Morgunblaðið - 10.05.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.05.2021, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í Dagmálum íliðinni vikulýsti Halldór Benjamín Þor- bergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, þeirri skoðun að sagan myndi ekki dæma þá ákvörðun verkalýðsforystunnar vel, að hafa hafnað því eftir að kór- ónukreppan skall á að taka upp kjarasamninga. Halldór benti á að það hefði verið algerlega fyrirsjáanlegt hvaða afleið- ingar þetta mundi hafa og að það birtist í hagtölum í dag, hvort sem litið væri á atvinnu- leysi eða verðbólgu. „Allt tal um það,“ sagði Hall- dór, „að það sé umdeilt meðal hagfræðinga hvort launa- hækkanir umfram svigrúm hafi áhrif til verðbólgu, þetta er bara einhvers konar flatjarðartal í mínum huga. Þetta er ekkert umdeilt. Ég er í reglulegum samskiptum við kollega mína á Norðurlöndum sem stýra samtökum atvinnu- lífsins á Norðurlöndum. Þetta er ekkert umdeilt í þeirra ranni. Þetta er ekkert umdeilt á meðal norrænnar verkalýðs- hreyfingar, hvort afleiðing- arnar af of miklum launahækk- unum, eða innistæðulausum launahækkunum, séu verð- bólga. Það er enginn að deila um þetta. En á Íslandi hefur þessi umræða einhvern veginn náð að festa rætur, sér í lagi á meðal verkalýðshreyfing- arinnar, að það séu í raun og veru bara engin sérstök tengsl þarna á milli.“ Þessi lýsing á því miður við rök að styðjast og það er veru- legt áhyggjuefni hér á landi hvernig komið er fyrir verka- lýðshreyfingunni, hversu mjög hún er úr tengslum við raun- veruleikann og hve skaðlegt það er fyrir allan almenning í landinu. Í fróðlegri grein í Þjóð- málum fjallar Hannes G. Sig- urðsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um það fyrir- komulag sem viðhaft er við kjarasamningagerð hér á landi og hve langt við stöndum að baki öðrum norrænum þjóðum að þessu leyti. Hann bendir á að kjaralotan sem hafi hafist haustið 2018 standi enn, þó að flestir hafi samið, en eitt sem skilji íslenskan vinnumarkað frá öðrum sé hve langan tíma taki að ná samningum. Hér reyni einstakir samningsaðilar að ná ávinningi umfram þann tón sem sleginn hafi verið hjá þeim fyrstu sem sömdu auk þess sem gengið sé út frá því að samningar séu afturvirkir, sem vitaskuld verður til þess að draga samninga á langinn og valda jafnt atvinnulífi sem launþegum óþæg- indum. Sláandi er að sjá tölur í grein Hann- esar um launaþró- un hér á landi og hjá nágrannaþjóð- um okkar. Áratuginn 2010- 2020 hækkuðu laun í Dan- mörku og Svíþjóð um 22%, en hér á landi hækkuðu þau um 95%. Árlegar breytingar hafa því verið um 2% að meðaltali í samanburðarlöndunum tveim- ur en 7% á Íslandi. „Þetta er ósjálfbær þróun sem endar óhjákvæmilega í kunnuglegum vítahring launahækkana, verð- bólgu og gengislækkana krón- unnar,“ segir Hannes. Við þetta má bæta atvinnuleysi, sem landsmenn hafa fengið að kynnast að undanförnu og tengist óhóflegum launahækk- unum. Það svigrúm sem Samtök at- vinnulífsins telja að sé almennt til launahækkana hér á landi er 3,5-4,0% og er samtala verð- bólgumarkmiðs Seðlabankans og framleiðniaukningar í land- inu. Til lengi tíma getur svig- rúmið ekki verið meira enda getur kaupmáttur ekki aukist almennt nema með aukinni framleiðni. Þetta er sérstaklega augljóst þegar horft er til þess að launahlutfall hér á landi er mjög hátt í alþjóðlegum sam- anburði og því ekkert svigrúm til þess að auka hlut launa- kostnaðar í framleiðslunni. Líklegt er að aðstæður á vinnumarkaði verði að breyt- ast verulega til að unnt verði að semja af meiri skynsemi hér á landi en gert hefur verið. Hér er mjög hátt hlutfall launamanna í verkalýðs- félögum, mun hærra og jafnvel margfalt hærra en þekkist er- lendis. Þetta á ef til vill sinn þátt í hvernig er komið, sér í lagi þegar forysta verkalýðs- félaganna neitar að við- urkenna staðreyndir og lifir í eigin heimi upphrópana og ald- argamalla frasa úr verkalýðs- baráttu löngu liðins tíma. Íslensk verkalýðshreyfing og vinnumarkaður verða að stíga inn í nútímann og takast af ábyrgð á við það verkefni að semja um laun sem atvinnulífið stendur undir. Þetta felur til að mynda í sér viðurkenningu á því að of langt hafi verið gengið á undanförnum árum og að nú verði að huga að því að treysta undirstöður at- vinnulífsins, tryggja mögu- leika þess til að vaxa og þar með til að fjölga störfum og tryggja öllum vinnu sem vilja vinna. Þessu forgangsverkefni aðila vinnumarkaðarins hefur verið ýtt til hliðar á liðnum ár- um en það verður að hefja í öndvegi á nýjan leik með skyn- samlegri samningagerð. Verðbólga og atvinnuleysi verða ekki til að ástæðulausu} Skýrt samhengi F orsætisráðherra sagði einn daginn, þegar reglur voru hertar, eitthvað á þessa leið: „Auðvitað erum við öll pirruð. En þetta er vonandi að verða búið.“ Ég var reyndar ekk- ert pirraður, svona er lífið einfaldlega í bili. Fjarfundir henta mér ágætlega, þeir taka skemmri tíma og eru umhverfisvænni en þeir gömlu. Mér fannst ágætt að vera einn á skrif- stofunni, þegar öllum var ráðlagt að vera heima og hinir fóru allir eftir því. Ég var hvergi örugg- ari en þar. Frelsi er mikilvægt, en flestir eru til í að draga úr því tímabundið og fá öryggi í staðinn. En það helsi sem fer verst með fólk og ríkið sjálft er ekki tímabundnar ferða- og sam- komutakmarkanir, heldur skuldafjötrar. Satt að segja hef ég persónulega aldrei verið sérstaklega hræddur við veiruna. Ég held samt að ég hafi farið bærilega eftir reglum, forðast margmenni og haldið mig í hæfilegri fjarlægð frá öðrum. Líklega var það bara meðfætt kæruleysi sem olli því að ég var ekkert mjög smeykur. En ég hitti líka fáa. Sem betur fer sluppu flestir Íslendingar við smit og fæst- ir af þeim sem smituðust urðu mjög veikir. En nokkrir dóu og enn í dag eru sumir þeirra sem veiktust ekki fullbata. Sumir hafa verið æfir yfir því að einhver önnur ríki hafi náð að bólusetja þegna sína hraðar en Íslendingar. Líklega var það frekar sótthræðsla en öfundsýki sem réð þeirri reiði. Sjálfur var ég bólusettur um daginn og hef sjaldan hrifist eins af skilvirkni landans og þann dag. Eftir nokkrar vikur verður búið að bólusetja nánast allt fullorðið fólk á landinu. Samt dettur mér ekki í hug að segja að þessu sé lokið. Atvinnuleysi er ennþá mikið og verðbólga sú mesta í mörg ár. Ferðaþjónustan kemst ekki á fullt á þessu ári. Ríki og sveitarfélög eru rekin með miklum halla. Kreppan varð grynnri en óttast var í upphafi, en hún gæti fylgt þjóðinni lengi. Því miður var halli á ríkinu árið 2019, þrátt fyrir hagvöxt og enga veiru. Áætlanir ganga út á viðvarandi hallarekstur næstu árin með tilheyrandi skuldasöfnun. Skuldir hafa þann leiðinlega eiginleika að þær þarf að borga. Nú heyrist það viðhorf að vextir séu svo lágir að skuldir skipti litlu. Ein- hverntíma kemur samt að því að þeir hækka. Þá verður vaxtabyrðin þyngri og minna eftir í þörf málefni en nú. Um þetta snýst næsta kjörtímabil. Við öndum léttar í bili Íslendingar, því að við teljum okkur sjá til lands í skammtímabaráttunni, en hætt er við því að um leið og sóttvarnalæknir hverfur af sviðinu taki seðlabankastjóri hans sess sem tíður gestur í fréttum. Velferð þjóðarinnar til lengri tíma felst í því að skuldir séu hóflegar og rekstur hins opinbera sjálfbær, án skatt- píningar um langa framtíð. Nýtum kreppuna til þess að bæta samfélagið, okkur og komandi kynslóðum til far- sældar. Benedikt Jóhannesson Pistill Verður veiran við völd til 2030? Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is B úist er við að Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynni bráðlega hver stefna hans varðandi samskipti Banda- ríkjanna og Kína verði í forsetatíð hans. Mikið hefur verið þrýst á forset- ann um að lýsa því formlega yfir að Bandaríkin muni koma Taívan til varnar, verði ríkið fyrir árás Kínverja. Bandaríkin eru enda helsti hern- aðarlegi bakhjarl Taívan. Kínverjar telja Taívan enn til héraðs, sem í fram- tíðinni muni tilheyra Alþýðulýðveldinu á meginlandinu, hvort sem það gerist friðsamlega eða með valdbeitingu. Kveðið er á um það í bandarískum lög- um að ríkið skuli koma Taívan til varn- ar, verði það fyrir árásum Kínverja, en áratugum saman hafa Bandaríkja- menn ekki gefið það út til hversu mik- illa átaka þurfi að koma, svo þeir hlaupi undir bagga með Taívönum. Verða að senda skýr skilaboð Markmiðið með þessum óskýrleika er tvíþætt: Annars vegar vilja Banda- ríkin ekki styggja Kínverja, sem gætu litið á hvers kyns stuðningsyfirlýsingu af þeirra hálfu sem merki um að grípa þurfi til frekari hörku gegn Taívan. Hins vegar vilja Bandaríkjamenn ekki að Taívan lýsi yfir sjálfstæði með formlegum hætti, sem gæti sprengt þá púðurtunnu sem yfirráðasvæði Kín- verja í Suðaustur-Asíu er orðið. Óskýrleikinn hefur svo gert Banda- ríkjunum kleift að viðhalda ákveðnum stöðugleika á svæðinu. En nú þegar Kínverjar færa sig sífellt upp á skaftið, segja sumir sérfræðingar vestra að „tími sé kominn til þess að Bandaríkin kynni stefnu sem einkennist af hern- aðarlegum skýrleika […] Biden ætti að gera það morgunljóst að Bandarík- in ætli sér að svara hvers kyns vald- beitingu Kínverja gegn Taívan“, eins og hinn virti Richard Haass, forseti Council on Foreign Relations, komst að orði í fræðigrein sem hann skrifaði í tímaritið Foreign Relations. Gætu gert árás innan sex ára Undanfarna mánuði hefur kínverski flugherinn vanið komur sínar inn í ta- ívanska lofthelgi. Vegna þessa hefur Bandaríkjaher áhyggjur af mögulegri skyndárás Kínverja á eyjuna, og hefur herinn því einnig kallað eftir skýrari stefnu frá Biden; skýrari fyrirmælum. Fyrrverandi foringi Bandaríkjahers á Indó-Kyrrahafssvæðinu, aðmírállinn Philip Davidson, sagði fyrir þingnefnd fulltrúadeildarinnar í marsmánuði að Kínverjar gætu ráðist til atlögu innan sex ára og því þyrfti að endurskoða óskýra stefnu Bandaríkjanna í mála- flokknum. Tveimur vikum síðar var arftaki Davidsons, aðmírállinn John Aquilino, þó myrkur í máli þegar hann spáði mögulegri árás Kínverja. Hann sagð- ist samt sem áður reiðubúinn til þess að ræða við Lloyd Austin varnar- málaráðherra um kosti og galla þess að breyta um stefnu í Kínamálum. Ekki allir sammála Aðrir ráðgjafar Bidens eru aftur- haldssamari, eins og til dæmis þjóð- aröryggisráðgjafinn Avril Haines. Þingnefnd öldungadeildarinnar um varnarmál spurði hana í síðustu viku að því hve mikil áhrif hlytust af stefnu- breytingum Bandaríkjanna gagnvart Kína. „Kínverjum þætti þetta auka mjög á óstöðugleika á svæðinu,“ sagði hún. „Ég held að það myndi festa enn frekar í sessi þá upplifun Kínverja að Bandaríkjunum sé mjög í mun að tempra vald þeirra sem mest, einmitt með hervaldi, og myndi það líklega hafa í för með sér að Kínverjar færu í auknum mæli að vinna gegn hags- munum Bandaríkjanna á alþjóðavett- vangi.“ Biðja Biden að steyta hnefann í átt að Kína AFP Bandaríkin Margir kalla eftir skýrari stefnu Bidens í málefnum Kína. Í dag búa um 23 milljónir manna í Taívan, sem telur sig tilheyra samfélagi sjálfstæðra þjóða. Málið er þó ekki svo einfalt, þar sem Kínverjar telja það til hér- aðs í Kína. Eftir borgarastyrjöld- ina í Kína, sem lauk árið 1949, flúðu fyrrverandi valdhafar til eyjunnar Taívan undan uppreisn kommúnista. Allar götur síðan hafa Taívanbúar haldið því fram að landið sé nú þegar sjálfstætt og þurfi ekki að lýsa yfir sjálf- stæði að nýju, ríkið hélt bara áfram að vera ríki á örlítilli eyju úti fyrir meginlandi Kína. Telja sig vera sjálfstætt ríki FLÚÐU ÁRIÐ 1949 AFP Taívan Her Taívan á við ofurefli að etja, það er nágranna sína í Kína.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.