Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Síða 19
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon um svo ótrúlega ástríðufull þegar kemur að merkjavörum og tísku og við vorum svo ein- staklega spennt (og stressuð) að geta loksins boðið upp á þetta hérna heima, á öruggum vett- vangi en ekki lengur bara á sölusíðum á Face- book eða í básum á loppumörkuðum. Við héldum þessu leyndu fyrir öllum heillengi af því við vissum bara hversu ótrúlega mikil eft- irspurn væri fyrir þessu hérna heima en að framboðið væri nánast ekkert fyrr en við opn- uðum.“ Margt freistar Vörurnar í búðinni freista líka eigandans. „Ég sjálf á mjög erfitt með að reka búðina án þess að setja sjálfa mig á hausinn,“ segir Ýr. „Það er stöðugt flæði á flíkum sem koma til okkar og ég á oft mjög erfitt með að kaupa þær ekki allar. Ég hef sjálf selt mjög mikið af mínum heittelsk- uðu flíkum í Attikk og í staðinn keypt mér eitt- hvað nýtt. Síðan verður það líklegast bara að ákveðinni hringrás hjá mér. Ég sel vöruna í At- tikk þegar ég er vaxin upp úr henni og fæ mér þá nýja sem nýtist mér betur í staðinn. Þetta er líka ótrúlega hentugt fyrir mig og unnustann. Við áttum bæði nýlega afmæli og gátum keypt á hvort annað á vinnutíma.“ Ýr kveðst alltaf hafa verið mikið fyrir að kaupa flíkur og fylgihluti á sjálfa sig og aðra í gjöf í sambærilegum verslunum erlendis. „Einn af uppáhaldsgullmolunum mínum er 40 ára gamla Guccitaskan mín sem er til sölu í Attikk núna og síðan Fendi-taska og Louis Vuitton- taska sem ég fékk að gjöf. Hérlendis hef ég að- allega verslað í verslunum Rauða krossins og Hjálpræðishersins í leit að földum gullmolum og held til dæmis mikið upp á Burberryskyrt- urnar mínar þaðan. Eftirspurnin eftir merkja- vörum er bara orðin svo mikil að þetta hefur breyst í svolítið kapphlaup í þeim verslunum,“ segir hún. Langar í stígvél frá Prada Hvaða merki er í uppáhaldi hjá þér? „Þetta fer svolítið eftir vörunni sem er spurt um. Uppáhaldstöskurnar mínar eru frá Louis Vuitton, Prada og Fendi. Uppáhaldsbolirnir og peysurnar frá Burberry og uppáhaldsbuxurnar frá Versace og Levi’s. Merkin eru svo ótrulega mörg og bjóða hvert og eitt upp á svo ótrúlega breytilegt úrval. Það er langskemmtilegast að blanda þessu saman,“ segir Ýr. Það eru ákveðnar vörur sem Ýr segist lengi hafa þráð að eignast. „Til dæmis eru Pradastígvél og Chanelsól- geraugu efst þar á lista en svo er ég alltaf tilbúin að stækka töskusafnið. Eins held ég að allir, þar á meðal ég, þurfi að næla sér í ný sólgeraugu eða belti fyrir vorið, það er næst á dagskrá hjá mér.“ ’ London er uppáhaldsborgin mín og ekki aðeins vegna næturlífsins eða menningarinnar - heldur akkúrat vegna þess að þar leynist heill haugur af álíka verslunum og Attikk.“ Notuð Balenciaga Camera Bag er til sölu í Attikk. Gallabuxur og sólgleraugu eru frá Burberry og taskan frá Louis Vuitton. Ýr á þessa skartgipi. Eyrnalokkar frá Calvin Klein, Gullhringur úr Jens og lofhringur (e. promise ring) keyptur notaður á Spáni og var gjöf frá kærasta Ýrar. Hann er úr gulli með náttúrulegum demöntum og safírsteinum. Resin hringurinn frá Louis Vuitton er notaður eins og annað sem er til sölu í Attikk. Hringurinn er sjaldgæfur og var einungis framleiddur árið 2012. 25.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.