Morgunblaðið - 10.05.2021, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021
✝
Árni Ólafur Ás-
geirsson fædd-
ist í Reykjavík 16.
apríl 1972. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 26. apríl
2021.
Foreldrar Árna
Óla eru Hafdís
Árnadóttir, leik-
fimikennari, leik-
listarkennari og
stofnandi Kramhússins, f. 19.
nóvember 1938, og Ásgeir Ing-
ólfsson, fréttamaður og þýðandi,
f. 26. júlí 1934, d. 15. janúar 2001.
Bróðir Árna Óla er Ingólfur flug-
stjóri, f. 8. nóvember 1966. Eigin-
kona hans er Arndís Kristjáns-
dóttir, lögfræðingur og
framkvæmdastjóri Kramhússins,
f. 14. apríl 1969. Hálfsystur Árna
og Ingólfs eru þær Kristín
Björnsdóttir rekstrarhagfræð-
ingur, f. 7. ágúst 1957, gift Herði
Grétari Olavsyni, og Hrafnhildur
Sverrisdóttir, verkefnastjóri hjá
Rauða krossi Íslands, f. 10. apríl
1972. Hennar mað-
ur er Þorvaldur Sæ-
mundsen, f. 22.
febrúar 1972.
Hinn 21. júní
2003 gekk Árni að
eiga Mörtu Luizu
Macuga leik-
myndahönnuð, f. 26.
nóvember 1971.
Saman eignuðust
þau soninn Iwo Eg-
il, f. 16. júlí 2007.
Árni Óli ólst að mestu upp í
Fossvoginum en fluttist til Pól-
lands í kvikmyndanám, þar sem
hann kynntist Mörtu og starfaði
að stórum hluta allt til hins síð-
asta. Hann leikstýrði fjórum
kvikmyndum, sjónvarpsþáttum
og fjölmörgum auglýsingum víða
um heim.
Útför Árna Óla verður gerð
frá Hallgrímskirkju í dag, 10. maí
2021. Henni verður streymt á:
https://livestream.com/luxor/
arniolafur
Streymishlekk má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Elsku frændi. Ég vil vera reiður
en ég veit ekki hverjum. Ég vil
geta verið reiður út í einhvern sem
ber ábyrgð á þessum andstyggi-
lega, sársaukafulla sjúkdómi. Ég
vil geta kennt einhverjum um. En
ég veit ekki hverjum. Í staðinn
ranka ég ítrekað við mér þar sem
ég stari út í bláinn, hálfmáttlaus og
tómur. Svona átti þetta ekki að
vera. Maður í blóma lífsins, fullur
af gleði og orku. Maður sem elsk-
aði konuna sína og strákinn sinn
heitar en nokkuð annað.
Í stað þess að vera reiður ætla
ég að reyna að taka mér þig til fyr-
irmyndar. Ekki bara æðruleysið
og baráttuandann sem einkenndu
þig þessar erfiðu vikur. Heldur
lífsgleðina og kærleikann sem allir
sem kynntust þér fundu fyrir.
Frændi minn með stóra hjartað,
sem faðmaði og kyssti vini og ætt-
ingja. Hláturmildi heimspekingur-
inn með þunga dramað innan í sér.
Við vorum alltaf með hugmynd-
ir um verkefni sem hefði verið
gaman að koma af stað. Ótal sinn-
um sátum við yfir bjór og ræddum
þau, heiminn og fjölskylduna okk-
ar, þessa litlu, krumpuðu sem nú
hefur verið höggvið svo stórt
skarð í. Bjórarnir verða ekki fleiri
en kannski er tímabært að sumar
hugmyndirnar verði meira en
bara það.
Ég vona að þú sért einhvers
staðar á betri stað, án kvalar og
pínu. Og að ég heyri áfram hlát-
urinn þinn þegar ég legg nógu vel
við eyrun. Kannski líka að tárin
hætti að renna þegar ég geri það.
Það hlýtur að koma að því.
Ég þakka fyrir að hafa þekkt
þig alla ævi, að hafa fylgst með
þér lifa af fullum krafti árin sé þú
fékkst. Tekið áhættu, látið
drauma rætast, kynnst Mörtu og
eignast Iwo. Ég held þú hafir lifað
af meiri krafti og tilfinningahita
en margur nær á lengri ævi. Það
er viss huggun.
Elsku Marta og Iwo, Haddý og
Ingó. Hugur minn og hjarta eru
hjá ykkur.
Ingólfur Bjarni.
Kær vinur minn Árni Ólafur
Ásgeirsson hefur kvatt okkur um
aldur fram eftir stutta en erfiða
baráttu við mein sem reyndist
honum undir lokin ofviða. Ég
kynntist Árna Óla þegar ég flutti í
Fossvoginn 12 ára gamall. Árni
Óli var fyrsti strákurinn í hverfinu
sem ég kynntist og úr varð ein-
stakur vinskapur með honum og
fleiri strákum úr Fossvoginum.
Árni Óli var einn af höfðingjum
hópsins og fljótt varð ljóst að að-
setur hópsins var á Skólavörðu-
stíg hjá Hafdísi og fjölskyldu á
þeirra skemmtilega heimili sem
var sambyggt Kramhúsinu.
Heimilið stóð okkur vinunum
ávallt opið á hvaða tíma sólar-
hringsins sem var.
Árni Óli fór óhræddur sínar
eigin leiðir í lífinu. Hann byrjaði
sinn menntaskólaferil í Verslun-
arskólanum, klæddist fínum
jakkafötum af Ingó bróður sínum
og féll vel inn í hópinn. Eftir fyrsta
árið í menntaskóla fór Árni til
Bandaríkjanna sem skiptinemi og
eyddi einu ári þar hjá mormóna-
fjölskyldu og líkaði vel. Árni kom
breyttur maður til baka. Fínu föt-
unum var skilað til Ingós, hárið
komið í tagl og listnámið kallaði.
Árni elti draum sinn og fór til Pól-
lands og lærði kvikmyndaleik-
stjórn. Í Póllandi kynntist Árni
ástinni sinni henni Mörtu.
Árni Óli var tilfinningaríkur
maður, fljótur upp og fljótur nið-
ur. Hann var með einstakt hjarta-
lag, mikill vinur vina sinna, ávallt
glaður og stutt í smitandi hlátur-
inn. Við Árni Óli höfum gengið í
gegnum lífið saman frá því að við
vorum smápollar. Hann skilur eft-
ir sig stórt skarð en við vinirnir
sem eftir stöndum munum rækta
vinskapinn og halda í gleðina og
þannig minnast Árna Óla. Takk
fyrir allt saman, minn kæri vinur.
Gunnar S. Jónsson.
Við vorum bara nokkurra ára
gamlir þegar við kynntumst í
garðinum á milli Dalalands og
Efstalands í Fossvoginum. Minn-
ingarnar eru ljóslifandi og með
okkur tveimur var líka Einar Örn
sem síðar var sviplega tekinn frá
okkur öllum vinunum. Þarna var
okkar krakkaheimur með frábær-
um regnpollum til að hoppa í og
verslunarmiðstöðinni Grímsbæ
sem var ævintýraheimur barna í
Fossvoginum. Síðar urðum við all-
ir hluti af kærum vinahópi stráka
úr Fossvoginum. Þú hélst upp á
alla í hópnum, hafðir einstaka
nærveru, hlýju og áhugasamur um
allt og alla.
Kramhúsið og Skólavörðustíg-
urinn urðu fljótlega stór hluti af
tilverunni. Heimilið ykkar svo fal-
legt með frönskum svölum sem
vísa í innri garð þar sem Kram-
húsið blasir við í allri sinni dýrð.
Kraumandi menning og mannlíf.
Hafdís mamma miðpunkturinn
sem kunni líka einkar vel lagið á
okkur vinunum og ykkur bræðr-
unum. Þetta umhverfi lætur eng-
an ósnortinn. Þú fórst í einn virt-
asta kvikmyndaleikstjóraskóla í
Evrópu, í Lodz í Póllandi. Fáir út-
valdir fengu inngöngu en þér voru
allir vegir færir. Í Póllandi varstu
á heimavelli og talaðir tungumálið
sem innfæddur. Þú varst í raun
heimsborgari. Sterkar gáfur þín-
ar, hæfileikar og forvitnin um
mannlegt eðli og samskipti opn-
uðu þér allar dyr. Þú varðst síðan
virtur leikstjóri og afrekaðir ótrú-
lega hluti en talaðir minnst um
það sjálfur. Þú varst alltaf hæv-
erskur og auðmjúkur.
Síðan kom elsku Marta sem
fullkomnaði púsluspilið í lífinu.
Brúðkaupið í sól og sumaryl í
garðinum við Listasafn Einars
Jónssonar. Það þótti eflaust hæfi-
lega langt frá Skólavörðustígnum.
Veislan síðan í Kramhúsinu. Það
var mikil gæfa að þú hittir Mörtu
og á milli ykkar var ást og virðing
sem allir skynjuðu. Maður tók eft-
ir því að í öllum samræðum við
nánast hvern sem var þá minntist
þú alltaf á Mörtu, Iwo þinn, Haf-
dísi mömmu eða Ingó bróður. Þú
elskaðir fjölskylduna þína skilyrð-
islaust og fékkst það endurgoldið.
Stórt skarð er höggvið í til-
veruna, vinahópinn og framtíðina.
Ég mun sakna faðmlagsins og
þess að fá ekki að hlæja svona hátt
og innilega með þér þegar við hitt-
umst. Núna þurfum við vinirnir
sjálfir að koma með allar sögurnar
og hugmyndirnar, vera veiðimenn
af guðs náð, ferðast um heiminn
og kynnast fólki, vera hugsjóna-
rmenn og mannvinir.
Síðustu vikur hafa verið erfiðar
en ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að vera með þér á spítalan-
um. Ég dáðist að hugrekki þínu og
styrk þegar við vissum að kallið
væri að koma. Þögðum saman og
horfðum út um gluggann þar sem
sumarið var að vakna. Framtíðin
var þín og okkar allra. Þín verður
sárt saknað af öllum. Einar Örn
tekur vel á móti þér í sumarland-
inu eilífa. Takk fyrir að vera ein-
stakur hluti af lífi mínu og Lilju.
Sú von að eiga eftir að hitta þig
aftur í sumarlandinu slær eilítið á
mikinn söknuð. Við pössum upp á
fjölskylduna þína.
Elsku Marta, Iwo, Hafdís og
Ingó og aðrir ástvinir. Ég votta
ykkur mína dýpstu samúð og
megi minning um yndislegan
Árna Óla ylja okkur um hjarta-
rætur um ókomna tíð.
Þinn vinur,
Þór Hauksson.
Árni Óli heilsaði með útbreidd-
an faðminn. Brosið teygði sig til
sindrandi augna, spékoppar við
mjúkar línur í kinnum, sem vísuðu
í átt að pétursspori í höku. Ljós,
bjartur og fríður. Einlægt fas.
Góður hugur og opið hjarta. Ást-
úðlegur og tilfinninganæmur.
Blóðheitur og gat snöggreiðst.
Hvatvís, óhemju stríðinn og næst-
um úr hófi hugmyndaríkur. En
ávallt falslaus, trúr og sannur.
Hann hafði sérstöðu í okkar
stóra hópi æskuvina úr Fossvog-
inum. Ólíkir drengir, en bundnir
sterkum böndum, flestir frá því í
leikskóla. Hann listrænn, skap-
andi og dreyminn. Sennilega
skapstirðastur þegar hann þurfti
að vakna. Það endaði ekki alltaf
vel þegar við létum á það reyna. Á
fótum var samt enginn okkar
meira á lífi, vakandi og áhugasam-
ur. Hann gat helst ekki setið. Óð
um gólf, opnaði dyr og skápa. Ef
hann sat fóru hendurnar á flug.
Við Árni Óli vorum bara smá-
strákar þegar við hittumst fyrst.
En persónulegt sálufélag varð til í
Réttó. Sumarið 1987 sórumst við í
eilíft bræðralag, deildum leyndar-
málum og draumum. Annríki og
fjarlægð milli ólíkra viðfangsefna
og heimshorna skildi okkur stund-
um að, en strengurinn gisnaði ekki,
var aldrei í hnút, alltaf samur. Eins
og þegar við vorum fimmtán ára.
Myndirnar renna um hugann.
Vinstrifótur hans á skólavellinum.
Danmerkurferðin með Bústöðum.
Snóker á Vitastíg. Næturvaktin í
Pizzahúsinu á Grensásvegi.
Dásamleg heimskupör í Fossvog-
inum. Einskis nýtar fortölur mín-
ar og áhyggjur. Áhyggjuleysi
hans. Hjörtun sem Árni Óli fang-
aði fyrsta árið okkar í Versló. Að-
dáun mín. Segulböndin sem hann
las inn á og sendi mér úr skipt-
ináminu í Bandaríkjunum. Partíin
á gamlárskvöld á Skólavörðustíg.
Kramhúsið. Umburðarlyndi og
elskulegheit Hafdísar. Heimsókn í
kvikmyndaskólann í Lodz; nóttin
þegar við drukkum vodka og kaffi
og tefldum við gömlu kallana fram
undir morgun. Fótboltaferðin til
Gdansk með strákunum. Kvöldin
með Árna Óla og Mörtu á Vest-
urbrú í Kaupmannahöfn. Brúð-
kaupið þeirra í garðinum á lista-
safni Einars Jónssonar;
fiðluspilið, miðevrópsk stemning í
Kramhúsinu. Stolt hans og gleði
þegar Iwo fæddist. Verkin hans.
Þessi fjársjóður minninga.
Ég sakna Árna Óla sárt. Hann
var yndislegur vinur. Haldreipi
mitt í annan draum. Dýrmætur
okkar vinahópi, en líka svo mörg-
um öðrum. Hann snerti fólkið sem
hann kynntist. Átti marga sálu-
félaga. Það var lífsgæfa þeirra, en
líka huggun í eftirsjá, að hafa ekki
heyrt rödd hans aðeins oftar.
Hugur minn og hjarta er hjá þeim
í sorginni. Mest þó hjá elsku
Mörtu og Iwo, Hafdísi og Ingó.
Árni Óli tók hönd mína á dán-
arbeðinum á líknardeild og kreisti
hana laust. „Farðu vel með þig,
elskan,“ sagði hann í kveðjuskyni.
Umhyggjusamur í sinni erfiðustu
raun, til hinstu stundar. Hann féll
fyrir meininu rétt rúmum sólar-
hring eftir að ég gekk tárvotur út
af stofu tólf, en Árni Óli stendur
uppréttur og bjartur í huga mér.
Pétursspor, mjúkar línur í kinn-
um, spékoppar, bros sem náði til
sindrandi augna, einlægur, opið
hjarta, útbreiddur faðmur, fals-
laus en samt stríðinn, hugrakkur,
trúr og sannur.
Birgir Tjörvi Pétursson.
Langvinirnir rjúfast síst, segir í
Grettissögu. Það er sannleikskorn
í því. Það er ómetanlegt að eiga
vinskap sem nær svo langt aftur
að maður man ekki upphafið og
hefur haldið allar götur. Þannig er
það með okkur Árna Óla og þann
vinahóp úr æsku sem við eigum
saman. Við höfum ekki allir þrosk-
ast á sama veg en við höfum gert
það hlið við hlið og mótað hver
annan. Slík vinátta er traust og
tekur öðru fram. Við stöndum
saman fram á lokastund og auð-
vitað áfram um eilífðina.
Frá fyrstu tíð var Árni Óli lífs-
glaður, uppátækjasamur, áhuga-
samur um flest og kannski um-
fram allt áhugaverður sjálfur.
Hann var líka töff og iðulega
skrefi á undan okkur hinum.
Leynivopn hans í þeim efnum var
eflaust að eiga Ingó fyrir eldri og
reyndari bróður. Hafdís stofnaði
Kramhúsið þegar við vorum tólf
ára og okkur þótti fátt eins spenn-
andi og að eiga athvarf í stóru
feluhúsi í miðbænum. Fyrsta
sumarið í rekstri Kramhússins
sóttum við Árni og fleiri vinir þar
leiklistarnámskeið. Það ævintýra-
sumar slæptumst við um miðbæ-
inn og forfrömuðumst mikið.
Kramhúsið varð síðar vettvangur
ótal skemmtilegra partía og gleði-
stunda. Ég er ekki klár á því hvort
Hafdís veit af því öllu saman en
henni er hér með formlega þakkað
fyrir afnot af húsinu.
Árni Óli uppgötvaði fyrr en
aðrir af okkar kynslóð að hika
ekki við að sýna vinum hlýju og
væntumþykju. Þannig urðu djúp
faðmlög og rembingskoss sjálf-
sagður hluti þess að hitta Árna.
Fyrstu árin vakti þetta athygli og
jafnvel furðu en vandist vel og hef-
ur smitað út frá sér.
Árni var óvenju fordómalaus,
umburðarlyndur og aldrei dóm-
harður. Hann sá undantekninga-
laust tækifæri í öllu og öllum, og
hafði einlægan áhuga á að tengja
Árni Ólafur
Ásgeirsson
HINSTA KVEÐJA
Þakklæti er mér efst í
huga er ég minnist elsku
Árna Óla.
Þakklæti fyrir að fá að
hafa hann hjá okkur á
Frostastöðum sumartíma
frá 8-14 ára aldurs.
Minningin er fögur.
Ljúfur og góður lítill
drengur lifir enn í huga
mér.
Innileg samúðarkveðja
til fjölskyldunnar.
Helga Bjarnadóttir
frá Frostastöðum.
✝
Guðmundur
Árni Þorvalds-
son fæddist 17.
október 1965. Hann
lést á heimili sínu
29. apríl 2021. Móð-
ir hans var Anna
Bryndís Árnadóttir,
fædd 27. ágúst
1947, dáin 12. apríl
2009. Bróðir Guð-
mundar var Einar
Breiðfjörð Magn-
ússon, fæddur 27. nóvember
1967, dáinn 15.
mars 2002.
Útför Guð-
mundar fer fram
frá Akureyr-
arkirkju 10. maí
2021 kl. 13.
Streymt verður
frá útför (stytt slóð):
https://tinyurl.com/
mj3w8kut
Streymishlekk
má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Það er sumt sem maður saknar
vöku megin við.
Leggst út af á mér slokknar,
svíf um önnur svið.
Í svefnrofunum finn ég
sofa lengur vil.
Því ég veit að ef ég vakna upp
finn ég aftur til.
Svefninn langi laðar til sín
lokakafla æviskeiðs
hinsta andardráttinn
andinn yfirgefur húsið
hefur sig til himna
við hliðið bíður drottinn.
(Björn Jörundur og Daníel Ágúst)
Elsku Guðmundur okkar,
nokkur kveðjuorð til þín frá vinum
þínum í Geislatúni. Þú kvaddir eft-
ir stutt veikindi. Við héldum að við
fengjum að hafa þig lengur hjá
okkur en þú varst nú ekki vanur
að draga hlutina á langinn. Hlut-
verki þínu hér hjá okkur var að
ljúka og þín biðu önnur störf í
nýrri tilveru. Þú varst einstakur
ljúflingur, svo góður, jákvæður og
svo sannarlega varstu skemmti-
legur. Þú vildir öllum vel og vildir
allt fyrir alla gera. Þú varst mjög
duglegur að hjálpa til á heimilinu
og sparaðir okkur oft sporin með
sendiferðum um húsið.
Þér fannst gaman að stríða
okkur starfsfólkinu en allt var það
gert af mikilli væntumþykju því að
aldrei mátti á neinn halla.
Þú varst mikill gleðimaður og
hafðir gaman af því að bjóða til
mannfagnaðar og vildir gjarnan
hafa stórt partí á síðasta ári þegar
þú varst 55 ára en vegna aðstæðna
í samfélaginu var það ekki hægt.
En þú hélst mikla veislu þegar þú
varst 50 ára. Þá fékkstu þetta
kvæði frá okkur í Geislatúni sem
er svo lýsandi fyrir þig.
Fimmtugum Guðmundi samgleðjumst
nú
Geislatúns gaurar og pæjur,
tónlist þú elskar svo skilið átt þú
alvöru hljómflutningsgræjur.
Þó einstöku sinnum þú ákafur sért,
þig málæði jafnvel á renni,
þá ertu flottastur eins og þú ert
öndvegis ljúft snyrtimenni.
(Kári Þorleifsson)
Elsku Guðmundur. Nú skiljast
leiðir. Við söknum þín sárt en er-
um þakklát fyrir að hafa átt þig að.
Af alhug þökkum við þér fyrir
samveruna.
Fyrir hönd starfsfólks og íbúa í
Geislatúni 1,
Þóra Elín.
Guðmundur Árni
Þorvaldsson
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MARTA SIGURJÓNSDÓTTIR,
Fjólugötu 4, Vestmannaeyjum,
sem lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum
mánudaginn 26. apríl, verður jarðsungin frá
Landakirkju
í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 13. maí klukkan 11.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu er bent á Alzheimersamtökin.
Fjöldatakmarkanir miðast við gildandi sóttvarnareglur.
Athöfninni verður streymt á vef Landakirkju, Landakirkja.is.
Ingólfur Þórarinsson
Sigurjón Ingi Ingólfsson Sigurrós Sverrisdóttir
Þórarinn Ingólfsson Anna Guðmundsdóttir
Gunnar Örn Ingólfsson Helga Barðadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
FILIPPÍA HELGADÓTTIR
frá Syðri-Ey,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
laugardaginn 24. apríl sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Helga Magnea Magnúsdóttir
Daníel H. Magnússon Guðbjörg Gestsdóttir
Ingibjörg Magnúsdóttir Tómas Gíslason
Ragnheiður Magnúsdóttir Sævar R. Hallgrímsson
Árni Geir Magnússon Ragnar Ólason
Helgi H. Magnússon Valgerður K. Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar