Morgunblaðið - 18.05.2021, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
✝
Hörður Agnar
Kristjánsson
fæddist að Búðum í
Staðarsveit 26. apr-
íl 1936. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 9. maí 2021.
Foreldrar hans
voru þau Jóhanna
Þorbjörg Ólafs-
dóttir, f. 1897, d.
1980, frá Þorgeirs-
staðahlíð í Miðdölum og Kristján
Gíslason, f. 1897, d. 1990, frá
Ytra-Skógarnesi í Miklaholts-
hreppi.
Systkini Harðar voru Gísli Jó-
hann, f. 1922, d. 2003, Anna
Ólafía, f. 1924, d. 2015, og Gunn-
laugur Einar, f. 1930, d. 2017.
Þann 4.10. 1958 kvæntist
Hörður Sigríði Birnu Lárus-
dóttur, f. 2.3. 1936. Foreldrar
hennar voru Elín Elísabet
Bjarnadóttir, f. 1913, d. 2002, og
Lárus Jóhann Guðmundsson, f.
1913, d. 1987.
flutti, starfs síns vegna, til
Reykjavíkur. Hörður lærði húsa-
smíði hjá Gunnlaugi bróður sín-
um og lauk prófi frá Iðnskóla
Stykkishólms 1956, hlaut svo
meistararéttindi í húsasmíði
1961. Árið 1960 stofnaði hann
Trésmiðjuna Ösp ásamt mági
sínum Hallfreði Lárussyni. Árið
1963 var Trésmiðjunni Ösp
breytt í hlutafélag með þátttöku
allra starfsmanna. Hörður starf-
aði sem byggingameistari og
framkvæmdastjóri Aspar hf. til
ársins 1967. Árið 1968 hóf hann
störf hjá framkvæmdadeild Inn-
kaupastofnunar ríkisins og starf-
aði þar til ársins 2003 er hann lét
af störfum vegna aldurs.
Samhliða vinnu sinni gegndi
Hörður ýmsum störfum fyrir
bæjarfélag Stykkishólms. Sat í
byggingarnefnd Stykkishólms
1966-1974, var byggingarfulltrúi
Stykkishólms 1971-1978 og
fulltrúi í hreppsnefnd Stykkis-
hólms 1974-1982.
Útför Harðar verður gerð frá
Lindakirkju í Kópavogi í dag, 18.
maí 2021, klukkan 15. Vegna
fjöldatakmarkana verður at-
höfninni streymt:
https://www.lindakirkja.is/utfarir
Streymishlekk má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Synir Harðar og
Birnu eru 1) Bjarni
Lárus, f. 2.7. 1960,
kvæntur Nínu Vil-
borgu Hauksdóttur,
f. 31.8. 1966. Börn
þeirra eru Hörður
Agnar, f. 1990, Mar-
inó Fannar, f. 1994,
og Elín Elísabet, f.
2001.
2) Kristján Þór, f.
28.7. 1964, kvæntur
Geirlaugu B. Geirlaugsdóttur, f.
24.8. 1967. Börn Kristjáns af
fyrra hjónabandi eru Viktor
Már, f. 1991, og Maríanna Rún, f.
1993, móðir þeirra er Margrét
J.S. Jóhannesdóttir. Börn Krist-
jáns og Geirlaugar eru Geirlaug-
ur Árni, f. 1997, Sveinbjörg
Birna, f. 2000, og Birna Kristín,
f. 2002.
Fjölskylda Harðar fluttist frá
Búðum í Staðarsveit til Stykk-
ishólms þegar hann var á fyrsta
ári. Bjó hann í Stykkishólmi
fram til ársins 1979 þegar hann
Elsku besti pabbi minn, það er
erfitt að setjast niður og setja á
blað kveðju til þín, þú stóðst þétt
við bakið á þínu fólki, hjartahlýr,
traustur, skemmtilegur, dugnaður
og bóngóður eru orð sem koma
upp í huga mér. Þú varst alltaf
tilbúinn til að aðstoða, veita ráð
enda leitaði ég til þín með allt. Það
var alltaf létt yfir þér, stutt í grínið
og jákvæðnina og þú fannst alltaf
lausn á málunum. Þú og mamma
voruð mjög samheldin og þegar
voru einhverjar framkvæmdir
annars vegar þá voru þið yfirleitt
bæði komin enda voruð þið sem
eitt. Þú varst góður hlustandi og
það var margt sem þú kenndir mér
enda mín mesta fyrirmynd í lífinu.
Þú varst mjög handlaginn og mikill
listamaður og erfðu flest barna-
börnin þín það frá þér, þú málaðir
mikið um ævina og þó að þú værir
kominn yfir 80 ára aldur þá var
enginn bilbugur á þér enda fann
maður þig oftast inni í herbergi
með pensil í hönd og fengum við
bræðurnir að njóta þess og feng-
um við nokkur meistaraverk frá
þér, sérstaklega síðustu tvö árin.
Það var hvergi betra að koma en til
ykkar mömmu og spjalla, best var
ef við vorum öll, þá var oft hlegið
við borðið. Þú barst mikla um-
hyggju fyrir barnabörnunum enda
varstu mjög áhugasamur um allt
sem þau voru að gera. Það eru
margar minningar sem koma upp
en þó sérstaklega þegar við bræð-
urnir fórum fyrir fjórum árum til
Barcelona með þér þar sem við átt-
um yndislegar stundir og gleymist
seint. Þú varst alltaf á staðnum hjá
okkur bræðrum, ef eitthvað þurfti
að laga þá var bláa svuntan tekin
fram. Það kemur enginn í þinn
stað elsku pabbi minn og missirinn
er mikill, sárastur er missir
mömmu sem setti allt sitt traust á
þig, nú er það okkar bræðranna að
hjálpa henni og vera til staðar fyrir
hana. Þín verður sárt saknað elsku
pabbi minn, þinn hlýi faðmur, góðu
ráð og glettni mun seint gleymast,
ég mun varðveita minningu þína.
Guð geymi þig og blessi þú varst
langbestur, ég elska þig.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Bjarni.
Ég á erfitt með að lýsa því með
orðum hvernig mér líður þessa
dagana eftir að pabbi féll frá. Nú
hefur hann fengið hvíldina eftir
langvarandi veikindi. Þótt ljóst
hafi verið í hvað stefndi, er maður
einhvern veginn ekki undir það bú-
inn að takast á við þá staðreynd að
lífi hans sé lokið. Síðustu árin barð-
ist hann við banvænan sjúkdóm og
tókst á við það verkefni eins og öll
önnur verkefni um ævina, með ein-
stakri rósemd og æðruleysi. Þegar
hann var spurður hvernig honum
liði svaraði hann alltaf, „ég hef það
bara ágætt“. Það var ekki hans stíll
að kvarta.
Pabbi var listasmiður og ófá
verkin sem hann hefur unnið fyrir
okkur fjölskylduna, hvort sem það
var pallasmíði, þakviðgerðir eða
hellulögn, svo fátt eitt sé nefnt.
Hann var alltaf mættur fyrstur á
staðinn, kátur og glaður með verk-
færatöskuna í hendi, tilbúinn í
slaginn. Vel undirbúinn með teikn-
ingar tilbúnar af því verki sem
vinna skyldi. Hann var einstaklega
nákvæmur, vandvirkur og lausna-
miðaður í öllu sem hann tók sér
fyrir hendur. Það fór ekki fram hjá
neinum þegar hann var í essinu
sínu og hafði nóg að gera því þá
flautaði hann iðulega. Mamma mín
var aldrei langt undan og iðulega
mættu þau saman í öll verk og ein-
kenndi það þeirra líf, samheldin og
kærleiksrík, tilbúin að veita aðstoð
þar sem hennar var þörf.
Í seinni tíð tók hann upp þráð-
inn og fór að sinna listinni sem
hann hafði alla tíð mikinn áhuga á
og málaði fallegar myndir sem
flestar höfðu skírskotun til æsku-
slóða hans á Snæfellsnesi og eru
þær okkur fjölskyldunni mjög dýr-
mætar. Pabbi hafði einstaklega fal-
lega rithönd og eyddi hann ófáum
stundum við að skrautskrifa heilu
skjölin fyrir fjölskyldu og vini. Öll-
um gjöfum foreldra minna fylgdi
fallegt skrautskrifað kort sem
hann hafði dundað sér við að
skrifa.
Það tómarúm sem hann skilur
eftir í hjarta mínu verður aldrei
fyllt, en minningarnar eru margar
og ljúfar um einstaklega traustan,
einlægan og kærleiksríkan föður.
Hann var ekki bara pabbi minn,
hann var besti vinur minn og
helsti stuðningsmaður minn í
gegnum lífið.
Elsku mamma mín, missir þinn
er mikill enda voru þið pabbi ein-
staklega samrýnd, en minningin
um einstakan eiginmann og föður
lifir áfram í hjörtum okkar.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum
okkar hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og
góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og
lítur okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara
það ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur
þú á braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig
sem förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið
út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Guðrún Sigurbjörnsd.)
Hvíldu í friði elsku pabbi.
Kristján Þór.
Á sólríkum og fallegum degi
hinn 9. maí síðastliðinn fékk
tengdafaðir minn hvíldina á líkn-
ardeild Landspítalans í Kópavogi.
Vogurinn skartaði sínu fegursta
þennan morgun, sólargeislarnir
spegluðust í sjónum og fuglasöng-
ur barst okkur til eyrna. Þessi fal-
legi morgunn endurspeglar líf
hans, bjartur, fagur, friðsamur.
Engin orð eru nógu sterk til
þess að lýsa mannkostum tengda-
pabba, en ég reyni eftir fremsta
megni.
Ég kom inn í fjölskylduna fyrir
um 25 árum þegar við Kristján
fórum að vera saman og var það
mikið gæfuspor. Hann tók mér
opnum örmum frá fyrsta degi og
urðum við strax miklir mátar.
Tengdapabbi hafði einstaka nær-
veru, hækkaði aldrei róminn og
hallmælti ekki nokkrum manni,
hann hafði einstakt lag á því að
finna það jákvæða í fari fólks.
Tengdapabbi var listamaður af
guðs náð, allt lék í höndum hans.
Við fjölskyldan fengum svo sann-
arlega að njóta þess. Hann var
alltaf hafður með í ráðum þegar
farið var út í framkvæmdir, þar
komu hæfileikar hans svo vel í
ljós, hann hannaði, teiknaði og
hugsaði fyrir hverju smáatriði.
Ekkert verkefni var of stórt og
reyndi hann alltaf að finna lausnir
á öllum vandamálum stórum sem
smáum.
Í seinni tíð gat hann gefið list-
sköpuninni meiri tíma, hann mál-
aði myndir og nokkrar þeirra
prýða veggi heimilis okkar og eru
þær ómetanlegur fjársjóður.
Skrautskriftin hans var engri lík
og eigum við svo fallegar minning-
ar ritaðar á pappír við ýmis tilefni.
Missir tengdamömmu er mikill
enda samvera þeirra löng og far-
sæl, þau áttu fallegt og gott hjóna-
band, voru samheldin og gengu í
öll verk saman. Hún vék ekki frá
honum síðustu vikurnar og hélt í
hönd hans lífið á enda. Þau stóðu
eins og klettar hlið við hlið og voru
alltaf til staðar fyrir fólkið sitt.
Betri fyrirmyndir fyrir börnin
okkar er ekki hægt að hugsa sér.
Mig langar til þess að kveðja þig
elsku tengdapabbi með síðustu
kveðjunni þinni til mín: „Hafðu það
alltaf sem allra best elskan mín.“
Vertu guði falinn, hafðu þökk
fyrir allt.
Þín tengdadóttir,
Geirlaug.
Ég vil minnast besta tengdaföð-
ur míns með nokkrum þakklætis-
orðum. Fyrst og fremst vil ég
þakka honum fyrir að hafa verið
mér einstaklega góður tengdafaðir
og börnum mínum frábær afi. Þú
hafðir mikla þolinmæði, umburð-
arlyndi og gæsku sem þú sýndir
öllum þeim sem að þér komu. Þinn
faðmur var opinn öllum. Alltaf var
stutt í brosið og glettnina hjá þér.
Þú varst gull af manni.
Þú kvartaðir aldrei þótt þú vær-
ir sárþjáður og lést ekki á neinu
bera. Þú varst albesti tengdapabbi
sem ég gat fengið enda alveg ein-
stakur maður. Minning um góðan
mann mun lifa áfram í hjörtum
okkar.
Elsku Hörður takk fyrir allt og
hvíl í friði.
„Einstakur“ er orð
sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru er líkt:
Faðmlagi eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
með brosi eða vinsemd.
„Einstakur“ lýsir fólki
sem stjórnast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annarra.
„Einstakur“ á við þá
sem eru dáðir og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
„Einstakur“ er orðið sem best lýsir þér.
(Teri Fernandez)
Nína.
Afi. Þegar við hugsum um afa
þá koma mörg orð upp í hugann.
Afi var jákvæður, fyrirmynd,
hjartahlýr, alltaf í góðu skapi jafn-
vel þótt eitthvað bjátaði á, yndis-
legur, hæfileikaríkur, notalegur og
einfaldlega besti afi sem hægt er
að hugsa sér. Nærvera hans var
svo góð og hann var með fallegustu
sálina og hjartað.
Afi hefur haft mikil áhrif á líf
okkar og minningarnar eru ótelj-
andi. Hver einasta minning er okk-
ur dýrmæt og höfum við hvert og
eitt okkar átt ómetanlegar stundir
með honum.
Afi kenndi okkur svo margt án
þess að gera sér grein fyrir því.
Hann sýndi okkur hvernig á að
horfa á lífið og að kunna að meta
bæði stóru og litlu hlutina í lífinu.
Okkur leið eins og afi gæti gert
allt og leyst öll vandamál.
Við ortum ljóð sem lýsir þér vel
elsku afi, hvíldu í friði.
Hversu góður maður þú varst
og hversu vel þú þig barst,
mun vera okkur leiðarljós
um ókomna tíð, til eilífðarnóns.
Við kveðjum þig með sorg í hjarta,
brosið þitt og sál svo bjarta.
Þú ferðast nú um betri staði
en verður ætíð okkar afi.
Þín barnabörn,
Viktor, Maríanna,
Geirlaugur, Sveinbjörg
og Birna Kristín.
Orð fá því ekki lýst því hve sárt
afa míns verður saknað.
Hörður Agnar Kristjánsson
var afar heilagur maður og á öll-
um sínum lífstíma sýndi hann ekk-
ert nema nærgætni og góðvild til
allra sem höfðu þau forréttindi að
kynnast honum.
Afi minn var ávallt til staðar
fyrir þá sem á honum þurftu að
halda, hann var þolinmóður, blíð-
ur og ljónharður maður sem hafði
jákvæð áhrif á alla og allt sem í
nærveru hans var.
Hógvær í öllu sem hann tók sér
fyrir hendur, handlagin og skap-
andi sál sem aldrei lét sig vanta
verkefni. Húsasmiðameistari sem
kunni sitt fag vel og notaði ham-
arinn í húsum vina og ættingja al-
veg fram að endalokum og skilur
eftir sig „elegant“ penslaför og
nagla á mörgum heimilum.
Einnig var hann hæfileikaríkur
listamaður sem hélt mikið upp á
bjarta liti og fagurt landslag.
Verkin hans eru hrífandi og bera
með sér mikla bjartsýni, glaðlyndi
og kærleika. Afi kenndi mér ótal-
margt, meðal annars hvernig
halda ætti á pensli, og hann hafði
eflaust margt fleira að kenna, ég
veit að hann er enn mér við hlið og
mun áfram leiðbeina.
Afi var bráðgáfaður og hafði
margt að segja en kaus að hlusta.
Verðmæti hans lágu ekki í því sem
hann átti, heldur í velgengni og
hamingju þeirra sem hann elsk-
aði.
Ég er yfir mig stoltur að geta
kallað hann afa minn, hann var
umburðarlyndur og kærleiksrík-
ur höfðingi sem ég mun að eilífu
sakna.
Hann er og mun alltaf vera
fyrirmyndin mín og mun hans lífs-
leið veita mér innblástur og hug-
rekki til að takast á við erfiðleika
og þrautir ævinnar.
Dýrlingur er eina orðið sem
getur til fulls lýst honum afa mín-
um og mun minning hans, og
áhrifin sem hann hafði á fólkið sitt,
lifa áfram í huga og orðum allra
sem elskuðu hann og til ókominna
kynslóða.
Hér skil ég eftir ljóð sem ég
fann í bók þar sem hann geymdi
bréf og myndir frá vinum og
vandamönnum, tel það lýsa eðlis-
fari hans ágætlega.
Elsku afi hvíl í friði.
Hinn vitri safnar ekki auði.
Því meira sem hann ver öðrum
til gagns, því meira á hann sjálfur.
Því meira sem hann gefur öðrum,
því ríkari er hann.
(Lao-tse)
Marinó Fannar.
Hörður Agnar
Kristjánsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIGRÍÐUR RUT GUNNARSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 5. maí á
Landspítalanum.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 20. maí klukkan 13. Athöfninni verður einnig
streymt og hlekk má finna á www.mbl.is/andlat.
Friðrik Már Steinþórsson Halla Sjöfn Ágústsdóttir
Birkir Már Friðriksson
Breki Már Friðriksson
Íris Dögg Ásmundsdóttir Rudolf Kristinsson
Ólafur Geir Rudolfsson
Alexander Goði Rudolfsson
Ásdís Rut Rudolfsdóttir
Snædís Helga Rudolfsdóttir
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GILS STEFÁNSSON,
varð bráðkvaddur á heimili sínu að morgni
12. maí. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði þriðjudaginn 18. maí kl. 15.
Streymt verður frá athöfninni.
R. Rósa Héðinsdóttir
Björg Gilsdóttir Guðmundur Karlsson
Héðinn Gilsson María Þorvarðardóttir
Helga Kristín Gilsdóttir Guðlaugur Baldursson
Sigrún Gilsdóttir Gísli Freyr Gíslason
barnabörn og barnabarnbörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÍÐUR TÓMASDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju á
morgun, miðvikudaginn 19. maí klukkan 13.
Stefán Jóhann Björnsson Anna Björg Elísdóttir
Þórir Björnsson Margrét Ósk Guðmundsdóttir
Gunnar Björnsson Andrea Margrét Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir minn, afi, langafi og bróðir,
KRISTJÁN GARÐARSSON,
síðast til heimilis á Sólvangsvegi 2,
Hafnarfirði,
andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði,
miðvikudaginn 12. maí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
20. maí klukkan 11. Vegna aðstæðna geta þeir sem óska eftir
að fá að mæta haft samband við aðstandendur. Athöfninni
verður streymt á slóðinni https://youtu.be/URJMTffgiPM og eins
verður hægt að nálgast virkan hlekk á mbl.is/andlat.
Valborg H. Kristjánsdóttir
Kristján Garðar Arnarson Katrín Georgsdóttir
Jónína Guðrún Arnardóttir Arnar Emil Hjartarson
Kristinn Örn Arnarson Elín Ósk Ellertsdóttir
langafabörn og bræður hins látna