Morgunblaðið - 20.04.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsin, Veganbúðin,
Fiskkompaní Akureyri & Matarbúr Kaju Akranesi
Í grein í Morgunblaðinu í gærbirtir Þórarinn Hjaltason sam-
gönguverkfræðingur útreikninga
byggða á opinberum tölum, spá
og líkani. Þessir útreikningar
sýna að borgar-
línan skilar nánast
engum árangri við
að fjölga þeim sem
nýta almennings-
samgöngur. Þeir
sýna að borgar-
línan „mun í besta
falli leiða til þess
að bílaumferð 2040 verði 2-3%
minni en ella. Borgarlínan mun
samt ekki draga úr umferðar-
töfum, þar eð fyrirhugað er að
hún taki akreinar af almennri
umferð.“
- - -
Þetta er með miklum ólíkindummiðað við umræðuna og
áróðurinn sem haldið er að al-
menningi – á kostnað almenn-
ings.
- - -
En þegar horft er til kostn-aðarins við borgarlínuna
verður þetta enn meira sláandi.
Þórarinn bendir á að samtals sé
gert ráð fyrir að „verja um 100
milljörðum í samgönguinnviði á
tímabilinu 2019-2034 sem gera
nákvæmlega ekkert gagn við að
leysa umferðartafir“.
- - -
Þá bendir hann á að með „þvíað byggja létta útgáfu af
borgarlínu og gera mislæg gatna-
mót í stað stokka má stórauka
skilvirkni vegakerfisins. Það mun
skila viðbótararði upp á millj-
arðatugi á hverju ári.“
- - -
Hvenær og hvernig gerðistþað að sóun á milljarða-
tugum varð alveg sjálfsagt mál?
Getur verið að Íslendingar séu
orðnir svona ríkir? En væri þá
samt ekki nær að gera eitthvað
þarfara við peningana?
Þórarinn
Hjaltason
100 milljarðar
út um gluggann
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur
í dag verður lögð fram tillaga full-
trúa Sjálfstæðisflokksins um snjall-
væðingu á grunnskólastarfi í
Reykjavík. Til-
lagan gerir ráð
fyrir að í hverju
hverfi borgarinn-
ar verði settar
upp sköpunar-
smiðjur, Fab
Lab, sem verði
vettvangur og að-
staða fyrir ný-
sköpun og frum-
kvöðlastarf.
Einnig fái grunn-
skólar borgarinnar styrk til þess að
útbúa snjallstofur, en útfærsla verði
á höndum skólastjóra í hverjum
skóla. Markmiðið verði að innleiða
aukna tækni í skólastarfi svo börn
verði betur búin undir áskoranir
fjórðu iðnbyltingarinnar.
„Grunnur að framtíðinni er lagður
í skólastarfi og því mikilvægt að staf-
ræna umbreytingin nái líka þangað,“
segir Hildur Björnsdóttir borgar-
fulltrúi, sem mælir fyrir tillögunni.
Hún minnir á að borgarstjórn hafi
samþykkt í síðustu fjárhagsáætlun
að verja alls 10 milljörðum króna á
næstu þremur árum í stafræna um-
breytingu á þjónustu borgarinnar.
Hún telji stafrænu þróunina jákvætt
skref, sérstaklega ef hún leiði af sér
aukið hagræði og bæti þjónustu.
Stefið í tillögu dagsins er að allt að
10% af nefndri fjárhæð, einn millj-
arður króna, fari til snjallvæðingar í
skólum. Skólastjórnendum og þeim
sem fari með málefni nýsköpunar,
menntunar og tækni verði falin nán-
ari útfærsla. Markmiðið verði að
gefa nemendum og kennurum aukið
tækifæri til að tileinka sér tækni í
skólastarfi. Sköpunarsmiðjurnar,
Fab Lab, sameini færni í raungrein-
um, tækni, verkgreinum og sköpun
og gefi börnum mikilvægt tækifæri
til að þroska færniþætti framtíðar.
Rímar við menntastefnu
„Mér kæmi á óvart ef tillaga okkar
fengi ekki brautargengi, svo vel rím-
ar hún við menntastefnu Reykavík-
ur. Það er verkefni skólakerfisins að
tryggja öllum börnum jöfn tækifæri
til að leita hæfileika sinna, þroska þá
og skapa úr þeim tækifæri til fram-
tíðar. Við verðum að tryggja að
skólakerfið hafi færniþætti sem
verða taldir mikilvægir í framtíðinni,
svo sem seiglu, sköpun, gagnrýna
hugsun og lausnamiðaða nálgun.
Sköpunarsmiðjurnar geta sameinað
alla þessa þætti,“ segir Hildur
Björnsdóttir . sbs@mbl.is
Snjallt í skólana
- Sköpunarsmiðjur í hverfin - Fjórða
iðnbyltingin - Tillaga í borgarstjórn
Hildur
Björnsdóttir
Tveir framboðslistar í Norðaustur-
kjördæmi liggja nú fyrir vegna þing-
kosninganna í haust, hjá Framsókn-
arflokknum og Viðreisn. Nýir
oddvitar leiða listana, þau Eiríkur
Björn Björgvinsson fyrir Viðreisn,
fv. bæjarstjóri á Akureyri og Fljóts-
dalshéraði, og Ingibjörg Ólöf Isak-
sen fyrir Framsókn, framkvæmda-
stjóri Læknastofu Akureyrar.
Ingibjörg skákaði sitjandi þing-
manni Framsóknarflokksins í NA-
kjördæmi, Líneik Önnu Sævarsdótt-
ur, sem varð í 2. sæti í póstkosningu.
Ingibjörg fékk 612 atkvæði í 1. sæti
og Líneik fékk 529 atkvæði í 1.-2.
sæti. Jón Björn Hákonarson, bæjar-
stjóri í Fjarðabyggð og ritari Fram-
sóknarflokksins, sóttist einnig eftir
1. sætinu en komst ekki inn á lista
sex efstu í póstkosningunni.
Kosningin hjá Framsókn stóð yfir
1.-31. mars sl. en á kjörskrá voru
2.207 flokksmenn. Í þriðja sæti varð
Þórarinn Ingi Pétursson, varaþing-
maður og bóndi í Grýtubakkahreppi,
fékk 741 atkvæði í 1.-3. sæti.
Viðreisn tilkynnti í gær um tvo
efstu frambjóðendur sína í Norð-
austurkjördæmi. Flokkurinn fékk
ekki þingmann kjörinn í síðustu
kosningum, þegar Benedikt Jóhann-
esson, fv. formaður Viðreisnar,
leiddi listann. Í öðru sæti listans nú
verður Sigríður Ólafsdóttir, mann-
auðsráðgjafi og markþjálfi.
Viðreisn hyggst kynna framboðs-
listann nánar á næstunni, eins og það
var orðað í tilkynningu.
Nýir oddvitar í NA-kjördæmi
Ingibjörg Ólöf
Isaksen
Eiríkur Björn
Björgvinsson
- Ingibjörg leiðir
Framsókn og Eirík-
ur Björn Viðreisn