Morgunblaðið - 21.05.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.05.2021, Blaðsíða 26
að leggja áherslu á mikilvægi þess að vera ekki með hræðsluáróður í forvörnum. Við skulum frekar láta öryggið passa. Góð öryggistæki í dag gefa okkur nákvæma meldingu í stað öskurs eða háværs væls.“ Eru þessi tæki dýr? „Nei það finnst mér ekki en kannski fer það eftir því hvernig við horfum á hlutina. Reyk- skynjarinn sem við völdum okkur kostar í kringum 28.000 krónur. Hann sýnir í appi hvar hlutirnir gerast á heimilinu, sýnir magn kotvísýrings í lofti og gefur nákvæmar upp- lýsingar ef eitthvað fer af stað í húsinu.“ Húsið þarf ekki að brenna til kaldra kola Hefurðu alltaf verið svona nákvæmur þegar kemur að öryggi á heimilinu? „Já kannski en ætli ég hafi ekki fengið dellu fyrir þessu þegar ég byrjaði að starfa fyrir VÍS. Það sem heillar mig við þessa hugsun er að við þurfum ekki að tengja kaup á þessum vörum við einhverjar hörmungar. Þótt það kvikni í hjá okkur þarf húsið ekki að brenna til kaldra kola. Ég vil ekki vera með hræðslu- áróður enda held ég að það ali bara á ótta og fæli fólk frá. Við spennum öll á okkur örygg- isbelti í bílnum til að verja okkur í umferðinni. Við viljum að viðskiptavinir okkar lendi sjaldnar í óhöppum og viljum nálgast for- varnir út frá þeirri hugsun að öryggi er alls konar og það sama má segja um óhöpp. Það eru til margar mjög skemmtilegar hönnunaröryggisvörur sem er gaman að hafa til sýnis og hef ég dottið alveg ofan í þær pæl- ingar,“ segir hann og bendir á Fakó, Elkó og vefverslun Krabbameinsfélagsins sem dæmi. „Hluti af því að búa til notalegt fjölskyldu- umhverfi er að hafa græjur sem styðja við ör- yggi fjölskyldunnar. Eins tel ég mikilvægt að boð frá þessum tækjum séu nákvæm og ekki fælandi. Það lætur manni líða öruggari heima og með meiri stjórn á hlutunum.“ Hjónin Guðmundur Ósk- arsson og Kristín Þorleifs- dóttir búa í fallegu húsi á Seltjarnarnesi. Stofan er björt og falleg. G uðmundur Óskarsson, sölu- og markaðsstjóri VÍS, býr í fallegu húsi á Seltjarnarnesi ásamt eig- inkonu sinni Kristínu Þorleifs- dóttur og tveimur dætrum þeirra. Þau keyptu húsið í fyrra og gerðu það upp og lýsir Guðmundur húsinu í dag sem nota- legu og öruggu umhverfi fyrir fjölskylduna. Guðmundur er vegna vinnu sinnar mikið fyrir að skoða og finna fallegar öryggisvörur sem hægt er að hafa á góðum stað í húsinu. Hann segir það úrelt að slökkvitækið eða ör- yggisteppið sé ljótt ásýndar og lokað inni í skáp. „Við fjölskyldan fundum þetta huggulega hús á Seltjarnarnesi og ákváðum að festa kaup á því í fyrra. Ástæðan er sú að við kunn- um vel að meta að vera á Seltjarnarnesi, í grónu hverfi með útsýni yfir sjóinn. Við höf- um búið saman hér á Seltjarnarnesi lengi en svo höfum við einnig dvalið erlendis vegna náms og vinnu. Öryggismál eiga hug minn all- an í dag vegna vinnunnar en ég starfaði áður fyrir Icelandair, svo ég myndi teljast frekar nýr í þessum bransa. Þótt ég sé nú orðinn fróður um margt og er vonandi að koma með nýjar hugmyndir í geirann.“ Þekktur fyrir að brenna matinn Guðmundur lét setja öryggismyndavélar utan á húsið sitt og einnig í dyrabjölluna. „Ísland er frekar öruggt svæði en það geta allir lent í því að brotist er inn hjá þeim. Að mínu mati er gott að huga að öllum grunn- öryggisatriðum tengt heimilinu. Að vera með örugga glugga og svo má ekki gleyma örygg- istækjunum inni í húsinu.“ Fjölskyldan fór í endurbætur inni í húsinu þar sem þau vildu opna eldhúsið og hafa gott pláss þar sem sjónvarpið er í húsinu. Þau lögðu einnig áherslu á að þvottahúsið væri með góðri vinnuaðstöðu og svo völdu þau vel og vandlega húsgögn á heimilið. Það sem einkennir heimili Guðmundar er að öryggistækin á heimilinu eru í hönn- unarstíl. „Já við hjónin höfum bæði mjög gaman af því að velja þessi tæki hingað heim og vörðum við löngum tíma saman í að velja okkur slökkvitækið svo dæmi sé tekið. Öryggisvörur þurfa ekki að vera rauðar eða gular í dag heldur geta þær verir flottar og spennandi. Þær verða að vera til taks þegar maður þarf á þeim að halda. Þær gagnast engum ofan í skúffu ef það kviknar í. Þess vegna er gaman að velja öryggisvörur sem er líka gaman að hafa til sýnis. Við viljum leggja áherslu á að öryggið passi. Þegar maður fer á stjá og setur smávegis hugsun í þetta þá kemst maður að því að það er til fullt af skemmtilegum öryggisvörum í verslunum landsins. Svo er hægt að finna flottar örygg- isvörur á netinu líka. Við völdum okkur Nest- reykskynjarann frá Google sem sendir okkur skilaboð þegar við erum ekki heima. Í honum er einnig næturlýsing fyrir börnin og svo fær konan mín gjarnan meldingu þegar ég er inni í eldhúsinu að elda. Ég er þekktur á heimilinu fyrir að brenna matinn minn. Mér finnst gott „Vorum lengi að velja slökkvi- tæki í húsið“ Hjónin Guðmundur Óskarsson og Kristín Þorleifsdóttir leggja mikið upp úr fegurð á heimilinu. Meira að segja ör- yggisbúnaður hússins er fallegur og hljómar vel. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Hvítir látlausir baðskápar á móti brúnum listrænum veggjum. Borðplatan er Penn- sylvanía-eik frá Efnissölunni. Brúni veggurinn inni á baði er úr sementi sem er síðan lakkað með glæru lakki. Það er sementsáferð á flísunum einnig. Eldhúsinnréttingin er úr Ikea og borðplatan er spónaplata með sementshúð. Fæst hjá Hylja verktökum. 26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.