Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Blaðsíða 32
Forlagið Editions Métailié í París hefur tryggt sér útgáfu- réttinn á skáldsögunni Bróðir eftir Halldór Armand í Frakklandi. „Þetta er auðvitað bara stórkostlegt,“ sagði Halldór um fréttirnar. „Margir af okkar flottustu höf- undum hafa komið út hjá Editions Métailié. Ég lít á það sem mikinn heiður og stórt skref fyrir mig að vera gefinn út í Frakklandi í fyrsta skipti.“ Í tilkynningu um söluna á útgáfuréttinum á síðu um- boðsskrifstofu Halldórs á Facebook er fyrir hönd franska forlagsins vitnað í þýðandann Jean-Christophe Salaün, sem þýtt hefur marga íslenska höfunda á frönsku og mun væntanlega þýða Bróður. „Ég hef nú nú fylgst með Hall- dóri Armand í nokkur ár og alltaf haft bækur hans í mikl- um metum,“ segir Salaün. „Bróðir er engin undantekning. Sagan er margslungin og snjöll og fallegur og nútímalegur stíll ber hana uppi. Persónurnar eru flóknar og veita svig- rúm til djúpra hugleiðinga um áföll og mannlega náttúru almennt. Engu að síður tekst að gera hana mjög skemmti- lega aflestrar. Halldór Armand er einstök rödd í íslensk- um bókmenntum.“ Bróðir kom út hér á landi fyrir jólin og er væntanleg á frönsku á næsta ári. Morgunblaðið/Eggert „Einstök rödd í íslenskum bókmenntum“ Samið um útgáfu á bókinni Bróðir eftir Halldór Armand við franska forlagið Editions Métailié, sem meðal annars hefur gefið út bækur eftir Guðberg Bergsson og Steinar Braga. Halldór Armand Ásgeirsson rit- höfundur SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL MADE IN DENMARK Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn. Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939. Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta og rúmgafla. Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks- stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig. Tíðindamenn Morgunblaðsins komu víða við fyrir sextíu árum. Í sama mánuði og Haraldur J. Hamar sat blaðamannafund hjá John F. Kennedy Banda- ríkjaforseta eins og greint var frá í gömlu fréttinni fyrir viku flutti Sigurður Á. Magnússon fréttir frá Ísrael þar sem réttað var yfir Adolf Eichmann. „Eichmann ætlar að stökkva hlæjandi í gröfina,“ segir í fyrirsögn greinarinnar og skrifar Sigurður að sé „nokkur einn maður ábyrgur fyrir tortím- ingu gyðinga í Evrópu á valdatíma gyðinga, þá er það Adolf Eichmann“. Sigurður lýsir því hvernig Eichmann „týndist“ í stríðslok og þrír ungir Ísraelsmenn höfðu uppi á honum í Argentínu 1960 og fluttu hann með sér til Ísraels. Vitnar hann í David Ben-Gurion, sem þá var for- sætisráðherra Ísraels, sem sagði að réttarhöldin hefðu meðal annars „þann tilgang að fræða yngri kynslóðina í Ísrael, sem fæddist eftir hörmung- arnar, um það sem raunverulega gerðist“. Enn er brýnt að það sé gert. Eichmann var dæmdur til dauða í desember 1961. GAMLA FRÉTTIN Að fræða um það sem raun- verulega gerðist Adolf Eichmann fyrir dómstólum í Jerúsalem. ÞRÍRFARAR VIKUNNAR Tomas Satoransky körfuknattleiksmaður Gói Karlsson leikari Hugh Jackman leikari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.