Morgunblaðið - 21.05.2021, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021
S:566 6000 ∑ ishusid@ishusid.is ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur
viftur.is
Þessi vifta skynjar skítalykt
TILBOÐ
29.976
var 38.086
Skynjarlykt -Skynjarraka -Mjöghljóðlát -AppeðaTakkar
É
g var varla komin inn í íbúðina þeg-
ar ég varð ástfangin! Þegar ég gekk
inn um þreföldu glerhurðina tók
hjartað kipp. Það var mikill fag-
urkeri sem átti íbúðina á undan
okkur. Hún hafði nostrað við heimilið sitt og
íbúðin bar þess merki, það var dásamlegur
andi hérna inni. Það er skemmst frá því að
segja að ég var alveg friðlaus þar til við feng-
um lyklana í hendurnar í ágúst 2020,“ segir
Alma, aðspurð fyrir hverju hún hafi fallið.
Íbúðin var að mestu upprunaleg en það var
einmitt það sem heillaði Ölmu einna mest.
„Við nánari skoðun kom í ljós að það var ansi
margt sem þurfti að gera. Allt veggfóður var
fjarlægt og íbúðin hreinspörsluð tvisvar, allt
rafmagn var endurnýjað, ný gólfefni sett á allt,
lagnir voru endurnýjaðar, ofnum var skipt út
og þeir færðir undir glugga, baðherbergið var
alveg tekið í gegn og eldhúsið fært í aðra stof-
una,“ segir hún.
Hvernig stemningu vildir þú fanga?
„Þar sem ég starfa við húsvernd og hef
áhuga á öllu sem viðkemur eldri húsum þá
skipti mig máli að halda í upprunaleikann.
Þegar blasir við að fara þurfi í jafn yfirgrips-
miklar framkvæmdir og við fórum í þá stendur
maður auðvitað frammi fyrir allskonar ákvörð-
unum en markmiðið var alltaf að allt væri gert
af virðingu við byggingarstíl hússins. Fyrir
mér liggur stemningin einmitt í upprunaleik-
anum sem í þessu tilfelli eru hurðir, gerrekti,
loftlistar, hluti af gömlu eldhúsinnréttingunni
o.s.frv.“
Mjúkir litir
Hvað getur þú sagt mér um litapallettuna á
heimilinu?
„Ég er almennt hrifin af litum og hef stúd-
erað litanotkun í íslenskri byggingarlist þó-
nokkuð, meðal annars í litabæklingi sem er
samstarfsverkefni nokkurra aðila og kemur út
í sumar. Við ákváðum engu að síður að mála
nánast allt í möttum hvítum lit, bæði loft og
veggi. Allar hurðir, listar og gerrekti eru lökk-
uð hvít með háu gljástigi. Ástæðan fyrir lita-
valinu var einfaldlega sú að ég taldi það hæfa
rýmunum og byggingarstílnum vel. Barna-
herbergið er eina herbergið sem er í öðrum lit
en það er einnig veggfóðrað að hluta. Her-
bergið var áður eldhús með fallegri upp-
runalegri innréttingu sem við héldum að hluta
og er í dag notuð sem hirsla undir leikföng,“
segir hún.
Þegar Alma er spurð að því hvort hún hafi
þurft að kaupa ný húsgögn inn á heimilið við
þennan flutning segir hún svo ekki vera.
„Það var nánast ekkert keypt af nýjum hús-
gögnum, meira af fylgihlutum. Ég hef til dæm-
is verið að kaupa vínylmottur frá Heimaró.
Mér finnst frábært að geta skúrað yfir þær,“
segir hún og ýjar að því að það sé afar hentugt
þegar fólk eigi börn. „Síðan hef ég keypt heil-
an helling af fallegum púðum, bökkum, tepp-
um og litríkum hlutum í NúsNús. Nýjasta við-
bótin er dásamlegt verk sem hangir í
eldhúsinu eftir Stefán Boulter listmálara sem
er búsettur á Akureyri. Í sömu Akureyrarferð
keypti ég reyndar líka garðstól frá Eftirtekt.
Ég var sem sagt í mjög afkastamiklu hús-
mæðraorlofi fyrir norðan um daginn,“ segir
hún og hlær.
Alma Sigurðardóttir er
sérfræðingur í varð-
veislu bygginga hjá
Borgarsögusafni. Henni
fannst því skipta máli að
gera íbúðina upp í takt
við húsið sjálft.
Ást við fyrstu sýn!
Alma Sigurðardóttir, verkefnastjóri húsverndar hjá Borgarsögusafni, varð ástfangin þeg-
ar hún gekk inn um dyrnar á heimili sínu í miðbæ Reykjavíkur. Hún gætti þess vel að allar
endurbætur á íbúðinni væru í takt við byggingarstíl hússins og ekkert myndi stinga í stúf.
MartaMaría | mm@mbl.is
Alma safnar fallegum
hlutum og kann að
raða þeim saman.
Alma er
mjög góð í
því að
raða upp
fallegum
hlutum.