Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021 AF LISTUM Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Hvaða áhrif hefur það á fólk aðlifa í lífslygi? Hvenær hætt-ir manneskja, sem telur sig þurfa að hylma yfir fortíð sína, að ljúga aðeins að öðrum og fer einnig meðvitað eða ómeðvitað að ljúga að sjálfri sér? Hvernig réttlætum við gjörðir okkar – nú eða afskiptaleysi sem haft getur afdrifaríkar afleiðing- ar? Hvaða aðferðum beitum við til að deyfa sektarkenndina, kæfa skömm- ina og útiloka óttann við fordæmingu annarra? Þetta eru meðal þeirra spurninga sem sjónvarpsþáttaröðin Systrabönd í leikstjórn Silju Hauks- dóttur veltir upp. Þættina, sem eru sex talsins, skrifaði Silja í samvinnu við Björgu Magnúsdóttur, Jóhann Ævar Grímsson og Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur. Þeir fóru í sýningu í heild sinni um páskana í Sjónvarpi Símans Premium. Ég ráðlegg þeim sem eiga eftir að sjá sjónvarpsþáttaröðina og ekki vilja vita of mikið um innihald hennar að hætta lestri hér. Þættirnir gerast að stærstum hluta í núinu, en reglulega birtast brot úr fortíðinni og fer slíkum minn- ingabrotum fjölgandi eftir því sem fram vindur. Þáttaröðin fer rólega af stað með kynningu aðalpersóna. Elísabet, Anna Sigga og Karlotta eru allar um fertugt og voru samloku- vinkonur þegar þær voru á alast upp í Ólafsvík þó leiðir hafi síðan að mestu skilið. Elísabet (Lilja Nótt Þórarinsdóttir/Thea Snæfríður Kristjánsdóttir) virðist hafa alist upp á fyrirmyndarheimili og valið að feta í fótspor föður síns og gerast prestur. Út á við virðist hún hamingjusam- lega gift Pétri (Sveinn Geirsson), syni varðstjórans í Ólafsvík, og er nýsnúin aftur til starfa eftir fæðing- arorlof. Meðal þeirra sem mæta í fermingarfræðslu til hennar er stjúp- dóttirin Viktoría (Gríma Valsdóttir), sem eiginmaðurinn eignaðist í fram- hjáhaldi. Anna Sigga (Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir/Iðunn Ragnars- dóttir) starfar sem kokkur á veit- ingahúsi, en dreymir um að opna veisluþjónustu sem býður upp á fjöl- skylduvænni vinnutíma. Hún er ein- stæð móðir unglingspiltsins Sigga (Ágúst Örn B. Wigum) og hugsar einnig um móður sína, Kristrúnu (Sóley Elíasdóttir), sem glímir við erfið veikindi. Samskipti mæðgnanna eru enn lituð af því ofbeldi sem við- gengst á æskuheimilinu í Ólafsvík. Karlotta (Ilmur Kristjánsdóttir/ Auður Aradóttir), sem er barnlaus, starfar sem hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsi. Hún er óvirkur fíkill í bata, sem sækir sér hugarró í handa- vinnu og jóga. Allar þrjár hafa þær valið sér starf sem felur í sér að hlúa að manneskjunni bæði andlega og líkamlega. Snemma í fyrsta þættinum finn- ast, skammt frá heimabæ kvennanna þriggja, líkamsleifar táningsstúlk- unnar Hönnu (Sóley Ásta Andreu- dóttir) sem hvarf sporlaust á miðjum tíunda áratugnum og ekkert hefur spurst til síðan með tilheyrandi sorg fyrir Rut, móður hennar (María Heba Þorkelsdóttir). Áverkar á höfuðkúpunni benda til þess að þungt höfuðhögg hafi orðið Hönnu að bana. Í endurminningabrotum verð- ur fljótt ljóst að samskipti stúlkn- anna fjögurra enduðu með voveifleg- um hætti sumarnótt eina fyrir aldar- fjórðungi. Þó þættirnir séu drifnir áfram af sakamálarannsókn lögreglutvíeyk- isins Veru (Halldóra Geirharðsdótt- ir) og Einars (Jónmundur Grétars- son), vita áhorfendur allan tímann hverjar eru sekar. Hér er því ekki spurt hver framdi glæpinn, heldur miklu fremur hvers vegna var hann framinn og hverjar hafa afleiðing- arnar verið fyrir gerendurna, móður þolandans og bæjarfélagið. Við fáum að fylgjast með angist kvennanna þriggja yfir því að upp um þær kom- ist með þeim afleiðingum að þær þurfi að taka út refsingu sína sam- kvæmt lögum, en líka ótta þeirra við að sannleikurinn muni þýða að lífi þeirra eins og þær þekkja það sé lok- ið. Á sama tíma glíma þær við djúp- stæða sektarkennd, enda fær engin manneskja flúið sjálfa sig þó vissu- lega sé hægt að setja upp grímu út á við og flytjast landshorna á milli. Handritshöfundarnir eiga sérstakt hrós skilið fyrir að skrifa mörg bita- stæð og áhugaverð kvenhlutverk. Hér birtast okkur m.a. breyskar kon- ur sem auðveldlega má hafa samúð með á sama tíma og gjörðir þeirra eru fordæmdar. Sérlega áhugavert er að fylgjast með dýnamíkinni í samskiptum Elísabetar, Önnu Siggu og Karlottu í núinu, því þær hafa mismikilla hagsmuna að gæta sem skapar ákveðið ójafnræði í tengslum þeirra. Af ýmsum ástæðum er Elísabet sú sem hefur mestu að tapa og er því líka sú sem gengur hvað lengst í því að hylma yfir verknað þeirra. Tilraunir hennar til að halda öllu sléttu og felldu á yfirborðinu birtist í stjórnsemi hennar og því hvernig hún teflir Önnu Siggu og Karlottu stöðugt hvorri á móti annarri til að skapa sjálfri sér skjól. Annað áhugavert rannsóknarefni handritshöfundanna er stéttaskipt- ingin sem birtist í Systraböndum. Þættirnir vekja okkur þannig til umhugsunar um það hvort og hvers vegna sumir þykja merkilegri pappír en aðrir. Hefði hvarf Hönnu verið tekið alvarlegar og leitin orðið viða- meiri ef um hefði verið að ræða dótt- ur prestsins eða son varðstjóra bæj- arins í stað dóttur drykkfelldrar einstæðrar móður sem nýflutt var í plássið? Ef allar manneskjur eru jafnar fyrir guði, hvers vegna sætt- um við okkur þá við kerfisbundið ójafnræði sem er mannanna smíð? Loks má nefna að handritshöfund- arnir vinna afar vel með speglun milli kynslóða, sem birtist m.a. í því hvernig stjúpdóttir Elísabetar og sonur Önnu Siggu lenda í vandræð- um á djamminu. Sjónum er þannig markvisst beint að neikvæðum af- leiðingum áfengisneyslu sem slævt getur dómgreind fólks með alvar- legum afleiðingum, þó ekki séu þær alltaf banvænar. Einnig sjáum við þau neikvæðu áhrif sem þöggun eldri kynslóðarinnar getur haft. Silja Hauksdóttir sýnir hér og sannar hversu góður leikstjóri hún er, því leikhópurinn allur skilar frá- bærri frammistöðu. Eðli málsins samkvæmt mæðir mest á Lilju Nótt Þórarinsdóttur, Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur og Ilmi Kristjáns- dóttur í hlutverkum Elísabetar, Önnu Siggu og Karlottu. Allar ná þær að miðla sársaukanum, sorginni, óttanum og skömminni með svo áhrifaríkum hætti að það lætur eng- an ósnortinn. Líkt og í kvikmyndinni Agnes Joy miðlar þögnin oft meiru en löng samtöl og Silja leyfir okkur að lesa tjáninguna úr andlitum per- sóna t.d. meðan þær sitja undir stýri eða hlusta á hljóðupptökuna af því sem gerðist nóttina örlagaríku. Sen- ur flæða iðulega hver ofan í aðra með þeim hætti að hljóðið byrjar áður en við sjáum persónurnar sem tala, sem kallast markvisst á við endurlitin úr fortíðinni þar sem sömu minninga- brotin frá sumarnóttinni endalausu eru líkt og spiluð í hugum æskuvin- kvennanna aftur og aftur og aftur. Hljóðheimur Jófríðar Ákadóttur er sérlega áhrifaríkur þar sem drynj- andi bassinn líkir eftir hröðum hjart- slætti og langir skerandi tónar vekja ónotakennd sem kallast sterklega á við erfitt umfjöllunarefnið. Hér er ljóst að vandað hefur verið til verka á öllum póstum og er þáttaröðin lista- fólkinu til mikils sóma. Stuttu eftir frumsýningu serí- unnar fór af stað umræða á samfél- agsmiðlum þess efnis að líkindi væru milli Systrabanda og leikritsins Hystory eftir Kristínu Eiríksdóttur sem sýnt var í Borgarleikhúsinu fyrir sex árum og undirrituð hreifst af. Verkin eiga það vissulega sameigin- legt að í forgrunni eru þrjár stúlkur sem ráðist hafa á þá fjórðu með alvarlegum afleiðingum. Sá grund- vallarmunur er hins vegar á verk- unum tveimur að í Hystory virðast stúlkurnar hafa skipulagt árásina í hefndarskyni vegna ástarsorgar einnar úr hópnum auk þess sem strax komst upp um verknaðinn með þeim afleiðingum að mál þeirra rat- aði fyrir dóm og hefur þannig fylgt þeim út í lífið. Ekki er hægt að sjá að árásin í Systraböndum sé með nein- um hætti skipulögð heldur fremur af- leiðing rifrildis á fylleríi þar sem talið beinist aðallega að foreldrum stúlkn- anna, auk þess sem verknaðurinn kemst ekki upp fyrr en löngu seinna. Fyrir vikið er jafnt söguuppleggið, persónusköpunin og drifkrafturinn í samskiptum persóna gjörólíkt. Vel kann hins vegar að vera að höfundar beggja listaverka séu innblásnir af sömu árás unglingsstúlkna í raun- veruleikanum. Alvarleg árás þriggja unglingsstúlkna á 15 ára stúlku í miðborg Reykjavíkur haustið 1993, með þeim afleiðingum að hún lam- aðist, situr vafalítið enn í mörgum, sem og stórfelld árás fjögurra ung- lingsstúlkna í miðbæ Akraness í upp- hafi árs 1996 á 16 stúlku sem hlaut lífshættulega höfuðáverka, þeirra á meðal höfuðkúpubrot. Af nýlegri dæmum má nefna hópárás unglings- stúlkna á 15 ára stúlku í Heiðmörk árið 2009 þar sem þrjár stúlkur höfðu sig mest í frammi og töldu sig eiga óuppgerðar sakir við þolandann og loks hættuleg árás þriggja unglings- stúlkna á þá fjórðu á bílaplani Lang- holtsskóla árið 2016. Fréttir af ofbeldisárásum vekja ávallt óhug, ekki síst þegar börn og ungmenni eru í hópi gerenda. Auð- velt er að skrímslavæða gerendurna, en dæmin sýna okkur hins vegar að þau sem ofbeldi beita eru iðulega oft sjálf líka þolendur. Þó reiði í garð gerenda sé eðlileg tilfinning er hún, í bland við fordæmingu og útskúfun, ekki gagnleg í baráttunni við ofbeldi. Þar skipta forvarnir, aukið aðhald, tafarlaus úrræði, raunverulegur stuðningur, samtöl og virk hlustun mestu máli. Ber mér að gæta systur minnar? Ljósmynd/Juliette Rowland Sálusorgari Elísabet (Lilja Nótt Þórarinsdóttir) starfar sem prestur, er gift og annast uppeldi tveggja barna. Ljósmynd/Juliette Rowland Umönnun Karlotta (Ilmur Kristjánsdóttir) starfar á sjúkrahúsi, er barnlaus og glímir við fíknivanda sinn. Ljósmynd/Sagafilm Næring Anna Sigga (Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir) starfar sem kokkur og er einstæð móðir unglingspilts. Ljósmynd/Birta Rán Ungar Elísabet (Thea Snæfríður Kristjánsdóttir), Karlotta (Auður Aradóttir) og Anna Sigga (Iðunn Ragnarsdóttir). Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! Nýskráður 03/2020, ekinn 9þkm, bensín & rafmagn (plug in hybrid, 56 km drægni), sjálfskiptur. Leður, 19“ álfelgur, stafrænt mælaborð, hiti og kuldi í sætum. 360° bakkmyndavél og miklu meira. Raðnúmer 252399 SKODA SUPERB IV LIMO LAURIN & K M.BENZ C 300e 4MATIC AMLEMENT (L&K) Nýskráður 01/2020, ekinn 14 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid 50 km drægni), sjálfskiptur 9 gíra, fjórhjóladrifinn. AMG útlit og 19“ AMG álfelgur. glerþak, stafrænt mælaborð og mikið fleira. Raðnúmer 251912 G line VERÐ 6.250.000 VERÐ 8.690.000 Þessir síungu strákar eru klárir í að selja bílinn þinn Kíktu við, hringd eða sendu okkur skilaboð! Hlökkum til! Indriði Jónsson og Árni Sveinsson u M.BENZ A 250e P Nýskráður 06/2020, ekinn 3 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid, 69km drægni), sjálfskiptur, stafrænt mælaborð, 18“ álfelgur o.fl. Raðnúmer 252254 ROGRESSIVE VERÐ 5.990.000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.