Morgunblaðið - 21.05.2021, Page 31
Í
augnablikinu bjóðum við upp á snyrtivörur frá
sænska merkinu Make Up Store og snyrtivöru-
ísskápa frá Beauty Fridge en markmiðið er að
bjóða upp á ný og góð vörumerki, skapa meiri
samkeppni á Íslandi og auka þannig valmöguleika
fólks.“
Hvað getur þú sagt mér um snyrtivöru-
ísskápana?
„Beauty Fridge er í raun byltingarkennd leið til
að halda húðvörum og snyrtivörum ferskum.
Beauty Fridge er vörumerki frá Ástralíu sem fram-
leiðir ísskápa með heitri og kaldri stillingu. Þeir
starfa við hærra hitastig en venjulegur ísskápur og
eru því fullkominn geymslustaður fyrir virku
innihaldsefnin í snyrtivörunum þín-
um.“
Hægt að skipta yfir á
kalda og heita stillingu
Áttu svona skáp sjálf?
„Já! Svo sannarlega. Ég
elska að geyma andlits-
maska, serum og krem á
kaldri stillingu og svo hef ég
þann möguleika að skipta yf-
ir á heita stillingu og geyma
þá blautklúta, andlitsolíur og
vax. Mér finnst algjör snilld að
hafa þennan valmöguleika.“
Skápurinn kostar 18.890 kr. og hefur já-
kvæð áhrif á geymsluþol krema.
„Skápurinn lengir líftíma snyrtivara og
dregur úr bakteríumyndun. Það hjálpar við að
róa og draga úr þrota í húð og dregur úr olíu- og
bólumyndun.“
„Byltingarkennd leið til að
halda snyrtivörum ferskum“
Eyrún Lydía stofnaði nýverið netversl-
unina Lydíu sem býður meðal annars
upp á fallega ísskápa fyrir snyrtivör-
urnar inn á baðið.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Beauty fridge-
ísskápurinn
lengir líftíma
snyrtivara.
Hægt er að hafa skápinn heitan og
hentar það fyrir vax og andlitsolíur
svo eitthvað sé nefnt.
Ísskápurinn
kostar 18.890
kr. og er til í alls-
konar litum.
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 31
Gestasalernið er í stíl
við önnur salerni í hús-
inu. Hér blandar Hanna
Stína saman veggfóðri,
speglum og marmara.
Hjónasvítan er vel heppnuð. Hjónarúm-
ið er í miðju herbergi en svo var vegg
komið fyrir til að búa til fataherbergi.