
Ungar Elísabet (Thea Snæfríður Kristjánsdóttir), Karlotta
(Auður Aradóttir) og Anna Sigga (Iðunn Ragnarsdóttir).
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Nýskráður 03/2020, ekinn 9þkm, bensín & rafmagn (plug in hybrid,
56 km drægni), sjálfskiptur. Leður, 19“ álfelgur, stafrænt mælaborð,
hiti og kuldi í sætum. 360° bakkmyndavél
og miklu meira. Raðnúmer 252399
SKODA SUPERB IV LIMO LAURIN &
K
M.BENZ C 300e 4MATIC
AMLEMENT (L&K)
Nýskráður 01/2020, ekinn 14 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid
50 km drægni), sjálfskiptur 9 gíra, fjórhjóladrifinn. AMG útlit og
19“ AMG álfelgur. glerþak, stafrænt mælaborð og mikið fleira.
Raðnúmer 251912
G line
VERÐ 6.250.000 VERÐ 8.690.000
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringd
eða sendu okkur
skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson
og Árni Sveinsson
u
M.BENZ A 250e
P
Nýskráður 06/2020, ekinn 3 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid,
69km drægni), sjálfskiptur, stafrænt mælaborð, 18“ álfelgur o.fl.
Raðnúmer 252254
ROGRESSIVE
VERÐ 5.990.000