Morgunblaðið - 18.05.2021, Page 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
✝
Sigríður Stef-
ánsdóttir
fæddist á Haga á
Barðaströnd 17.
febrúar 1932. Hún
lést á heimili sínu
8. maí 2021. Sigríð-
ur var dóttir Stef-
áns Guðmundar
Jónssonar frá Hey-
dalsá, Kirkjubóls-
hreppi, Stranda-
sýslu, f. 27.9. 1888,
d. 14.12. 1935, og Guðrúnar
Guðnýjar Guðmundsdóttur frá
Hreggstöðum, Barðastrandar-
sýslu, f. 18.10. 1893, d. 14.6.
1981. Uppeldisfaðir var Sig-
urður Heiðberg, f. 7.8. 1901, d.
26.7. 1978. Sigríður var yngst
þriggja systkina, Hafliða Þórð-
ar, f. 19.3. 1927, d. 8.2. 1959, og
Daggrósar, f. 10.11. 1929, d.
1.5. 1984. Hálfsystur samfeðra
voru Þórey Jónína, f. 25.11.
1916, d. 3.12. 1996, og Stefanía
Ólöf, f. 4.10. 1918, d 5.6. 2008.
Sigríður giftist 2. september
1951 Gísla Vilmundarsyni, f. 25.
janúar 1928, d. 2. desember
1991. Foreldrar hans voru Vil-
30.10. 1978, gift Þresti Má
Bjarnasyni, f. 28.4. 1978. Börn
þeirra eru Vilmundur Máni, f.
2003, Birgitta Sóley, f. 2008,
Sigrún Diljá, f. 2010, og Karitas
Lilja, f. 2016. b) Margrét Lilja,
f. 21.10. 1985, í sambúð með
Pétri Georg Markan, f. 16.2.
1981. Börn þeirra Hörður
Markús, f. 2012, Sigrún Ísa-
bella, f. 2013, og Úa María, f.
2018. 3) Hafliði Stefán, f. 14.2.
1961, kvæntur Kristinu Olofs-
dotter, f. 30.7. 1969. Börn Haf-
liða og Åsu Gislason: Andri
Freyr, f. 19.11. 1992, og Willi-
am Geir, f. 7.10. 1995. 4)
Guðný, f. 8.9. 1972, gift Þorra
Ólafssyni, f. 26.1. 1972. Börn
þeirra eru Kolbrún Þöll, f.
1999, Óliver Gísli, f. 2007, og
Þorkatla Eik, f. 2009.
Sigríður sinnti húsmóður-
störfum fyrstu árin á Dunhaga
og vann við ræstingar í Haga-
skóla á þeim árum. Einnig vann
hún í veislum bæði í heimahús-
um og veislusölum víða um bæ.
Eftir að hún flutti í Brekkusel
vann hún lengi sem matráður í
Meistaranum og síðar í Skóga-
bæÚtförin fer fram í Garða-
kirkju 18. maí 2021 kl. 15. Í
ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu aðstandendur við-
staddir athöfnina.
Streymishlekk má finna á
https://www.mbl.is/andlat
mundur Gíslason, f.
21.10. 1899, d. 22.5.
1981, og Þorbjörg
Stefanía Guðjóns-
dóttir, f. 1.5. 1899,
d. 14.8. 1985. Börn
Sigríðar og Gísla
eru: 1) Guðrún, f.
2.6. 1951, gift
Braga Guðmunds-
syni, f. 12.4. 1948.
Börn þeirra a)
Birna, f. 29.10,
1974, eiginmaður Sigurður
Kári, f. 9.5. 1973, börn Sindri
Ingólfsson, f. 1995, sambýlis-
kona Dóra Sóldís Ásmunds-
dóttir, f. 1996, Salka Sigmars-
dóttir, f. 2003, og Kári
Sigurðsson, f. 2010. b) Gísli
Baldur, f. 2.4. 1980, kvæntur
Karen Elvu Smáradóttur, f.
17.7. 1973. Börn þeirra eru Jök-
ull Elí, f. 2011, og Emilía Björt,
f. 2016. c) Ragna Björk, f. 5.11.
1990, í sambúð með Aroni Vali
Leifssyni, f. 3.3. 1991, barn Hin-
rik Bragi, f. 2020. 2) Vilmund-
ur, f. 24.5. 1955, kvæntur Sig-
rúnu Oddsdóttur, f. 29.7. 1956.
Börn þeirra a) Sigríður Elsa, f.
Elsku dásamlega fallega
mamma mín.
Hjartað mitt er brotið í dag en
líka svo yfirfullt af þakklæti fyrir
alla ástina, umhyggjuna og vera
alltaf til staðar fyrir mig og mína.
Mikið óskaplega á ég eftir að
sakna þín kletturinn minn, en all-
ar dýrmætu og fallegu minning-
arnar okkar mun ég varðveita í
hjarta mínu.
Yndislega móðir mín,
minning þín mun ætíð lifa.
Unaðsblíðu brosin þín
bjarta hlýja móðir mín.
Aldrei gleymist ástin þín
og gleðin meðan hjörtun lifa.
Blessuð kæra móðir mín
minning þín mun fögur lifa.
Hjartans elsku móðir mín
mig þú leiddir lífs á vegi.
Hlý var ætíð höndin þín
hennar nutu börnin mín.
Heyrðist fagra röddin þín
á hreinum tærum sólardegi.
Undurfagra móðir mín
verndaðu oss á lífsins vegi.
(Guðmundur Kr. Sigurðsson)
Ég veit að nú ert þú komin til
elsku pabba sem hefur tekið á
móti þér með opinn faðminn og
þið sameinuð á ný í Sumarland-
inu.
Elska þig að eilífu.
Þín
Guðný.
Það eru nærri fimmtíu ár frá
því undirritaður varð hluti af fjöl-
skyldu þeirra hjóna Sigríðar Stef-
ánsdóttur og Gísla Vilmundar-
sonar er þá bjuggu í
Símablokkinni við Dunhaga
ásamt þremur börnum sínum,
Guðrúnu, Vilmundi og Hafliða.
Síðar bættist Guðný við. Og það
var stuð. Endalaus fjölskylduboð,
veislur og önnur tilefni fyrir fjöl-
skylduna að hittast og gera sér
glaðan dag. Oftar en ekki á við
góða Ítalíuferð. Ævin hennar
Siggu tengdamömmu var hins
vegar ekki alltaf dans á rósum.
Fædd á Haga á Barðaströnd, þar
sem fjaran er hvít, kannski ekki
við fátækt en heldur ekki við nein
efni frekar en flestir á þeim tíma.
Föður sinn missti hún barnung í
sjóinn í Breiðafirði og ólst upp hjá
einstæðri móður ásamt tveimur
systkinum sínum, Hafliða og
Daggrós. Guðný móðir hennar
réð sig síðar með börnin sín þrjú
sem ráðskona hjá kennara á
Tálknafirði, heiðursmanninum
Sigurði Heiðberg, sem gekk þeim
í föðurstað. Saman flutti þau síðar
suður til Reykjavíkur. Hafliði
bróðir hennar fór í Stýrimanna-
skólann, mæðgurnar léttu undir.
Sigga fór svo seinna í húsmæðra-
skóla og bjó að því alla tíð. Það
varð þeim gríðarlegt áfall er Haf-
liði bróðir hennar, fyrsti stýri-
maður á togarunum Júlí, fórst við
Nýfundnaland frá eiginkonu og
tveimur kornungum dætrum.
Daggrós systir hennar og besta
vinkona lést síðar frá eiginmanni
og sex börnum. Var nú Sigga ein
eftir af systkinunum. En hún
hafði ung gifst ástinni sinni einu,
Gísla Vilmundarsyni símvirkja
frá Kjarholtum í Biskupstungum,
seinna frá Króki í Garðabæ, sæt-
asta og besta stráknum í bænum.
Það var kærleikshjónaband, þau
voru einstaklega samstiga í öllu
sínu. Byggðu sér hús, ferðuðust,
ræktuðu fjölskyldu og vini, nutu
lífsins. Þá veiktist Gísli skyndi-
lega og var látinn rétt rúmlega
sextugur 1991. Öll þeirra áform
um notalega ævikvöldið voru nú
fyrir bí. Tengdamóðir mín bogn-
aði þá kannski aðeins um stund,
en bar harm sinn í hljóði að hætti
formæðra sinna að vestan. En líf-
ið hélt áfram. Hún var forkur til
vinnu, eftirsótt sem slík, vand-
virk, vinsæl og vinmörg. Átti allt-
af fyrir öllu sínu, fannst betra að
gefa en þiggja. Sjálfstæð í öllu
sínu, lagði aldrei slæmt orð til
nokkurs manns. Einstaklega
vönduð í framkomu og háttum,
hnarreist og tignarleg. Fagur-
keri. Hrein og bein. Var í vinnu
fram undir áttrætt. Sáði fræjum
vináttu og kærleika gagnvart
fólkinu sínu og vinum fram á síð-
asta dag. Fyrir aðeins þremur
mánuðum greindist hún öllum að
óvörum með ólæknandi krabba-
mein. Hún óskaði þess að fá að
dvelja heima í fallegu nýju íbúð-
inni sinni þar til yfir lyki. Börnin
hennar, barnabörnin og fjölskyld-
an öll hlúðu að henni af ómældri
ást og fegurð svo ekki verður bet-
ur gert. Við sjáum nú öll á bak
þessari mögnuðu konu sem var
okkur öllum einstök fyrirmynd í
styrk sínum, sjálfstæði og heið-
arleika. Hafðu þökk ástkæra
tengdamóðir, mikið verður þín
saknað.
Þá hefði hún svarað upp á vest-
firsku: „Við skulum nú sjá karlinn
áður en við rekum í hann.“
Bragi Guðmundsson.
Tengdamóðir mín, Sigríður
eða Sigga eins og hún var alltaf
kölluð, hefur kvatt. Ástkær móðir
mannsins míns og amma dætra
minna og barnabarna. Ég naut
þess oft að vera tengdadóttir
hennar Siggu. Hún var dáð og
virt af fjölda fólks. Fyrr á árum sá
hún um veislur fyrir fólk. Bakaði
kransakökur og var mjög mynd-
arleg, og allt fallegt sem hún
gerði. Í dag myndi það líklega
heita veisluþjónusta, því hún leið-
beindi fólki líka varðandi veislu-
höld. Hún lét sig fólk varða og
heimsótti fjölda fólks á sjúkrahús.
Hún fylgdist alla tíð vel með öll-
um afkomendum sínum og bar
hag þeirra fyrir brjósti. Sjálf
hafði hún ekki gengið þrautalaust
gegnum lífið. Faðir hennar
drukknaði þegar hún var barn og
ástkær bróðir hennar drukknaði
með togaranum Júlí, sem var
mannskætt sjóslys á sínum tíma.
Einnig missti hún systur sína á
miðjum aldri. Tengdamamma og
Gísli tengdapabbi áttu fallegt
hjónaband. Mér er minnisstætt
þegar ég kynntist Villa mínum,
hvað ég dáðist að sambandi
þeirra, gleði og léttleika á heim-
ilinu. Því var það mikil sorg þegar
hann dó sextíu og þiggja ára að
aldri. Það tók tengdamóður mína
svolítinn tíma að ná áttum á ný
eftir þann missi, en hún lærði að
lifa með missinum og skapaði sér
fallegt líf. Sigga var glæsileg, vel
til höfð, glaðleg og hress. Hún
hafði mikla ánægju af músík og
söng og sótti tónleika. Hana hafði
sjálfa langað að læra söng sem
ung kona. Sigga gekk mikið og
hugsaði um heilsuna. Hún hafði
stundað fimleika og sund sem ung
kona og bar sig vel. Ég vil þakka
tengdamóður minni allt sem hún
gerði mér gott. Ég þakka henni
hve ástrík móðir hún var mann-
inum mínum alla tíð, en á milli
þeirra var sérstaklega fallegt og
ástríkt samband. Við nefndum
eldri dóttur okkar í höfuð ömmu
sinni, það nafn ber hún með sóma.
Guð fylgi þér í ljósinu áfram og
umvefji þig.
Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.
(Davíð Stefánsson)
Þín tengdadóttir,
Sigrún Oddsdóttir.
Það eru örfáir dagar síðan við
amma sátum í fallegu stofunni
hennar í nýju skvísuömmuíbúð-
inni og amma bað mig um að vera
presturinn við útförina hennar.
Tíminn stóð í stað og við sátum
bara hlið við hlið og héldumst í
hendur. Amma hafði ótrúlega fal-
legar hendur. Ég vissi að hún
væri að fara að spyrja mig að
þessu og ég var undirbúin. Svona
eins og mögulegt er að vera und-
irbúin fyrir svona spurningu.
Samt var ég lengi að svara. Orðin
stóðu föst í hálsinum á mér. Um
leið og það var það síðasta sem ég
vildi gera var það engu að síður á
sama tíma það dýrmætasta sem
hún gat beðið mig um. Að fá tæki-
færið til að fylgja henni alla leið,
með uppfullt hjarta af þakklæti
og ást, ásamt þeirri fullvissu að
nú sé hún í fangi afa Gísla, dans-
andi, glöð og dásamlega falleg í
sumarlandinu bjarta. Um leið og
ég svaraði henni játandi hvíslaði
hún í eyrað á mér: „Ég veit nefni-
lega að þú munt segja eitthvað
fallegt um mig,“ og klappaði mér
svo fallega á handarbakið. Þar
með var það útrætt. Það er líka
rétt, ég get svo sannarlega sagt
margt fallegt um ömmu. Amma
var falleg í gegn.
Amma var líka engin venjuleg
amma. Við áttum dýrmætt vin-
kvennasamband sem ég er eilíf-
lega þakklát fyrir. Það sem meira
er – börnin mín fengu að kynnast
henni og þekkja. Það er ekki sjálf-
sagt. Hún var lífsglöð, glettin –
stríðin og góð. Hún vissi líka svo
mikið að stundum þurfti maður
ekki að segja neitt við hana. Bara
vera og hún var með manni. Hún
hafði einlægan áhuga á fólkinu
sínu og var svo stolt af okkur öll-
um. Hún var líka góð í því að láta
okkur finna það hversu vænt
henni þótti um okkur og hversu
stolt hún var af okkur. Bara fyrir
það að vera þau sem við erum.
Amma var fyrirmynd í öllu sem
hún gerði. Hún naut þess að vera
til, ferðast, klæða sig í falleg föt,
hreyfa sig og hitta vini sína og
fjölskyldu. Hún var alltaf að. Fé-
lagsvera út í gegn. Vinur vina
sinna. Og hún naut þess svo að
flytja í nýju fallegu íbúðina sína
fyrir svo allt of stuttu síðan. Hún
keypti ótal margt fallegt í íbúðina,
sem hefði sómt sér vel í tísku-
blaði. Þannig var amma. Þetta
gerði hún allt og meira til og
skapaði sér svo fallegt og inni-
haldsríkt líf, uppfullt af gleði og
birtu, þrátt fyrir að hafa fengið
sinn skerf af áföllum og djúpri
sorg í lífinu. Amma kenndi mér að
lífið er falleg og dýrmæt gjöf sem
ber að njóta - ef Guð lofar. Minn-
ingarnar um ömmu munu fylgja
mér öllum stundum því ég geymi
þær í hjartanu eins og gull.
Þín
Margrét Lilja, Pétur og
krílin þrjú.
Ertu farin amma mín
til Sumarlandsins bjarta.
Ég mun alltaf sakna þín
af öllu mínu hjarta.
En við munum seinna sjást
með sól og yl í hjarta.
Því það er bara ekta ást
í Sumarlandinu bjarta.
Takk fyrir allt elsku amma
mín. Ég get ekki komið til Íslands
og verið hjá þér við útförina en ég
ætla að fylgjast með á netinu. Ég
sakna þín mjög mikið.
Kveðja,
William Geir Gíslason,
Uppsölum, Svíþjóð.
Í dag kveðjum við ömmu
Siggu. Ömmu sem var síung í
anda og kraftmikil. Ömmu sem
umvafði okkur með hlýju sinni og
væntumþykju. Hún bar alltaf hag
okkar afkomendanna fyrir brjósti
og hafði lag á að láta okkur finn-
ast við einstök og mikilvæg. Allir
voru jafnir í augum ömmu og
hafði hún mikinn áhuga á fólki.
Amma var minnug og aldrei kom
maður að tómum kofunum hjá
henni.
Amma átti einstaklega gott
með að ná til fólks. Hún lagði sig
sérstaklega fram við að tengjast
okkur sem unglingum og opnaði
heimili sitt og hjarta. Í mennta-
skóla fékk ég t.d. símtal þar sem
hún tilkynnti mér að hún væri bú-
in að redda mér vinnu um sum-
arið, hvort ég vildi ekki koma suð-
ur og búa hjá henni.
Lífið í kringum ömmu ein-
kenndist af lífi og fjöri. Amma var
alltaf á ferðinni, hvort sem það var
að heimsækja ættingja og vini,
fara í göngutúra, skokka upp stig-
ana, kíkja í búðir eða skella sér til
útlanda. Það átti illa við ömmu að
sitja og gera ekki neitt og þegar
hún var búin að ákveða að gera
eitthvað átti það helst að gerast í
gær.
Þegar ég hugsa til ömmu var
alltaf svo mikil tónlist í kringum
hana. Hún hafði gaman af alls
konar tónlist. Söng og dansaði
með þegar þannig lá á henni. Mik-
ið eigum við eftir að sakna þess að
taka snúning með ömmu á ára-
mótunum.
Amma var dugleg að passa upp
á fólkið sitt, vildi vita hvað allir
voru að bardúsa og alltaf var hún
fyrst til að bjóða fram aðstoð sína
og bjarga málunum, algjörlega
óumbeðin. Kransakökur, flutn-
ingsþrif, redda íbúð fyrir unga
parið. Allt þetta og miklu meira til
gerði amma fyrir okkur án þess að
ætlast til nokkurs í staðinn.
Mikið finnst mér ég hafa verið
lánsöm að eiga fyrirmynd eins og
hana ömmu Siggu í lífi mínu öll
þessi ár. Það er svo margt í fari
hennar sem ég vil tileinka mér.
Þakklæti er mér efst í huga á
þessari kveðjustundu, þakklæti
fyrir allt það góða og fallega sem
amma kenndi mér. Allar stundirn-
ar sem við áttum saman eru nú
dýrmætar minningar og ég hugsa
um alla hvatninguna, hjálpina og
kærleikann sem hún gaf mér og
mínum.
Við eigum eftir að sakna þín
elsku amma mín.
Þín nafna,
Sigríður Elsa og fjölskylda.
Komið er að kveðjustund við
elskulegu ömmu Siggu sem ég hef
verið svo lánsöm að njóta kær-
leika og leiðsagnar frá og sam-
vista við í 46 ár.
Amma var sterk og falleg kona
með breitt bak og kærleiksríkt
hjarta. Hún mætti lífsins áskor-
unum af miklum styrk og æðru-
leysi. Ung missti hún pabba sinn.
Síðar bæði systkini sín. Eiginmað-
ur hennar, afi minn, kvaddi langt
fyrir aldur fram.
Heimili ömmu og afa í Brekku-
selinu var fallegt og kærleiksríkt.
Þar átti ég gott athvarf og leið vel.
Ég var svo lánsöm að fá að vera
mikið hjá ömmu og afa og ferðað-
ist með þeim, enda vorum við
Guðný nánar frænkur og nálægt
hvor annarri í aldri. Mikið fannst
mér Guðný eiga það gott að fá allt-
af að vera í dekrinu hjá þeim. Á
heimili þeirra voru allir velkomn-
ir. Þau voru góðir gestgjafar. Þar
fengu allir að vera þeir sjálfir og
eiga sína sérvisku. Meira að segja
dekraði amma við heimilisköttinn
Bjart og sauð handa honum nýja
ýsu á hverjum degi. Bernsku-
jólanna minnist ég líka með mik-
illi hlýju þar sem stórfjölskyldan
var samankomin. Það eina sem
skyggði þar á var að amma vildi
aldrei fá sér uppþvottavél. Það
reyndi á þolinmæði barnanna.
Eftir að afi lést hélt hún minn-
ingu hans fallega á lofti. Hélt
áfram sterk og var bæði hjartað
og límið í fjölskyldunni. Amma
var trygglynd og stóð með fólkinu
sínu sem klettur. Gildin voru
skýr, fjölskyldan var það allra
mikilvægasta. Hún var stolt af
fólkinu sínu og fylgdist með
hverju og einu af einlægum
áhuga.
Amma var alla tíð heilsu-
hraust, glæsileg kona og ung í
anda. Ég var alltaf svo stolt af því
þegar ég kynnti hana fyrir fólki.
Hvert sem hún fór þá fannst mér
hún alltaf glæsilegust og bera af.
Mér þótti líka vænt um að heyra
þegar mér var sagt að ég líktist
henni.
Þegar amma lærbrotnaði 87
ára gömul var einstakt að fylgjast
með henni í bataferlinu þar sem
jákvæðni, þrautseigja og einbeitt-
ur vilji til að komast aftur á fætur
einkenndi það. Það tókst henni
sannarlega og eigum við fjöl-
skyldan dásamlega minningu af
henni dansandi inn í nýtt ár á
gamlárskvöld við Abba eins og
sönn drottning, mánuði eftir lær-
brotið.
Í skammvinnum veikindum
ömmu sýndi það sig hversu
sterka og samheldna fjölskyldu
henni hafði tekist að byggja upp.
Það var virðingarvert og fallegt
að fylgjast með börnum hennar
umvefja hana kærleika á fallega
heimili hennar allt til hinstu
stundar. Nákvæmlega eins og
hún vildi hafa það.
Ég er fyrsta barnabarn ömmu
og því fylgir tómleiki að geta ekki
lengur kallað á ömmu. Í staðinn
fæ ég þá dýrmætu gjöf og ábyrgð
að verða kölluð amma sjálf fljót-
lega. Mun það því nýtast mér vel
að eiga sterka fyrirmynd í ömmu
minni, þar sem ég get með sanni
sagt að hafa notið leiðsagnar
þeirra allra bestu. Ég tek því við
keflinu og mun leggja mig alla
fram í því mikilvæga hlutverki.
Takk fyrir allt elsku amma
mín. Mín huggun í sorginni er sú
að nú eru amma og afi sameinuð á
ný eftir 30 ár aðskilnað.
Birna Bragadóttir.
Sigríður
Stefánsdóttir
- Fleiri minningargreinar
um Sigríði Stefánsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Elskuleg mamma mín, tengdamamma,
amma, langa- og langalangamma,
HELGA STEINUNN JÓNSDÓTTIR
frá Syðstabæ í Hrísey,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík
þriðjudaginn 11. maí.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóna Jóhannsdóttir Hannes Sveinn Gunnarsson
ömmu, langömmu- og langalangömmubörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRA GUÐLAUG ANGANTÝSDÓTTIR
frá Hauganesi,
lést á dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn
11. maí.
Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Beykihlíðar fyrir frábæra
umönnun.
Árni Baldur Ólason
Angantýr Arnar Árnason Björk Elva Brjánsdóttir
Árni Grétar Árnason Kolbrún María Hannesdóttir
Óli Þór Árnason Selma Maríusdóttir
ömmu- og langömmubörn