Morgunblaðið - 21.05.2021, Side 22
S
if Ágústsdóttir býr með manni
sínum Christopher Gove og dótt-
ur þeirra í stílhreinni íbúð í
London. Bæði starfa þau á sviði
hönnunar. Sif er innanhússhönn-
uður og Gove er fatahönnuður og eigandi
Percival í London.
Sif sem er fædd og uppalin í Vestmanna-
eyjum, flutti ung að aldri til Bretlands til að
freista gæfunnar sem fyrirsæta á erlendri
grundu.
Allt frá upphafi hefur verið nóg að gera
hjá henni þó hún merki síðustu árin sín í
vinnu sem mest spennandi.
„Þessi ár hafa verið skemmtileg og krefj-
andi. Ég hef starfað sem fyrirsæta frá fimm-
tán ára að aldri. Árið 2005 var ég sautján ára
og ákvað þá að flytja frá litlu eyjunni minni
alla leið til London. Í upphafi ætlaði ég að
skreppa í einn mánuð að reyna fyrir mér
sem fyrirsæta úti í hinum stóra heimi. Núna
sextán árum seinna er ég hér ennþá. Í raun
á ég erfitt með að trúa því að ég hafi lifað
hálfa ævina hér í Lundúnaborg! Tíminn er
svo fljótur að líða.“
Sif er og verður alltaf Íslendingur þó hún
eigi erfitt með að sjá fyrir sér að búa á Ís-
landi aftur.
„Ég mun alltaf sakna náttúrunnar á Ís-
landi og fjölskyldunnar. Svo á ég góða vini á
Íslandi. Ég sakna einnig íslenska lakkríssins
og að drekka malt og appelsín. Svo ekki sé
minnst á harðfiskinn, bland í poka og ís-
lensku sundlaugarnar. Það er engin sund-
menning hér!“
Átti erfitt með að taka
fyrirsætustörfin alvarlega
Hvernig er þín upplifun af því að starfa
sem fyrirsæta og hvers vegna ákvaðstu að
læra innanhússhönnun?
„Þó að fyrirsætustörfin hafi oft verið
skemmtileg og gefið mér svo margt sem ég
myndi aldrei vilja breyta eða skipta út, þá
hef ég alltaf átt erfitt með að taka það starf
alvarlega. Eins hefur það aldrei fullnægt
sköpunarþörf minni að starfa sem fyr-
irsæta. Í sannleika sagt þá hálföfundaði ég
oft fólkið hinum megin við myndavélina og
langaði oft að gera eitthvað meira en að
stilla mér upp.
Frá því ég man eftir mér hef ég haft
gaman af öllu því sem er skapandi. Hvort
heldur sem er skartgripagerð, leir, smíði
eða teikning í grunnskóla. Innra með mér
vissi ég alltaf að mig langaði að fara í meira
listnám.
Svo kemur náttúrlega sá tími í starfi sem
snýst svona mikið um útlitið að maður þarf
þá kannski að hugsa um plan B. Enginn er
víst ungur að eilífu.“
Innanhússhönnun lá vel við enda hefur
Sif lesið sig í gegnum allskonar hönn-
unarblöð og bæklinga í gegnum árin og
fundið sig gleyma stað og stund í áhuga á
öllu fallegu er tengist heimilinu.
„Mig langaði í meira nám og hallaðist að
Ljós sófi með ljósum púðum með svörtum líningum setur svip á
stofuna. Um er að ræða heimili sem Sif hannaði í Notting Hill.
Hér má sjá heimili sem
Sif hannaði í Notting
Hill. Þar mætast þæg-
indi, menning og list.
5 SJÁ SÍÐU 24
Sif Ágústsdóttir hefur starfað
sem fyrirsæta á erlendri grundu
frá 15 ára aldri. 17 ára flutti hún
til Lundúna og er þar enn. Í dag
starfar hún sem innanhúss-
hönnuður og lifir nú drauminn
að hanna heimili, hótel og versl-
anir fyrir viðskiptavini sína í
London og víðar.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Astley Clarke
Lifir drauminn
í Lundúnum
Sif hefur búið lengi í
Lundúnum og gerir
það gott sem innan-
hússhönnuður.
Það getur verið fallegt að vera með bækur í
hillum en af hverju ekki að raða fallegum
hlutum inn á milli bókanna?
Hér hefur Sif valið hvert einasta húsgagn inn
á heimili í Notting Hill.
Sif er hrifin af náttúrulegum efn-
um eins og við. Takið eftir því
hvað svarti liturinn dregur fram
mikinn karakter í brúna litnum.
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021