Morgunblaðið - 18.05.2021, Síða 11
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landsnet áformar að endurnýja
Kolviðarhólslínu 1 sem liggur á
milli tengivirkjanna á Kolviðarhóli
við Hellisheiðarvirkjun og Geit-
hálsi ofan Reykjavíkur og var áður
hluti af Búrfellslínu 3. Tilgangur-
inn er að auka flutningsgetu lín-
unnar inn á höfuðborgarsvæðið og
Suðurnes. Skipulagsstofnun telur
að framkvæmdin hafi ekki umtals-
verð umhverfisáhrif í för með sér
og ekki þurfi að gera mat á um-
hverfisáhrifum.
Endurnýja þarf línuna á 13 kíló-
metra kafla. Koma þarf fyrir sver-
ari leiðurum sem núverandi möstur
bera ekki. Þegar tengivirki var
byggt á Kolviðarhóli var enda-
mastrið endurnýjað og fjögur burð-
armöstur á um tveggja kílómetra
kafla. Þau verða látin standa en 34
möstur endurnýjuð og byggð á
þeim undirstöðum sem fyrir eru.
Gömlu möstrin verða felld og
bútuð niður á staðnum og síðan
flutt í burtu og sett í endurvinnslu.
Notaðar verða sömu vinnuvélar við
að reisa nýju möstrin.
Áfram stálgrindarmöstur
Nýju möstrin verða svokölluð M-
stálgrindarmöstur með svipuðu út-
liti og þau möstur sem búið var að
skipta um. Ekki þykir skynsamlegt
að setja upp stálröramöstur eins og
eru í flestum nýjum háspennulínum
Landsnets vegna þess að til þess að
nýta undirstöðurnar þurfa nýju
möstrin að vera svipuð þeim gömlu
að stærð og styrk.
Endurnýjun Kolviðarhólslínu 1
er ekki á framkvæmdaáætlun.
Landsnet hefur hug á að ráðast í
verkefnið á árinu 2024, samkvæmt
upplýsingum Steinunnar Þor-
steinsdóttur upplýsingafulltrúa.
Línan liggur að hluta til á vatns-
verndarsvæði. Landsnet mun láta
gera áhættugreiningu með tilliti til
vatnsverndar í samráði við heil-
brigðiseftirlit.
Heilbrigðiseftirlitin á höfuðborg-
arsvæðinu óskuðu eftir frekari
upplýsingum um sinkhúð nýju
mastranna og möguleg áhrif meng-
unar á gróður og neysluvatn vegna
flögnunar sinkhúðar mastranna.
Það er væntanlega gert í ljósi tær-
ingar sem sést á yfirborði mastra í
þessari bráðum fimmtugu há-
spennulínu og Landsnet rekur til
útblásturs frá Hellisheiðarvirkjun.
Áhættugreining Landsnets mun
taka til mögulegrar mengunar af
völdum sinks og hvort tilefni sé til
að vakta hana.
Morgunblaðið/Einar Falur
Háspenna Möstrin í nýrri Kolviðarhólslínu verða svipuð að útliti og þau fyrri enda sömu undirstöður notaðar.
Endurnýja 34 möstur
í Kolviðarhólslínu
- Landsnet áformar að auka flutningsgetu til Reykjavíkur
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Kjólar • Pils • Vesti • Blússur
Bolir • Peysur • Buxur
Verið velkomin
Nýjar
sumarvörur
Snyrtivörumerkin okkar eru:
M a d e i n I c e l a n d
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Húðflúrari sem flúraði mynd af ljóni
á bak konu þarf ekki að endurgreiða
henni fyrir þjónustuna né að standa
straum af því að láta fjarlægja húð-
flúrið. Þetta er niðurstaða kæru-
nefndar vöru- og þjónustukaupa.
Konan leitaði til kærunefndarinnar
vegna óánægju með húðflúrið og við-
brögð húðflúrarans við ósk hennar
um lagfæringar á því.
Konan rakti forsögu málsins í er-
indi til úrskurðarnefndarinnar. Þar
kom fram að fyrir hafði hún húðflúr
af blómum ásamt slöngu á handlegg
og vildi bæta við það fleiri blómum
og mögulega hauskúpu af hrúti. Síð-
ar ákvað hún að fá frekar mynd af
ljóni og sendi húðflúraranum mynd
af ljónshöfði umkringdu blómum.
Þegar kom að því að flúra verkið á
líkama konunnar hafði flúrarinn
ekki sömu hönnun í huga og konan
en á endanum var komist að sam-
komulagi um að húðflúrið yrði mynd
af ljóni í lit, í ramma. Um sex
klukkustundir tók að flúra verkið og
fyrir það greiddi konan 120 þúsund
krónur.
Ljónið var grimmilegt
Rekur konan að hún hafi séð þeg-
ar útlínur flúrsins voru gerðar og
var sátt við þær. Síðar hafi hún þurft
að leggjast á magann og ekki séð
framvindu verksins. Henni hafi
brugðið þegar tekin var pása og hún
sá útlínur ljónsins. Hálf höndin hafi
verið svört og blómin verið rauð og
bleik en ekkert þeirra blátt, eins og
hún vildi.
„Þegar verkinu var lokið segir
sóknaraðili að helmingur handleggs-
ins hafi verið svartur sem aldrei hafi
komið til umræðu og að skilin á
hendinni, þar sem húðflúrið endar,
komi illa út. Að auki hafi ljónið sjálft
verið illa gert og óklárað, aðeins hafi
verið veiðihár öðrum megin og ljónið
verið grimmilegt,“ segir í úrskurð-
inum.
Segir konan að eigandi húðflúrs-
stofunnar hafi í fyrstu samþykkt að
endurgreiða húðflúrið. Síðar hafi
henni þó aðeins verið boðnar úrbæt-
ur á húðflúrinu sem gerðar yrðu af
sama húðflúrara og vann verkið upp-
haflega. Hún kvaðst ekki treysta
honum til þess. Þá telur hún að ekki
sé hægt að lagfæra svarta litinn
nema fjarlægja hann með leysi-
geisla. Af þessum sökum krafðist
hún endurgreiðslu á 120 þúsund
krónum sem verkið kostaði auk
skaðabóta vegna kostnaðar við að
láta fjarlægja húðflúrið, að lágmarki
250 þúsund krónur.
Fékk frjálsar hendur
Í niðurstöðu úrskurðarnefnd-
arinnar er rakið að konan hafi gefið
húðflúraranum frekar frjálsar hend-
ur með hönnun flúrsins, hún treysti
honum til að „gera eitthvað mjög
flott“. Segir að af gögnum málsins að
dæma verði ekki ráðið að ljónshöf-
uðið sé illa unnið, óklárað eða í ósam-
ræmi við það sem samið var um.
„Það er einstaklingsbundið hvað
telst vera „mjög flott“,“ segir í úr-
skurðinum.
Veiðihárin vant-
aði á ljónahúðflúr
- Kona krafðist endurgreiðslu og bóta
vegna húðflúrs - Ljón var grimmilegt
Húðflúr Konan var ósátt við hvern-
ig húðflúr hennar af ljóni kom út.
Myndin er af sambærilegu húðflúri.
Framkvæmdir við nýjan veg upp
Holtavörðuheiðina að sunnanverðu
eru langt komnar. Þar verður tekin
af svonefnd Biskupsbeygja efst í
brekkunni, kröpp beygja sem hefur
verið slysagildra.
Borgarverk leggur veginn, sem er
um 1,8 km langur. Fyrirtækið hóf
verkið sl. haust og Kristinn Sig-
valdason hjá Borgarverki segir að
um miðjan næsta mánuð sé stefnt að
því að ljúka klæðningu vegarins.
Eftir það verði unnið við frágang
verksins. Leggja þarf þrjú ræsi und-
ir vegarkaflann.
Að sögn Kristins hefur tíðarfarið í
vetur verið ágætt og engar tafir orð-
ið vegna snjóa. Á bilinu 10-12 manns
hafa unnið þarna fyrir Borgarverk
en vinnubúðir hafa verið á Hrauns-
nefi í Norðurárdal.
Aðspurður segir Kristinn verk-
efnastöðu Borgarverks góða í sum-
ar. Má þar nefna hafnargerð á Ísa-
firði, gatnagerð á Selfossi og
vegaframkvæmdir víða um land.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Holtavörðuheiði Framkvæmdir við brekkuna upp heiðina að sunnanverðu.
Biskupsbeygjan tekin af
Biskupsbeygja á
Holtavörðuheiði
Færsla
hringvegar við
Biskupsbeygju
Nýtt
vegstæði
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
N
or
ðu
rá
Brú