Morgunblaðið - 18.05.2021, Qupperneq 6
„Þetta er gleðilegt skref í löngu
ferli,“ segir Victor Berg Guð-
mundsson, einn eigenda Lava-
concept Iceland ehf. í Mýrdal.
Fyrirtækið er nú að vinna 4.000
tonn af 0-5 mm sandblásturssandi
sem seldur hefur verið til Þýska-
lands. Sandurinn er tekinn á Fagra-
dalsfjöru og Víkurfjöru.
„Við reynum að tryggja að
heimamenn og fyrirtæki úr Mýr-
dalshreppi vinni sem mest við
þetta. Bara þessi prufusending hef-
ur skapað 10-15 störf við mokstur,
hörpun og akstur,“ sagði Victor.
„Við áætlum að það skapist 15-20
störf þegar við hefjum fulla vinnslu
á næsta ári.“ Victor segir að vinnsl-
an sé jákvæð í ljósi losunar gróð-
urhúsalofttegunda. Kolaknúnum
orkuverum hefur verið lokað í
Þýskalandi. Þar með fæst ekki
lengur affall sem hefur verið notað
til sandblásturs.
Sandinum er ekið til Þorláks-
hafnar. Þaðan fer hann með laus-
flutningaskipi undir mánaðamót.
Lavaconcept Iceland ehf. nemur sand á fjörum í Mýrdalnum
Flytja út
sandblást-
urssand
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Göngu-
leið B
Fagradals-
fjall
Stóri-Hrútur
Slaga
Borgar-
fjall
Hraunflæði (10. maí)
Hættusvæði vegna
nýrra gosopa
Stikaðar gönguleiðir
Ljósleiðari í jörðu
Mögulegir farvegir
hrauns
Vefmyndavélar MBL 1
MBL 2
RÚV 1
RÚV 2
Hraunflæði úr gosinu í Geldingadölum
Krýsuvík
Meradalir
Loftmyndir ehf.
Grunnkort af útbreiðslu hrauns Ískort.is
Gönguleið A
Varnargarðar
Ná
tt
ha
gi
Suðurstrandarve
gur
Ljósleiðarar í jörðu (ekki
nákvæm staðsetning)
Efnismagn í varnargörðum
Vesturgarður 2.050-8.400 m³ (4-8 m hár)
Austurgarður 5.450-12.400 m³ (4-8 m hár)
Varnargarðar í Nafnlausa dal vestan
Stóra-Hrúts
H
:
2
0
9
,0
1:1
,6
1:2,5
1:3,0
1:5,0
H
:
2
0
5
,0
m
Nátthagi
4,0
4,0
2
,0 Lagþykkt 0,5
8 m (209 m.y.s.)
Teikning:
Verkís 4 m
Ísólfsskáli
Mögulegir farvegir hrauns
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ákveðið var í gær að halda áfram
framkvæmdum við varnargarða sem
eiga að koma í veg fyrir að hraun
renni úr Nafnlausa dalnum niður í
Nátthaga. Fannar Jónasson, bæjar-
stjóri í Grindavík, sagði að garðarnir
hefðu verið komnir í fjögurra metra
hæð þegar ákveðið var að hækka þá
enn meir. Ekki var búið að ákveða
hvað farið yrði hátt en samkvæmt
hönnunarforsendum var gert ráð fyr-
ir allt að átta metra háum görðum.
Allra fyrst var rutt jarðvegi að
brún undanhlaups undan hraunjaðr-
inum ofan við Nátthaga til að tefja
framgang hraunsins. Fannar sagði
að hraunmolar hefðu verið farnir að
detta yfir þessa fyrstu vörn. „Menn
tóku eftir því að þessir lágu og litlu
garðar sem rutt var upp við hraun-
jaðarinn héldu býsna vel aftur af
hrauninu. Það gaf vonir um að stærri
og öflugri garðar gætu virkað vel,“
sagði Fannar. Hann segir að mikið sé
í húfi að hraunið fari ekki fram af
brúninni niður í Nátthaga.
„Það munar um allt sem gert er til
þess að tefja hraunið. Ef heldur
áfram að gjósa mánuðum saman þá
kemur að því að dalir muni fyllast af
hrauni. Fram að því væri gott að
verja Nátthaga í lengstu lög og reyna
að beina hrauninu til austurs þar sem
Meradalir geta tekið við hraunflæði,“
sagði Fannar.
Opin leið fram í sjó
Úr Nátthaga er opin leið yfir
Suðurstrandarveg, yfir tvo ljósleið-
ara sem þar eru og niður í sjó án mik-
illar fyrirstöðu. Öll frestun á því er til
mikilla bóta, ekki síst vegna eitraðra
gastegunda sem myndast ef hraunið
fer að renna fram í sjó. Annar ljós-
leiðaranna, sem er nýr, liggur upp á
Langahrygg. Samhliða honum á
kafla er eldri ljósleiðari sem liggur
svo áfram til austurs.
Fannar sagði að hraunið hefði náð
allt að 50 metra þykkt í síðustu viku í
Geldingadölum þar sem það var
þykkast. „Geldingadalurinn þar sem
gosið hófst er ekki orðinn nema svip-
ur hjá sjón. Hann er að fyllast af
hrauni,“ sagði Fannar.
Endurbætur á gönguleiðinni hafa
mælst vel fyrir. Fannar sagði að um
síðustu helgi hefðu a.m.k. 8.000
manns lagt leið sína að gosinu. „Það
urðu engin slys og varla óhöpp. Það
er mikill munur vegna þess að áður
en þetta var lagað var fólk að meiða
sig í þessum brekkum, bæði á uppleið
og niðurleið. Það er búið að stórbæta
aðkomuna og mikil ánægja með það,“
sagði Fannar.
Ákveðið að hækka
varnargarðana
- Fyrstu ruðningarnir hafa haldið vel aftur af hrauninu
- Mikilvægt er að koma í veg fyrir að hraun renni í Nátthaga
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsl
a
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður
Bjarni Sveinsson komust í gær upp í aðr-
ar búðir á leið sinni upp Everestfjall.
Lögðu þeir félagar af stað í lokaleið-
angurinn um 6.45 í gærmorgun að ís-
lenskum tíma en þeir stefna að því að
standa á tindinum á föstudag eða um
helgina.
Hófu þeir för 19. mars síðastliðinn en
meiðsli og slæmt veður hafa sett strik í
reikninginn. Þrátt fyrir hnjámeiðsli kom-
ust þeir í aðrar búðir eins og fyrr sagði og
bíða þess að veður lægi áður en þeir
leggja af stað upp í þær þriðju.
Heimir og Sigurður ganga á toppinn til
styrktar Umhyggju, félagi langveikra
barna, og hvetja áhugasama til þess að
styrkja félagið. Munu þeir taka Um-
hyggjufánann með og niðurskrifaða
drauma þeirra barna sem þeir heimsóttu
áður en þeir héldu í leiðangurinn.
Komnir upp í aðrar búðir
- Bíða eftir að veður lægi - Fara brátt af stað í þriðju búðir
Ferðalag Félagarnir stefna á að vera komnir á toppinn 21.-23. maí.