Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2021
Þ
ann 25. febrúar síðastliðinn
hlaut listamannatvíeykið
Libia Castro og Ólafur
Ólafsson Íslensku mynd-
listarverðlaunin fyrir tónlistar-,
gjörnings- og myndlistarverkið Í
leit að töfrum – Tillaga að nýrri
stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland.
Þessi fjölþætta uppákoma fór fram
í Listasafni Reykjavíkur 3. október
og hófst með fjögurra tíma flutn-
ingi tónlistamanna á greinum nýju
stjórnarskrárinnar innan um inn-
setningu listamannanna í porti
Hafnarhússins. Að flutningi lokn-
um lögðu hinir fjölmörgu þátttak-
endur gjörningsins leið sína að
Stjórnarráðinu og Alþingi og höfðu
meðferðis stóra, bleika satínborða
sem á stóð „Nýju stjórnarskrána
strax takk!“ með svörtum hástöf-
um. Á sýningunni í Hafnarfirði,
Töfrafundur – Áratug síðar gefst
áhorfendum tækifæri til að skoða
upptökur frá framkvæmd þessa
margmiðlaverks; hlýða og horfa á
flutning tónlistarmanna, fletta upp
í upptökum, skoða lagalegar frum-
heimildir í bland við myndræn drög
og aðrar táknmyndir mótmæla, svo
sem potta og pönnur.
Í samtali við Val Brynjar
Antonsson heimspeking nota þau
Libia og Ólafur tækifærið til að
þakka og tileinka Myndlist-
arverðlaunin öllum þeim sem komu
að þróun, gerð og framkvæmd sýn-
ingarinnar. Titillinn Töfrafundur –
Áratug síðar vísar nefnilega í þann
stóra hóp sem kom að framkvæmd
verksins sem myndar í raun grunn-
samfélag sýningarinnar. Að verk-
inu komu hundruð einstaklinga;
tónlistarfólk, kórar, aðgerðasinnar,
félagasamtök, verkefnastjórar,
upptöku- og hljóðupptökufólk,
handverksfólk, lögfræðingar og að-
ildarfélög, auk aðstandenda
Listahátíðarinnar Cycle og
Listahátíðar í Reykjavík.
Sýningin lifandi fyrirbæri
Titill sýningarinnar staðsetur
áhorfendur í tíma og strengir línu á
milli dagsins í dag og aftur til árs-
ins 2011 þegar niðurstöður Stjórn-
lagaráðs um nýja stjórnarskrá voru
samþykktar með þjóðaratkvæða-
greiðslu. Það liggur beinast við að
skoða sýninguna út frá þróun mála-
flokksins þar sem inntak sýningar-
innar byggist á og hverfist sannar-
lega um innleiðingu nýju stjórnar-
skrárinnar.
Einnig er áhugavert að skoða
sýninguna sem lifandi fyrirbæri
sem þróast og mótast og undir-
strikar einmitt aðlögunarhæfni list-
arinnar og þá eiginleika hennar að
geta verkað sem samfélagslegt
hreyfiafl. Báðir þessir fundir, þá
fyrst Stjórnlagaþingið og nú áratug
síðar Töfrafundur, eiga það sam-
merkt að draga saman ótal ein-
staklinga, hugmyndir og hugsjónir
í þeim tilgangi að móta og varpa
ljósi á sameiginlega framtíðarsýn.
Töfrafundurinn í Hafnarborg er
áminning um það sem á undan hef-
ur gengið og hvatning til að halda
stefnu er varðar grunnlög landsins.
Að þessu leyti er sýningin sérstak-
lega gott dæmi um samtímasýningu
sem tekur á málefnum líðandi
stundar með virkum og síbreyti-
legum hætti. Á þeim fimm mán-
uðum sem hafa liðið síðan verkið Í
leit að töfrum var framkvæmt í
Hafnarhúsinu hefur inntak sýning-
arinnar vaxið og boðskapurinn ver-
ið uppfærður. Því myndi það ekki
koma á óvart ef sýningin myndi
taka enn frekari breytingum áður
en hún verður tekin niður í maí. En
þá gætu meðal annars viðfangsefni
Töfrasmiðjunnar litið dagsins ljós.
Tónlistarflutningur vegur þungt
á Töfrafundinum og kom fjölmargt
tónlistarfólk með ólíkan bakgrunn
fram í verkinu Í leit að töfrum.
Hanna Styrmisdóttir, prófessor í
sýningarstjórn, lýsir í sýningarskrá
aðdraganda Í leit að töfrum en
hann má meðal annars má rekja til
samstarfs Libiu og Ólafs við tón-
skáldið Karólínu Eiríksdóttur en
hún útsetti tónverkið Stjórnarskrá
lýðveldisins Íslands (2008-11) við
núgildandi stjórnarskrá fyrir söng,
kór og slagverk árið 2007.
Ef athyglinni er beint að stíl-
brögðum sýningarinnar má sjá vís-
un í veggjalist (e. graffiti). Stíl-
brögðin einkennast af ákveðinni
leturgerð sem finna má á borðum,
veggspjöldum og söluvarningi, sem
og á veggjum og gangstéttum
borgarinnar í aðdraganda fram-
kvæmdar Í leit að töfrum. Samstarf
sem Libia og Ólafur áttu í því ferli
við Samtök kvenna um nýja
stjórnarskrá einkenndist ekki að-
eins af hugmyndafræðilegum sam-
hug heldur rímar spyrjandi slagorð
félagsins „Hvar er nýja stjórnar-
skráin?“ einnig við einkennisorð
sýningarinnar.
Ákall eftir stjórnarskrá
Í nútímasamhengi má rekja
veggjalist til New York-borgar á 7.
áratug síðustu aldar. Þá varð
sprenging í þessari dráttlist sem
prýddi veggi og lestarvagna í al-
mannarými borgarinnar. Skila-
boðin eða töggin (e. tag) voru hönn-
uð til að þess að vekja athygli á
færni listamannsins, á umráða-
svæði sem og að gefa vísbendingu
um staðhætti. Í einföldu máli þá
lýsti taggið því yfir að listamað-
urinn hefði verið hér, ætti heima
hér og eða bæri ábyrgð á tilteknu
svæði. Fyrir þá sem vilja fá innsýn
í heim veggjalistar má mæla með
kvikmyndinni Style Wars frá árinu
1983. Kvikmyndin er óður til
veggjalistar og hipphopp-
tónlistarmenningar í New York.
Finna má líkindi í stílbrögðum og
inntaki sýningarinnar og stíl-
brögðum og inntaki veggjalista-
manna. Þá vísa ég ekki aðeins til
leturgerðar og stenslanotkunar,
heldur einnig til þeirrar viðspyrnu
sem einkennir miðlun þessara
tveggja ólíkra listamannahópa. Þá
mætti einnig nefna nýtingu á al-
mannarýminu og notkun tónlistar
til að sameina almenning og vekja
máls á aðkallandi samfélagslegu
málefni.
Töfrafundur – Áratug síðar er
ákall eftir innleiðingu nýju
stjórnarskrárinnar. „Við eigum
nýja stjórnarskrá“ var kallað á leið-
inni frá Hafnarhúsinu til Alþingis.
Listin rétt eins og pólitíkin er lif-
andi fyrirbæri, í sífelldri mótun og
býr við stöðuga endurskoðun. Nú
árið 2021 sjáum við listina eiga
fund með pólitíkinni í sal Hafnar-
borgar. En hvort sem Töfrafundur
– Áratug síðar er skoðaður sem
pólitísk ádeila, margmiðla listaverk
eða hvort tveggja, þá er rauði þráð-
urinn nokkuð skýr. Hvernig við
sem samfélag göngumst við okkar
samfélagslegu ábyrgð gefur kom-
andi kynslóðum hugmynd um hver
hafi verið hér, átt heima hér og
hvernig hafi verið borin ábyrgð á
landinu. Slíkt tímaflakk er töfrum
líkast.
Hafnarborg
Töfrafundur – Áratug síðar
bbbbb
Sýning Libiu Casto & Ólafs Ólafssonar í
Hafnarborg í Hafnarfirði, 20. mars til
30. maí 2021.
Opið er frá miðvikudegi til mánudags kl.
12-17. Lokað á þriðjudögum. Aðgangur
ókeypis.
KARINA
HANNEY
MYNDLIST
Veggtexti „Finna má líkindi í stílbrögðum og inntaki sýningarinnar og stíl-
brögðum og inntaki veggjalistamanna,“ segir um nálgun Libiu og Ólafs.
Verkið vex og sýningin með
Gjörningur Á skjá má sjá gjörninginn „Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri
stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland“ sem var framkvæmdur í október sl.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á sýningunni „Hvort sem „Töfrafundur – Áratug síðar“ er skoðaður sem pólitísk ádeila, margmiðla listaverk eða
hvort tveggja, þá er rauði þráðurinn nokkuð skýr,“ skrifar rýnir og segir tímaflakkið vera „töfrum líkast“.