Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 17. maí 2021, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2021 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 17. maí 2021, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gisti- náttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteigna- gjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 18. maí 2021 Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ísraelski flugherinn hélt áfram loftárásum sínum á Gaza-svæðið í gær, en þá var liðin vika frá upp- hafi átaka Ísraelsmanna og Ha- mas-samtakanna, sem fara með stjórn á svæðinu. Heilbrigðisráðu- neyti samtakanna sagði að rúmlega 200 manns hefðu fallið og um 1.300 særst af völdum loftárásanna frá því að þær hófust. Tíu Ísraelar hafa nú fallið af völdum eldflauga- árása frá Gaza og rúmlega 300 særst. Stjórnvöld í Ísrael hafa heitið því að aðgerðum þeirra muni ekki linna fyrr en Hamas og önnur sam- tök vígamanna á Gaza-svæðinu hætta eldflaugaárásum sínum á Ísrael, en þarlend stjórnvöld segja að rúmlega 3.200 eldflaugum hafi verið skotið á landið á þeirri viku sem liðin er frá upphafi átakanna. Beindust loftárásir Ísr- aelsmanna að ýmsum skotmörkum í gær, en talsmaður hersins sagði að meðal annars hefði verið ráðist að heimilum níu háttsettra foringja í Hamas-samtökunum. Þær árásir koma í kjölfar loftárásar á heimili Yahya Sinwar, leiðtoga stjórnmála- arms samtakanna. Engar fréttir bárust hins vegar af mannfalli þar. Hins vegar staðfestu Ísraelar að þeim hefði tekist að fella herfor- ingja í samtökunum Heilagt stríð, sem einnig hefur haft bækistöðvar á Gaza-svæðinu. Orrustuþotur Ísraela réðust einnig að kerfi neðanjarðarganga á vegum Hamas-samtakanna, en þau liggja að hluta til í gegnum svæði þar sem íbúabyggð er. Áætlað er að loftárásir Ísraels- manna hafi neytt um 38.000 manns á flótta og eyðilagt heimili um 2.500, samkvæmt mati Sameinuðu þjóðanna. Þá gerðu Ísraelsmenn einnig atlögu að mikilvægum inn- viðum á svæðinu, þar á meðal raf- orkukerfi þess, en sagt var að það gæti einungis sinnt um einum fjórða af orkuþörf íbúa Gaza. Kallað eftir vopnahléi Helstu stórveldi heims hafa kall- að eftir vopnahléi og að báðir aðilar láti af árásum sínum. Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Ab- del Fattah al-Sisi, forseti Egypta- lands, ræddu ástandið í Parísar- borg í gær og lýstu yfir áhyggjum sínum af mannfalli meðal óbreyttra borgara. Þá samþykktu þeir að vinna saman að því að komið yrði á vopnahléi án tafar. Hady Amr, fulltrúi Bandaríkja- stjórnar í málefnum Ísraels og Pal- estínu, ræddi í gær við Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í Ramallah á Vesturbakkanum. Hvatti Abbas Bandaríkjamenn, sem hafa verið helstu bandamenn Ísraela í gegnum tíðina, til þess að koma í veg fyrir frekari loftárásir þeirra. Bandaríkjastjórn kom hins vegar í veg fyrir að öryggisráð Samein- uðu þjóðanna samþykkti sameigin- lega ályktun um átökin í þriðja sinn í gær, en Bandaríkjamenn segja að slík ályktun gæti hindrað Amr og tilraunir hans til að stilla til friðar. Sprengdu neðanjarðargöng Hamas - Vika liðin frá upphafi átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs - Rúmlega 200 sagðir hafa fallið á Gaza- svæðinu frá því á mánudaginn - Bandaríkjamenn koma aftur í veg fyrir ályktun öryggisráðsins AFP Átök Ísraelskir hermenn skjóta hér úr 155 mm howitser-fallbyssu að Gaza-svæðinu frá landamærum Ísraels. Bresk stjórnvöld eru sannfærð um að þau bóluefni gegn kórónuveirunni sem þegar eru í notkun myndu ná að veita vörn gegn indverska afbrigð- inu svonefnda, en tilfellum þess hef- ur fjölgað nokkuð í Bretlandi að undanförnu. Matt Hancock, heil- brigðisráðherra Bretlands, greindi frá þessu á sunnudaginn, en mat Breta byggist meðal annars á bráða- birgðaniðurstöðum vísindamanna við Oxford-háskóla. England, Skotland og Wales léttu í gær á sumum af helstu sóttvarna- aðgerðum sínum, og máttu íbúar þeirra nú m.a. fara á öldurhús og krár, ferðast til útlanda á svo- nefndum „grænum lista“ og sækja leikhús og kvikmyndasýningar á ný. Rúmlega 1.300 tilfelli indverska afbrigðisins hafa nú greinst á Bret- landi, og eru þau flest í borgunum Bolton og Blackburn á Norður- Englandi. Sagði Hancock að af- brigðið gæti farið sem „eldur í sinu“ meðal þeirra sem ekki hefðu fengið bólusetningu, og því væri brýnt að hraða henni meðal Breta yfir fimm- tugu sem og fólks í áhættuhópum. Þá varði Hancock ákvörðun stjórn- valda um að loka ekki fyrr á ferðalög milli Bretlands og Indlands. Bóluefnin virki gegn afbrigðinu - Bretar mega aftur ferðast erlendis AFP Afléttingar Bretar gátu aftur sótt hverfispöbbinn í gær eftir langa bið. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, réð í gær Vesturveld- unum frá því að gera kröfur eða til- kall til norðurslóða. „Það hefur ver- ið öllum ljóst um langa hríð að þetta er okkar svæði, þetta er okk- ar land,“ sagði Lavrov á blaða- mannafundi sínum í Moskvu, en hann heldur sem kunnugt er til Ís- lands í vikunni til þess að sitja fund Norðurskautsráðsins. Ummæli Lavrovs eru þáttur í togstreitu risaveldanna um ítök og völd á norðurslóðum, en Antony Blinken, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði í ræðu sinni í síðasta mánuði að Rússar væru að reyna að nýta þær breytingar sem hlýnun jarðar hefði valdið á norðurslóðum til þess að reyna að ná sem mest- um ítökum þar. Blinken og Lavr- ov munu funda í fyrsta sinn hér í Reykjavík. Lavrov setti hins vegar spurningarmerki við framferði Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins, og hét því að hreinskiptnar umræður myndu fara fram á fundinum í Reykjavík. Þá lagði Lavrov til að æðstu yfirmenn herafla ríkjanna sem skipa ráðið tækju upp reglu- legt samráð. Varar Vesturveldin við ásælni á norðurslóðum Sergei Lavrov

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.