Morgunblaðið - 10.05.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 10.05.2021, Qupperneq 27
Hamburg, 96:89. Jón Axel var stigahæstur á vellinum með 24 stig en hann tók auk þess fjögur fráköst og átti þrjár stoðsend- ingar fyrir Fraport. Jón Axel spilaði í 25 mínútur. Lið hans endar í tólfta sæti af átján liðum. _ Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús hafnaði í 28.-33. sæti á Dimension Data-mótinu sem lauk í Suður-Afríku í gær en mótið var hluti af Áskorendamótaröð Evrópu, þeirri næststerkustu í Evrópu. Har- aldur lék lokahringinn á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari vall- arins. Samtals lék hann hringina fjóra í Suður-Afríku á sjö höggum undir pari. Fyrir árangurinn fær hann tæp- lega 3.500 evrur en það samsvarar rúmlega hálfri milljón íslenskra króna. _ Tryggvi Snær Hlinason og sam- herjar í spænska liðinu Zaragoza tryggðu sér í gær bronsverðlaunin í Meistaradeild FIBA í körfuknattleik með því að sigra Strasbourg frá Frakklandi í Nizhnij Novgorod í Rúss- landi, 89:77. Tryggvi spilaði í tólf mín- útur en hann skoraði fjögur stig, tók tvö fráköst og átti eina stoðsendingu fyrir Zaragoza. _ Viggó Kristjánsson, landsliðs- maður í handknattleik, átti stórleik með Stuttgart í gær og skoraði átta mörk þegar liðið vann óvænt- an sigur á Rhein- Neckar Löwen, 32:28, í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik. Ómar Ingi Magnússon átti líka flottan leik fyrir Magdeburg og skoraði átta mörk í útisigri á Bergischer á laugardaginn, 25:21. Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer. Oddur Gret- arsson skoraði þrjú mörk fyrir Bal- ingen sem gerði jafntefli við Minden, 29:29, og Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Lemgo í ósigri á heimavelli gegn Hannover-Burgdorf, 24:26. Þá gerði Alexander Petersson eitt mark fyrir topplið Flensburg sem vann Wetzlar 32:24 á laug- ardaginn. _ Tveir Íslendingar fögnuðu bikar- meistaratitlum í svissneska handbolt- anum um helgina. Harpa Rut Jóns- dóttir lék með Zug sem vann Spono Eagles 29:26 í úrslitaleik kvenna og Aðalsteinn Eyjólfsson stýrði Kadet- ten til sigurs á Kriens, 22:21, í úrslita- leik karla. _ Samúel Kári Friðjónsson skoraði fyrsta mark Viking í gær þegar lið hans vann Brann, 3:1, í fyrstu um- ferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Samúel lék fyrstu 70 mínútunar með Víkingsliðinu. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2021 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Höllin Ak.: Þór Ak. – Haukar.............. 19.15 MVA-höllin: Höttur – Keflavík ........... 19.15 Origo-höllin: Valur – Grindavík .......... 19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – Stjarnan . 19.15 DHL-höllin: KR – ÍR ........................... 19.15 Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – Þór Þ .. 19.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Framhús: Fram – Haukar................... 19.30 KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Hásteinsvöllur: ÍBV – Breiðablik ............ 18 Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Valur .... 19.15 Í KVÖLD! Dominos-deild kvenna Snæfell – Breiðablik............................. 81:75 Skallagrímur – Fjölnir....................... 83:102 KR – Haukar....................................... 57:103 Keflavík – Valur.................................... 68:81 Lokastaðan: Valur 21 18 3 1623:1302 36 Haukar 21 15 6 1560:1392 30 Keflavík 21 14 7 1647:1527 28 Fjölnir 21 14 7 1661:1536 28 Breiðablik 21 8 13 1395:1437 16 Skallagrímur 21 8 13 1473:1573 16 Snæfell 21 5 16 1516:1676 10 KR 21 2 19 1396:1828 4 Umspil karla 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Vestri – Fjölnir ..................................... 79:76 Hamar – Hrunamenn......................... 110:58 1. deild kvenna Vestri – Ármann ................................... 60:96 Hamar/Þór – Njarðvík......................... 50:81 Fjölnir b – Tindastóll ........................... 88:70 Lokastaðan: Njarðvík 16 15 1 1280:851 30 ÍR 16 14 2 1113:872 28 Grindavík 16 11 5 1195:1019 22 Fjölnir b 16 7 9 1070:1032 14 Ármann 16 6 10 1055:1145 12 Hamar/Þór 16 6 10 975:1099 12 Stjarnan 16 6 10 1013:1100 12 Tindastóll 16 6 10 933:1087 12 Vestri 16 1 15 859:1288 2 Spánn Real Madrid – Valencia ...................... 69:79 - Martin Hermannsson skoraði 11 stig fyrir Valencia og tók tvö fráköst á 18 mín- útum. >73G,&:=/D Olísdeild karla FH – Afturelding.................................. 30:27 Þór Ak. – Selfoss................................... 21:27 ÍR – KA ................................................. 22:32 ÍBV – Stjarnan ..................................... 36:34 Valur – Grótta....................................... 36:24 Staðan: Haukar 18 15 1 2 527:427 31 FH 18 11 4 3 535:492 26 ÍBV 19 11 1 7 559:531 23 Valur 19 11 1 7 552:509 23 Selfoss 19 10 2 7 494:476 22 Stjarnan 19 9 3 7 545:524 21 Afturelding 18 9 1 8 477:487 19 KA 17 7 5 5 455:438 19 Fram 18 8 2 8 471:458 18 Grótta 19 4 4 11 486:515 12 Þór Ak. 19 4 0 15 425:528 8 ÍR 19 0 0 19 443:584 0 Olísdeild kvenna Fram – KA/Þór..................................... 27:27 ÍBV – FH .............................................. 20:19 Valur – HK............................................ 27:20 Haukar – Stjarnan ............................... 24:26 Lokastaðan: KA/Þór 14 8 5 1 352:309 21 Fram 14 10 1 3 413:333 21 Valur 14 7 3 4 371:309 17 ÍBV 14 7 2 5 338:318 16 Stjarnan 14 7 1 6 360:364 15 Haukar 14 5 3 6 350:360 13 HK 14 4 1 9 337:375 9 FH 14 0 0 14 269:422 0 Spánn Cuenca – Barcelona ............................ 27:41 - Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir Barcelona. Danmörk GOG – Kolding..................................... 32:29 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot í marki GOG og Ágúst Elí Björgvinsson varði 9 skot í marki Kolding. Bjerringbro/Silk. – SönderjyskE...... 27:29 - Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE. Tvis Holstebro – Skjern...................... 34:32 - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk fyrir Tvis Holstebro og Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Skjern. Pólland Kielce – Piotrków................................ 40:21 - Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 5 mörk fyrir Kielce. %$.62)0-# Akureyrarliðið KA/Þór tryggði sér á laugardaginn sinn stærsta titil til þessa þegar liðið gerði jafntefli við Fram, 27:27, í lokaumferð Olís- deildar kvenna í handknattleik í Safamýri. Liðin urðu efst og jöfn í deildinni en KA/Þór hreppir deildameistara- titilinn á innbyrðis viðureignum lið- anna, og er því með heimaleikja- réttinn út úrslitakeppnina. Rut Jónsdóttir skoraði jöfnunarmark KA/Þórs, sitt áttunda mark í leikn- um, en Rakel Sara Elvarsdóttir gerði 9 mörk. Karen Knútsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir gerðu 9 mörk hvor fyrir Fram. Liðin tvö sitja hjá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst á fimmtudaginn. Valur sem varð í þriðja sæti mætir Haukum sem end- uðu í sjötta sæti og ÍBV og Stjarnan sem enduðu í fjórða og fimmta sæt- inu eigast við. Vinna þarf tvo leiki. HK sem endaði í sjöunda sæti fer hinsvegar í umspil um eitt sæti í deildinni ásamt Gróttu, ÍR og Fjölni/Fylki. vs@mbl.is Ljósmynd/Jóhann G. Kristinsson KA/Þór Fyrirliðinn Martha Hermannsdóttir tók við bikarnum í Safamýri. Stærsti titillinn hjá Akureyringum Guðni Valur fékk í gær silfur- verðlaun í kringlukasti þegar hann lenti í öðru sæti á evrópska vetrar- kastmótinu í Split í Króatíu. Guðni Valur þeytti kringlunni 63,66 metra, sem er talsvert frá hans besta árangri, Íslandsmetinu sem hann setti í fyrra, sem er 69,35 metrar. Lengi vel var Guðni Valur í efsta sæti keppninnar, eða allt þar til Ungverjinn János Huszák þeytti kringlunni 65,25 metra í fimmtu til- raun af sex og tryggði sér þar með gullið. Enginn keppandi náði því ólymp- íulágmarki á mótinu, en lágmarkið er 66 metrar. Fleiri tækifæri munu þó gefast til þess enda fara fleiri mót fram á næstunni áður en frestur til að tryggja sér sæti á Ólympíu- leikunum rennur út 29. júní næst- komandi. Elísabet Rut Rúnarsdóttir hafn- aði í áttunda sæti í afar jafnri keppni í sleggjukasti í flokki U23 ára kvenna. Hún kastaði 61,31 metra en Cecilia Desideri frá Ítalíu sigraði með kasti upp á 63,99 metra. Íslandsmet Elísabetar í greininni er 64,39 metrar. Hilmar Örn Jónsson hafnaði í sextánda sæti í sleggjukasti karla og kastaði 68,62 metra en Íslands- met hans er 77,10 metrar. Sigur- vegarinn Esref Apak frá Tyrklandi kastaði 75,99 metra. Mímir Sigurðsson hafnaði í ní- unda sæti í kringlukasti í flokki U23 ára karla. Hann kastaði 54,23 metra en besti árangur hans er 55,54 metrar. Yauheni Bahutski frá Hvíta-Rússlandi sigraði og kastaði 64,37 metra. Guðni fékk silfur- verðlaunin í Split Morgunblaðið/Eggert Annar Guðni Valur Guðnason kast- aði næstlengst í Split í gær. ÍBV og Valur styrktu stöðu sína í slagnum um þriðja og fjórða sætið í Olísdeild karla í handknattleik í gær og KA komst uppfyrir Fram í baráttunni um sæti úrslitakeppn- inni. _ Theodór Sigurbjörnsson skor- aði 10 mörk fyrir ÍBV sem vann Stjörnuna í lykilleik í Vestmanna- eyjum, 36:34. Leó Snær Pétursson skoraði 9 mörk fyrir Stjörnuna. Sigtryggur Daði Rúnarsson tryggði ÍBV sigurinn með tveimur síðustu mörkum leiksins á lokamínútunni. _ Agnar Smári Jónsson skoraði átta mörk fyrir Val og Martin Nágy varði 15 skot í marki liðsins í öruggum sigri á Gróttu, 36:24, á Hlíðarenda. _ Árni Bragi Eyjólfsson skoraði tíu mörk fyrir KA sem vann auð- veldan sigur á botnliði ÍR í Aust- urbergi, 32:22. _ Einar Sverrisson skoraði sjö mörk fyrir Selfyssinga sem unnu Þórsara 27:21 á Akureyri en fátt getur nú komið í veg fyrir að Þór falli úr deildinni ásamt ÍR. Selfoss er stigi á eftir ÍBV og Val. _ FH er með annað sætið í hendi sér og vann Aftureldingu 30:27 í Kaplakrika. Birgir Már Birgisson skoraði níu mörk fyrir FH-inga og Phil Döhler átti stórleik í marki þeirra með 17 varin skot. Góðir sigrar hjá ÍBV og Val - Theódór skoraði tíu fyrir Eyjamenn Ljósmynd/Sigfús Gunnar Tíu Theodór Sigurbjörnsson og Björgvin Þór Hólmgeirsson. Manchester City vantar enn þrjú stig til að tryggja sér enska meist- aratitilinn í knattspyrnu. Grann- arnir í Manchester United söxuðu enn frekar á forskot City í gær með því að sigra Aston Villa á útivelli, 3:1, þar sem Bruno Fernandes, Ma- son Greenwood og Edinson Cavani skoruðu í seinni hálfleik eftir að Bertrand Traoré hafði komið Villa yfir snemma leiks. City tapaði fyrir Chelsea á heima- velli, 1:2, á laugardaginn þar sem Marcos Alonso skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. City fær tækifæri til að tryggja sér titilinn á föstudags- kvöldið þegar liðið heimsækir New- castle en það á ennfremur eftir að mæta Brighton og Everton. Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 85 mínúturnar með Everton sem vann dýrmætan útisigur á West Ham í London, 1:0. Dominic Calvert-Lewin skoraði sigurmarkið á 24. mínútu og Everton er því áfram með í barátt- unni um Evrópusæti. vs@mbl.is AFP Unnu Mason Greenwood fagnar einu marka Manchester United í gær. Manchester City meistari á föstudag?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.