Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.05.2021, Blaðsíða 32
• Gist er á hinu glæsilega Campoamor Golf Resort 4* • Beint dagflug með Icelandair til Alicante • Morgunverður alla daga og ein kvöld- máltíð með drykkjum ásamt kvöld- skemmtun með Ladda • Akstur til og frá golfvöllum ásamt umsjón og skipulagi á rástímum • Golfbílar innifaldir á öllum hringjum • Frítt vallargjald á golfvelli hótelsins eftir kl. 15.00 alla daga Golfferðir eldri borgara til Costa Blanca haustið 2021 Bókanir í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is eða í símum 783-9300/01 Allar nánari upplýsingar á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Fyrsta ferð er 30. september – 11. október 11 dagar 10 nætur 7 golfhringir Alþjóðlegi safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur í dag víða um lönd þar sem söfn munu vekja athygli á starfi sínu, mikilvægi og framlagi til samfélagsins. Á ári hverju er valið þema sem söfn einbeita sér að og að þessu sinni er það: „Framtíð safna: uppbygging og nýjar áherslur“. Áherslur dagsins í ár verða að mestu á samfélagsmiðla og þau tækifæri sem þeir gefa til fræðslu og skemmtunar og munu söfn og safnafólk deila fræðslu og skemmtilegu efni á heimasíðum og samfélagsmiðlum safnanna með myllumerkjunum #safnadagurinn og #imd2021. Ýmsir viðburðir fara fram og einn þeirra er fyrirlestur í Listasafni Einars Jóns- sonar kl. 12.10. Þar mun Pétur H. Ár- mannsson arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands segja frá sögu safnbyggingar Listasafns Einars Jóns- sonar á Skólavörðuholti en hann hefur rannsakað, skrifað og fjallað um arkitektúr á Íslandi um áratuga skeið. Framtíð safna, uppbygging og nýjar áherslur á safnadeginum ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 138. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Flest bendir til þess að Valur og Haukar muni leika til úrslita um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik en bæði liðin náðu 2:0-forystu í einvígjum undanúrslit- anna í gærkvöld. Valur vann Fjölni 83:76 í hörkuleik í Grafarvogi og Haukar unnu allsannfærandi sigur á Kefl- víkingum suður með sjó, 80:68. »27 Einvígi Vals og Hauka blasir við ÍÞRÓTTIR MENNING „Þarna fæ ég tækifæri til þess að nema hjá einstökum prófessorum og framúrskarandi leiðtogum í tækniheiminum sem hafa mótað nú- tímann okkar og um leið fæ ég fá- gætt tækifæri til þess að vinna með þeim sem móta munu heiminn og tilveru okkar til framtíðar.“ Njáll þótti efnilegur píanóleikari í Reykjanesbæ, var kominn á fram- haldsstig, en tónlistin vék hægt og sígandi fyrir öðru námi. „Ég spila samt á píanóið af og til en það er erfitt að finna tíma til að æfa sig að spila í þrjá klukkutíma á dag eins og áður,“ segir Njáll, sem er með BSc- gráðu í tölvunarfræði frá Háskól- anum í Reykjavík og fékk 10 í með- aleinkunn á lokaárinu 2020. Hann var dæmatímakennari og sinnti að- stoðarkennslu samhliða náminu þar til kennslu vetrarins lauk fyrir skömmu. Hann byrjaði í viðskipta- fræði en segist fljótt hafa komist að því að fyrirtækjarekstur og fjármál ættu ekki við sig. „Þá sagði góður vinur minn við mig að ég ætti að byrja að læra að forrita, ég tók hann á orðinu og eftir það varð ekki aftur snúið.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Carnegie Mellon er talinn vera fremsti háskóli í heiminum í tölv- unarfræði, og tölvunarfræðin er al- mennt ein eftirsóttasta greinin í heiminum,“ segir Njáll Skarphéð- insson, sem heldur á vit fræðanna í sumar. Þá byrjar hann í vinsælasta námi skólans í Pittsburg í Penn- sylvaníu í Bandaríkjunum, mast- ersnámi í gervigreind (Masters of Artificial Intelligence and Inno- vation). 3,9% umsækjenda fengu inngöngu og er Njáll eini Evrópu- búinn. Frá því í mars hefur Njáll unnið á mál- og raddtæknistofu HR við máltæknirannsóknir og er að þróa gervigreindarmódel fyrir íslensku. „Máltækni er sá hluti gervigreindar sem hjálpar tölvum að skilja tungu- mál eins og íslensku,“ útskýrir hann og bendir á að verið sé að fara nýjar brautir í rannsóknarvinnunni, en verkefnið hafi orðið til í fram- haldi af því að hann komst inn í Carnegie Mellon. „Framlag mitt snýr að spurningasvörun, en það má segja að spurningasvörun sé nokkurn veginn ótroðin slóð þegar kemur að máltækni og íslensku. Ef vel tekst til verður mögulegt að birta svokölluð þjálfunargögn, en slíkt myndi leyfa hvaða rannsókn- armanni sem er að þjálfa gervi- greind úr gögnum sem ég stefni á að safna saman. Markmiðið er að ná að safna hundrað þúsund spurn- ingum, en ég sé það sem eitt skref í því markmiði að búa til stafrænan íslenskan aðstoðarmann.“ Leiðtogar framtíðar Námið í Carnegie Mellon er í eðli sínu mjög tæknilegt, en Njáll segir að skólastjórnendur sæki í nem- endur sem hafi sýnt möguleika á að sinna stjórnunar- og leiðtogastöð- um sem snúa að því að skapa hug- búnaðarkerfi framtíðarinnar. „Það er auðvitað ótrúlega spennandi að komast inn í þennan frábæra skóla, því þarna sækja um nemendur frá öllum heimshornum,“ segir hann. Tölvunarfræðingur mótar framtíðina - Njáll Skarphéðinsson komst inn í Carnegie Mellon Leiðtogi Njáll Skarphéðinsson bíður spenntur eftir framhaldsnáminu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.