Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 26
að leggja áherslu á mikilvægi þess að vera
ekki með hræðsluáróður í forvörnum. Við
skulum frekar láta öryggið passa.
Góð öryggistæki í dag gefa okkur nákvæma
meldingu í stað öskurs eða háværs væls.“
Eru þessi tæki dýr?
„Nei það finnst mér ekki en kannski fer það
eftir því hvernig við horfum á hlutina. Reyk-
skynjarinn sem við völdum okkur kostar í
kringum 28.000 krónur. Hann sýnir í appi
hvar hlutirnir gerast á heimilinu, sýnir magn
kotvísýrings í lofti og gefur nákvæmar upp-
lýsingar ef eitthvað fer af stað í húsinu.“
Húsið þarf ekki að brenna til kaldra kola
Hefurðu alltaf verið svona nákvæmur þegar
kemur að öryggi á heimilinu?
„Já kannski en ætli ég hafi ekki fengið dellu
fyrir þessu þegar ég byrjaði að starfa fyrir
VÍS. Það sem heillar mig við þessa hugsun er
að við þurfum ekki að tengja kaup á þessum
vörum við einhverjar hörmungar. Þótt það
kvikni í hjá okkur þarf húsið ekki að brenna
til kaldra kola. Ég vil ekki vera með hræðslu-
áróður enda held ég að það ali bara á ótta og
fæli fólk frá. Við spennum öll á okkur örygg-
isbelti í bílnum til að verja okkur í umferðinni.
Við viljum að viðskiptavinir okkar lendi
sjaldnar í óhöppum og viljum nálgast for-
varnir út frá þeirri hugsun að öryggi er alls
konar og það sama má segja um óhöpp.
Það eru til margar mjög skemmtilegar
hönnunaröryggisvörur sem er gaman að hafa
til sýnis og hef ég dottið alveg ofan í þær pæl-
ingar,“ segir hann og bendir á Fakó, Elkó og
vefverslun Krabbameinsfélagsins sem dæmi.
„Hluti af því að búa til notalegt fjölskyldu-
umhverfi er að hafa græjur sem styðja við ör-
yggi fjölskyldunnar. Eins tel ég mikilvægt að
boð frá þessum tækjum séu nákvæm og ekki
fælandi. Það lætur manni líða öruggari heima
og með meiri stjórn á hlutunum.“
Hjónin Guðmundur Ósk-
arsson og Kristín Þorleifs-
dóttir búa í fallegu húsi á
Seltjarnarnesi.
Stofan er björt
og falleg.
G
uðmundur Óskarsson, sölu- og
markaðsstjóri VÍS, býr í fallegu
húsi á Seltjarnarnesi ásamt eig-
inkonu sinni Kristínu Þorleifs-
dóttur og tveimur dætrum
þeirra.
Þau keyptu húsið í fyrra og gerðu það upp
og lýsir Guðmundur húsinu í dag sem nota-
legu og öruggu umhverfi fyrir fjölskylduna.
Guðmundur er vegna vinnu sinnar mikið
fyrir að skoða og finna fallegar öryggisvörur
sem hægt er að hafa á góðum stað í húsinu.
Hann segir það úrelt að slökkvitækið eða ör-
yggisteppið sé ljótt ásýndar og lokað inni í
skáp.
„Við fjölskyldan fundum þetta huggulega
hús á Seltjarnarnesi og ákváðum að festa
kaup á því í fyrra. Ástæðan er sú að við kunn-
um vel að meta að vera á Seltjarnarnesi, í
grónu hverfi með útsýni yfir sjóinn. Við höf-
um búið saman hér á Seltjarnarnesi lengi en
svo höfum við einnig dvalið erlendis vegna
náms og vinnu. Öryggismál eiga hug minn all-
an í dag vegna vinnunnar en ég starfaði áður
fyrir Icelandair, svo ég myndi teljast frekar
nýr í þessum bransa. Þótt ég sé nú orðinn
fróður um margt og er vonandi að koma með
nýjar hugmyndir í geirann.“
Þekktur fyrir að brenna matinn
Guðmundur lét setja öryggismyndavélar
utan á húsið sitt og einnig í dyrabjölluna.
„Ísland er frekar öruggt svæði en það geta
allir lent í því að brotist er inn hjá þeim. Að
mínu mati er gott að huga að öllum grunn-
öryggisatriðum tengt heimilinu. Að vera með
örugga glugga og svo má ekki gleyma örygg-
istækjunum inni í húsinu.“
Fjölskyldan fór í endurbætur inni í húsinu
þar sem þau vildu opna eldhúsið og hafa gott
pláss þar sem sjónvarpið er í húsinu. Þau
lögðu einnig áherslu á að þvottahúsið væri
með góðri vinnuaðstöðu og svo völdu þau vel
og vandlega húsgögn á heimilið.
Það sem einkennir heimili Guðmundar er
að öryggistækin á heimilinu eru í hönn-
unarstíl.
„Já við hjónin höfum bæði mjög gaman af
því að velja þessi tæki hingað heim og vörðum
við löngum tíma saman í að velja okkur
slökkvitækið svo dæmi sé tekið.
Öryggisvörur þurfa ekki að vera rauðar eða
gular í dag heldur geta þær verir flottar og
spennandi. Þær verða að vera til taks þegar
maður þarf á þeim að halda. Þær gagnast
engum ofan í skúffu ef það kviknar í. Þess
vegna er gaman að velja öryggisvörur sem er
líka gaman að hafa til sýnis. Við viljum leggja
áherslu á að öryggið passi. Þegar maður fer á
stjá og setur smávegis hugsun í þetta þá
kemst maður að því að það er til fullt af
skemmtilegum öryggisvörum í verslunum
landsins. Svo er hægt að finna flottar örygg-
isvörur á netinu líka. Við völdum okkur Nest-
reykskynjarann frá Google sem sendir okkur
skilaboð þegar við erum ekki heima. Í honum
er einnig næturlýsing fyrir börnin og svo fær
konan mín gjarnan meldingu þegar ég er inni
í eldhúsinu að elda. Ég er þekktur á heimilinu
fyrir að brenna matinn minn. Mér finnst gott
„Vorum lengi
að velja slökkvi-
tæki í húsið“
Hjónin Guðmundur Óskarsson og Kristín Þorleifsdóttir
leggja mikið upp úr fegurð á heimilinu. Meira að segja ör-
yggisbúnaður hússins er fallegur og hljómar vel.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Hvítir látlausir baðskápar á
móti brúnum listrænum
veggjum. Borðplatan er Penn-
sylvanía-eik frá Efnissölunni.
Brúni veggurinn inni á baði er úr sementi
sem er síðan lakkað með glæru lakki.
Það er sementsáferð á flísunum einnig.
Eldhúsinnréttingin er úr Ikea
og borðplatan er spónaplata
með sementshúð. Fæst hjá
Hylja verktökum.
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021