Morgunblaðið - 18.05.2021, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
Handboltamaðurinn Aron Dagur
Pálsson hefur skrifað undir eins árs
samning við Guif í Svíþjóð. Hann
kemur til félagsins frá Alingsås, en
bæði lið leika í úrvalsdeild. Aron er
uppalinn Gróttumaður en hann lék
með Stjörnunni áður en hann hélt
út til Svíþjóðar. Leikstjórnandinn,
sem er 24 ára, lék með yngri lands-
liðum Íslands á sínum tíma. Guif
endaði í áttunda sæti sænsku deild-
arinnar á leiktíðinni og féll úr leik í
átta liða úrslitum í úrslitakeppn-
inni. Markvörðurinn Daníel Freyr
Andrésson leikur með Guif.
Aron skiptir um
félag í Svíþjóð
Morgunblaðið/Eggert
Skiptir Aron Dagur Pálsson er
kominn til Guif í Eskilstuna.
Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari í knattspyrnu, er
hættur störfum sem þjálfari Al-
Arabi í Katar eftir að hafa stýrt lið-
inu í hálft þriðja ár. Liðið endaði í
sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar
þar í landi, annað tímabilið í röð, en
deildakeppninni lauk í síðasta mán-
uði. Liðið komst í tvo bikarúrslita-
leiki undir stjórn Heimis en tapaði
báðum. Freyr Alexandersson og
Bjarki Ólafsson voru í þjálfara-
teymi Heimis og Aron Einar Gunn-
arsson landsliðsfyrirliði er í stóru
hlutverki í liðinu.
Ljósmynd/Al-Arabi
Katar Heimir Hallgrímsson er
hættur störfum hjá Al-Arabi.
Heimir hættur
hjá Al-Arabi
KEFLAVÍK – KA 1:4
0:1 Ásgeir Sigurgeirsson 16.
1:1 Ástbjörn Þórðarson 22.
1:2 Ásgeir Sigurgeirsson 26.
1:3 Hallgrímur Mar Steingrímsson 62.
1:4 Elfar Árni Aðalsteinsson 90.
MM
Þorri Mar Þórisson (KA)
M
Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Ástbjörn Þórðarson (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Rodrigo Gómez (KA)
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Haukur Heiðar Hauksson (KA)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8.
Áhorfendur: 150.
HK – FH 1:3
1:0 Birnir Snær Ingason 28.
1:1 Ágúst Eðvald Hlynsson 33.
1:2 Ágúst Eðvald Hlynsson 56.
1:3 Steven Lennon 85.
MM
Ágúst Eðvald Hlynsson (FH)
M
Guðmundur Þór Júlíusson (HK)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Martin Rauschenberg (HK)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Hjörtur Logi Valgarðsson (FH)
Gunnar Nielsen (FH)
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Dómari: Elías Ingi Árnason – 5.
Áhorfendur: Um 400.
KR – VALUR 2:3
1:0 Guðjón Baldvinsson 9.
1:1 Sebastian Hedlund 44.
1:2 Haukur Páll Sigurðsson 48.
1:3 Sigurður Egill Lárusson 54.
2:3 Pálmi Rafn Pálmason 69.(v)
MM
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
M
Guðjón Baldvinsson (KR)
Pálmi Rafn Pálmason (KR)
Kennie Chopart (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Stefán Geir Árnason (KR)
Hannes Þór Halldórsson (Val)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Sebastian Hedlund (Val)
Kristinn Freyr Sigurðsson (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Kaj Leo i Bartalsstovu (Val)
Dómari: Pétur Guðmundsson – 9.
Áhorfendur: 300, uppselt.
ÍA – STJARNAN 0:0
MM
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
M
Dino Hodzic (ÍA)
Einar Karl Ingvarsson (Stjörnunni)
Dómari: Erlendur Eiríksson – 8.
Áhorfendur: Um 300.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Staðan í Pepsi Max-deildinni eftir
leiki gærkvöldsins er í raun stór-
merkileg. KA, FH og Valur unnu
sína leiki, eins og Víkingar í fyrra-
kvöld, og þessi lið eru nú öll með 10
stig í fjórum efstu sætunum. Síðan
kemur breitt bil og hin átta liðin í
deildinni eru með tvö til fimm stig.
Fjögur lið, HK, Stjarnan, Fylkir og
ÍA, hafa enn ekki unnið leik.
Víkingar hafa vissulega verið
frískari en margir bjuggust við en
KA hefur komið mest á óvart í
þessum fyrstu umferðum, að mínu
mati. Þeir sköpuðu sér ekki færi
gegn HK í fyrstu umferð en hafa
síðan verið hreint magnaðir og
skorað tíu mörk í þremur sig-
urleikjum. Arnar Grétarsson hefur
enn aðeins tapað einum deildaleik
af sautján sem þjálfari Akureyr-
arliðsins.
_ Hallgrímur Mar Steingrímsson
er líklega stærsti munurinn á liði
KA nú og í fyrra. Hann náði sér
aldrei á strik á síðasta tímabili en
hefur svo sannarlega sýnt sitt rétta
andlit sem einn skemmtilegasti
sóknartengiliður landsins það sem
af er tímabilinu. Fimm mörk ásamt
nokkrum stoðsendingum segir allt
um það en hann gerði fjögur mörk í
deildinni allt síðasta tímabil.
_ Sindri Kristinn Ólafsson mark-
vörður Keflavíkur kom í veg fyrir
annað mark frá Hallgrími þegar
hann varði frá honum vítaspyrnu.
_ Elfar Árni Aðalsteinsson skor-
aði sitt 40. mark í efstu deild þegar
hann innsiglaði sigur KA með fjórða
marki liðsins. Elfar missti af öllu
síðasta tímabili en skoraði síðast
þrennu gegn Fylki í lokaumferðinni
2019. Þá var þetta 100. mark Elfars
í deildakeppninni á ferlinum.
„Varnarleikur KA var í hæsta
gæðaflokki og þar fór fremstur
meðal jafningja Þorri Mar Þórisson
sem spilaði óaðfinnanlega. Norðan-
menn spiluðu feikilega vel og eru til
alls líklegir í sumar ef þeir ná að
halda slíkum gæðum áfram,“ skrif-
aði Skúli B. Sigurðsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Ágúst FH-ingum mikilvægur
FH-ingar halda áfram að skora
og lögðu HK 3:1 í Kórnum eftir að
hafa lent undir. Hafnfirðingar hafa
skorað ellefu mörk í fyrstu fjórum
leikjunum og virðast til alls vísir
með sinn sterka leikmannahóp.
_ Ágúst Eðvald Hlynsson hefur
komið heldur betur frískur inn í lið
FH-inga. Hann skoraði tvö fyrri
mörkin og er kominn með fjögur
mörk í þremur síðustu leikjum
Hafnfirðinga. Jafnmörg og hann
gerði fyrir Víking allt síðasta tíma-
bil. Þá lagði hann þriðja markið upp
fyrir Steven Lennon sem gerði sitt
91. mark í deildinni.
_ Gunnar Nielsen markvörður
FH var Hafnfirðingum heldur betur
dýrmætur þegar hann varði víta-
spyrnu frá Stefani Ljubicic og kom
í veg fyrir að HK næði 2:1-forystu í
fyrri hálfleiknum. Þetta reyndist
vendipunktur leiksins.
„FH-ingar voru að venju agaðir
og skipulagðir, flestir hoknir af
reynslu en áttu í smá basli með
snöggar sóknir HK. Voru hins veg-
ar flottir í sóknum sínum þar sem
Ágúst Eðvald átti marga sprettina
en þeim tókst sjaldan að koma sér í
færi gegn þéttri vörn HK, en svo
kom að því. Reynslan fór síðan að
skila sér þegar leið á leikinn og FH
gaf ekki færi á sér,“ skrifaði Stefán
Stefánsson m.a. í grein um leikinn á
mbl.is.
Fimm marka fjör í Vesturbæ
Slagur erkifjendanna KR og Vals
í Vesturbænum stóð undir vænt-
ingum. Fimm mörk í flottum fót-
boltaleik og Valsmenn héldu út í
lokin, unnu, 3:2, en þurftu til þess
„flautumarkvörslu“ frá Hannesi Þór
Halldórssyni á síðustu sekúndunni.
„Það er meistarabragur á Vals-
mönnum því smá mótbyr virðist
ekki hafa nein áhrif á liðið. Þeir
halda alltaf áfram, líkt og gegn HK
þar sem þeir uppskáru sigurmark í
uppbótartíma, og það virðist vera
óbilandi trú í leikmannahópnum.
Á sama tíma hafa KR-ingar að-
eins unnið einn sigur í fyrstu fjórum
leikjum tímabilsins sem er langt
undir pari hjá liði sem þykist ætla
að verða Íslandsmeistari,“ skrifaði
Bjarni Helgason m.a. í grein um
leikinn á mbl.is.
_ Kristinn Freyr Sigurðsson
lagði upp tvö marka Vals, fyrir þá
Hauk Pál Sigurðsson og Sigurð
Egil Lárusson, á sex mínútna kafla
í byrjun síðari hálfleiks.
Haraldur hetjan á Akranesi
ÍA og Stjarnan gerðu markalaust
jafntefli í tilþrifalausasta leik um-
ferðarinnar á Akranesi.
Þar var Haraldur Björnsson
markvörður Stjörnunnar hetja
sinna manna og kom í veg fyrir
ósigur Garðabæjarliðsins.
„Um miðbik síðari hálfleiksins
þróaðist leikurinn út í hálfgerðan
háloftabolta þar sem hvorugt liðið
náði að skapa sér mikið. Mögulega
endurspeglaði spilamennska beggja
liða stöðu þeirra í deildinni. Sókn-
arleikur þeirra var ekki upp á
marga fiska og færanýtingin afleit
enda hafa þau bæði aðeins skorað
tvö mörk í fjórum leikjum,“ skrifaði
Pétur Hreinsson m.a. í grein um
leikinn á mbl.is.
Magnaðir
norðanmenn
með þrjá í röð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bjargvættur Hannes Þór Halldórsson varði vel á lokaskúndu leiks KR og
Vals en hér slær hann boltann frá marki, af höfði Stefáns Árna Geirssonar.
- KA, FH, Valur og Víkingur eru fimm
stigum á undan næsta liði í deildinni
Pepsi Max-deild karla
Keflavík – KA ........................................... 1:4
HK – FH ................................................... 1:3
ÍA – Stjarnan ............................................ 0:0
KR – Valur ................................................ 2:3
Staðan:
FH 4 3 1 0 11:3 10
KA 4 3 1 0 10:2 10
Víkingur R. 4 3 1 0 8:3 10
Valur 4 3 1 0 9:5 10
Leiknir R. 4 1 2 1 6:6 5
Breiðablik 4 1 1 2 7:8 4
KR 4 1 1 2 6:7 4
Keflavík 4 1 0 3 3:9 3
HK 4 0 2 2 5:8 2
Stjarnan 4 0 2 2 2:5 2
Fylkir 4 0 2 2 3:8 2
ÍA 4 0 2 2 2:8 2
Mjólkurbikar kvenna
3. umferð:
Hamrarnir – Völsungur .................. (frl.) 2:3
Álftanes – Grindavík ................................ 0:6
FH – Víkingur R....................................... 1:0
Svíþjóð
Gautaborg – Sirius .................................. 2:2
- Kolbeinn Sigþórsson lék allan leikinn
með Gautaborg.
- Aron Bjarnason var ekki í leikmanna-
hópi Sirius.
Mjällby – Häcken ..................................... 1:1
- Oskar Tor Sverrisson kom inn á hjá Häc-
ken á 44. mínútu en Valgeir Lunddal Frið-
riksson var ekki í hópnum.
Varberg – Norrköping ........................... 2:1
- Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með Norrköping, Ari Freyr Skúlason er
meiddur en Jóhannes K. Bjarnason var í 19
manna hópi liðsins.
Djurgården – Häcken ............................. 1:4
- Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården
- Diljá Ýr Zomers kom inn á hjá Häcken á
89. mínútu.
Ítalía
Verona – Bologna.................................... 2:2
- Andri Fannar Baldursson var varamað-
ur hjá Bologna og kom ekki við sögu.
Umspil, undanúrslit, fyrri leikur:
Venezia – Lecce ....................................... 1:0
- Bjarki Steinn Bjarkason var varamaður
hjá Venezia og kom ekki við sögu. Óttar
Magnús Karlsson er meiddur.
Danmörk
SönderjyskE – Lyngby ........................... 2:0
- Frederik Schram varði mark Lyngby í
leiknum.
Bandaríkin
Orlando Pride – Washington ................. 1:1
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Orlando.
New England – Columbus Crew ........... 1:0
- Arnór Ingvi Traustason lék í 83 mínútur
með New England.
Spánn
B-deild:
Real Oviedo – Málaga ............................. 1:0
- Diego Jóhannesson var varamaður hjá
Real Oviedo og kom ekki við sögu.
England
B-deild, umspil, undanúrslit, fyrri leikir:
Bournemouth – Brentford....................... 1:0
Barnsley – Swansea ................................. 0:1
50$99(/:+0$
Sundmennirnir
Már Gunnarsson,
ÍRB, og Róbert
Ísak Jónsson,
Firði/SH, settu
báðir Íslandsmet
í úrslitum á Evr-
ópumeistaramóti
IPC á Madeira í
gær. Már bætti
eigið met í 100 m
flugsundi og Ró-
bert bætti eigið met í 100 m bak-
sundi. Róbert hafnaði í 7. sæti í 100
m baksundi S14 og bætti Íslands-
metið á nýjan leik er hann synti á
1:04.76 mín. Már hafnaði í 4. sæti í
100 m flugsundi S11 og bætti eigið
Íslandsmet, synti á 1:11.11 mín., en
fyrra metið var 1:11.12 mín. Milli-
tími Más í 50 m var einnig met,
32,33 sek.
Settu báðir
met á Madeira
Már
Gunnarsson
KÖRFUKNATTLEIKUR
8-liða úrslit karla, annar leikur:
Sauðárkrókur: Tindastóll – Keflavík.. 18.15
HS Orkuhöll: Grindavík – Stjarnan.... 20.15
HANDKNATTLEIKUR
Umspil kvenna, oddaleikur:
Hertz-höllin: Grótta – ÍR..................... 19.30
Í KVÖLD!