Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 12

Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 12
Hægir á bandarískum vinnumarkaði Nýjustu tölur sýna að um 266.000 ný störf urðu til í Bandaríkjunum í apríl og að atvinnuleysi jókst lítillega í mánuðinum. Til samanburðar fjölg- aði störfum um 770.000 í mars og bendir þróunin á milli mánaða til þess að viðsnúningur bandarísks efnahagslífs á lokametrum kórónu- veirufaraldursins verði ekki eins hraður og vonir stóðu til. FT bendir á að í apríl hafi um 8,2 milljónum færri Bandaríkjamenn verið vinn- andi en í febrúar 2020. Þegar rýnt er í tölurnar má sjá að ágætis uppgangur er í afþreyingar-, hótel- og veitingageira þar sem 331.000 ný störf urðu til í mán- uðinum en á móti kom samdráttur í öðrum geirum atvinnulífsins, s.s. bílaframleiðslu og verslunargeira með tilheyrandi fækkun starfa. Að sögn FT má m.a. skýra þró- unina í apríl með því að eftir því sem bandaríska hagkerfinu vex þróttur á ný megi vænta skrykkjótts vaxtar og þannig hafi þróunin í marsmánuði verið langt umfram spár sérfræð- inga. Þá sé enn eftir að bólusetja að fullu allstóran hóp Bandaríkjamanna og því hugsanlegt að heilsufars- ástæður valdi því að sumir launþegar vilji bíða lengur með að hefja störf. Börnin flækja málið Þá er skólastarf ekki alls staðar komið í eðlilegt horf. Í sumum ríkjum Bandaríkjanna eru skólar ekki að fullu opnir og allur gangur á því hvort dagvistun er í boði. Sýna vinnumarkaðsmælingar enda að karlar virðast snúa hraðar til starfa en konur og hugsanlegt að margar mæður hafi ákveðið að bíða með að fara aftur á vinnumarkaðinn þar til næsta haust og gæta bús og barna á meðan. Loks kunna bótagreiðslur hins opinbera að hafa letjandi áhrif en sem liður í efnahagsaðgerðum stjórnvalda voru atvinnulausum greiddar 300 dala viðbótarbætur vikulega frá því í mars síðastliðnum. Hvert ríki ræður því hvort það greið- ir þessar aukabætur en í síðustu viku tilkynntu yfirvöld í Montana og Suð- ur-Karólínu að viðbótin yrði felld nið- ur og var það gert með þeim rökum að greiðslurnar yllu skorti á vinnuafli enda atvinnuleysisbætur í sumum til- vikum hærri en þau laun sem fólk gæti vænst á almennum vinnumark- aði. ai@mbl.is - Fjölgun starfa í apríl mun minni en í mars - Bætur kunna að hafa letjandi áhrif AFP Flækjur Á sumum svæðum í BNA virðist ganga illa að manna störf. 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Loka þurfti stærstu eldsneytisleiðslu Bandaríkjanna á laugardag eftir að tölvuþrjótar gerðu gagnagíslatöku- árás á félagið sem rekur leiðsluna. Colonial-leiðslan er um 8.850 km löng og nær frá Houston í Texas til Linden í New Jersey. Leiðslan er notuð til að flytja bensín, díselolíu, þotueldsneyti og olíu til húshitunar og getur flutt um þrjár milljónir fata daglega. Eldsneytið sem flutt er með leiðslunni annar um 45% af eft- irspurn fólks og fyrirtækja á Aust- urströnd Bandaríkjanna og gæti valdið alvarlegum skorti ef töf verð- ur á opnun leiðslunnar. Stjórnendur Colonial hafa ekki gefið upp hvenær þeir vænta að starfsemin komist aftur í eðlilegt horf en markaðsgreinendur segja að birgða- og dreifikerfið ráði við allt að þriggja daga röskun án þess að það komi niður á framboði til kaup- enda. Eins og nafnið gefur til kynna fer gagnagíslataka þannig fram að sá sem gerir árásina nær að loka aðgangi fórnarlambsins að tölvu- gögnum og krefst lausnargjalds til að opna fyrir aðganginn að nýju. Ekki hefur verið gefið upp hvaða kerfi Colonial urðu fyrir árásinni né hverjar kröfur tölvuþrjótanna eru. Árásin þykir vekja spurningar um hve viðkvæmir sumir lykil- innviðir Bandaríkjanna eru fyrir tölvuárásum. Reuters hefur eftir sérfræðingum að vandi Colonial sýni að það skipti máli fyrir þjóð- aröryggi að verja þessa innviði og sé verkefni sem kalli á samræmdar aðgerðir ýmissa stofnana. ai@mbl.is Tölvuárás lamar leiðslu - Colonial-eldsneytisleiðslan skaffar nærri helming alls þess eldsneytis sem notað er á austurströnd Bandaríkjanna AFP Stopp Löng lokun mun valda verð- hækkun á ákveðnum svæðum. 10. maí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.8 Sterlingspund 173.38 Kanadadalur 102.43 Dönsk króna 20.239 Norsk króna 15.03 Sænsk króna 14.863 Svissn. franki 137.28 Japanskt jen 1.1422 SDR 179.07 Evra 150.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.4088 Hrávöruverð Gull 1820.5 ($/únsa) Ál 2476.5 ($/tonn) LME Hráolía 68.26 ($/fatið) Brent « Samkvæmt mælingum bandaríska atvinnumálaráðuneytisins mældist verðbólga 2,6% á ársgrundvelli í mars síðastliðnum og hefur ekki mælst hærri síðan í ágúst 2018. Þá sýna vöruverðs- mælingar NioelsenIQ að ákveðnar neyt- endavörur hafa hækkað um meira en tveggja stafa prósentutölu á undan- förnum 12 mánuðum. Þannig hefur verð salernispappírs hækkað um rösk- lega 16% og töluverð verðhækkun orðið í vöruflokkum á borð við kjöt og hreinsi- vörur. Wall Street Journal greinir frá þessu og bætir við að verð heimilis- tækja eins og uppþvottavéla og frysta hafi líka hækkað verulega, sem og verð á ýmsum garðvörum. Má m.a. rekja verðbólguna til hækk- unar á ýmsum hrávörum, s.s. kornvör- um, timbri, stáli og olíu. Bandarískum flutningafyrirtækjum gengur líka erfið- lega að manna vöruflutningabílana og hafa þurft að hækka laun vörubílstjóra um allt að 40% á undanförnum mán- uðum til að fylla lausar stöður með til- heyrandi áhrifum á flutningskostnað. Skortur á flutningagámum og aukinn þrýstingur á vöruflutningainnviði vegna vaxandi vinsælda netverslunar hefur líka átt sinn þátt í hækkandi kostnaði vegna flutninga. Matvöruframleiðandinn Kellogg Co. tilkynnti á fimmtudag að fyrirtækið væri tilneytt að hækka verð á vörum sínum vegna hærri hráefnis-, launa- og flutningskostnaðar. Þá hyggst neytendavörurisinn Procter & Gamble hækka verð á salernispappír og bleium fyrir börn og fullorðna. ai@mbl.is Verðbólga þrengir að neytendum vestanhafs Aðhald Dýrari aðföng leiða til hærra vöruverðs í Bandaríkjunum. FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Markaðsverð rafmyntarinnar doge- coin tók að hækka jafnt og þétt eftir að fréttist að milljarðamæringurinn Elon Musk myndi verða gesta- stjórnandi bandaríska gamanþátt- arins Saturday Night Live (SNL). Musk, sem er stofnandi rafbíla- framleiðandans Tesla og einn af ríkustu mönnum heims, er þekktur fyrir að tjá sig tæpitungulaust á Twitter og hefur m.a. notað samfélagsmiðilinn til að deila skoð- unum sínum á rafmyntum. Þykja ummæli Musks iðulega mikill gæðastimpill – jafnvel þegar hann virðist vera að fíflast – og fjallaði Morgunblaðið um það í apríl hvern- ig t.d. dularfullt tíst Musks um raf- myntina dogecoin, með mynd af málverki Joan Miró, varð til þess að heimsmarkaðsverð rafmyntarinnar tók kipp. Að sögn FT virðist sem raf- myntabraskarar hafi veðjað á að dogecoin fengi mikinn sýnileika í sjónvarpsþættinum með tilheyr- andi aukningu í eftirspurn en Musk gaf þessum væntingum byr undir báða vængi með óræðum tístum í aðdraganda þáttarins. Fyrir vikið hækkaði samanlagt markaðsvirði dogecoin um marga tugi milljarða dala í spákaupmennskuviðskiptum. Rökþrota sérfræðingur Frammistaða Musks á laugardags- kvöld var þó ekki eins og rafmynta- kaupmenn höfðu vænst því í þættin- um gerði hann stólpagrín að dogecoin. Í einu atriðinu leikur Musk fjármála- sérfræðing sem fenginn er í fréttskýr- ingarþátt til að útskýra hvernig raf- myntin virkar, en fer ítrekað á svig við spurningar þáttastjórnendanna þar til hann játar í lokin að dogecoin sé „svindl“. Lækkaði gengi dogecoin um liðlega þriðjung eftir að þátturinn fór í loftið en tók að styrkjast að nýju á sunnu- dag og var verðið á sunnudagskvöld um fimmtungi lægra en þegar verð rafmyntarinnar var hæst á laugardag. Það sem af er þessu ári hefur verð- hækkun dogecoin verið ævintýri lík- ust en frá ársbyrjun hefur rafmyntin hækkað meira en hundraðfalt og hækkunin að mestu átt sér stað eftir miðjan apríl. Er þessi þróun ekki síst áhugaverð í ljósi þess að dogecoin var upphaflega sett á laggirnar árið 2013 sem nokkurs konar háðsádeila á raf- myntahagkerfið og hefur einkum not- ið vinsælda hjá smáum hópi netverja sem eins konar grín-rafmynt. Er dogecoin núna fjórða verðmæt- asta rafmyntin á eftir bitcoin, ether- eum og binancecoin. Á sunnudag kostaði dogecoin 0,56 dali samkvæmt skráningu Coindesk og mælist heildarvirði dogecoin-- hagkerfisins því um 72,9 milljarðar dala. Dogecoin veikist eftir grín AFP Uppistand Musk kom víða við í gríninu og skaut föstum skotum á dogecoin. - Elon Musk kallaði rafmyntina „svindl“ í gamanþætti Saturday Night Live Dýrt spaug » Rafmyntagrín einkenndi þátttöku Musks í SNL. » Dogecoin fékk ekki þann já- kvæða sýnileika sem fjárfestar höfðu vænst. » Grín-rafmyntin dogecoin er núna fjórða verðmætasta raf- myntin. Seppi Dogecoin dregur nafn sitt af hundi sem er frægur á netinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.