Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Side 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.4. 2021
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel
Sími 555 3100 www.donna.is
dreifingHeildsölu
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Fyrir utan líkamsræktarstöðina mína í Hafnarfirði eru ekkert allt ofmörg bílastæði. Því vakti það bæði pirring og undrun mína þegarBMW-eigandi ákvað þar að hann ætti skilið tvö stæði og lagði akkúrat
yfir máluðu línuna. Þarna var klárlega á ferðinni einbeittur brotavilji, en ekki
bara illa lagt eins og hendir okkur flest af og til. Af hverju þessum ein-
staklingi fannst hann eiga skilið tvö stæði er mér ráðgáta. Eiginhagsmunir og
tillitsleysi eru orð sem koma strax upp í hugann. Skítt með hina, ég má þetta!
Á mun alvarlegri skala er til fólk
sem hugsar nákvæmlega svona þeg-
ar það á að vera í einangrun eða
sóttkví; því höfum við þjóðin orðið
vitni að nýlega. Og reiðin og pirring-
urinn kraumar undir niðri, sam-
félagsmiðlarnir loga og smitin grass-
era. Allt vegna þess að einn eða tveir
einstaklingar gátu ekki farið eftir
reglum og sýnt náunganum þá til-
litssemi að vera ekki á meðal fólks,
mögulega smitaðir af kórónuveir-
unni. Sem reyndist svo vera raunin.
Þannig er lífið; alls staðar munum
við rekast á svona fólk. Fólk sem
finnst það eiga skilið annað og meira
en aðrir. Sem finnst að reglurnar eigi við um aðra. Sem hefur ekki samkennd
með öðru fólki. Þessu verður ekki breytt; það eru fífl víða.
Að leggja í tvö stæði er dónaskapur. Að brjóta sóttkví og einangrun setur
hundruð manna í hættu og getur kostað mannslíf.
En sem betur fer er búið að herða reglur, á skynsamlegan máta. Og nú er
búið að lofa okkur miðaldra fólkinu bólusetningu fyrir 1. júní og öllum öðrum
Íslendingum fyrir fyrsta júlí. Sumarið er því bjart! Nú er bara að halda þetta
út; spritta, nota grímu, halda sóttkví og sýna öðru fólki almenna tillitssemi.
Öllum getur orðið á; fólk getur gleymt grímunni eða sprittinu, en reynum
bara okkar besta svo fleiri þurfi ekki að þjást vegna veirunnar. Það er svo
stutt í land!
Svo kemur íslenska sumarið með öllum sínum töfrum; björtum nóttum,
bleikum sólarlögum, ilmandi birki og fuglasöng sem vekur mann fjögur á
næturnar. Það er til margs að hlakka. Og síðsumars eða með haustinu verður
lífið komið í samt lag og þá er hægt að spígspora um götur New York, Lond-
on og Parísar. Flatmaga á strönd við Indlandshafið, skoða Kínamúrinn og
píramída, drekka kaffi á verönd í Toskana. Möguleikarnir eru endalausir.
Hættum að kýta yfir reglum og lögum. Þetta er allt að koma, en þangað til
erum við öll almannavarnir. Gleðilegt sumar!
Bjart og veirufrítt
sumar á næsta leiti
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’
Svo kemur íslenska
sumarið með öllum
sínum töfrum; björtum
nóttum, bleikum sólar-
lögum, ilmandi birki og
fuglasöng sem vekur
mann fjögur á næturnar.
Guðný Lára Ingadóttir
Sumarið leggst rosalega vel í mig.
Ætla að ferðast um landið og njóta.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
leggst
sumarið
í þig?
Guðmundur Ingi Hjartarson
Mér líst vel á það. Þetta verður stór-
kostlegt sumar.
Louisa Aradóttir
Það leggst mjög vel í mig. Fer eitt-
hvað innanlands eins og flestir aðrir.
Ragnar Agnarsson
Gríðarlega vel. Þetta verður frábært
sumar.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Hver er konan?
Ég er kennari og myndlistarmaður og hef verið leiðsögumaður hjá
Ferðafélagi Íslands síðan 2007. Líklega koma kennaragenin sér vel í
leiðsögumannsstarfinu. Ég var í góðri þjálfun við að stjórna.
Hvað er skemmtilegast við leiðsögumanns-
starfið?
Þetta er stór spurning. Ég held það sé ótvírætt
skemmtilegast að opna landið fyrir fólki. Land er eins
og manneskja; þegar þú kynnist því fer þér að þykja
vænt um það.
Hefur ekki verið lítið að gera í Covid?
Nei, þvert á móti. Starfsemi ferðafélagsins hefur ver-
ið ákaflega lífleg. Við höfum svarað kalli tímans og
verið tilbúin þegar það er eftirspurn. Nú hafa Ís-
lendingar ekki komist úr landi í meira en ár og lík-
amsræktarstöðvar oft verið lokaðar. Fólk hefur ver-
ið að uppgötva útivist sem aðferð til líkamsræktar
og andlegrar styrkingar. Ferðafélagið hefur brugð-
ist við með því að fjölga ferðum og búa til ný pró-
grömm. Þátttakan hefur verið mjög mikil.
Hvernig lítur sumarið út hjá ykkur?
Sumarið lítur mjög vel út. Það er gleðilegt að Íslend-
ingar nýta sér gistingu í skálum í miklum mæli. Margar
ferðir eru margsinnis uppseldar og höfum við þurft að
bæta við ferðum. Við gætum selt í fleiri ferðir, en það vant-
ar bara daga í dagatalið! Sögugöngur eru skemmtilegar en
í ár verður farið á slóðir svarta víkingsins. Eins eru morg-
ungöngur alltaf vinsælar og Anton Helgi Jónsson verður
þar fjallaskáld FÍ. Allir ættu að geta fundið sér eitthvað
við hæfi.
Er þá bara allt uppbókað?
Nei, ekki alveg. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Morgunblaðið/Eggert
RÓSA SIGRÚN JÓNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Útivist sem líkamsrækt
Forsíðumyndina tók
xxxxxxxxx
Rósa Sigrún Jónsdóttir er einn af mörgum frábærum leiðsögumönnum hjá Ferðafélagi Íslands. Allar upplýsingar um ferðir má
finna á fi.is.