Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Page 15
25.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 þessu,“ segir Svavar og bætir við að vegna barnanna hafi hann ekki viljað að umræða færi strax af stað í þjóðfélaginu. „Ég hafði ekkert að gefa; ég var í miðju sundi. Ég átti eftir að komast upp að bakka og ná andanum. Ég ýtti öllum beiðnum frá mér en þar sem ég er þekktur vissu margir af þessu á endanum. Þannig að þótt ég vildi ekki opinbera þetta varð þetta svolítið eins og bleiki fíllinn í stofunni,“ segir Svavar og segir að í raun finnist sér ekki óþægilegt að tala um veikindin í dag. „Það rann svo allt í einu upp fyrir mér að nú væri ég tilbúinn að ræða þetta; ég hef eitthvað að segja. Kannski get ég miðlað einhverju; kannski get ég hjálpað einhverjum. Svo veit ég að fólk vill vita hvað er í gangi.“ Heltekur ekki hversdagslífið Krabbameinið fær ekki að vera í fyrsta sæti í lífi Svavars; síður en svo. „Ég nenni ekki alltaf að tala um þetta; ég hef ekki þörf fyrir það. Ég nenni ekki að ræða krabbameinið í röðinni í Bónus og heldur ekki að fá spurninguna: „Hvernig hefurðu það?“ Annaðhvort er ég ofan jarðar eða neðan. Við hjónin ræðum um þetta þegar við þurfum þess og tölum við krakkana þegar það er eitthvað að frétta. Þess á milli lifum við okkar lífi og sinn- um okkar áhugamálum. Fjölskyldan er mjög samhent og við hittumst mikið og við erum ekki að velta okkur upp úr vandamálum. Þetta hef- ur ekki fengið að heltaka hversdagslífið.“ Svavar segist ekki finna til verkja. „Það eina sem háir mér eru í raun eftirköst af lyfjameðferðum, sem er dofi í höndum og fótum. Það getur líka háð mér í að spila á hljóð- færi. En ég vinn bara með þetta; ég geri allt sem ég get og get næstum allt sem ég gat. Ég er slappur dagana eftir lyfjameðferð og þá bara stimpla ég mig út,“ segir hann og segist vera í meðferð núna á tveggja vikna fresti en það sé breytilegt hversu ört hann þurfi á meðferð að halda. „Það fundust meinvörp í lungum og lifur en það er allur gangur á því hvort þau séu sýni- leg.“ Blaðamaður þegir um stund og dettur svo ekkert annað í hug en að segja: Helvítis vesen. „Já, en ég er hættur að líta á þetta sem ves- en. Svona er bara staðan. Mér hefur oft liðið verr fullkomlega heilbrigður.“ Hugsa lítið um dauðann Tvö og hálft ár eru nú liðin síðan Svavar greindist með krabbann. Hann segist vissulega hugsa um framgang sjúkdómsins og hvernig málin muni þróast en neitar að láta sjúkdóminn stjórna lífi sínu. „Ég hugsa um veikindin en er ekki heltekinn af þeim. Það er bara einn dagur í einu, alveg sama hvort við erum veik eða ekki,“ segir hann og bætir við hugsi: „Ég hefði ekki viljað ganga í gegnum þetta án þess að vera edrú. Maður var búinn að fá einhver tól í gegnum edrúgönguna sem nýtast; svo maður fari ekki í stjórnlausan ótta og gremju.“ Hugsarðu mikið um dauðann? „Ég hugsa mjög lítið um dauðann. Ég hugsa mest um hann út frá öðru fólki, eins og börn- unum. Mér er meira sama um sjálfan mig en það er verra að leggja það á aðra ef maður skyldi þurfa að fara. Þegar að því kemur verð- ur maður að vera búinn að undirbúa það vel, en það er hluti af þessu lífi að hverfa úr því. Og þótt það sé hundfúlt að missa einhvern eigum við ekki að missa okkur í því vegna þess að lífið heldur áfram og við eigum minningar. Við eig- um að vera með fólki á meðan það er lifandi og hugsa svo fallega til þess þegar það er farið. Ég vona að þeir sem sitja eftir þegar ég er farinn nái að tileinka sér það og sorgin verði þeim ekki fjötur um fót og komi í veg fyrir að þeir lifi lífinu og verði hamingjusamir,“ segir Svavar og segir að ef hann deyi fyrir aldur fram sé það bara staðan. „Þá er það það sem búið er að ákveða en við gerum okkar besta til að sporna við því með að- stoð læknavísinda og það kemur svo í ljós hversu langt það nær. Þangað til held ég áfram að láta drauma mína rætast og njóta lífsins. Ég vakna á morgnana tilbúinn í daginn og nýt þess að sinna skemmtilegum verkefnum. Ég reyni að láta veikindin ekki þvælast fyrir mér þótt ég hugsi auðvitað um þau. En ég reyni að vera ekki í óttanum,“ segir hann og leiðréttir sig: „Ég er ekki í óttanum.“ Prinsinn fær að lifa að hluta Eftir greininguna ákvað Svavar að leggja kór- ónu Prinsins á hilluna. Hann tekur hana þó ein- staka sinnum fram. „Ég fann það þá að ég þyrfti þess; ég var bú- inn að vera áberandi um tíma en þurfti þarna að leita inn á við. Ég hafði oft hugsað um að binda enda á Prinsinn þannig að í raun var þetta gott tækifæri. Ég hef samt alveg leyft honum að lifa að hluta. Ég hef verið að gera músík, taka eitt og eitt gigg og er enn í sam- starfi við frábæra listamenn um alls konar verkefni.“ Svavar vinnur enn sem grafsíkur hönnuður og heldur úti heimasíðunni prinspolo.com. „Ég hef reynt að bræða þetta saman í einn graut; hönnun, myndlist og tónlist. Við erum nýbúin að opna vefverslun undir nafni Havarís þar sem ég fór að taka saman þessi verk sem ég hef verið að gera og framleiða ný. Sem lista- maður í Covid hef ég verið þakklátur fyrir það að hafa getað tekið tónlistina og myndgert hana. Ég hef verið að taka frasa úr textum mínum sem mér þykir vænt um og mála þá og búa til plaköt,“ segir Svavar og segir fólk gjarnan kaupa af sér málverk til að gefa í gjaf- ir. „Það fer stór hluti af mínum degi í að fram- leiða fyrir þessa verslun. Ég er líka alltaf að semja tónlist og er að leggja drög að barna- plötu ásamt Kidda Hjálmi. Við erum um- kringdir börnum og maður verður fyrir svo miklum áhrifum frá krökkunum sínum. Við gerum eitt lag í einu og sjáum til hvert það leið- ir okkur. Svo er ég alltaf með annan fótinn fyr- ir austan yfir veturinn,“ segir Svavar og segir þau núna eyða öllum sumrum í Havarí. „Við verðum þarna í sumar og munum hafa opna gistingu. Ég hlakka mjög til sumarsins fyrir austan, en Havarí er til sölu og ýmsir búnir að sýna því áhuga. Verandi í þessu óvissuástandi sem krabbameinið er er betra að vera nálægt heilbrigðisþjónustu. Við tókum þá ákvörðun í kjölfarið á veikindunum að setja Havarí á sölu.“ Fluga á vegg í Mjóddinni Í vetur hefur Svavar stundað nám í ljós- myndun við Tækniskólann. „Það hefur algjörlega bjargað geðheilsunni, þessi ljósmyndun. Þarna fær sköpunarkraft- urinn útrás í einhverju öðru eftir að ég setti tónlistina aðeins til hliðar. Nú ramma ég inn með auganu. Ég get þá sagt sögur í gegnum ljósmyndun og myndlist,“ segir Svavar en hann útskrifast í vor. „Ég hef svolítið verið að taka myndir þannig að ég sé eitthvað út undan mér og fer svo gjarnan til baka ef það sem ég sá fer að ásækja mig. Ég prófa svo að mynda þar í alls kyns birtu og stundum gengur það upp og stundum ekki,“ segir Svavar. „Ég hef líka verið að mynda fólk. Lokaverk- efnið mitt í skólanum var að taka götumyndir í Mjóddinni. Ég er búinn að vera þar eins og grár köttur í vetur að taka mannlífsmyndir,“ segir hann og segir verkefnið hafa verið mjög skemmtilegt. „Ég þekki Mjóddina mjög vel, verandi úr Breiðholti. Það er svo gaman að fara inn á svæðið og kynnast fólkinu, spjalla við það og vinna traust þess. Svo fer ég aftur og mynda fólkið; verð fluga á vegg án þess að vera fyrir. Maður þarf að hafa mikið fyrir þessu; götu- ljósmyndun er ekki auðveld,“ segir Svavar og segist hafa áhuga á að halda áfram að gera til- raunir með myndavélina að vopni. „Ég þarf að skapa.“ Bjartsýnn á morgundaginn Kaffið er orðið kalt í bollunum. Það er liðið fram að hádegi og Svavar þarf að fara að snúa sér að öðrum verkefnum, enda fellur honum sjaldnast verk úr hendi, nema helst dagana eft- ir meðferðir. Þá leyfist honum að hvílast. Það er alveg ljóst að Svavar heldur ótrauður áfram með lífið og lætur krabbameinið ekki slá sig út af laginu. „Það sem hefur breyst er að ég geri ekki langtímaplön, sem er líka bara fínt. Að verða fyrir svona áfalli er mjög góð æfing í núvit- und,“ segir hann og brosir út í annað. „Maður losnar við eirðarleysið um hvað maður ætli að gera í framtíðinni; hvað maður ætlar að verða. Ég er hættur að spá í það. Ég er bara á meðan ég er og fæst við það sem ég fæst við þann daginn. Ég hugsa um einn dag í einu og ekki um hvað ég ætli að verða. Frekar bara að vera. Ég er bjartsýnn á morgundag- inn; það dugar mér.“ Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.