Morgunblaðið - 10.05.2021, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Skoski þjóðernisflokkurinn (SNP)
sagði í gær að yfirburðasigur flokksins
í kosningum til löggjafarsamkundu
Skota í Edinborg væri næg ástæða
þess að efna til nýs þjóðaratkvæðis um
kröfuna um sjálfstæði Skotlands og
það þrátt fyrir andstöðu stjórnvalda í
London.
Í kosningabaráttunni lofaði SNP
nýju þjóðaratkvæði um sjálfstæði. Til
að af því geti orðið þarf breska stjórn-
in að veita til þess leyfi og öðruvísi
hefði niðurstaða þjóðaratkvæðis ekk-
ert lagalegt gildi. Er stjórn Boris
Johnsons staðfastlega andvíg nýrri at-
kvæðagreiðslu um kröfur Skota. Þykir
því stefna í átök um málið að nýju;
langvarandi pólitísk átök og klögur
fyrir dómstólum.
Segja skoskir þjóðernissinnar auk-
inn þingstyrk á þinginu í Edinborg
veita þeim nýtt umboð fyrir „indyref2“
en svo er þjóðaratkvæðið nefnt eftir að
andstæðingar sjálfstæðis urðu undir í
fyrstu kosningum þar í landi árið 2014.
Fékk SNP 64 menn kjörna til þingsins
eða aðeins einum færra en dugað hefði
til hreins meirihluta flokksins.
Skoskir fjölmiðlar gerðu mikið úr
sterkri útkomu SNP en fjölmiðlar á
landsvísu tóku í annan streng. Blaðið
The Herald on Sunday hafði aðeins
eitt stórt orð yfir forsíðu sína um úr-
slitin: „Yfirgnæfandi“. Blaðið The
Sunday Telegraph sagði aftur á móti
sigri Sturgeon ábótavant.
Í sigurræðu sinni sagði SNP-leið-
toginn Nicola Sturgeon að nú væri það
þingið í London sem hefði „engar lýð-
ræðislegar forsendur“ til að synja um
annað þjóðaratkvæði. „Ég leiði von-
andi Skotland til sjálfstæðis,“ sagði
hún við BBC í gær, sunnudag. Og
bætti við að það yrði „fjarri öllu lagi og
fullkomlega svívirðilegt“ ef sækja
þyrfti málið gegnum hæstarétt sem
gerst gæti reisti þingið í Westminster
skorður við þjóðaratkvæði og skoska
þingið fyrir sig samþykkti atkvæða-
greiðslu um aðskilnað landanna.
Boris Johnson hefur sagt að til
þjóðaratkvæðisgreiðslu eins og 2014
þar sem 55% Skota sögðu nei við sjálf-
stæði ætti aðeins að efna með heillar
kynslóðar millibili. Hann sagði í opnu
bréfi til Sturgeon á laugardag að kröf-
ur SNP-flokksins um nýtt þjóðarat-
kvæði væru „óábyrgar og glanna-
legar“ og hvatti hana til „samstarfs“ í
liðinu „Team UK“.
Michael Gove, ráðherra í stjórn
Johnsons, reyndi í gær að gera minna
úr deilunni sem undir kraumar á ný.
Sagði hann það forgangsatriði allra
stjórnmálaleiðtoga í breska konung-
dæminu, þar á meðal Sturgeon, að
vinna sigur á kórónuveirufaraldrinum.
Landið hefði bara ekki tíma til að fara í
„langvarandi samtal um þjóðskrána“.
Gove hélt því líka fram að þar sem
SNP hefði ekki hreinan meirihluta á
heimaþinginu eins og þegar fyrsta
þjóðaratkvæðið fór fram 2014, væri
um þýðingarmikinn mun að ræða.
Spurður hvort Skotar fengju að yfir-
gefa konungdæmið svaraði Gove:
„Auðvitað … í löglegri atkvæða-
greiðslu sem heimilaði þjóðinni að
kjósa.“
AFP
Sátt Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands og leiðtogi SNP-flokksins,
fagnaði úrslitum kosninganna með flokksmönnum í Glasgow.
Átök að nýju um sjálfstæði
- Skoskir þjóðernissinnar einum þingmanni frá því að vinna meirihluta þingsins
Ekkert lát virðist á útbreiðslu kórónu-
veirunnar á Indlandi en á sólarhring
þar til síðdegis í fyrradag létust 4.187
manns af hennar völdum þar í landi.
Er það metfjöldi og eru þá 238.270
látnir í landinu frá því kórónuveiru-
faraldurinn fór af stað. Þá bættust
401.078 nýsmit við sama sólarhring.
Fleiri indversk ríki freista alls til að
stöðva nýju smitbylgjuna en sérfræð-
ingar segja að hún nái e.t.v. ekki há-
marki fyrr en í lok maí.
Vaxandi kröfur eru um að gripið
verði til varna gegn veirunni á lands-
vísu. Rahul Gandhi, leiðtogi Kongress-
flokksins, sem er í stjórnarandstöðu,
hvatti Narendra Modi forsætisráð-
herra til að fyrirskipa útgöngubann því
annars gæti veiran breiðst hratt út og
haft eyðileggingu í för með sér.
Emmanuel Macron Frakklandsfor-
seti skoraði á Bandaríkjamenn um
helgina að aflétta takmörkunum á út-
flutningi bóluefna gegn kórónuveir-
unni. Í ljós er kominn ágreiningur milli
Bandaríkjanna og hluta Evrópuríkja
um hvernig best væri að standa að
aukinni framleiðslu bóluefna á heims-
vísu.
Í gær lét nærri að 1,25 milljarðar
manna hefðu verið bóluettir gegn kór-
ónuveirunni. Innan við 1% þessara
skammta hefur ratað í vöðva íbúa 29
fátækustu ríkja heims, samkvæmt út-
tekt AFP-fréttastofunnar. Bólusetning
meðal ríkra þjóða fer vaxandi og hafa
t.a.m. 67% Breta fengið fyrri skammt-
inn og 56% Bandaríkjamanna.
Önnur bylgja kórónuveirusmits ríð-
ur nú yfir Filippseyjar með miklu álagi
á heilbrigðiskerfið. Aðeins fleiri smit í
Suðaustur-Asíu er að finna í Indónesíu.
Langvarandi og lamandi aðhaldsað-
gerðir gegn veirunni hafa gert að verk-
um að hart keyrðir íbúar leita á götur
út í þeirri von að finna matarbita.
agas@mbl.is
Indverjar herða
takmarkanir
- Aldrei fleiri látist þar á sólarhring
AFP
Sprautur Boðið var upp á bólusetn-
ingu með Janssen á Flórída í gær.
Franskur orrustuflugmaður var
busaður með óvenjulegum hætti er
hann var vígður til starfa af fé-
lögum sínum.
Var hann bundinn við staur við
fjöruborð og síðan buldi skothríðin
frá þotum flugsveitarinnar er þær
renndu sér niður að „skotmarkinu“.
Flugmanninum var brugðið en
fullyrt er að öryggi hans hafi ekki
verið ógnað. Hefur hann lagt fram
formlega kvörtun yfir atvikinu sem
átti sér stað í Solenzara-flug-
herstöðinni á Korsíku.
Talsmaður flughersins, Stephane
Spet, sagði að rannsókn á atvikinu
hefði þegar farið fram og þeir sem
ábyrgð báru tekið út refsingu fyrir
agabrot. Refsingin var nokkurs
konar ótímabundið stofufangelsi í
herbúðunum, en hversu mörgum
var refsað var ekki skýrt frá.
FRAKKLAND
AFP
Frakkland Rafaell-orrustuþotur á flugi.
Busaður óvenjulega
Tveir hópar
fjallamanna virtu
ekki viðvaranir
um snjóflóða-
hættu í Savoie-
héraðinu í
frönsku Ölp-
unum. Vegna
hlýnandi veðurs
þóttu snjóalög
óstöðug og fór
svo að tvö flóð
féllu á laugardag. Biðu sjö manns
bana.
Að sögn sýslumanns Savoie féll
fyrra flóðið undir hádegi við þorpið
Valloire skammt frá fjallinu Col du
Galibier. Fjórir heimamenn á aldr-
inum 42 til 76 ára fórust.
Tollur seinna flóðsins upp úr há-
degi var þrjú mannslíf. Féll það við
hið 3.779 metra háa Mont Pourri
skammt frá skíðabænum Les Arcs.
ALPARNIR
Sjö fórust í snjóflóð-
um í Savoie-héraðinu
Flóð Snjór ruddur
á flóðasvæði.
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Eldflaug kínversku geimflaugarinnar
kom inn í gufuhvolfið í fyrrinótt
klukkan 2.24 að íslenskum tíma og
brann að mestu upp í andrúmsloftinu
á leið til jarðar skammt frá Maldíveyj-
um.
Átján tonna flaugin „Gangan mikla
5B“ var á stærð við þrjá strætisvagna.
Molnaði hún í gufuhvolfinu og brann á
lokametrunum að sögn kínversku
geimferðastofnunarinnar.
Miklar vangaveltur voru um það
síðustu daga hvar flaugin myndi
hrapa til jarðar. Henni var skotið upp
29. apríl og flutti á braut um jörðu
fyrstu einingu kínverskrar geim-
stöðvar sem sett verður saman þar.
Þar sem 70% yfirborðs jarðar eru
vatn þótti líklegast að flaugin kæmi
niður til jarðar á úthafi.
Vöktunarfyrirtækið Space-Track
hafði fylgst með flauginni og brúkað
til þess tölvugögn frá bandaríska her-
aflanum. Staðfesti það niðurkomu-
staðinn líka. „Allir sem fylgjast með
endurkomu #LongMarch5B geta
varpað öndinni léttar. Eldflaugin er
komin til baka,“ sagði fyrirtækið.
En stjórnlaus lækkun svo stórs
hlutar vakti ótta um tjón á mann-
virkjum og fólki þrátt fyrir að töl-
fræðilegar líkur á því væru hverfandi.
Amerískar og evrópskar geim-
ferðastofnanir fylgdust náið með Kí-
naflauginni torræðu. Spurningar
vöknuðu hvort skjóta þyrfti á flaugina
til að hafa áhrif á lendingu hennar. Því
hafnaði Lloyd Austin, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, sem
sagði bandaríska herinn engin slík
áform hafa. Gagnrýndi hann Kínverja
fyrir að láta flaugina hrapa til jarðar í
stað þess að skilja hana eftir á braut
um jörðu.
„Lending á úthafi í lok heimkomu
var allan tímann tölfræðilega líkleg-
ust,“ sagði Jonathan McDowell,
stjarnfræðingur við Harvard-
háskólann í Bandaríkjunum. „Svo
virðist sem Kínverjar hafi unnið veð-
mál sitt nema eftir eigi að berast frétt-
ir af braki frá Maldíveyjum. Hvað sem
öðru líður þá var þetta eftir sem áður
glæfralegt af þeirra hálfu.“ McDowell
hafði áður sagt að Kínverjar ættu að
endurhanna flaugina Miklaganga 5B
til að komast hjá svona aðstæðum.
Molnaði í sundur við Maldíveyjar
AFP
Tók á loft Kínaflauginni var skotið
upp 29. apríl síðastliðinn.