Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 2
fylgjast með hvað er inn og hvað ekki. Það sem er í tísku hverju sinni finnst mér ekki heilagt. Mér finnst gaman að fara stundum á móti straumn- um og gera eitthvað sem aðrir þora ekki og allt gamalt og tíma- laust er minn veikleiki. Hattar eru einnig áhugamál hjá mér. Þegar það kemur að hús- gögnum þá elska ég gamla hönnun og að blanda henni sam- an við nýja.“ Hvað með andlega líðan og sjálfsvinnu? „Ég ætti að vera að gera mikið meira af henni en hún gleymist oft í dagsins önn. Ég hef það að leiðarljósi að koma vel fram við náungann og vera betri maður í dag en ég var í gær. Mér finnst mik- ilvægt að bæta fyrir brot sín á öðrum og vera heiðarlegur, traustur og trúr sjálfum sér. Ég stundaði mikla og ákafa sjálfsvinnu hérna fyrir nokkrum árum og maður hefur viðhaldið henni í gegn- um árin með því að koma því í rútínu. Stundum þarf maður að horfast í augu við sjálfan sig og sjá hvað maður getur verið mikill fáviti á köflum og það er lík- lega eitt það erfiðasta sem fólk gerir. Mér finnst mikilvægt að vera meðvitaður um mína eigin galla og reyna að rétta mig af þegar brestirnir koma fram. Sama á við um að viðurkenna mistök sín umsvifalaust þegar maður brýtur á öðrum. Sama í hvaða formi það getur verið. Það er enginn fullkominn og það mun aldrei verða raunin en maður getur endalaust lært og reynt að bæta sig til hins betra, sýna umburðarlyndi og elska náung- ann.“ Hvað er það besta sem þú hefur gert fyrir sjálfan þig? „Það er þrennt sem er mér efst í huga. Að búa erlendis kenndi mér mikið um umburðarlyndi og önnur samfélög. Það opnaði augu mín fyrir því hvað samfélög eru fjölbreytt og hvað þarfir íbúa eru ólíkar á milli landa og heimsálfa. Það fékk mig til að sjá sjálfan mig í nýju ljósi. Hundurinn minn var líka ein af mínum fram- úrskarandi ákvörðunum og hefur hann gefið lífinu lit á þeim myrku tímabilum sem lífið hefur boðið upp á. Svo held ég að sú ákvörðun að hætta að drekka áfengi hafi verið hola í höggi, braut eftir braut eftir braut. Það að geta hugsað skýrt og lifað frjáls úr hlekkj- um fíknar og áfengis er tryllt eiturlyf. Það er komið í tísku núna að drekka ekki áfengi og það er ágætistíska sem er mannbætandi. Ég er ekki á móti áfengi, þvert á móti. Áfengi get- ur verið yndisleg uppfinning þegar hún er notuð rétt og í hófi. Vín og matur er fullkomin blanda sem aldrei má deyja.“ Er meira sjónvarpsefni á leiðinni frá þér? „Já, heldur betur! Ég og minn maður Hannes Þór Arason, maðurinn sem mun láta mig líta vel út á skjánum, erum að fara í ferðalag út fyrir landsteinana um leið og aðstæður leyfa í stórt og skemmtilegt verkefni sem birtist vonandi á skjám landsmanna á þessu ári eða á því næsta. Við getum ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað við erum búnir að hnoða saman! Svo er maður alltaf með eitthvað nýtt í pípunum. Sumt hittir í mark og annað ekki.“ H ver er uppáhaldsréttur þinn á matseðlinum? „Ætli það sé ekki gamli góði agúrkueftirrétturinn minn sem hefur fylgt mér lengi. Hann á sér sérstakan stað í hjarta mínu. Hann samanstendur af hvítsúkkul- aði- og skyrkremi, sýrðum og fersk- um agúrkum, dillolíu, stökkum mar- engs og granítu sem gerð er úr sellerí, romaine-salati, dilli og eplum. Hann er öðruvísi og þetta er svona ,,had to be there“-réttur. Hann er ekki á seðlinum í þessum töluðu orðum en hann kemur á seðil í byrjun júní með batnandi veðri.“ Hvað er það dýrasta sem þú hef- ur keypt þér í eldhúsið? „Ætli það sé ekki Thermomix- inn minn. Það er blandari [e. blen- der] með hitastýringu og tölvuskjá sem hefur endalausa möguleika. Það er hægt að hnoða brauðdeig, sjóða súpur og búa til eftirrétti án þess að nota potta eða pönnur. Ég elska þessa vél! Þetta er svona vél sem maður vissi ekki að maður þyrfti fyrr en maður fékk hana.“ En það ódýrasta? „Það er örugglega litla sleikjan eða skrælarinn úr IKEA. Þessi áhöld klikka seint og eru til fyrirmyndar. Ég hef líka séð þessar IKEA- sleikjur í atvinnu- eldhúsum sem segir allt sem segja þarf. Ég er mikið fyrir að að eiga margt lítið sem er ekkert endilega dýrt og maður getur átt áhöld fyrir hvað sem er.“ Hvert er uppáhaldsveitingahúsið þitt? „Það er erfitt að segja. Sú upplifun sem stendur mér þó efst í huga er þó þegar ég fór á Asador Extebarri á Spáni. Ég fór þangað þegar ég var að vinna á Arzak í San Sebastian á sínum tíma. Ég upplifði magnaða matarupplifun sem ég mun ekki gleyma. Ég mæli eindregið með því að fólk geri sér ferð þangað ef það á leið hjá. Annars eru margir góðir staðir sem mér finnst gaman að heimsækja í Reykjavík. Ég vil ekki vera að nafngreina einhvern einn stað. En ég fer reglulega á þá staði sem mér þykir einna vænst um og líður vel á.“ Hvað gerir þú á góðum degi þegar þú vilt dekra við þig? „Ég reyni að gera sem minnst! Hinn fullkomni dagur væri að vakna og drekka góðan espresso í rúminu við þægilega tónlist. Fara svo út með hundinn á eitthvert gott kaffihús og fá mér góðan há- degismat. Það verður að vera gott veður svo það komi fram. Mér gæti líka dottið í hug að skella mér í nudd einhvers staðar eða hitta ættingja eða vini yfir daginn á meðan kærastan er í vinnunni. Svo væri yndislegt að fara út að borða einhvers staðar um kvöldið með konunni og hafa það náðugt. Ef það er ekki í boði þá er alltaf gott að fara í ferðalag upp í sveit eða bústað.“ Skiptir tíska þig miklu máli? „Nei, hún skiptir mig í raun og veru kannski ekki máli en mér finnst tíska áhugaverð. Mér finnst gaman að eiga fallega hluti og „Umhverfið getur haft mikil áhrif ámatinn“ Davíð Örn Hákonarson er mikill fagurkeri eins og sést á matnum hans. Thermomix TM6 er ómissandi í eldhúsið að mati Davíðs. Hún kostar 219.000 krónur og fæst á vef- síðunni Eldhús- töfrar. Davíð i er veitingastjóri á Hótel Húsafelli. Asador Extabarri-veitingahúsið á Spáni var valið þriðji besti veitinga- staður í heimi árið 2019. Ljósmynd/Asador Etxebarri Agúrkueftirrétturinn á sérstakan stað í hjarta Davíðs. Hann saman- stendur af hvítsúkkulaði- og skyrkremi, sýrðum og ferskum agúrkum, dillolíu og stökkum marengs. Ljósmynd/Mjázi Mynd Sleikjan frá Ikea er í uppá- haldi hjá Dav- íð. Hún kostar einungis 195 krónur. Davíð Örn Hákonarson, matreiðslumeistari og sjónvarpsmaður, er veitingastjóri á Hótel Húsafelli. Hann veit fátt skemmtilegra en að gera góðan mat og trúir því að með fallegu eldhúsi verði maturinn betri. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Eldhústöfrar Davíð mælir með kartöflu- skrælara frá Ikea. Hann kostar 645 krónur. 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon M ér var sagt það þegar ég var barn að bjart- sýni og jákvæðni borgaði sig því þá yrði til- vera fólks bærilegri. Mér var líka sagt að þessi tvenna kæmi fólki yfir skaflana sem geta orðið á vegi okkar í lífinu. Þess vegna ákvað ég að vera frekar þessi jákvæða týpa þegar ég yrði stór, en hef nú komist að því að systurnar jákvæðni og bjart- sýni geta farið með fólk út í skurð. Þessa dagana sit ég svo- lítið í súpunni. Fyrir nokkrum mánuðum ákváðum við fjölskyldan að flytja, sem er nú líklega ekki saga til næsta bæjar. En út af alls kon- ar, sem ekki verður farið nánar út í hér, þurftum við að redda okkur millibilshúsnæði í tvo mánuði eða svo. Elsku tengda- pabbi minn býr svo vel að eiga íbúð á besta stað í Reykjavík sem hann notar lítið og leyfði okkur að búa í íbúðinni sinni á meðan við værum heimilislaus. Við maðurinn minn ræddum fram og til baka hvort þetta væri góð hugmynd. Íbúðin væri töluvert minni en okkar fyrri íbúð og hann hafði áhyggjur af því að við myndum missa vit- ið þegar við færum að rekast hvert utan í annað í plássleys- inu. Svona miðaldra fólk eins og við getur verið nokkrum númerum of vanafast sem getur skapað togstreitu ef það er mikið flipp í gangi. Maðurinn minn ákvað að gefa þessu séns eftir að ég taldi honum trú um að þetta yrði einstök upplifun. Við myndum lifa eins og við værum í útlöndum. Við gætum labbað í mathallir, á kaffihús og farið á Rauða ljónið á kvöld- in. Lifað eins og greifar og látið eins og við værum á okkar uppáhaldseyju, Madeira. Maðurinn minn er raunsær. Hann tekur yfirleitt ekki ákvörð- un nema vera búinn að taka allar mögulegar og ómögulegar breytur inn í jöfnuna. Hann þarf líka að vera 100% viss um að ákvörðunin sé rétt áður en hann tekur hana. Eftir miklar um- ræður samþykkti hann þennan gjörning. Mér finnst líklegt að loforð um að geta eytt kvöldunum á Rauða ljóninu hafi gert útslagið en því miður hefur ekkert orðið af þeim ferðum sök- um annríkis í lífi og starfi. Svo sagði hann: „Þetta hlýtur að ganga ef það verða engar frekari samkomutakmarkanir. Við getum ekki verið bæði í heimavinnu í þessari íbúð.“ Með jákvæðnina að vopni pökkuðum viði gamla heimilinu niður á mettíma og vorum mjög peppuð þegar við fluttum fatnað og helstu eigur úr Fossvoginum yfir í Vesturbæinn. Nokkrum dögum eftir að við fluttum í „útlandaíbúðina“ voru samkomutakmarkanir hertar og sundlaugum lokað. Ég sann- færði hann um að þetta yrði ekkert mál! Við ættum hvort annað og það væri nú ekki eitthvað sem allir gætu státað af. Nokkrum dögum síðar bankaði húsvörðurinn upp á hjá okkur og tilkynnti að vatn úr sturtunni hjá okkur læki niður í næstu hæð. Við yrðum að hætta að nota hana þangað til hún yrði löguð. Undir venjulegum kringumstæðum hefði þetta ekki verið neitt mál þar sem daglegar sundferðir eru stór hluti af lífi okk- ar. Það versnaði aðeins í því þar sem sundlaugar voru lok- aðar á þessum tímapunkti. Eftir að hafa þvegið á mér hárið í baðvaskinum hugsaði ég með mér að þetta væri nú ekki al- veg tilveran sem ég hefði óskað mér en gætti þess að hafa ekki hátt um það. Nokkrum dögum síðar birtist engill í mannsmynd sem gerði við sturtuna og þá varð lífið aðeins skárra aftur. Það sem gerist hins vegar þegar fólk býr þröngt er að það er ekki pláss fyrir neitt. Þegar allt er út um allt minnkar áhugi á að taka til og gera það sem fólk gerir heima hjá sér. Bráð- um verðum við búin að búa í útlandaíbúðinni í tvo mánuði og íbúðin er orðin eins og vel sjoppulegt unglingaherbergi. Maðurinn minn er búinn að horfa á 90 klukkutíma af Game of Thrones og ég er að verða komin í gegnum allt ritsafn Guðrúnar frá Lundi. Ég skil núna hvers vegna unglingar geta verið eins og þeir eru. Fólk sem býr í sjoppulegu unglingaherbergi missir smátt og smátt lífsvilj- ann og fer að haga sér furðulega. Það er bara eitt sem gæti gert út af við okkur og það er ef eig- andi íbúðarinnar, tengdafaðir minn bless- aður, myndi banka óvænt upp á. Þá væri úti um okkur! Lífið í sjoppu- lega unglinga- herberginu! MartaMaría Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.