Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 17

Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021 ✝ Valdimar Ingi- bergur Jón Oddur Þórarinsson fæddist í Reykjavík 19. október 1950. Hann lést á Lands- spítalanum 2. maí 2021. Foreldrar hans voru Guðrún Krist- ín Sigurjónsdóttir f. 1920, d. 2018 og Þórarinn Jónsson f. 1917, d. 1987. Systkin Valdimars eru 1) Hólmfríður f. 1942 gift Jóni Þóri Jóhannessyni. Börn Hólmfríðar eru Þórarinn, Steindór Kristinn, Sigurjón, Guðrún Kristín og stúlka sem lést stuttu eftir fæð- ingu. 2) Ingibergur Jón Oddur f.1945 d.1947. 3) Elísabet Guðrún f.1957. Börn Elísabetar eru Guðný Björg, Þórunn Kristín, Bryndís Jenný og Eydís Sjöfn. Valdimar ólst upp í Reykjavík. Hann var kennari að mennt og starfaði sem grunnskólakennari í Reykjavík, á Þing- eyri og Eyrar- bakka. Á sumrin starfaði hann hjá Samskip. Síðar starfaði hann í 35 ár samfellt hjá Sam- skip sem launa- fulltrúi og síðustu árin sem öryggis- fulltrúi. Valdimar sat í stjórn Óháða safn- aðarins í Reykjavík í áratugi og var gjaldkeri safnaðarins í 30 ár. Útför Valdimars fer fram í dag 10. maí 2021 frá kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg í Reykjavík kl. 15. Vegna að- stæðna í þjóðfélaginu verður ein- ungis nánustu ættingjum og vinum boðið að vera viðstaddir athöfnina en streymt verður frá henni á: http://www.ohadisofnudurinn.is/ ingi/ Streymishlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat Með sorg og söknuði kveð ég besta frænda minn. Engan hefði órað fyrir því að þetta myndi enda svona, en þú tókst þessu öllu af miklu æðru- leysi. Ég er svo innilega þakklát fyrir að hafa átt svona góðan frænda í mínu lífi og barna minna. Nokkrum dögum áður en Ingi kvaddi fór ég á spítalann og Ingi spurði mig út í lífið eftir dauðann. Við áttum saman langt spjall og Ingi bað mig að lofa því að ég keypti mér íbúð og passaði upp á sjálfa mig. Það lýsir mann- inum sem hann hafði að geyma, enda hugsaði hann vel um alla fjölskyldumeðlimi sína og var alltaf til staðar. Ég bað hann að láta mig vita þegar hann væri kominn í ljósið. Hann skellihló en lofaði því fyrir mig. Ingi var stór hluti af lífi fjöl- skyldunnar og var ætíð boðinn í allar veislur innan hennar. Hann mætti í þær allar og það á slag- inu. Hann kom fjölskyldunni oft saman og hélt iðulega upp á af- mælið sitt með pítsuveislum, sælgæti og ís. Ingi frændi var talnaglöggur maður. Á afmælisdögum var hann iðulega búinn að reikna út hve marga klukkutíma og mín- útur hann hafði lifað. Þegar hann starfaði sem launafulltrúi hjá Samskipum kunni hann kennitölur allra samstarfsmanna utan að. Þegar hann var yngri fannst honum mikilvægt að það væru pylsur í matinn á laugardögum. Ekki nóg með það heldur þurfti remúlaðið að vera í dós, en alls ekki í brúsa. Mamma hans tók á það ráð að skella remúlaðinu úr brúsa yfir í dós þegar hann sá ekki til. Á laugardögum var einnig alltaf horft á fótbolta og mátti varla anda meðan á leiknum stóð. Það var alltaf svo gaman að fylgjast með því þegar hans lið skoraði, því þá spratt hann, þessi stóri maður, á fætur og öskraði fagnaðaróp. Það var semsagt líf og fjör alla laugardaga hjá Inga og fjölskyldu. Hann smitaði áhuga á fótbolta út frá sér. Hann átti skrá um úrslit allra leikja í ensku deildinni, alveg aftur um tugi ára. Hann var tilfinningavera og einstaklega góður við börnin mín og annarra fjölskyldumeðlima. Ingi frændi var alltaf númer eitt í augum barnanna. Hann gaf öll- um börnum fjölskyldunnar jóla- og afmælisgjafir og fengu börnin óskir sínar uppfylltar. Þegar ég var unglingur átti Ingi bláan Ford Cortina sem var mjög flottur bíll. Eitthvað fannst okkur lyktin í bílnum orðin skrít- in og Ingi var búinn að leita alls staðar og enginn skildi hvað var í gangi. Ég aðstoðaði Inga við leitina en þá kom í ljós úldinn kálhaus, sem hafði fallið úr pok- anum undir sætið nokkrum vik- um áður. Fjölskyldan hló að þessu í mörg ár á eftir. Margar minningar mínar um Inga litast af gleði og hlátra- sköllum, en einhvern veginn fylgdi hlátur honum hvar sem hann kom að. Ég er svo þakklát fyrir hann Inga. Hann hafði alla tíð mikla trú á mér og stappaði í mig stál- inu þegar ég þurfti á því að halda. Takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir mig og mína fjölskyldu elsku frændi. Við munum sakna þín gífurlega en minningarnar lifa. Þín frænka, Guðrún Kristín. Hann Ingi frændi minn kvaddi allt of snemma. Ingi frændi var einn mesti fjölskyldumaður sem ég þekki. Hann missti aldrei af atburðum í fjölskyldunni og var ávallt mætt- ur tímanlega í skírnarveislur, af- mæli, fermingar og hvað annað sem var í gangi hjá skyldmenn- um hans. Ingi frændi átti engin börn en samt má segja að hann hafi átt hlut í okkur öllum. Öllum afkvæmum systra sinna tveggja. Það eru ekki allir ömmubræð- ur sem fá boð á alla viðburði fjöl- skyldunnar en það fékk Ingi og get ég varla ímyndað mér hvern- ig það verður að hafa hann ekki lengur með. Ég kunni að meta það við Inga að hann hélt iðulega upp á afmælið sitt og bauð okkur öllum að koma saman. Hann sá til þess að fjölskyldan hittist reglulega. Ingi var talnaglöggur og kunni alla afmælisdaga fjölskyldunnar upp á hár. Það verður kannski ekki sagt um Inga að hann hafi alltaf verið með heimilisstörfin á hreinu en hann kunni að hlæja að eigin mistökum og var opinskár þegar kom að þeim. Þær eru þó nokkr- ar sögurnar sem hann sagði mér af heimilishaldinu, eins og þegar hann var að elda mat og gleymdi sér svo yfir fótboltanum með þeim afleiðingum að reykskynj- arinn og þar með allt kerfið í byggingunni fór í gang. Ingi var mikill lestrarhestur og ég minnist þess að hafa eitt sinn gefið honum bók sem mér þótti mikið varið í. Ég er nokkuð sannfærð um að Ingi hafi ekki verið sammála mér um ágæti hennar og höfundarins en hann las þó bókina og kláraði hana meira að segja á undan mér. Hann hlúði vel að sínu fólki og vildi okkur öllum svo hjartanlega vel. Elsku Ingi, ég mun sakna þín. Þín frænka, Vigdís Fríða. Elsku Ingi frændi er nú fall- inn frá eftir hugrakka baráttu við erfið veikindi. Valdimar Ingi- bergur, móðurbróðir okkar, var svo sannarlega einstakur maður og eigum við margar góðar, fyndnar og skemmtilegar minn- ingar um hann. Okkur eru minnisstæð öll afmæliskortin sem Ingi gaf okk- ur í barnæsku en í þau ritaði hann hvað við værum búnar að lifa í marga daga og þótti okkur það mjög merkilegt að vita. Ingi var mikill fjölskyldumað- ur þó hann hafi aldrei eignast sín eigin börn. Hann bjó mestalla ævi sína með ömmu okkar og var því okkur sem afi. Hann mætti í allar veislur, öll jól og alla páska til okkar og bauð okk- ur reglulega í sumarbústað ásamt öðrum ættingjum. Þessar sumarbústaðaferðir eru okkur eftirminnilegar en þar spiluðum við Uno og sögðum draugasögur. Ingi var ótrúlega góður og gjafmildur við systrabörn sín og afkomendur þeirra en fyrir hver jól lögðumst við systurnar yfir bókatíðindin svo við gætum látið Inga frænda vita hvaða bók væri mest spennandi enda þótti Inga skemmtilegast að gefa góða bók. Ingi var mikill bókaunnandi og þótti sjálfum ekkert betra en að fá nýjar bækur um jólin og átti því endalaust mikið af bókum. Ingi hafði gaman af ræðu- mennsku og var það ánægjulegt að fá að sjá hann blómstra í ræðusamtökunum Powertalk þegar hann var félagi þar í nokk- ur ár. Hann mætti í allar afmæl- isveislur í fjölskyldunni og var duglegur að heiðra fólk með ræðuflutningi á stórviðburðum og flutti sérstaklega fallega ræðu í brúðkaupi Bryndísar. Hann var einnig duglegur að halda upp á afmælin sín og hélt stórar, flottar veislur á stóraf- mælum. Okkur þótti því mjög sorglegt þegar hann varð að fresta veislunni í tilefni sjötugs- afmælis síns síðasta haust sök- um Covid-samkomutakmarkana. Sú veisla var því miður aldrei haldin. Ingi var rosalegur íþrótta- áhugamaður og mikill stuðnings- maður sinna manna. Á seinni ár- um lagði Ingi stund á golf og ferðaðist mikið með systrum sín- um. Þegar við setjumst hér niður og hugsum til baka er þakklæti okkur efst í huga. Ingi var góður maður, heiðarlegur, sanngjarn og traustur. Hann mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta okk- ar. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd, og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós, og lýstu mér, kom, líf, er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (Valdimar Briem) Guðný Björg, Þórunn Kristín, Bryndís Jenný og Eydís Sjöfn. Elsku Ingi frændi. Kveðju- stundin er runnin upp og kom allt of fljótt. Það er erfitt að skrifa þessi orð því þú hefur alla tíð átt mikilvægan stað í mínu lífi. Í æsku sofnaði ég út frá sög- um sem mamma sagði mér um þig og þau ævintýri sem þú lent- ir í sem barn. Þegar ég óx úr grasi varstu ekki einungis frændi minn heldur myndaðist á milli okkar náin vinátta og við áttum mörg sameiginleg áhuga- mál. Þú hafðir mikinn áhuga á tón- list og mín fyrstu kynni af Bítl- unum voru inni í herberginu þínu í Gnoðarvoginum. Seinna meir kynntir þú mig fyrir Queen sem þú hélst mikið upp á. Í kjöl- farið fylgdi Billy Joel að ógleymdri Bonnie Tyler en lagið „It’s a heartache“ sem hún söng verður ávallt í huga mínum lagið hans Inga frænda. Við höfðum báðir mikinn áhuga á bókmenntum og þótt þú hafir einungis verið þrettán ár- um eldri en ég man ég ekki eftir jólum öðruvísi en að í pakkaflóð- inu væri gjöf til mín frá Inga frænda sem innihélt bók. Þú hefur því byrjað ungur að gefa frændsystkinum þínum bækur. Líklega hefur kennarinn sem bjó innra með þér ráðið för og þú viljað tryggja að frænd- systkinin yrðu bókelsk. Seinna meir fór ég sjálfur að skrifa sög- ur og er ég viss um að allar bæk- urnar sem þú gafst mér í gegn- um árin hafi stuðlað að því. Síðasta bók sem ég sendi frá mér var barnabók byggð á sög- unum sem mamma sagði mér af æskuævintýrum þínum og veitti vinnan við bókina mér ómælda gleði. Þegar ég gaf hana út á 70 ára afmælisdegi þínum í fyrra og færði þér að gjöf fann ég sterkt hversu vænt þér þótti um hana. Í mínu hjarta er bókin þakklæt- isvottur fyrir allar ógleymanlegu stundirnar sem þú hefur gefið mér með bókagjöfum liðinna ára. En við áttum ýmislegt annað sameiginlegt. Við höfðum báðir gaman af leikhúsi og í mörg ár sóttum við leikhúsin í félagsskap hvor annars. Þótt við færum ekki saman á sýningarnar seinni árin þá ræddum við oft um það sem var í gangi hverju sinni. Það áhugamál sem hins vegar batt okkur traustustu böndunum voru íþróttirnar. Við vorum báð- ir félagar í fótboltaklúbbnum Madonnu og áttum margar ógleymanlegar stundir í þeim fé- lagsskap. Þar verður skarð þitt aldrei fyllt og þín sárt saknað. Við vorum einnig báðir Vals- arar og studdum félagið af ein- urð þótt þar hafi ég ekki komist með tærnar sem þú hafðir hæl- ana enda varst þú án efa stuðn- ingsmaður Vals númer eitt. Það snerti mig því djúpt að sjá hvernig Valsmenn endurguldu hollustuna og stóðu við hlið þér í þinni baráttu og hvernig þeir minntust þín með virðingu þegar þú varðst að játa þig sigraðan. Síðustu vikur voru þér erfiðar en ég dáist að styrknum sem þú hafðir til að skilja við líf þitt eins vel og þér var unnt. Síðasta dag- inn sem þú dvaldir heima sat ég hjá þér á Skúlagötunni og við ræddum saman okkar viðkvæm- ustu mál í fullri einlægni. Þetta samtal mun ég varðveita með sjálfum mér alla ævi. Elsku Ingi frændi, ég vil þakka þér fyrir alla væntum- þykjuna sem þú sýndir mér, vin- áttuna og allar ógleymanlegu stundirnar. Ég mun ylja mér við minningarnar þar til við sjáumst næst. Þinn frændi og vinur, Steindór. Ég kveð í dag Inga frænda. Við vorum systkinasynir, faðir hans Þórarinn og móðir mín El- ísabet komu úr stórum systk- inahópi sem áttu öll tengingu við Njarðargötu 27. Við Ingi vorum frændur, bestu vinir og samstarfsmenn hjá Samskipum í áratugi. Þar kynntist ég honum best og sá hvaða mann hann hafði að geyma. Ingi frændi var einstakur maður, hann var heiðarlegur og nákvæmur og sýndi alltaf sam- starfsvilja og þjónustulund. Þessir þættir í fari hans komu sér vel alls staðar og ekki síst fyrir Samskip þar sem hann vann lengst við launadeild, sá um utanumhald og útreikninga launa og gerði það þannig að hvorki hallaði á fyrirtækið né starfsmenn svo rétt væri staðið að málum samkvæmt samning- um, sem gerði það að verkum að mistök við þá vinnu voru fátíð. Hann mundi allar kennitölur starfsmanna sem skiptu hundr- uðum hverju sinni og ávann sér virðingu og vinskap starfmanna sem og eigenda fyrirtækisins. Hann hætti störfum hjá Sam- skipum vegna aldurs 69 ára gamall. Hann var húsbóndahollur og hjálpsamur með eindæmum og stóð alltaf með sínu fólki, systr- um sínum tveimur og fjölskyld- um þeirra, móður sinni og föður en hann hélt heimili með þeim. Þegar faðir hans dó langt um aldur fram þá bjó hann áfram með móður sinni þar til hún lést. En það má ekki gleyma íþróttafélaginu Val, Ingi var Valsari í húð og hár og elskaði fótbolta og þá sérstaklega þegar Valur átti leik og gæti ég sagt margar sögur af dálæti hans á þeim. Ef þeir töpuðu leik þá tók hann það mjög nærri sér og átti þá stundum erfitt þegar hann mætti til vinnu þar sem fjöldi manns beið þess að geta talað illa um hans menn og kom það fyrir að hann missti stjórn á skapi sínu, með þeim afleiðing- um að hann átti frekar bágt þann daginn en að sama skapi dýrðlega daga þegar þeir unnu leiki. Ingi átti marga góða vini hjá Samskipum sem eyddu með hon- um stundum utan vinnutíma við ýmislegt en helst var það á golf- vellinum þar sem hann naut sín með þeim og var þá alltaf hrókur alls fagnaðar í þeim vinahópi. Ingi frændi hjálpaði mér við ýmislegt sem ég var ekki nógu góður í og var það sérstaklega íslenskukunnátta hans sem ég leitaði eftir. Hann fór yfir allt sem ég skrifaði fyrir hönd Sam- skipa og fjölskyldu minnar til að ég gæti verið öruggur um að ekkert væri hægt að finna að framsetningu og réttritun. Varla var hægt að finna betri íslensku- mann en hann og ég man hvað ég var ánægður þegar hann hældi mér þegar mér tókst vel upp við skrif, enda hafði ég lært mikið af honum. Ef ætti að lýsa Inga frænda í fáum orðum að þá væru þau þessi: Ljúfmenni, samviskusamur, vandvirkur, minnugur og vinur vina sinna, hann var sem sagt drengur góður! Það er því mikill missir að honum en um leið ánægjulegt og gott að hafa átt hann að og geta notið samvista við svo góða manneskju sem Ingi frændi var og kann ég honum miklar þakk- ir. Ég votta systrum hans og fjölskyldum þeirra og öllum öðr- um sem þótti vænt um hann samúð mína. Blessuð sé minning Inga frænda. Finnbogi Gunnlaugsson. Lífið er mikil óvissuferð og það má með sanni segja að besta leiðin til þess að undirbúa sig fyrir dauðann er að lifa lífinu. Ingi frændi var einn af þeim mönnum sem aldrei lenda upp á kant við samferðamenn sína. Hann var friðarins maður og hugsaði um velferð vina sinna og fjölskyldu umfram allt annað. Hann lifði einföldu og inni- haldsríku lífi sem er kannski lyk- illinn að því að láta sér líða vel. Hann var einstaklega samvisku- samur og stóð við allt sem hann lofaði. Það bar ekki mikið á hon- um þó svo að líkamsburðirnir væri miklir en samferðamenn hans vissu samt alltaf af návist hans. Dæmi um þetta er þegar Valur varð Íslandsmeistari í handbolta árið 1992. Ingi fór á alla leiki liðsins það árið eins og venjulega, hann átti sinn stað í stúkunni þar sem hann sat á öll- um leikjum. Þegar síðasti leik- urinn var búinn, Valur meistari og mikill fögnuður í gangi kom besti handboltamaður Vals fyrr og síðar hlaupandi til hans, faðmaði hann að sér og sagði: „Við vitum alltaf af þér þarna í stúkunni.“ Þetta gladdi hjarta þessa stóra manns. Þegar ég var barn og ungling- ur bjó ég stundum í langan tíma hjá ömmu og afa. Samband okk- ar Inga var náið og við eyddum miklum tíma saman. Hann kenndi mér skák og var alltaf tilbúinn til þess að taka í spil, tefla eða spila fótbolta ef því var að skipta. Vinátta okkar og frændsemi hélst óslitin alla tíð enda var hann eins og bróðir minn í raun og veru. Ég vann einnig með honum hjá Samskipum og eru margar óborganlegar minningar frá þeim tíma. Vinnusemi hans og nákvæmni í öllu sem hann gerði var ótrúleg. Ég leysti hann stundum af og til þess að ekkert kæmi honum á óvart eftir fríið tók ég mynd af skrifborðinu dag- inn sem hann fór í frí til þess að ég gæti stillt þessu rétt upp að því loknu. Heftarinn var á vinstri hönd og gatarinn á þá hægri. Það er sárt að kveðja þennan góða dreng en ég er viss um að hann er á yndislegum stað í Blómabrekkunni meðal þeirra sem næstir honum eru og undan eru gengnir. Ég horfi og hlusta á hið himneska tóm er hugurinn færist mót skýjum. Sálin hún kveður með seiðandi hljóm og svífur nær heimkynnum nýjum. Þórarinn Ívarsson. Sunnudagurinn 2. maí sl. var sá fegursti á nýju sumri, gróand- inn með öllum sprotum sem alls staðar gægðust upp. Þann sama dag er sólin var hæst á lofti lagði Valdimar Ingi sáttur upp í hinztu för, umvafinn sínum nán- ustu. Fregnin varpar leiftri til áttunda áratugarins þegar ég rakst á samlanda mína á Picca- dilly, en allir vorum við að fara á sama fótboltaleik, þannig hófust kynni okkar, tilviljun eða hvað en margir leikirnir síðan þá. Á þessum árum var Valdimar kennari í hinu forna þorpi Eyr- arbakka, en síðasta aldarfjórð- unginn eða svo vann hann hjá starfsmannahaldi Samskipa, heyrði ég að hann gæti þulið all- ar kennitölur utan að, ekki svo lítið ef rétt er. Við starfslok hafði hann áform um framtíð sína, en ytri aðstæð- ur lokuðu því og á sama veg fór með sjötugsafmælið síðastliðið haust. Áður hafði hann greinst með mein sem virtist í fyrstu ekki illkynja en ekki allra að ráða í skuggaskil og í vorkyrrð- inni birtist bleikt ský á himni, þá systir hans Elsa tjáði mér að bróðirinn hefði verið fluttur í skyndi á sjúkrahús og nú var bara ein leið eftir. Valdimar átti æviláni að fagna, fyrir utan góða fjölskyldu og vinfengi við marga var hann gleðimaður á góðum stundum og farsæll í störfum, stundum við krefjandi aðstæður sem hann leysti ávallt vel með jafnlyndi sínu og festu. Hann nýtti frítíma sinn vel til ferðalaga og áhuga- mála, var aflgjafi í stjórn Óháða safnaðarins, stundaði golf og var virkur áhagandi Vals á Hlíðar- enda í meira en hálfa öld, svo fátt eitt sé nefnt. Með þessum fáu orðum kveðj- um við feðgarnir góðan mann sem auðgaði mannlífið hvar sem hann kom og teljum okkur það til tekna að hafa notið samveru hans og vináttu í áranna rás. Blessuð sé hans minning. Gunnar Valvesson. Valdimar Ingibergur Þórarinsson - Fleiri minningargreinar um Valdimar Ingiberg Þór- arinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.