Morgunblaðið - 21.05.2021, Page 28

Morgunblaðið - 21.05.2021, Page 28
Þ etta fagra einbýlishús var byggt 1983 og því var kominn tími á við- hald þegar Hanna Stína var kölluð til leiks til að búa til ævintýraheim eins og henni einni er lagið. Hún segir að húsið hafi heillað hana upp úr skónum enda státar það af æðislegu útsýni út á haf, út á Álftanes og um þessar mundir er hægt að horfa á eldgosið í beinni útsendingu út um stofuglugg- ana. „Þetta er fyrsta húsið sem Sigurður Hall- grímsson arkitekt teiknaði en ég held mikið upp á hann,“ segir Hanna Stína. Hún segir að nýju eigendur hússins hafi verið með mjög ákveðnar hugmyndir um hvernig heimilið ætti að líta út. „Þau hafa gert þetta áður og vissu því alveg hvað þau vildu. Húsmóðirin er mjög smekkleg og þetta var mjög skemmtilegt samstarf. Þau vildu til dæmis færa eldhúsið í stóra opna rýmið með allt útsýnið og útbúa fallega hjónasvítu. Eins vildu þau gera góða aðstöðu fyrir tvo tán- ingssyni svo allir hefðu sitt pláss. Þau vildu fá vatnsgufu inn í húsið og því voru líka öll baðher- bergi endurnýjuð. Í þessu ferli voru öll gólfefni endurnýjuð ásamt handriði á stiga,“ segir hún. Nútíminn bankar upp á Við ræðum um stemningu inni á heimilum. Hanna Stína segist hafa lagt upp með það að búa til nútímalega stemningu sem væri hlýleg en á sama tíma stílhrein og björt. „Í þessu húsi vorum við að vinna með ljósa liti. Húsið er frá 1983 og því var kominn tími á endurbætur því það var nánast upprunalegt þegar þau keyptu það.“ Fimm metra eyja Eldhúsið í húsinu er eins og listaverk þar sem Carrara-marmari, grábæsaður askur og hvít- lakkað MDF mætist. Eldhúsið nýtur sín miklu betur þegar það er komið inn í stofu en það var fært þvert yfir húsið. Það að færa eldhúsið gjör- breytti andrúmslofti heimilisins. „Við settum tæplega fimm metra eyju þvert í miðjuna og stóran skápavegg samsíða henni. Það er óviðjafnanlegt útsýni úr eldhúsinu og því fannst okkur það verða að fá að njóta sín,“ segir hún. „Restin af húsinu er svo í grábæsaða askinum með smá blandi af hvítlökkuðu MDF,“ segir hún. Panellinn var sprautaður Loftin í eldhúsinu og stofunni eru sprautu- lökkuð og á gólfinu er hlýlegt ljóst parket frá Parka. „Panellinn í loftinu var sprautaður og upp- runalegu ljósin látin halda sér sem kemur alveg vel út en það stendur til að setja hljóðdúk í loftin og endurnýja lýsinguna,“ segir Hanna Stína. Hvað um arininn. Var honum eitthvað breytt? „Arininn er nánast upprunalegur og mjög fal- legur og mikið „centerpiece“ nema við létum mála eldsteininn með eldþolinni svartri máln- ingu,“ segir hún. Vel skipulögð hjónasvíta Þegar Hanna Stína fékk verkefnið að end- urhanna þetta fallega hús lögðu húsráðendur áherslu á að hafa vel skipulagða hjónasvítu. Rúmið var í raun sett í mitt herbergið, veggur settur á bak við svo hægt væri að koma fyrir fataherbergi. „Hjónasvítan tekur ekki yfir marga fermetra en rúmar vel fataherbergi og baðherbergi ásamt rúmi. Við náðum að nýta plássið vel og skipta henni niður með vegg þar sem á bak við Eldhúsið fært þvert yfir húsið til að fámeiri stemningu Innanhússarkitektinn Hanna Stína fékk það verkefni að hanna rúmlega 400 fermetra einbýlishús við fjöruborðið í Skerjafirði. Hún færði húsið til nútímans án þess að eyði- leggja sjarma hússins sem var langt yfir meðallagi. MartaMaría | mm@mbl.is Hanna Stína færði eldhúsið þvert yfir húsið og inn í stofu. Nú er út- sýni út á haf úr eldhúsinu og þessa dagana er hægt að horfa á eld- gosið út um gluggann. Innréttingin er úr reyktum aski og sprautulökk- uðu mdf. Carrara-marmari setur svip sinn á eldhúsið. Barstólarnir í eldhúsinu voru sérpantaðir í Heim- ili og Hugmyndum og passa vel við fimm metra langa eyjuna. Í stofunni er risastór speg- ill sem er eins og listaverk. Hann er gamall gluggi úr verksmiðju í Rússlandi og var hann keyptur í Heimili og Hugmyndum. 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.