Morgunblaðið - 20.04.2021, Side 25

Morgunblaðið - 20.04.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Roby leðursófi Lengd 172 cm. Verð 270.000 kr. Lengd 194 cm. Verð 295.000 kr. Lengd 214 cm. Verð 310.000 kr. fyrir heimilið Sendum um land allt „ÉG VAR EINMITT AÐ PÆLA Í ÞVÍ HVERNIG ÞAÐ ÆTTI AÐ FARA AÐ ÞVÍ AÐ BÓLUSETJA ALLA ÁN SMITHÆTTU FYRIR HEILBRIGÐISSTARFSFÓLK.“ „HVERNIG ÁTTI ÉG AÐ VITA AÐ HANN SKYTI TUNDURSKEYTUM?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... yndislegi eigin- maðurinn þinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ER ÞAÐ SATT AÐ MORGUN- STUND GEFI GULL Í MUND? JÁ EN ÞAÐ EINA SEM UNGARNIR MÍNIR VILJA ERU NÚÐLUR ÉG ER SAM- MÁLA ÞEIM ÞÚ HEFUR GJÖRSAMLEGA EYÐILAGT LÍF MITT! ÁTTU ÞÉR EINHVERJAR MÁLSBÆTUR? …ÉG ER FULLKOMNUNARSINNI? ÞEIR KALLA HANN EKKI GRIMMÚLF „GRIMMA“ AÐ ÁSTÆÐULAUSU! Fjölskylda Eiginkona Baldurs er Halldóra Georgsdóttir, f. 21.10. 1961, starfs- maður á endurhæfingardeild Eirar. Þau búa í Seljahverfinu. Foreldrar Halldóru voru Georg Ólafsson, vél- stjóri í Kópavogi, f. 14.10. 1933, d. 18.7. 1990, og Alda Óskarsdóttir, f. 20.3. 1938, d. 9.6. 2016, húsfreyja í V- Landeyjum. Þau skildu. Börn Baldurs og Halldóru eru: 1), Una Ósk Runólfsdóttir, stjúpbarn, f. 15.8. 1978, fatahönnuður, býr í Selja- hverfinu. Börn Unu eru Jóhann Smári Arnviðarson, f. 26.5. 1999, Halldóra Dröfn Arnviðardóttir, f. 18.11. 2000 og Jónatan Þór Hauks- son, f. 9.9. 2008; 2) Vilmar Herbert Baldursson, f. 4.1. 1988, vélstjóri, býr í Bryggjuhverfinu í Reykjavík; 3) Glódís Alda Baldursdóttir f. 6.3. 1992, sálfræðingur og mastersnemi í atferl- isfræðum, býr í Grafarvogi. Sonur Glódísar er Veigar Jökull Adamsson, f. 8.12. 2015. Sambýlismaður hennar er Atli Sigmar Hrafnsson, byggingarverktaki. Systkini Baldurs eru Eva Thor- stensen, f. 1.4. 1943, hjúkrunarfræð- ingur og fv. húsfreyja á Barði, býr í Hafnarfirði; Erna Anine Thor- stensen, f.14.2. 1945, fv. verslunareig- andi, býr í Reykjavík; Óli Viðar Thor- stensen, f. 24.4. 1948, rafeindavirki, býr í Reykjavík, og Svanhildur Edda Thorstensen, f. 23.8. 1951, hjúkr- unarfræðingur, býr í Kópavogi. Foreldrar Baldurs voru hjónin Vilmar Herbert Thorstensen, f. 26.9. 1913 í Hafnarfirði, d. 25.5. 1992, verkamaður, og Hulda Klara Svan- laugsdóttir Thorstensen, f. 12.10. 1914 á Varmavatnshólum í Öxnadal, d. 12.5. 2011, hjúkrunarfræðingur. Þau bjuggu í Reykjavík. Baldur P. Thorstensen Friðrika Jónsdóttir húsfreyja í Engimýri, f. í Sigtúni á Staðarbyggð, Eyjaf. Þorsteinn Jónasson bóndi í Engimýri í Öxnadal, f. í Hraunshöfða í Öxnadal Rósa Þorsteinsdóttir húsfreyja á Akureyri Svanlaugur Jónasson verkstjóri á Akureyri Hulda Svanlaugsdóttir Thorstensen hjúkrunarfræðingur í Reykjavík Sigurlaug Svanlaugsdóttir húsfreyja á Varmavatnshólum, f. í Kolgerði í Höfðahverfi Jónas Jónasson bóndi á Varmavatnshólum í Öxnadal, f. í Veisuseli í Fnjóskadal Ane Marie Hansen Sørensen, f. Vand húsfreyja í Árósum, f. í Rolsø á Mols Jens Peter Hansen byggingameistari í Árósum, f. í Fruering í Skanderborg Anine Ernstine Hansen Thorstensen húsfreyja í Reykjavík Ole Thorstensen skósmiður í Reykjavík Johanna Pedersdatter Karinen vinnukona í Alta á Finnmörk, f. þar Thorstein Olsen f. í Hammerfest á Finnmörk, Noregi Úr frændgarði Baldurs P. Thorstensen Vilmar H. Thorstensen verkamaður í Reykjavík Ingólfur Ómar Ármannsson yrkirá Boðnarmiði: Fór að kíkja á gosið í dag. Upp úr gígum eldur þeytist undir niðri rymur jörðin, Brunahraun um bungur flæðir brennur funi gróðursvörðinn. Fjalls við rætur kvikan kraumar kröftug bræðir grjót og skriður. Líkt og elfarstraumur stríður streymir hraun í dalinn niður. Ingólfur Ómar fékk sterk við- brögð. Matthildur Hjálmarsdóttir kvað: Úr lindum þínum ljóðstafir, léttir flæða margslungnir, ljómandi vel lukkaðir, lýsandi og magnaðir. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir svaraði: „Svona er það, Ingólfur,“ og orti: Svona geta flust til fjöll fæsta má hér saka. Nú er jörðin opin öll allar gáttir vaka. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson skrifar: „Gísli Marteinn og Bassi Maraj fóru á kostum í síðustu Vikulokum. Þar stigu þokkafullar konur erótískan dans undir seiðandi rytma og heillandi söng“: Nú bera menn bumbur og kassa, brjóstbakið, læri og rassa og í glóheitri þrá á g-strengi slá, en Gísli hann leikur á bassa. Friðrik Steingrímsson fer með helstu fréttir: Covid-vörnin virðist enn vera öll í skralli, kjaftinn rífa kínamenn og kroppinn berar Palli. Á fimmtudag fékk Friðrik fyrri covid-sprautuna: Mér finnst að megi fagna því og fleiri lífsins gæðum, að núna er ég frjáls og frí með fæser(pfizer)skammt í æðum. Í Vísi mátti lesa þá frétt að Stein- grímur J. Sigfússon væri „sloj“ og drægi sig í hlé. Við skemmtilega mynd af Steingrími í dyrum þing- hússins yrkir Helgi Ingólfsson á Boðnarmiði: Með þingstörf ég fúll var og foj og fannst þau eitt allsherjar moj og slöpp þeirra stýring. En sterk fékkst þá skýring: Hann Steingrímur reyndist víst sloj. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Enn um gosið og auðvitað covid

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.