Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Allar niðurstöður leiða í þá átt að eftirsóknarvert sé að halda slíka viðburði, bæði efnahagslega og sam- félagslega. Það styrkir ímynd við- komandi svæðis og íbúarnir eru stoltir af viðburð- inum. Það var til dæmis mikill metnaður að halda landsmót á Hólum sumarið 2016 og gera það vel til þess að eiga kost á að fá viðburðinn aftur síðar,“ segir Ingi- björg Sigurðardóttir, deildarstjóri ferðamáladeildar Háskólans á Hól- um. Hún er einn þriggja ritstjóra bókar um hestaviðburði með áherslu á landsmót hestamanna, út frá viðburðastjórnunarfræðum. Bókin grundvallast á viðamikilli rannsókn á landsmóti hestamanna í um tuttugu ár, sérstaklega tveimur síðustu mótunum, á Hólum og í Reykjavík. Nítján höfundar frá fimm þjóðlöndum fjalla um viðburð- inn á grundvelli rannsókna sinna, frá ólíkum sjónarhólum. Heimafólk velviljað „Umfang landsmótsins er mikið og efnahagsleg áhrif gríðarlega mikil. Ljóst er að langtímaáhrif á þau svæði sem þau eru haldin á eru umtalsverð, kannski meiri en menn sjá í fljótu bragði,“ segir Ingibjörg um helstu niðurstöður en ítrekar jafnframt, það sem segir hér fram- ar, að höfundarnir nálgist viðfangs- efnið frá sínum sjónarhóli og því erfitt að tala um heildarniðurstöðu. Hún segir að landsmótin séu lyftistöng fyrir hestamennsku á svæðunum. Aðstaða sé byggð upp og þekking verði til. „Eitt af því sem mér finnst standa upp úr er hvað mikill velvilji er gagnvart við- burðinum, til dæmis í Skagafirði, að taka á móti fjölda fólks og hesta og það á einnig við um fólk sem ekki tengist hestamennsku. Það er viða- mikið fyrir lítið samfélag að taka á móti 8-10 þúsund gestum og 800- 1.000 hrossum. Því má líkja við inn- rás í samfélagið. Samt er mikil ánægja með viðburðinn,“ segir Ingi- björg. Bókin er gefin út af CABI Publ- isher og heitir „Humans, Horses og Events Management“, og eins og heiti hennar bendir til er sjónar- hornið vítt. Ingibjörg vekur athygli á því að þetta er fyrsta bók sinnar tegundar sem fjallar um hesta- viðburði sérstaklega. Þá hafi hún þá sérstöðu í viðburðastjórnunar- fræðum að fjalla um einn ákveðinn viðburð frá mörgum sjónarhornum. Rannsóknarverkefninu var stýrt af ferðamáladeildinni og er þetta stærsta rannsókn sem hún hefur tekið þátt í. Morgunblaðið/Eggert Víðidalur Síðasta landsmót hestamanna var haldið í Reykjavík 2018. Mótinu sem vera átti 2020 var frestað. Mikil efnahagsleg áhrif á landsmótssvæðunum - Fyrsta bók sem gefin er út um rannsóknir á hestaviðburði Ingibjörg Sigurðardóttir Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nyrsti gígurinn í Fagradalsfjalli sem opnaðist um hádegi annan dag páska er hættur að gjósa. Hraun frá honum rann m.a. niður í Meradali. Réttur mánuður var í gær síðan eldgosið hófst að kvöldi 19. mars. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suð- urlands setti færslu á Facebook. Þar segir m.a. að á mánaðarafmæli eld- gossins sé nokkuð ljóst að nyrsti gíg- ur gossprungunnar sé þagnaður. Á nýrri vefmyndavél RÚV sjáist ekki vottur af gufu stíga upp af gígnum og enginn bjarmi hafi sést í myrkri næt- urinnar. „Þessi gígur var mjög líflegur og reis nokkuð hratt fyrstu dagana. Var hann á endanum orðinn töluvert hærri í landslaginu en önnur gosop. Slíkar aðstæður geta ýtt undir það að kvikan á erfiðara með að komast upp um þetta tiltekna gosop og hefur flæðið því fundið sér auðveldari leið út um önnur op,“ sagði í færslunni. Hraunrennslið hefur aukist Jarðvísindastofnun Háskóla Ís- lands birti í gær nýjar mælingar á stærð hraunsins og hraunrennsli í eldgosinu. Þær voru byggðar á flugi yfir eldstöðvarnar í fyrradag. Teknar voru loftmyndir úr flugvél Garðaflugs með Hasselblad-myndavél Náttúru- fræðistofnunar. Unnin voru landlíkön af hrauninu í og umhverfis Geldinga- dali. Mælingin sýndi að hraunrennsli hefur aukist síðustu 1-2 vikurnar. Heildarrennsli frá öllum gígum á sex daga tímabili, 12.-18. apríl, var að meðaltali 7,8 rúmmetrar á sekúndu en var 4,5-5 rúmmetrar á sekúndu fyrstu sautján dagana. Meðalhraun- rennslið fyrstu 30 dagana er 5,6 rúm- metrar á sekúndu. Hraunrennslið er tiltölulega stöðugt samanborið við flest önnur eldgos. Jarðvísindastofn- un segir að niðurstaða nýjustu mæl- ingarinnar staðfesti að afl gossins hafi aukist nokkuð samhliða opnun fleiri gíga. Flatarmál hrauns er nú orðið 0,9 ferkílómetrar og heildar- rúmmál rúmlega 14 milljónir rúm- metra. „Besta leiðin til að meta stærð gossins í Fagradalsfjalli er að kort- leggja hraunið og reikna rúmmál þess á hverjum tíma. Þannig fæst meðalhraunrennsli milli mælinga,“ segir í frétt Jarðvísindastofnunar. Þar kemur einnig fram að hingað til hafi ekki komið fram neinar breyt- ingar í efnasamsetningu heildar- bergsýna. Mælingar á efnasamsetn- ingunni benda til þess að gangurinn dragi kviku frá djúpum kvikugeymi sem líklega liggur nærri mörkum skorpu og möttuls undir Reykjanes- skaga. Eldgosið lítið miðað við önnur Hraunrennslið nú er aðeins um helmingur þess sem kom upp að með- altali fyrstu tíu daga eldgossins á Fimmvörðuhálsi vorið 2010. Þó var það talið lítið gos, að sögn Jarðvís- indastofnunar. „Samanburður við Holuhraun sýn- ir að rennslið nú er 6-7% af meðal- hraunrennsli þá sex mánuði sem það gos stóð. Rennslið er svipað og var lengst af í Surtsey eftir að hraungos hófst þar í apríl 1964 til gosloka í júní 1967. Ekki er hægt að segja til um það nú hve lengi gosið muni standa, en þróun hraunrennslis með tíma mun gefa vís- bendingar þegar fram í sækir,“ segir í frétt Jarðvísindastofnunar. Kortlagning hraunsins er sam- starfsverkefni margra: Auk Jarðvís- indastofnunar koma Landmælingar, Náttúrufræðistofnun, Veðurstofan, Isavia og almannavarnir að því. Landsvirkjun tók þátt með leysi- skanna og aðgangur fékkst að franska Pléiades-gervitunglinu. Nyrsti gígurinn er hættur að gjósa - Hraunrennsli úr eldgosinu í Fagradalsfjalli jókst þegar gosopum fjölgaði - Stöðugt hraunrennsli miðað við önnur eldgos - Engar breytingar í efnasamsetningu bergsins - Eldgosið er mjög lítið Morgunblaðið/Eggert Fagradalsfjall Hraunrennslið í eldgosinu hefur verið tiltölulega stöðugt samanborið við flest önnur eldgos. Einkafyrirtækið Heilsuvernd hjúkrunarheimili ehf. tekur við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar af bæjarfélaginu um næstu mán- aðamót. Heilbrigðisráðherra hefur nú staðfest samning Sjúkratrygg- inga og fyrirtækisins um þessa yfirfærslu. Akureyrarbær hefur rekið Hlíð og Lögmannshlíð og tengda starf- semi. Samningurinn tekur til þjón- ustu í 173 hjúkrunarrýmum, 8 dval- arrýmum og 36 dagdvalarrýmum. Endar hafa ekki náð saman í rekstrinum hjá Akureyrarbæ og sagði bærinn upp samningum við Sjúkratryggingar vorið 2020. Sam- komulag hefur orðið um frestun yf- irfærslu þar til nú að nýr aðili tek- ur við eftir að Sjúkratryggingar auglýstu eftir samstarfsaðilum. Heilsuvernd er með fjölbreytta starfsemi á heilbrigðissviði, ekki síst fyrir fyrirtæki, og rekur heilsu- gæsluna í Urðarhvarfi. Teitur Guð- mundsson læknir er framkvæmda- stjóri fyrirtækisins. Núverandi starfsfólk Öldrunarheimila Akur- eyrar heldur áfram störfum, í þágu nýs rekstraraðila. helgi@mbl.is Heilsuvernd rekur hjúkrunarheimili - Tekur við af Akureyrarbæ 1. maí Morgunblaðið/Skapti Heimili Lögmannshlíð er nýjasta öldrunarheimilið á Akureyri. PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.