Morgunblaðið - 20.04.2021, Side 15

Morgunblaðið - 20.04.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 Hret Eftir góða tíð að undanförnu hafa íbúar á höfuðborgarsvæðinu þurft að sætta sig við snjókomu síðustu daga. Margir bíða spenntir eftir því hvernig muni viðra á sumardaginn fyrsta. Eggert Eftir rúmt ár af kórónuveirunni fer að styttast í kaflaskil. Bólusetningar ganga ágætlega og ná- grannalönd hafa gefið út opnunaráætlanir, sem fylla mann bjart- sýni og von um að þetta ástand takmark- ana og hafta taki enda og hér muni eðlilegt líf hefjast á ný. Í síðustu viku opn- uðu barir á Englandi og grímu- skylda hefur formlega verið afnum- in í Ísrael. Þrátt fyrir nýleg smit er ljós við enda ganganna með áfram- haldandi bólusetn- ingum. Umræðan und- anfarin misseri hefur stjórnast af veirunni, hvort sem það eru nýj- ustu smittölur eða að- gerðir stjórnvalda. Það er óhjákvæmilegt og að vissu leyti eðlilegt, en samhliða baráttunni verðum við líka að hugsa lengra en til næsta upplýs- ingafundar almanna- varna. Geðheilsunnar og framtíð- arinnar vegna. Staðan er sú að við stöndum frammi fyrir stærsta tækifæri í rúma öld til þess að stilla áttavitann, hugsa stórt og fara fulla ferð áfram þegar yfir lýkur. Hugsjónirnar sem verða ofan á og ákvarðanirnar sem verða teknar á næstu mánuðum munu ráða úrslitum um það hvernig Ísland verður eftir 10, 20 og 30 ár. Jafnvel lengur. Ungt fólk sem hefur núna glatað heilu ári af bestu árum lífs síns á skilið að hlakka til tæki- færanna sem við getum skapað. Faraldurinn hefur sýnt okkur mikilvægi þess að ríkissjóður sé ekki skuldsettur í botn og hafi svig- rúm til að takast á við óvænt áföll. Til að rétta aftur úr kútnum þarf al- vöruumræðu um það hvert hlutverk hins opinbera á að vera fram veginn og hvort umsvif þess í dag séu for- svaranleg meðan atvinnulífið er í endurlífgun. Hvort ekki sé eðlilegra að hið opinbera sinni grunnþjónustu og greiði leið fyrirtækja, í stað þess að leggja stein í götu þeirra. Það er ekki síst mikilvægt í ljósi þeirra fjárfestinga sem nauðsynlegar eru til að skapa sjálfbæra framtíð og þeirra starfa sem verða til þegar ný- sköpun er áhættunnar virði. Með uppfærðri forgangsröðun getum við gert miklu betur í heilbrigðis- og menntamálum og það í auknu sam- starfi við einkaaðila, en jafn mik- ilvægir málaflokkar eiga ekki bara að hvíla á herðum hins opinbera. Við þurfum allar hendur á dekk fyrir verkefnið fram undan. Undanfarna mánuði höfum við í Ungum sjálfstæðismönnum nýtt tímann í að móta sýn á framtíð Ís- lands handan við storminn og höfum nú birt helstu tillögur okkar í þeim efnum, aðgengilegar á heimasíðu og samfélagsmiðlum sambandsins. Sýnin er skýr og það fer að birta til. Við megum ekki gleyma því. Eftir Höllu Sigrúnu Mathiesen » Samhliða baráttunni verðum við líka að hugsa lengra en til næsta upplýsingafundar almannavarna. Geð- heilsunnar og framtíð- arinnar vegna. Halla Sigrún Mathiesen Höfundur er formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Handan við storminn Við erum stödd í miðri tæknibyltingu sem hefur áhrif á nánast allt daglegt líf okkar og störf. Rík- isstjórnin setti sér það markmið strax í upphafi kjörtímabils- ins að íslenskt sam- félag yrði vel í stakk búið til að nýta þau tækifæri og mæta þeim áskorunum sem felast í hinni margumræddu fjórðu iðn- byltingu. Markmiðið er ekki síst að tæki- færin nýtist sem flestum og inn- leiðing hennar byggi á grunn- gildum okkar um mannréttindi, lýðræði og jafnrétti. Í fyrra gáfum við út áætlun þar sem þessari hug- myndafræði var fylgt eftir með 27 tillögum að aðgerðum í þessu skyni. Tillögurnar snúa meðal ann- ars að því hvernig við ætlum að nýta tæknina í framsæknu menntakerfi, í umgjörð atvinnulífs- ins, nýsköpun og inni í stjórnkerf- inu. Stafræn umbreyting hefur mikil tækifæri í för með sér, ekki bara efnahagsleg heldur líka á sviði stórra viðfangsefna á borð við um- hverfis- og heilbrigðismál. Endur- skipulagning á starfi vísinda- og tækniráðs, aukin áhersla á stuðn- ing við rannsóknir og nýsköpun og ný gervigreindarstefna stjórnvalda eru nokkur skref af mörgum til að ýta undir jákvæða þróun. Með Stafrænu Íslandi erum við svo að gjörbreyta samskiptum Eftir Katrínu Jakobsdóttur og Bjarna Benediktsson »Með Stafrænu Ís- landi erum við svo að gjörbreyta samskiptum fólks við hið opinbera. Katrín Jakobsdóttir Katrín er forsætisráðherra. Bjarni er fjármála- og efnahagsráðherra. Gervigreind á erindi við okkur öll Bjarni Benediktsson fólks við hið opinbera. Þjónustu sem áður kallaði á bréfpóst, símtöl og bílferðir milli lands- eða bæjar- hluta má nú nálgast með nokkrum smellum. Fyrir vikið sparast tími, peningar og útblástur – auk þess sem þjónustan verður aðgengilegri fyrir alla. Það getur hins vegar verið auð- velt að tapa áttum í nýrri tækni. Til að stuðla að því að breyting- arnar verði sannarlega öllum til hagsbóta hleypum við nú af stokk- unum gervigreindaráskoruninni Elemennt. Fyrir verkefninu standa forsætis- og fjármála- og efnahags- ráðuneytið í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Við hvetjum alla landsmenn til að taka áskoruninni með því að taka þátt í opnu gjaldfrjálsu vef- námskeiði á íslensku um grunn- atriði gervigreindar sem nú er að- gengilegt á vefnum island.is- /elemennt. Námskeiðið er alls um 30 klukkustundir og hægt að taka það hvenær sem er, í tölvu eða síma. Það er hannað til að vera að- gengilegt sem flestum, óháð aldri, menntun eða starfsreynslu. Það skiptir miklu máli að það séu ekki aðeins sérfræðingar á sviði tækninnar sem hafi þekkingu og skilning á tæknibreytingum fjórðu iðnbyltingarinnar. Gervi- greind á erindi við okkur öll og verður sífellt tilfinnanlegri í lífi flestra. Með aukinni þekkingu tryggjum við að í breytingunum felist langtum fleiri tækifæri en áskoranir – og það sem mestu máli skiptir: að við stjórnum tækninni, frekar en að tæknin stjórni okkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.