Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Blaðsíða 29
in smíði í stað þeirra Intel-örgjörva,
sem notast hefur verið undanfarin
ár. Apple-örgjörvinn er reistur á
grunni þeirra örgjörva, sem Apple
hefur notað í iPhone og iPad, sem
þýðir að hann er afar hraðvikur og
sparneytinn á orku, sem einnig þýðir
að hann hitnar sáralítið. Þess vegna
getur vélin verið svo þunn og hljóð-
lát, því það þarf engan sökkul og
risaviftur til þess að kæla hana.
Fyrir notandann skiptir þó mögu-
lega enn meira máli, að vegna þess
að nú er sams konar örgjörvi í snjall-
tækjum Apple og tölvum, þá er hæg-
ur vandi að koma öppum úr snjall-
símum yfir í tölvuna, ef
framleiðendur hugbúnaðarins kæra
sig á annað borð um það. Það mun án
minnsta vafa valda verulegri breyt-
ingu á notkun og notagildi einkatölv-
unnar.
Breytingarnar eru fleiri, því hrað-
anum fleygir svo fram, að aðrir
tölvuframleiðendur munu eiga í
megnum vandræðum með að keppa
við þessa nýju kynslóð iMac frá
Apple. Það geta notendur sjálfir séð
með því að kveikja á tölvunni og hún
hrekkur bara í gang, en þarf ekki að
vera einhverjar mínútur að ræsa
upp.
Að því leyti eru þessir nýju, fjör-
legu litir til vísbendingar um að hér
sé ný gerð af tölvum komin til skjal-
anna. Og hún stendur að mestu leyti
undir því, þótt vissulega sé nokkuð
undir því komið hvernig hugbún-
aðarframleiðendur kjósa að nálgast
hana.
Apple reynir einnig að taka mið af
breyttum þörfum, sem komið hafa í
ljós í heimsfaraldrinum. Þannig er
ný og betri myndavél í tölvunni, sem
á að koma í góðar þarfir á öllum fjar-
fundunum. Upplausnin í myndavél-
inni er þó ekki neitt sérstök, svona
miðað við það sem menn eiga að
venjast í símum, en hins vegar er
talsverð sjálfvirk myndvinnsla sem á
að gera það að verkum að mynd-
gæðin verða betri, jafnvel þó að
birtuskilyrðin séu léleg.
Þá er enn bætt í skjágæðin og
hljómgæðin sömuleiðis talsvert betri
en áður, sem allt miðar að því að tölv-
an sé betri til þess að njóta afþrey-
ingar á, stunda netfundi og þar fram
eftir götum. Einnig er í hnappaborð-
inu að finna fingrafaranema, sem þá
má nota svipað eins og fólk vandist á
símum, til auðkenningar, aflæsingar
og staðfestingar á innkaupum, svo
eitthvað sé nefnt. Þess er þá varla
mjög langt að bíða að Apple komi
fyrir andlitslesara, líkt og hafa verið
á símunum síðustu ár. Tölvan er ein-
faldlega að breytast í snjalltæki.
En svo eru snjalltækin líka að
færa sig ögn í átt að tölvunum, eins
og sást á glænýjum iPad, sem Apple
kynnti við sama tækifæri. Honum
fylgir m.a. nýtt lyklaborð sem gerir
muninn á iPad og kjöltutölvum enn
óljósari en fyrr.
Apple
Apple heitir því að myndvinnslan í nýja iMac sé nógu góð til þess að yfirstíga
erfið birtuskilyrði eins og baklýsingu á fjarfundum.
Apple
25.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Mark32net
skrifborðsstóll
Fjölstillanlegur skrifborðsstóll
með netbaki og bólstraðri setu.
Fjöldi áklæða í boði.
VORTILBOÐ
30%
afsláttur
68.957 kr. með örmum
60.255 kr. án arma
Verð m. vsk.
TÓNLEIKAR Kvikmyndin Joker
verður sýnd við undirleik hljómsveitar
í nokkrum borgum á Bretlandi í haust.
Fyrstu tónleikarnir verða í London 26.
september og verður stjórnandi
þeirra Jeff Atmajian, sem stýrði und-
irleiknum á upptökunum fyrir mynd-
ina. Alls verða tónleikarnir 12. Hildur
Guðnadóttir hlaut Óskarsverðlaunin
auk fjölda annarra viðurkenninga fyr-
ir tónlistina í myndinni. Í frétt vefsíð-
unnar nme.com um tónleikana er haft
eftir Hildi að hún sé himinlifandi að fá
að sjá og heyra Joker í kvikmyndahúsi
við lifandi undirleik.
Joker á tónleikum
Hildur Guðnadóttir með Óskarinn.
AFP
BÓKSALA 14.-20. APRÍL
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Rím og roms
Þórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn
2
Handbók fyrir
ofurhetjur 6
Elias/AgnesVahlund
3
Herra Fnykur
David Walliams
4
Barnið í garðinum
Sævar Þór Jónsson/
Lárus Sigurður Lárusson
5
Bókasafnsráðgátan
Martin Widmark
6
Stríð og kliður
Sverrir Norland
7
Oreo fer í skólann
Sylvia Erla Melsted
8
Í leyndri gröf
Viveca Sten
9
Í landi annarra
Leila Slimani
10
Stafavísur
Ragnar IngiAðalsteinsson og
SteinunnTorfadóttir ritstjórar
1
Eldarnir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
2
Aprílsólarkuldi
Elísabet Jökulsdóttir
3
Snerting
Ólafur Jóhann Ólafsson
4
Bróðir
Halldór Armand
5
Fjarvera þín er myrkur
Jón Kalman Stefánsson
6
Hrímland – skammdegis-
skuggar
Alexander DanVilhjálmsson
7
Dvergurinn frá Normandí
Lars-Henrik Olsen
8
Á heimsenda
Dagný Maggýjar
9
Blóðberg
Þóra Karítas Árnadóttir
10
Síðustu dagar Skálholts
Bjarni Harðarson
Allar bækur
Innbundin skáldverk
Ég las mikið sem barn og ungling-
ur og fram á fullorðinsár gat ég
ekki farið að sofa nema vera með
bók á náttborðinu. Því miður hef-
ur lesturinn aðeins vikið fyrir ann-
arri afþreyingu, sem er mikil synd.
Ég les þó alltaf inn á milli og get
hiklaust mælt með öllum þessum
bókum sem ég las
nýverið.
Í fyrrasumar las
ég bókina Engan
þarf að öfunda eftir
Barböru Demick.
Hún fjallar um lífið
í Norður-Kóreu og
frásagnir fólks sem hefur flúið
þann hrylling sem fólkið þar býr
við, hungur, ofbeldi, óréttlæti,
vinnubúðir og heilaþvott svo fátt
eitt sé nefnt. Jafnframt eru þetta
sögur af daglegu lífi í landinu sem
hingað til hefur verið algerlega
hulið okkur.
Einn af mínum allra mestu
uppáhaldshöfundum er Khaled
Husseini – höfundur Flug-
drekahlauparans sem flestir kann-
ast við. Önnur bók eftir hann sem
heitir Og fjöllin
endurómuðu er
jafnframt ein af
mínum uppá-
haldsbókum og í
haust las ég hana
að nýju. Sagan
gerist í Afganist-
an líkt og aðrar sögur hans og
fjallar um systkini sem eru aðskilin
í æsku. Ævilangt sakna þau hvort
annars, vitandi og óafvitandi. Sög-
ur þeirra fléttast öðrum sögum af
öðru fólki og persónurnar náðu að
fara alveg að kviku hjá mér.
Um jólin las ég tvær bækur sem
komu út í jólabókaflóðinu, Snert-
ingu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og
Eldana eftir Sigríði Hagalín
Björnsdóttur. Þessar
bækur þarf nú vart
kynna enda fengu
þær báðar mikla um-
fjöllun og góða
dóma. Ég var mjög
hrifin af Snertingu en
varð fyrir örlitlum
vonbrigðum með
Eldana sem gæti
skýrst af hversu mikl-
ar væntingar ég hafði
til hennar.
Ég var svo að ljúka
við bókina Fólk í angist eftir Fre-
drik Backman. Alveg dásamlega
skemmtileg bók líkt
og aðrar bækur eftir
hann. Sögusviðið er
opið hús hjá fast-
eignasala og þar
birtist misheppn-
aður bankaræningi
sem tekur alla í gísl-
ingu. Smám saman fer fólkið að
segja hvað öðru frá ýmsum leynd-
armálum og þegar bankaræning-
inn lætur alla lausa og lögreglan
mætir á svæðið er ræninginn á bak
og burt og gíslunum ber ekki sam-
an um atburða-
rásina.
Á náttborðinu
liggur svo bókin
Sapiens – mann-
kynssaga í stuttu
máli eftir Yuval
Noah Harari sem
ég hlakka mikið til að sökkva mér í
næstu kvöld.
ÁSA VALGERÐUR GUNNSTEINSDÓTTIR
Sögur og persónur
sem ná inn í kviku
Ása Valgerður
er sérfræð-
ingur hjá TR.