Morgunblaðið - 18.05.2021, Page 27

Morgunblaðið - 18.05.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021 Það var skemmtilegt að fylgj- ast með leikmönnum, stuðnings- mönnum og stjórnarformanni enska knattspyrnuliðsins Leic- ester fagna bikarsigrinum gegn Chelsea á laugardaginn en Leic- ester varð þar enskur bikar- meistari í fyrsta skipti. Leicester er ekki í hópi þeirra „sex ríku“ sem hafa að mestu einokað bikar- og meist- aratitlana á Englandi á seinni ár- um. Það hefur verið afar áhuga- vert að fylgjast með liðinu koma sér fyrir í einu af efstu sætum úrvalsdeildarinnar og brjóta „glerþakið“ með því að verða enskur meistari árið 2016 og enskur bikarmeistari árið 2021. Þetta er aðeins í þriðja sinn á 26 árum sem lið sem telst ekki til þeirra „stóru“ í enska fótbolt- anum vinnur bikarinn. Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth unnu hann árið 2008 og svo Wigan öllum að óvörum árið 2013. Þá er Leicester eina „litla“ fé- lagið sem hefur orðið meistari frá því Blackburn hreppti meist- aratitilinn árið 1995. Stuðningsmenn margra enskra félaga, einmitt þessara sex, eru nú í stríði við eigendur sína eftir „ofurdeildarhneykslið“. Ekki stuðningsmenn Leicester. Þeir dýrka og dá taílenska stjórnarformanninn Aiyawatt Srivaddhanaprabha og alla hans fjölskyldu sem hefur gert gríð- arlega mikið fyrir félagið og borgina Leicester. Vichai faðir hans fórst einmitt í sviplegu þyrluslysi við leikvanginn fyrir þremur árum og risastór mynd af honum gnæfði yfir áhorfenda- stúkurnar á Wembley. Einhverjir mættu taka stjórnarhættina í Leicester sér til fyrirmyndar. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Það er stór vetur fram undan hjá mér og sennilega sá stærsti hingað til. Stóra markmiðið er að öðlast þátttökurétt í heimsbik- arnum sem hefur verið draumur hjá mér lengi,“ sagði Sturla. „Fyrir mér er heimsbikarinn stærsta sviðið í skíðaheiminum og þar vilja allir vera. Ég vil standa mig vel í Evrópubikar, standa mig svo vel í heimsbikar og síðan taka Ólympíuleikarnir við sem er rús- ínan í pylsuendanum en þetta hljómar auðvitað allt mjög auðvelt þegar maður orðar þetta svona.“ „Það eru Ólympíuleikar á næsta ári og ég er klárlega á leiðinni þangað,“ sagði Sturla Snær Snorrason, margfaldur Íslands- meistari á skíðum og atvinnumað- ur í greininni, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morg- unblaðsins. Sturla, sem er 27 ára gamall, byrjaði að æfa skíði þegar hann var fimm ára gamall en hann æfði einn- ig íshokkí lengi vel og varð Íslands- meistari með Birninum árið 2012. Hann var fyrst valinn í íslenska A-landsliðið í alpagreinum árið 2010 og ákvað að gerast atvinnu- maður í íþróttinni árið 2015. Árið 2016 varð hann Íslands- meistari á skíðum í fyrsta sinn en hann var einn af fimm keppendum Íslands á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang árið 2018. Heimsbikarinn stærsta sviðið Ljósmynd/SKÍ Bestur Sturla Snær er fremsti skíðamaður þjóðarinnar. KÖRFUBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Flest bendir nú til þess að tvö efstu lið Dominos-deildar kvenna, Valur og Haukar, muni mætast í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfu- knattleik. Þau komust bæði í 2:0 í gærkvöldi, Valskonur sigruðu Fjölni 83:76 í Grafarvogi og Haukar lögðu Keflavík á allsannfærandi hátt suður með sjó, 80:68. Valur og Haukar fá því tækifæri til að gera út um einvígin á sínum heimavöllum þegar liðin mætast í þriðja skipti á föstudagskvöldið. Valskonur völtuðu yfir Fjölni með 41 stigs mun í fyrsta leiknum en þurftu heldur betur að hafa fyrir sigrinum í Grafarvogi í gærkvöld. Þriggja stiga karfa frá Dagbjörtu Dögg Karlsdóttur tæpum tveimur mínútum fyrir leikslok gerði nánast útslagið en þá komst Valur níu stig- um yfir. „Mér fannst Valsliðið aldrei ná góðum tökum á leiknum en á móti má segja að liðið hafi kannski ekki heldur lent í vandræðum þar sem Fjölnir var ekki yfir í leiknum eftir fyrsta leikhluta. Í liði Vals eru fleiri leikmenn sem geta tekið af skarið og það sást í kvöld. Ásta Júlía Grímsdóttir átti til dæmis virkilega góðan leik og var mjög snjöll í að koma sér í góð færi nærri körf- unni,“ skrifaði Kristján Jónsson m.a. um leikinn á mbl.is. _ Ásta Júlía Grímsdóttir skoraði 18 stig fyrir Val, Kiana Johnson skoraði 15 og átti 10 stoðsendingar og Hallveig Jónsdóttir skoraði 13 stig. _ Ariel Hearn skoraði 26 stig fyr- ir Fjölni og átti 12 stoðsendingar og Lina Pikciuté var með 14 stig og níu fráköst. Sannfærandi Haukar Haukar voru allan tímann með undirtökin í Keflavík þar sem stað- an var 41:29 í hálfleik. Hafnfirð- ingar héldu Suðurnesjakonum frá sér allan seinni hálfleikinn og nið- urstaðan var sannfærandi sigur, 80:68. „Keflvíkingar eru alltaf við það að ná smá áhlaupi og þá er það drepið niður af sóknarleik Haukanna,“ skrifaði Skúli B. Sigurðsson m.a. í lýsingu á leiknum á mbl.is. _ Sara Rún Hinriksdóttir hefur verið Haukunum góður liðsauki eft- ir að hún kom til þeirra í vetur frá Leicester Riders á Englandi en hún skoraði 23 stig í gærkvöld gegn sínu gamla félagi í Keflavík. Alyesha Lovett skoraði 18 stig og tók 10 frá- köst og Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 13 stig. _ Daniela Wallen skoraði 23 stig fyrir Keflavík, Anna Ingunn Svans- dóttir 16, Thelma Dís Ágústsdóttir 11 og Katla Rún Garðarsdóttir 11. Staða Vals og Hauka vænleg - Komin í 2:0 gegn Fjölni og Keflavík Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tvísýnt Sigrún Björg Ólafsdóttir úr Fjölni og Hallveig Jónsdóttir úr Val í baráttu um boltann í viðureign liðanna í Grafarvoginum í gærkvöld. Bryndís Rut Haraldsdóttir fyrirliði Tindastóls er leikmaður þriðju umferð- ar í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta hjá Morgunblaðinu. Bryndís var í lykilhlutverki í vörn nýliðanna sem lögðu ÍBV að velli á laugardaginn, 2:1, og unnu þar með sinn fyrsta leik í sögunni í efstu deild. Jacqueline Altschuld sem lék vel á miðjunni hjá Tindastól í leiknum er einnig í liði þriðju umferðarinnar. Þar er Agla María Albertsdóttir úr Breiðabliki í þriðja skipti en hún er eini leikmaðurinn sem hefur verið valin í lið umferðarinnar í öllum þremur umferðunum. Samherji hennar Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er í liðinu í annað sinn. Selfoss og Valur eiga einn- ig tvo leikmenn hvort í úrvalsliðinu. vs@mbl.is 3. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2021 3-5-2 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Tinna Brá Magnúsdóttir Fylkir Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir Breiðablik Bryndís Rut Haraldsdóttir Tindastóll Arna Eiríksdóttir Valur Anna María Friðgeirsdóttir Selfoss Agla María Albertsdóttir Breiðablik Eva Núra Abrahamsdóttir Selfoss Dóra María Lárusdóttir Valur Jacqueline Altschuld Tindastóll Anita Lind Daníelsdóttir Keflavík Andrea Rut Bjarnadóttir Þróttur 2 3 Bryndís best í 3. umferðinni Dominos-deild kvenna Undanúrslit, annar leikur: Fjölnir – Valur ...................................... 76:83 _ Staðan er 2:0 fyrir Val og þriðji leikur á föstudagskvöld. Keflavík – Haukar ................................ 68:80 _ Staðan er 2:0 fyrir Hauka og þriðji leikur á föstudagskvöld. Umspil karla Undanúrslit, fyrsti leikur: Hamar – Selfoss................................ 105:101 _ Hamar er yfir, 1:0. Vestri – Skallagrímur .......................... 81:55 _ Vestri er yfir, 1:0. NBA-deildin Lokaumferðin: New York – Boston .............................. 96:92 Toronto – Indiana............................. 113:125 Washington – Charlotte................... 115:110 San Antonio – Phoenix..................... 121:123 Golden State – Memphis.................. 113:101 Atlanta – Houston .............................. 124:95 Brooklyn – Cleveland....................... 123:109 Philadelphia – Orlando .................... 128:117 Detroit – Miami ................................ 107:120 Chicago – Milwaukee ....................... 118:112 Minnesota – Dallas........................... 136:121 New Orleans – LA Lakers ................ 98:110 Oklahoma City – LA Clippers......... 117:112 Portland – Denver............................ 132:116 Sacramento – Utah ............................ 99:121 Umspil liða í 7.-10. sæti: Boston – Washington, sigurliðið fer áfram en tapliðið leikur við sigurvegara í leik In- diana – Charlotte. LA Lakers – Golden State, sigurliðið fer áfram en tapliðið leikur við sigurvegara í leik Memphis – San Antonio. Viðureignir í 1. umferð: Philadelphia – lið úr umspili Brooklyn – lið úr umspili Milwaukee – Miami New York – Atlanta Utah – lið úr umspili Phoenix – lið úr umspili Denver – Portland LA Clippers – Dallas 086&(9,/*" Evrópumeistaramótið í sundi í 50 metra laug hófst í Búdapest í Ung- verjalandi í gærmorgun. Þrír af fimm keppendum Íslands á mótinu tóku þar þátt í sinni fyrstu grein en enginn þeirra komst áfram úr und- anrásunum. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Steingerður Hauksdóttur kepptu í 50 metra skriðsundi en Jóhanna varð í 47. sæti á tímanum 26,18 sek- úndum. Það er aðeins lakara en hennar besti tími til þessa en hún synti á 25,98 sekúndum á Íslands- mótinu í Laugardalslaug á dög- unum. Steingerður hafnaði í 53. sæti á tímanum 26,98 sekúndum en hún á best 26,45 sekúndur frá árinu 2019. Íslandsmet Ragnheiðar Ragnars- dóttur í greininni frá 2010 er 24,94 sekúndur. Keppendur í greininni voru 62 en sextánda og síðasta í úr- slit synti á 25,22 sekúndum. Ranomi Kromowidjojo frá Hollandi var með besta tímann, 24,24 sekúndur. Kristinn Þórarinsson keppti í 50 metra baksundi og endaði í 48. sæti en hann kom í mark á tímanum 26,66 sekúndum. Hans besti tími í greininni er 25,95 sekúndur en Ís- landsmet Arnar Arnarsonar frá 2008 er 25,86 sekúndur. Keppendur voru 54 og synda þurfti á 25,28 sek- úndum til að komast áfram. Klim- ent Kolesnikov frá Rússlandi fékk besta tímann, 24,23 sekúndur. Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Dadó Fenrir Jasminuson eru einnig á meðal keppenda og hefja keppni síðar í vikunni. Steingerður keppir ein Íslendinganna á mótinu í dag þegar hún tekur þátt í undanrás- unum í 50 metra baksundi. Jóhanna náði lengst á fyrsta degi á EM Ljósmynd/Hörður J. Oddfríðarson EM Jóhanna Elín Guðmundsdóttir á laugarbakkanum í Búdapest.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.