Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar á sanngjörnu verði og að auki förum við með bílinn þinn í endurskoðun, þér að kostnaðarlausu. Freyr Bjarnason Guðrún Hálfdánardóttir Sigurður Bogi Sævarsson Í þeim tilfellum af kórónuveirunni sem greind hafa verið hér á landi síð- ustu daga hafa tvö afbrigði komið fram, bæði sem fyrst greindust í Bretlandi. Sömuleiðis tengjast smitin fólki sem kom hingað til lands og sinnti því ekki að fara í sóttkví. Þetta segir Jóhann Björn Skúlason, yfir- maður smitrakningar almannavarna- deildar ríkislögreglustjóra og land- læknis. Skólar og fiskvinnsla Smitið á leikskólanum Jörfa við Hæðargarð í Reykjavík tengist manni sem kom til landsins rétt fyrir sl. mánaðamót og fór óvarlega. Afleið- ingin er að meira en 100 fjölskyldur eru í sóttkví og 36 eru smitaðir af Co- vid-19. Þar eiga í hlut 14 börn og 16 starfsmenn leikskólans Auk þeirra eru 6 smit tengd fjölskyldum viðkom- andi. Tilvik sem kom upp á Íslenska barnum við Ingólfsstræti í Reykjavík er tengt þessu hópsmiti. Eins smit í Sæmundarskóla í Grafarholti, þar greindist barn í 2. bekk með Covid-19. Hitt smitið tengist Íslensku sjáv- arfangi við Bakkabraut í Kópavogi. Þar eru tilfellin átta talsins. Ekki er þó um að ræða sama smit á leikskól- anum og í fiskvinnslunni. Jóhann Björn segir að það hafi sýnt sig og sannað að sóttkví virkar vel sem vörn svo lengi sem fólk fer eftir reglum, það er að vera ekki í sam- skiptum við aðra. Tilgangurinn með því að skikka fólk sem kæmi frá ákveðnum löndum á sóttkvíarhótel hafi verið að tryggja slíkt enn betur. Dapurlegt væri að sjá afleiðingar þess þegar einn sem kemur að landa- mærunum fer óvarlega – svo hundrað fjölskyldur hafa þurft í sóttkví. Einn getur valið bylgju Kórónuveirusmit sem greindust um helgina sýna hvernig eitt smit get- ur sett af stað hópsýkingu og jafnvel bylgju, sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi í gær. Ráðist var í víðtækar skimanir vegna hópsýkinga og einnig átti að taka stikkprufur til að kanna út- breiðslu. Um 2.800 manns komu í sýnatöku á Suðurlandsbraut í gær. Þórólfur sagði niðurstöðurnar mundu hjálpa til við að sjá hvort þurfi að grípa til harðari sóttvarnaráðstaf- ana. Í öllu falli væri ljóst að tryggja þyrfti landamærin vel. Í gær voru 92 í eftirliti á Covid-19- göngudeild Landspítala. Þriðjungur þeirra er börn. Starfsfólk deildarinn- ar er vel búið undir fjölgun smita, að sögn Ragnars Freys Ingvarssonar umsjónarlæknis „Erum með innvið- ina tilbúna sé fjórða bylgjan komin,“ sagði Ragnar. Dapurlegar afleiðingar þegar einn fer óvarlega - Landspítalinn búinn undir fjórðu bylgjuna af Covid-19 Morgunblaðið/Eggert Upplýsingafundur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir á upplýsingafundi um kórónuveirufaraldurinn í gærmorgun. 40 ný innanlandssmitgreindust sl. helgi 386 einstaklingareru í sóttkví 922 einstaklingareru í skimunarsóttkví 97 eru meðvirkt smit og í einangrun Fjöldi smita Heimild: covid.is Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl Fullbólusettir: 29.686 einstak-lingar 17. aprí: 13 smit 18. aprí: 27 smit Gunnhildur Sif Oddsdóttir Freyr Bjarnason Skert lykt og bragð tengist sterkt Covid-19-sýkingu en lagast með tímanum. 32% þeirra sem greindust með Covid-19 voru með alvarleg einkenni 5-11 mánuðum síðar. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Hilmu Hólm hjartalæknis og Ernu Ívars- dóttur tölfræðings á langtíma- áhrifum SARS-CoV-2-sýkinga sem kynntar voru á fræðslufundi Ís- lenskrar erfðagreiningar í gær. Tvær aðrar rannsóknir voru kynnt- ar á fundinum. Í september 2020 hóf Íslensk erfðagreining að bjóða þeim sem sýkst höfðu af Covid-19 að koma í rannsókn til þess að meta heilsu- farsafleiðingar. Einstaklingarnir tóku þátt í rannsókninni 5-11 mán- uðum eftir að sýking greindist. Niðurstöður lyktarprófsins voru þá þær að eftir því sem lengri tími er liðinn frá greiningu fer hlutfall þeirra sem skimast með skert lyktarskyn að lækka. „Þeir sem komu 5-6 mánuðum eftir greiningu skimuðust 20% með skert lyktarskyn en ef það voru 9-11 mánuðir liðnir frá greiningu skim- uðust 8% með skert lyktarskyn og þá er ekki lengur munur á þeim og viðmunarhópnum svo þetta sýnir að lyktarskynið batnar með tímanum,“ sagði Erna. Önnur einkenni voru meðal ann- arra mæði, minnistruflanir, þreyta, slappleiki, brjóstverkir og hraður hjartsláttur. 32% þeirra sem fengu Covid-19 eru með veru- leg slík einkenni 5-11 mánuðum eftir sýkingu. „Við sjáum líka að það er um þriðjungur sem er að kljást við mikil einkenni ennþá, mæði og minnistruflun. Við verð- um aftur að hafa í huga að þetta eru algeng einkenni úti í samfélag- inu, þannig að 14% einstaklinga sem voru ekki veikir eru líka með svipuð einkenni,“ sagði Hilma í samtali við mbl.is. Þessi einkenni tengjast mjög al- varleika veikinda. „Því veikari sem þú varst, því verr líður þér núna 5- 11 mánuðum síðar,“ sagði Hilma. „Það sem við sjáum síðan líka er að tíðni þessara einkenna er ekki mikið að minnka með tíma frá sýk- ingu. Það er að segja þetta er jafn algengt hjá þeim sem komu til okk- ar 5 mánuðum eftir veikindi og 11 mánuðum eftir veikindi,“ sagði Hilma. „Tryllingslega gaman“ Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, sagði í samtali við mbl.is að það væri erfitt að segja hvað hefði staðið upp úr á fundinum. „Mér finnst mjög athyglisvert hvernig við höfum búið til forsendur fyrir almennilegri smitrakningu. Að raðgreina veiruna úr hverjum ein- asta manni sem hefur sýkst og nýta síðan stökkbreytingarmynstrið til að rekja hvernig veiran breiðist út,“ segir Kári. „Í dag getum við sagt nokkurn veginn nákvæmlega hver smitaði hvern og hverjir smituðust af sama einstaklingnum, það er að segja hverjir mynda eina einingu. Við get- um kallað það hópsmit þar sem allir hafa sýkst af sama afbrigði veir- unnar. Ef Pétur og Jón hafa sýkst og við erum að reyna að finna út hvort var það Pétur sem smitaði Jón eða Jón Pétur. Ef Pétur er með eina stökkbreytingu í viðbót við það sem finnst í Jóni er alveg ljóst að Jón hefur smitað Pétur. Það er ósköp einföld lógík,“ greinir hann frá. Kári viðurkennir að lokum hversu gaman sér hafi fundist að vinna að rannsóknum á kórónuveirunni. „Það er búið að vera alveg tryllingslega gaman,“ sagði Kári. 32% með einkenni mánuðum síðar - Þriðjungur með mikil einkenni 5 til 11 mánuðum eftir kórónuveirusýkingu - Stökkbreytingar- mynstrið nýtt til að rekja hvernig veiran breiðist út í samfélaginu - Lyktarskynið batnar að nýju Morgunblaðið/Eggert Íslensk erfðagreining Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, á fræðslufundi gærdagsins. Gert er ráð fyrir að yfir 12 þúsund einstaklingar verði bólusettir gegn kórónuveirunni í vikunni. Fram kemur á vef landlæknis- embættisins, að samtals verði 9.400 einstaklingar bólusettir með bólu- efni frá Pfizer, um 6.000 fá fyrri bólusetningu og 2.500 seinni bólu- setningu. Þar af voru um 2.000 heil- brigðisstarfsmenn á Landspítala bólusettir um helgina. Þá fá samtals 2.600 einstaklingar bóluefni frá Moderna, sem skiptist jafnt í fyrri og seinni bólusetningu. Einstaklingum á aldrinum 60-69 ára, sem ekki hafa áhættuþætti sem auka hættu á segamyndun, verður boðin bólusetning með AstraZeneca- bóluefni. Bólusetningar með Astra- Zenica hefjast aftur í vikunni og af fullum krafti í næstu viku, segir á vef landlæknis. Samtals hafa 100.168 skammtar verið gefnir af bóluefni hér á landi síðan bólusetning hófst. Alls hafa 70.482 einstaklingar fengið að minnsta kosti einn skammt og af þeim eru 29.686 einstaklingar full- bólusettir. 12 þúsund bólu- settir í vikunni - Byrjað að bólusetja 60 ára og eldri Morgunblaðið/Eggert Bólusetning Áformað er að bólu- setja yfir 12 þúsund í vikunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.