Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Side 20
Ananas- og
myntudraumur
Fyrir 3
2 bollar ferskur ananas, afhýddur,
miðjan hreinsuð úr og skorin í bita
6-7 myntulauf, skorin smátt
1 bolli ísmolar
¼ bolli vatn eða meira ef þarf
Setjið öll hráefnin í blandara og
blandið vel.
Þriggja laga þeytingur
Fyrir 2
hálf hunangsmelóna, skorin í litla bita
2 mangó, skorin í kubba
8 kíví, afhýdd og skorin í bita
2 bollar jarðarber
1 bolli bláber
Setjið melónuna og mangóið í blandara, blandið og hellið í tvö glös.
Setjið kíví í blandara og notið skeið til að setja yfir hina blönduna.
Setjið berin í blandara og setjið í glösin með skeið. Hægt er að
bæta einni teskeið af sykri við ef ykkur finnst vanta sætu.
Berið fram strax.
2 bollar mjólk eða möndlumjólk
1 bolli vanillujógúrt eða grísk jóg-
úrt, frosin
2½ bolli bláber, fersk eða frosin
1½ bolli haframjöl
2 msk. hunang
1 tsk. vanilludropar
½ tsk. kanill
handfylli af ísmolum
Blandið öllu saman í blandara.
Þessi er ískaldur og hollur!
Njótið!
Bláberja-
þeytingur
HEIMILI ENSKA BOLTANS
Á VEFNUM
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.4. 2021
MATUR
Fyrir 2
2 bollar vatnsmelóna, fræin hreinsuð
burt
1 bolli frosin jarðarber, sneidd
safi af einu lime
¼ bolli ósæt kókósmjólk
2-3 ísmolar (má sleppa)
Setjið vatnsmelónu, jarðarber,
límónusafa og kókósmjólk í bland-
ara. Blandið á hröðustu stillingu í
20-30 sekúndur.
Til að fá aðeins þykkari þeyting,
setjið þá 2-3 ísmola í blandarann
og blandið þar til silkimjúkt.
Vatnsmelónu-
þeytingur
Sumar-
þeytingar
með bragði!
Sumarið er komið og hitastigið fer hækkandi. Þá
er gott að henda í ískaldan þeyting og njóta úti á
palli, í sveitinni eða taka með sér á gosstöðvar!
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Fyrir 2
2 kíví, afhýdd og skorin í bita
1 banani, afhýddur
½ bolli möndlumjólk eða venjuleg
mjólk
safi af einni límónu
1 bolli grísk jógúrt
1 bolli ísmolar
Afhýðið og skerið kíví og ban-
ana. Setjið í blandara ásamt
mjólk, jógúrt, límónusafa og ís-
molum.
Blandið í eina eða tvær mínútur,
þar til silkimjúkt.
Suðrænt og
seiðandi