Morgunblaðið - 18.05.2021, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2021
GARÐABLAÐ
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 4. júní
SÉRBLAÐ
Sumarið er tíminn til að gera garðinn og
okkar nánasta umhverfi sem fallegast
• Garðurinn
• Pallurinn
• Potturinn
• Blómin
• Garðhúsgögnin
• Grillið
ogmargtmargt fleira
Stútfullt blað af spennandi efni
PÖNTUN AUGLÝSINGA
er til 31. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105, kata@mbl.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Eyrarrósin, viðurkenning fyrir
framúrskarandi menningarverkefni
utan höfuðborgarsvæðisins, var af-
hent í fyrradag, 16. maí, við hátíð-
lega athöfn á Patreksfirði og hlaut
hana brúðuleikhúsið Handbendi á
Hvammstanga. Er það í fyrsta sinn
sem Eyrarrósin fellur verkefni á
Norðurlandi vestra í skaut, að því
er fram kemur í tilkynningu.
Metnaðarfull verkefni með
listrænan slagkraft
Greta Clough, stofnandi og list-
rænn stjórnandi Handbendis, tók á
móti viðurkenningunni og verð-
launafé að upphæð kr. 2.500.000.
Býðst Handbendi að standa að við-
burði á Listahátíð á næsta ári og
einnig verður framleitt heimildar-
myndband um verkefnið.
Alls bárust 36 umsóknir um
Eyrarrósina og hvatningarverðlaun
hennar fyrir árið 2021 hvaðanæva
af landinu en hvatningarverðlaunin
eru ný af nálinni og voru veitt
þremur verkefnum sem hafa verið
starfrækt í þrjú ár eða skemur, að
því er fram kemur í tilkynningu.
Verðlaunin eru veitt „metnaðar-
fullum verkefnum sem þykja hafa
listrænan slagkraft, jákvæð áhrif á
nærsamfélagið og hafa alla burði til
að festa sig í sessi“, eins og þar seg-
ir. Hvatningarverðlaunin hlutu Bo-
real Screendance Festival á
Akureyri, IceDocs – Iceland Docu-
mentary Film Festival á Akranesi
og Röstin, gestavinnustofa á Þórs-
höfn á Langanesi. Hlýtur hvert
verkefni um sig 750.000 kr. auk
gjafakorts frá Icelandair að upp-
hæð kr. 100.000 en Eyrarrósin er
samstarfsverkefni Listahátíðar,
Byggðastofnunar og Icelandair.
„Góð tilfinning“
Greta Clough stofnaði Hand-
bendi árið 2016 en hún er menntað-
ur leikstjóri og brúðuleikari og list-
rænn stjórnandi leikhússins. Greta
er fædd og uppalin í Bandaríkjun-
um og bjó í 14 ár í Bretlandi áður en
hún flutti til Hvammstanga og
stofnaði þar Handbendi. Hún hélt
fyrstu brúðulistahátíð bæjarins í
fyrra, Hvammstangi International
Puppet Festival, skammstafað
HIP.
„Þetta er virkilega góð tilfinn-
ing,“ segir Greta, spurð að því
hvernig sé að hljóta Eyrarrósina.
„Það er alltaf dásamlegt að vita að
fólk kunni að meta það sem við er-
um gera, Handbendi er svo miklu
meira en brúðuleikhús, við sinnum
svo miklu samfélagsstarfi,“ segir
Greta. Handbendi sinni m.a. menn-
ingarstarfi með ungu fólki á lands-
byggðinni sem fái með því útrás
fyrir sköpunarþörfina.
Handbendi hefur ferðast með
sýningar sínar um landið og einnig
farið á erlendar hátíðir og hlotið
bæði verðlaun og lof. Leikhúsið
gerir einnig út stúdíó á Hvamms-
tanga þar sem áhersla er lögð á
upptökur og framleiðslu á stafrænu
efni af ýmsu tagi.
Greta segir HIP, brúðuleikhús-
hátíðina sem haldin var í fyrsta sinn
í fyrra, hafa gengið mjög vel þrátt
fyrir Covid-19 og að hátíðin verði
meiri að umfangi í október á þessu
ári og að fleiri listamenn muni
mæta. Það er því bjart framundan
hjá Handbendi og nóg að gera á
næstu mánuðum.
Tvær hátíðir og
gestavinnustofa
Hvatningarverðlaun Eyrarrós-
arinnar hlutu Boreal Screendance
Festival á Akureyri, alþjóðleg hátíð
sem haldin var í fyrsta sinn í nóv-
ember í fyrra í Mjólkurbúðinni í
Listagilinu. Voru sýnd 28 verk eftir
18 listamenn af ýmsu þjóðerni og er
stefnt að enn umfangsmeiri hátíð í
nóvember á þessu ári, líkt og í til-
felli HIP-hátíðar Handbendis á
Hvammstanga.
Röstin á Þórshöfn á Langanesi
hlaut einnig hvatningarverðlaun en
svo nefnist tilraunakennd gesta-
vinnustofa fyrir listafólk sem fara
mun fram í þriðja sinn í sumar og
taka átta til tíu listamenn þátt í
henni. Er þeim boðin þátttaka með
frírri gistingu og vinnuaðstöðu.
Segir í tilkynningu að Röstin sé
vettvangur fyrir fjölbreyttan hóp
listamanna til að njóta andrýmis,
vinna að listsköpun og kynnast öðru
listafólki auk þess að tengjast sam-
félaginu á Langanesi og auðga um
leið bæjarlífið með uppákomum fyr-
ir íbúa.
Þriðju hvatningarverðlaunin
hlaut svo Iceland Documentary
Film Festival eða IceDocs á Akra-
nesi, alþjóðleg heimildarmynda-
hátíð sem var haldin í fyrsta sinn
árið 2019. Hátíðin verður haldin í
þriðja sinn 23.-27. júní nk. og segir í
tilkynningu að hún hafi þá sérstöðu
að vera eina alþjóðlega kvikmynda-
hátíð landsins sem sýni eingöngu
skapandi heimildarmyndir. Á hátíð-
inni sé boðið upp á rjómann af þeim
heimildarmyndum sem komi út í
heiminum auk fjölda sérviðburða.
„Svo miklu meira
en brúðuleikhús“
- Handbendi á Hvammstanga hlaut Eyrarrósina 2021
- Þrjú önnur verkefni hlutu hvatningarverðlaun
Eyrarrósarhafi Greta Clough með Eyrarrósina sem hún hlaut um helgina. Handbendi stofnaði hún árið 2016. Röstin Gestavinnustofan á Þórshöfn hlaut hvatningarverðlaun.
IceDocs Heimildarmyndahátíðin á Akranesi þykir sýna vandaðar myndir.
Skjádans Verk á Boreal í fyrra, AboveBeyondOutside eftir Freyu Olafson.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic