Morgunblaðið - 20.04.2021, Síða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021
✝
Daníel Eiríks-
son var fædd-
ur í Reykjavík 19.
október árið 1990.
Hann lést 3. apríl
2021.
Hann var sonur
hjónanna Krist-
ínar Kui Rim frá
Suður-Kóreu og
Eiríks Sig-
urbjörnssonar,
stofnanda Sjón-
varpsstöðvarinnar OMEGA.
Kristinn, albróðir Daníels,
fæddist 12. október 1987.
Hann lést 15. janúar 1988, að-
eins þriggja mánaða gamall.
Hann var fyrsta barn þeirra
Eiríks og Kristínar Kui Rim.
Daníel á eina al-
systur, Guðnýju
Sigríði, fædd 1.
desember 1988.
Tvo hálfbræður á
hann. Sverrir Ein-
ar, fæddur 28.
febrúar 1971, og
Jóhannes Ásgeir,
fæddur 10. júlí
1972.
Útför Daníels
fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 20. apríl
2021, klukkan 13.
Streymt verður frá útförinni
á:
http://www.sonik.is/daniel
Streymishlekk má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Elsku sonur okkar Daníel, við
söknum þín sárt. Þú varst okkar
vinur. Þú varst okkur svo nátengd-
ur. Við leituðum oft ráða hjá þér.
Þú varst svo hreinskilinn og við
gátum alltaf treyst því að þitt álit
væri góð leiðsögn. Síðustu mánuði
lífs þíns gekk allt svo vel. Það voru
svo bjartir tímar framundan. Þú
hafðir mörg plön og stóra hugsjón
um góðan framgang í mörgum
málum. Þú varst ákveðinn í því, að
þér myndi vegna vel í lífinu. Þú
sagðir: „Pabbi, mig langar til að
reisa minnismerki um þig, til að
heiðra þig.“ Mamma var þér sér-
staklega hjartfólgin og hún elskaði
þig heitt og sá ekki sólina fyrir þér,
því þú varst hennar yndi.
Já, Daníel elskaði okkur for-
eldra sína og systkini heitt. Daníel
elskaði ekkert meira en systur-
börnin, Gabríelu og Benjamín.
„Já, hann Daníel frændi, hann er
svo ríkur,“ sagði Gabríela 6 ára
gömul. Hún grét af söknuði, þegar
hún vissi að Daníel væri farinn.
Daníel leiddi hana og bar á háhesti
og Benjamín fór heldur ekki á mis
við það. Þegar við sögðum Gabrí-
elu að Daníel væri hjá Jesú, þá
sagði hún: „Það hlýtur að vera
spennandi.“
Það er svo erfitt að trúa því,
elsku Daníel minn, að þú sért far-
inn frá okkur, en við vitum hvar þú
ert. Í Opinberunarbókinni 21.
kafla, versi 3-4, segir: „Og ég
heyrði raust mikla frá hásætinu,
er sagði: Sjá, tjaldbúð Guðs er
meðal mannanna og hann mun
búa hjá þeim, og þeir munu vera
fólk hans og Guð sjálfur mun vera
hjá þeim, Guð þeirra. Og hann
mun þerra hvert tár af augum
þeirra. Og dauðinn mun ekki
framar til vera, hvorki harmur né
vein né kvöl er framar til. Hið
fyrra er farið.“ Já, samfundir okk-
ar eru framundan, þegar við öll
munum hittast í Fyrirheitna land-
inu.
Fyrir rúmu ári hafðir þú öðlast
sérstaka reynslu, þegar Jesús
kom til þín og faðmaði þig. Og þú
sagðir að það hefðu mörg tár runn-
ið hjá þér. Frá þeim tíma breyttist
þú, frá því að vera í vafa yfir í full-
komna sannfæringu um að þú ætt-
ir Jesú Krist í þínu lífi sem frelsara
og leiðtoga. Við söknum þín mikið.
Sjáumst aftur.
Eiríkur og Kristín.
Elsku bróðir besti.
Það er svo erfitt að reyna að
sætta sig við það, að þú sért farinn
frá okkur.
Maður í blóma lífsins sem átti
allt gott skilið.
Þú skilur eftir þig mikla sorg og
tómarúm sem verður erfitt að fylla
upp í.
Síðustu mánuði vorum við búin
að vera mjög náin.
Það var alltaf svo gaman að
hitta þig og heyra í þér hljóðið.
Er svo þakklát fyrir allar sam-
verustundirnar okkar og símtölin í
gegnum súrt og sætt.
Það jafnaðist ekkert á við brosið
þitt, traustið þitt, jákvæðnina þína
og kraftinn þinn.
Vá hvað ég gæfi mikið til að fá
þig til baka elsku Daníel minn.
Svo skrítið að hugsa til þess að
þú komir aldrei aftur í heimsókn
til okkar.
Þú elskaðir að fá þér einn kaffi-
bolla og horfa á sjónvarpið með
krökkunum.
Við elskuðum svo mikið að fá
þig til okkar. Það var mikið hlegið
og fíflast þegar þú komst í heim-
sókn. Alltaf stutt í grínið þegar við
vorum saman. Það mátti sko allt
þegar stóri frændi kom að passa.
Ó hvað við söknum þín.
Hjartað þitt var úr gulli og þú
gerðir allt fyrir fólkið þitt.
Þú varst mikill sáttasemjari
með sterka réttlætiskennd.
Þú þoldir ekki ósætti og gast
verið þrjóskur og ákveðinn og látið
í þér heyra. Það voru ekki margir
sem höfðu roð við þér, enda varstu
þvílíkt hraustmenni. Maður dáðist
að metnaðinum, aganum og
styrknum þínum þegar kom að því
að lyfta lóðum.
Þú lifðir fyrir þetta.
Ég trúi því að þú sért kominn á
góðan og yndislegan stað núna.
Fel drottni vegu þína og treyst honum,
hann mun vel fyrir sjá.
(Sálm. 37:5)
Ég mun varðveita fallegu minn-
ingarnar okkar elsku engill.
Ég veit að þú vakir yfir okkur.
Elska þig að eilífu.
Þín systir,
Guðný.
Elsku Danni, ég er svo þakk-
látur fyrir að hafa fengið að eiga
þig sem litla bróður. Ég er þakk-
látur fyrir allar stundirnar sem við
áttum saman, fyrir öll samtölin
okkar. Hvað þú varst alltaf hrein-
skilinn við mig og hvað við gátum
rætt saman á opinskáan hátt um
hvað sem var.
Ég er þakklátur fyrir hvað þú
varst alltaf hjálpsamur og kurteis.
Þú varst sannur vinur og alltaf
tilbúinn til að hjálpa. Og það er al-
veg rétt sem sagt er um þig, þú
varst góður í að uppörva aðra og
gefa góð ráð. Enda varstu klettur í
lífi margra.
Það var gaman að fara með þér
í ræktina því þú hafðir óþrjótandi
áhuga og þekkingu á líkamsrækt
sem þú varst alltaf tilbúinn að
deila. Þú vildir verða ríkur, rosa-
lega ríkur. Eiga helling af pening,
ekki bara fyrir sjálfan þig, þú ætl-
aðir nefnilega að hjálpa svo mörg-
um. Þetta ræddum við oft. Þú
varst með hjartað á réttum stað.
Þú hafðir skemmtilegan húmor
og það var stutt í hláturinn og fal-
lega brosið hjá þér. Þú hafðir gott
hugafar, tamdir þér jákvæða og
uppbyggilega hugsun svo eftir-
breytni er að. Enda varstu alltaf
bjartsýnn og staðráðinn í að halda
áfram í rétta átt, jafnvel þótt
stundum fengirðu vindinn full-
hressilega í fangið í lífsins ólgusjó.
En núna ertu farinn og siglir ei
meir. Þú ert kominn til Drottins,
frelsara þíns, þess sem þú settir
traust þitt á.
Drottins Jesú sem þú hittir
persónulega nótt eina og þú
sagðir mér svo einlæglega frá,
Danni minn. Þessi sami Jesús
sem sagði við Mörtu er hafði
misst Lasarus bróður sinn og
þurfti á huggun að halda og við
getum lesið um í 11 kafla Jóhann-
esarguðspjalls:
Jesús mælti: „Ég er upprisan og
lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa,
þótt hann deyi. Og hver sem lifir og
trúir á mig mun aldrei að eilífu
deyja.“ Og svo spurði hann Mörtu
einnig þessarar mikilvægu spurn-
ingar: „Trúir þú þessu?“ Og Marta
svaraði: „Já, herra, ég trúi.“
Ég er svo þakklátur Danni að
við svöruðum báðir þessari spurn-
ingu á sama hátt og Marta gerði.
Það er svo dýrmætt að geta hvílt í
þessu fagra fyrirheiti.
Við sjáumst seinna elsku Danni
minn.
Jóhannes (Jói) bróðir.
Elsku Danni minn, þakka þér
fyrir þann dýrmæta tíma sem ég
fékk að eyða með þér. Lífið getur
oft verið svo ósanngjarnt og þú
varst tekinn allt of fljótt frá mér.
Við áttum svo margar fallegar
stundir saman sem ég mun ávallt
geyma í hjarta mínu. Man þegar
kynntumst hvað við létum eins og
feimnir ástfangnir unglingar. Við
urðum yfir okkur ástfangin ansi
fljótt. Þessi tími okkar var ekki
nógu langur en hann leið eins og
mörg ár. Brosi alltaf ef ég hugsa
um fallega brosið þitt og ég elskaði
hláturinn þinn. Þær fáu stundir
sem við vorum ekki saman vorum
við að senda falleg skilaboð hvort
til annars. Við hreinlega gátum
ekki verið án hvort annars. Við
þurftum ekki að vera að gera stóra
hluti til að hafa gaman, bara það að
vera saman var nóg.
Þú varst með stór plön fyrir
okkur og fjölskyldu þína. Við ætl-
uðum að eignast barn saman, svo
ætlaðir þú að verða ríkur bissness-
karl og sjá um þína. Þú sagðir að
ég þyrfti aldrei að hafa meiri
áhyggjur í framtíðinni því þú
myndir sjá um allt. Þú varst svo
mikill herramaður og með stærsta
hjartað. Þú varst svo sannarlega
vinur vina þinna og talaðir aldrei
illa um neinn. Aldrei kynnst nein-
um sem ég hef orðið svona fljótt
ástfangin af og liðið svona vel með,
eins og ég væri komin heim.
Við áttum bæði erfiða sögu en
okkur fannst við loks vera komin á
réttan stað og nú ættum við skilið
að eignast fallega og góða framtíð
saman. Við vorum svo ótrúlega lík
með margt og hugsuðum svipað.
Mér leið aftur eins og hamingju-
samri lítilli stelpu sem ég hélt að ég
gæti ekki fundið aftur en þú hjálp-
aðir mér að finna hana aftur. Það
sem við fífluðumst mikið og hlóg-
um saman, mun sakna þess svo
mikið.
Veit elsku Danni minn ekki
hvernig ég á að geta haldið lífinu
áfram án þín en ég veit að þú hefðir
ekki viljað sjá mig sára, þú hataðir
það. Veit þú hefðir viljað að ég
héldi áfram lífinu mínu fyrir strák-
inn minn og fjölskylduna mína. Ég
mun aldrei hætta að elska þig, fal-
lega skæra ljósið þitt mun fylgja
mér það sem eftir er, svo munum
við hittast á ný elskan mín.
Þín
Lilja Björg Randversdóttir.
Elsku besti vinur minn. Ég á
svo erfitt með að sætta mig við það
að þú sért farinn frá okkur.
Þú varst og ert mín fyrirmynd,
þú sýndir mér hvað skipti máli í
þessu lífi og ég er svo þakklátur
fyrir að kalla þig vin minn.
Þú varst alltaf fyrstur til þess að
bjóðast til að hjálpa öðrum og ég
lærði svo mikið af þér.
Elsku Danni minn, í mínum
augum varstu fullkominn og ég
veit að þú ert á góðum stað og vak-
ir yfir okkur til þess að veita okkur
styrk til að halda áfram.
Ég er svo stoltur af þér og svo
ánægður að hafa fengið að vera
hluti af þessu ferðalagi hjá þér, það
var svo gaman að sjá þig vaxa og
blómstra í lífinu og ég er heppinn
að hafa fengið að vera hluti af því,
allar þessar stundir sem við áttum
saman eru svo dýrmætar.
Það er svo margt sem mig lang-
ar að segja þér en það verður að
bíða betri tíma Danni minn.
Ég sendi innilegar samúðar-
kveðjur til fjölskyldu og vina Daní-
els, hugur minn er hjá ykkur á
þessum erfiðu tímum.
Össur Máni Örlygsson.
Fallegur engill floginn er okkur frá
inn í draumaheim
hann mun alltaf vera okkur hjá,
Guð þig geymi sem mitt innstreymi.
Daníel var aðalspaðinn; alltaf
flottur í tauinu, vel tilhafður, bros-
mildur og vinur vina sinna. Hann
var alltaf tilbúinn til að hjálpa öll-
um, hlustaði á mann, hann var ein-
staklega kurteis, kom vel fyrir og
nærvera hans var svo falleg að
þegar hann kom á svæðið varð ork-
an alltaf miklu betri.
Með honum var ég örugg og
hann passaði upp á að mér liði vel,
hann var mér svo mikilvægur og
tilhugsunin að fá ekki Dannaknús
aftur brýtur í mér hjartað.
Ég gleymi því aldrei þegar hann
kom til mín og ég var að skoða Bar-
bie-íþróttagalla á netinu og hann
sagði: „Pantaðu hann! Ég gef þér,“
og auðvitað keyptum við bleika
buffalóskó líka. Þegar ég fékk svo
sendinguna náði ég í hann í settinu
öllu og hann skellihló og sagði:
„Victoria Beckham hvað! Hahah
…“ Það var alltaf svo gaman hjá
okkur og minningarnar munu allt-
af vera mér hjá.
Hann var einn besti vinur sem
hægt var að eiga og ég lít á mig
sem einstaklega heppna mann-
eskju að hafa fengið að vera hluti af
lífi hans. Við áttum óteljandi stund-
ir og ég veit að öll okkar leynd-
armál eru með þér, elsku besti
„brósi“ eins og við kölluðum þig
alltaf, og þú verður alltaf brósi
minn í mínu hjarta.
Þín vinkona,
Soffía.
Elsku Daníel minn, því miður
þurftir þú að kveðja okkur langt
fyrir aldur fram þegar lífið var rétt
að byrja. Ég trúi því svo innilega
að þú sért kominn á góðan stað þar
sem þú getur fengið að vera alveg
frjáls. Það er svo margt sem mig
langar að skrifa því þú átt stóran
stað í mínu hjarta og þér mun ég
aldrei gleyma. Þeim dýrmæta tíma
sem við fengum að upplifa saman
mun ég heldur ekki gleyma.
Ég hafði kannski ekki þekkt þig
alla tíð en vegir okkar lágu saman
á tímapunkti í okkar lífi þegar við
þurftum sem mest hvor á öðrum að
halda og trúi ég því að það hafi ekki
verið fyrir neina tilviljun. Við höfð-
um skilning hvor fyrir öðrum og
deildum sömu hugmyndum um líf-
ið og tilveruna. Þú varst alltaf til
staðar þegar maður þurfti á þér að
halda og þú gast alltaf gefið manni
réttu ráðin þegar lífið bankaði á
dyrnar en reyndist það alltaf erf-
iðara þegar kom að því að gefa
sjálfum þér góð ráð.
Þú varst mikill sælkeri eins og
ég og snæddum við líklegast á öll-
um veitingastöðum á höfuðborgar-
svæðinu og meira til og ef við fund-
um ekkert við hæfi var oftar en
ekki slegið í grillveislu. Ég gleymi
því aldrei þegar við ákváðum að
fara saman til Gdansk í Póllandi.
Þú komst mér sífellt á óvart hvað
þú varst fróður um ótrúlegustu
hluti, þú varst spenntastur fyrir
því að skoða söfnin frá seinni
heimsstyrjöldinni og þar varstu al-
veg á heimavelli. Ég fór í gegnum
gömul talskilaboð á milli okkar og
er það ennþá svo óraunverulegt að
þú sért ekki lengur hér hjá okkur.
Við áttum eftir að gera svo mikið
saman, þú varst svo barnelskur og
þráðir að stofna þína eigin fjöl-
skyldu og að börnin okkar gætu
leikið sér saman. Tilhugsunin um
að svo verði ekki gerir mig mjög
sorgmæddan en maður verður að
halda fast í trúna að á einhverjum
stað á einhverjum tíma fáum við
tækifæri til að hittast á ný.
Þinn vinur,
Brynjar.
Daníel Eiríksson
- Fleiri minningargreinar
um Daníel Eiríksson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Okkar ástkæri sonur, bróðir, mágur
og unnusti,
DANÍEL EIRÍKSSON,
lést laugardaginn 3. apríl.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 20. apríl klukkan 13.
Útförinni verður streymt á http://www.sonik.is/daniel
Eiríkur Sigurbjörnsson Kristín Kui Rim
Guðný Sigríður Eiríksdóttir Þórarinn Møller
Jóhannes Eiríksson Cládia Sofia Cabral Santos
Sverrir Einar Eiríksson Vesta Minkute
Lilja Björg Randversdóttir
Elsku sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og sambýlismaður,
RÚNAR EGILSSON,
lést á heimili sínu 13. apríl,
útför fer fram í kyrrþey.
María Einarsdóttir
Jóhannes Geir Rúnarsson Guðrún Bergmann Franzdóttir
María Kristín Rúnarsdóttir Ingvar Sæbjörnsson
Anna Guðrún Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GRÓA JÓHANNA FRIÐRIKSDÓTTIR,
Hraunbæ 103, Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 4. apríl á
Landspítalanum, verður jarðsungin
frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 21. apríl klukkan 13.
Þeir sem vilja heiðra minningu Gróu eru velkomnir.
Börnum hennar þætti vænt um að fá símaskilaboð frá þeim sem
sjá sér fært að vera viðstaddir athöfnina svo fjöldatakmarkanir
verði virtar.
Athöfninni verður streymt og hlekk á streymi er hægt að nálgast
á mbl.is/andlat.
Auðbjörg Bergsveinsdóttir Jón Baldur Þorbjörnsson
Friðrik Már Bergsveinsson Júlíana Sóley Gunnarsdóttir
Berglind Bergsveinsdóttir Guðjón Grétar Engilbertsson
Árni Örn Bergsveinsson Sólrún Axelsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN TÓMASSON,
Jónsi Tomm,
Hafnarstræti 21,
Akureyri,
sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 14. apríl, verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 27. apríl klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verður aðeins nánasta fjölskylda og vinir
viðstödd athöfnina en henni verður einnig streymt á
facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að leyfa Sjúkrahúsinu á
Akureyri eða líknarfélögum að njóta þess.
Þórey Bergsdóttir
Tómas Jónsson Helga Margrét Sigurðardóttir
Ragnhildur Jónsdóttir
Bergur Jónsson Guðrún Hallfríður Björnsdóttir
Kristín B. Jónsdóttir Tryggvi Haraldsson
og afkomendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL SNÆVAR JÓNSSON,
Austurbyggð 17,
Akureyri,
lést 15. apríl. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 26. apríl klukkan 13.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu ættingar
viðstaddir en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar
Jóhanna Aðalbjörg Þorkelsdóttir
Jón Ingvar Pálsson Þórdís Þorvaldsdóttir
Þorkell Jóhann Pálsson
Stefán Kristján Pálsson María Guðbjörg Hensley
Páll Pálsson Margrét Jónína Kristjánsdóttir
Haraldur Pálsson Jóhanna Sólrún Norðfjörð
Birgir Pálsson Sigrún Birna Óladóttir
Margrét Pálsdóttir Bjarni Bjarnason
afa- og langafabörn