Morgunblaðið - 21.05.2021, Blaðsíða 28
Þ
etta fagra einbýlishús var byggt
1983 og því var kominn tími á við-
hald þegar Hanna Stína var kölluð
til leiks til að búa til ævintýraheim
eins og henni einni er lagið. Hún
segir að húsið hafi heillað hana upp úr skónum
enda státar það af æðislegu útsýni út á haf, út á
Álftanes og um þessar mundir er hægt að horfa
á eldgosið í beinni útsendingu út um stofuglugg-
ana.
„Þetta er fyrsta húsið sem Sigurður Hall-
grímsson arkitekt teiknaði en ég held mikið upp
á hann,“ segir Hanna Stína. Hún segir að nýju
eigendur hússins hafi verið með mjög ákveðnar
hugmyndir um hvernig heimilið ætti að líta út.
„Þau hafa gert þetta áður og vissu því alveg
hvað þau vildu. Húsmóðirin er mjög smekkleg
og þetta var mjög skemmtilegt samstarf. Þau
vildu til dæmis færa eldhúsið í stóra opna rýmið
með allt útsýnið og útbúa fallega hjónasvítu.
Eins vildu þau gera góða aðstöðu fyrir tvo tán-
ingssyni svo allir hefðu sitt pláss. Þau vildu fá
vatnsgufu inn í húsið og því voru líka öll baðher-
bergi endurnýjuð. Í þessu ferli voru öll gólfefni
endurnýjuð ásamt handriði á stiga,“ segir hún.
Nútíminn bankar upp á
Við ræðum um stemningu inni á heimilum.
Hanna Stína segist hafa lagt upp með það að
búa til nútímalega stemningu sem væri hlýleg
en á sama tíma stílhrein og björt.
„Í þessu húsi vorum við að vinna með ljósa
liti. Húsið er frá 1983 og því var kominn tími á
endurbætur því það var nánast upprunalegt
þegar þau keyptu það.“
Fimm metra eyja
Eldhúsið í húsinu er eins og listaverk þar sem
Carrara-marmari, grábæsaður askur og hvít-
lakkað MDF mætist. Eldhúsið nýtur sín miklu
betur þegar það er komið inn í stofu en það var
fært þvert yfir húsið. Það að færa eldhúsið gjör-
breytti andrúmslofti heimilisins.
„Við settum tæplega fimm metra eyju þvert í
miðjuna og stóran skápavegg samsíða henni.
Það er óviðjafnanlegt útsýni úr eldhúsinu og því
fannst okkur það verða að fá að njóta sín,“ segir
hún.
„Restin af húsinu er svo í grábæsaða askinum
með smá blandi af hvítlökkuðu MDF,“ segir
hún.
Panellinn var sprautaður
Loftin í eldhúsinu og stofunni eru sprautu-
lökkuð og á gólfinu er hlýlegt ljóst parket frá
Parka.
„Panellinn í loftinu var sprautaður og upp-
runalegu ljósin látin halda sér sem kemur alveg
vel út en það stendur til að setja hljóðdúk í loftin
og endurnýja lýsinguna,“ segir Hanna Stína.
Hvað um arininn. Var honum eitthvað
breytt?
„Arininn er nánast upprunalegur og mjög fal-
legur og mikið „centerpiece“ nema við létum
mála eldsteininn með eldþolinni svartri máln-
ingu,“ segir hún.
Vel skipulögð hjónasvíta
Þegar Hanna Stína fékk verkefnið að end-
urhanna þetta fallega hús lögðu húsráðendur
áherslu á að hafa vel skipulagða hjónasvítu.
Rúmið var í raun sett í mitt herbergið, veggur
settur á bak við svo hægt væri að koma fyrir
fataherbergi.
„Hjónasvítan tekur ekki yfir marga fermetra
en rúmar vel fataherbergi og baðherbergi
ásamt rúmi. Við náðum að nýta plássið vel og
skipta henni niður með vegg þar sem á bak við
Eldhúsið fært
þvert yfir húsið
til að fámeiri
stemningu
Innanhússarkitektinn Hanna Stína fékk það verkefni að
hanna rúmlega 400 fermetra einbýlishús við fjöruborðið í
Skerjafirði. Hún færði húsið til nútímans án þess að eyði-
leggja sjarma hússins sem var langt yfir meðallagi.
MartaMaría | mm@mbl.is
Hanna Stína færði eldhúsið þvert
yfir húsið og inn í stofu. Nú er út-
sýni út á haf úr eldhúsinu og þessa
dagana er hægt að horfa á eld-
gosið út um gluggann. Innréttingin
er úr reyktum aski og sprautulökk-
uðu mdf. Carrara-marmari setur
svip sinn á eldhúsið.
Barstólarnir í eldhúsinu
voru sérpantaðir í Heim-
ili og Hugmyndum og
passa vel við fimm
metra langa eyjuna.
Í stofunni er risastór speg-
ill sem er eins og listaverk.
Hann er gamall gluggi úr
verksmiðju í Rússlandi og
var hann keyptur í Heimili
og Hugmyndum.
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021