Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 17.04.2021, Qupperneq 48
Hnúkaþeyr stendur fyrir tónleikum í 15:15-tónleika- syrpunni í Breiðholtskirkju í dag kl. 15:15. Teflt er fram norrænni tónlist fyrir blásarakvintett ásamt tónlist frá Bretlandi og Ungverjalandi eftir Pál Pampichler Páls- son, Kára Bæk, Malcolm Arnold og Ferenc Farkas. „Tón- listin er litrík enda samin fyrir fimm nokkuð ólík hljóð- færi, flautu, óbó, klarínett, horn og fagott,“ segir í tilkynningu. Hljóðfæraleikarar á tónleikunum eru Berg- lind Stefánsdóttir, Eydís Franzdóttir, Ármann Helgason, Anna Sigurbjörnsdóttir og Kristín Mjöll Jakobsdóttir. Miðasala er á tix.is, tónleikunum er einnig streymt á vefnum: www.1515.is/streymi. Hnúkaþeyr á 15:15-tónleikum í dag Tíu íslenskar konur leika í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á keppnistímabilinu sem hefst í dag og þær eru helmingi fleiri en á síðasta ári. Einu sinni áður hafa jafnmargar íslenskar konur leikið í deildinni og það var líka einu ári fyrir stórmót. Fjallað er um Íslend- ingana í deildinni í íþróttaopnunni í dag. » 40 Helmingi fleiri í Svíþjóð en í fyrra Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Viðbrögðin hafa verið jákvæð, fólk er þakklátt fyrir að hafa þennan möguleika til að sækja sér huggun, styrk eða blessun í dagsins önn. Þakklæti fólksins er mín laun,“ segir Jón Oddgeir Guðmundsson á Akur- eyri sem haldið hefur úti Orði dagsins í hálfa öld upp á dag í dag. Í Orð dagsins getur fólk hringt og hlustað á lestur, ritningarorð eða lestur úr Biblíunni og er ávallt nýr texti á hverjum degi. Fyrsti lesturinn fór í loftið 17. apríl árið 1971. Síma- númerið er 462-1840. Jón Oddgeir segir að vinur sinn einn hafi heyrt um það í bresku út- varpi að fólk gæti hringt í ákveðið símanúmer og fengið guðsorð beint í eyrað. „Mér fannst þetta alveg frá- bær hugmynd og fór strax að vinna í því að setja upp valkost af þessu tagi,“ segir hann. Fyrirkomulagið var með þeim hætti fyrstu árin að Jón Oddgeir leigði síma og símsvara af Pósti og síma sem þá var og hét og greiddi töluvert háa upphæð í afnotagjöld. Las hann ýmist sjálfur ritningarvers hvers dags eða fékk vini í lið með sér. Lesið var inn á stórar átta rása kass- ettur og fært yfir á símsvara. Hver lestur var að jafnaði um þrjár mín- útur. Tæknin krafðist þess að lesari sæti við tækið á meðan lestur fór fram. „Tækninni hefur í tímans rás fleygt mikið fram,“ segir hann. Nú er lesið inn á talhólf og það er hægt að gera hvar sem er. Talhólfið tekur þó einungis við einni mínútu þannig að tíminn sem gefst til að hlusta á guðs orð hefur styst.“ Bílabænin fjáröflun „Þetta var töluvert mál hér áður fyrr og kostaði þó nokkra fjármuni,“ segir Jón Oddeir, sem ári síðar gaf út bílabænina, lítinn límmiða með stuttri bæn til ökumanna þar sem minnt er á ábyrgð þeirra við aksturinn. Bíla- bæninni hafi verið ætlað að vera fjár- öflun fyrir Orð dagsins og staðið und- ir væntingum því hún hafi ávallt selst vel. Hann segir að viðtökur hafi verið góðar og á fyrstu árunum hafi níutíu til hundrað hringingar verið í sím- svarann daglega. Nú hin síðari ár hef- ur hringingum fækkað enda margt annað í boði í gjörbreyttu samfélagi frá fyrri tíð. „Það er samt alltaf einhver notkun, tíu til tólf hringingar á dag. Fólk sem hringir ef til vill inn til að leita sér huggunar á erfiðum tímum og það gleður mig ef það finnur hana í Orði dagsins hverju sinni.“ Mitt framlag til samfélagsins Jón Oddgeir er við þokkalega heilsu en segir sjón sinni hafa hrakað umtalsvert með árunum. Hann er með stóran skjá frá Þjónustumiðstöð blindra og sjónskertra sem gerir hon- um kleift að halda starfinu áfram. Það hafi um árin gefið sér mikið og verið uppörvandi fyrir sig að finna þakklæti þeirra sem nýttu sér þjón- ustuna, það hafi haldið sér við efnið og gert að verkum að úthaldið sé svo mikið sem raun ber vitni. „Þetta er mitt framlag til samfélagins og þakk- lætið sem ég finn fyrir er mín laun,“ segir hann. Engar tekjur eru af þess- ari starfsemi en umtalsverður kostn- aður á fyrri árum. Askjan í 18.500 eintökum Jón Oddgeir gefur út bílabænina sem fyrr segir og að auki hefur hann gefið út borðdagatal með yfirskrift- inni „Orð Guðs í dagsins önn“, þar sem er að finna ritningarorð úr Biblí- unni fyrir hvern dag, alla daga ársins, auk útskýringa. Vikudagarnir eru ekki sérstaklega merktir þannig að hægt er að nota það ár eftir ár. Eins hefur hann gefið út litla öskju, „Orð Guðs til þín úr Biblíunni“, en hún inniheldur spjöld með versum og hef- ur notið mikilla vinsælda. Fyrsta askjan kom út árið 1984 og hefur verið endurútgefin þrettán sinnum, síðast árið 2020, og eru eintökin orðin 18.500. Jón Oddgeir rekur Litla húsið í miðbæ Akureyrar, verslun þar sem ýmislegt kristilegt efni er í boði. Hann hefur frá barnæsku tekið þátt í kristilegu starfi í heimabæ sínum. Hefur setið í sóknarnefnd Akur- eyrarkirkju óslitið frá árinu 1985, var kirkjuvörður í Glerárkirkju í ellefu ár og þá hefur hann mikið starfað innan KFUM og K. Orð dagsins í hálfa öld - Fólk sækir sér huggun og styrk í dagsins önn, segir Jón Oddgeir Guðmundsson, umsjónarmaður Orðs dagsins Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Jón Oddgeir Guðmundsson hefur boðið upp á Orð dagsins í hálfa öld, fyrsti lesturinn með texta úr Biblíunni var 17. apríl árið 1971. Verslun Jón Oddgeir rekur einnig Litla húsið í miðbæ Akureyrar. Flatahrauni 27 • 220 Hafnarfjörður sími 788 3000 • gottogblessad.is Opið virka daga 11-18 / laugardaga 11-15 Tagliatelle KAJA ORGANIC Pastasósa THE HUNGRY CHEF Uxahakk LITLA ÁRMÓT Brúnó geitaostur BRÚNASTAÐIR FLJÓTUM BRÚNASTAÐIR Bragðgott dæmi um veislu beint úr héraði íslensk FRAMLEIÐSLA • beint frá bónda LAUGARDAGUR 17. APRÍL 107. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.