Morgunblaðið - 21.05.2021, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021
Ármúla 19 | s:553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
Sindrastóllinn (H-05)
Ásgeir Einarsson
Stóll: 208.000,-
Skemill: 64.000,-
Íslensk hönnun
Íslensk hráefni
Íslensk framleiðsla
mínu mati er það bæði hlýlegt og klassískt
og hæfir eigninni því vel,“ segir Alma.
Allt í takt við húsið!
Eldhúsið ber þess sterklega merki að Alma
hafi viljað innréttingar í stíl við húsið. Hún
valdi innréttingu úr Eirvík.
„Mér fannst mikilvægt að útlitið á henni
væri einfalt þar sem umgjörðin er frekar
skrautleg. Þar sem allt er hvítmálað vildi ég
hafa hana í lit, „cashmere grey“ varð því fyrir
valinu, hann er mjúkur, hlýr og tónar vel við
reyktu eikina og hvítu veggina. Þar sem þetta
er frekar lítil íbúð og eldhúsið í raun ekkert
svo stórt þurftum við að fá góða nýtingu út úr
því sem við höfðum, ég held að það hafi tekist
þrátt fyrir að vera til dæmis ekki með efri
skápa,“ segir hún en þegar eldhúsið var á
teikniborðinu fannst henni mikilvægt að að
eldhúsið væri staðsett þar sem hægt væri að
elda, borða og njóta útsýnis yfir Þingholtin og
Tjörnina.
„Útlitslega vildi ég hafa þetta sem einfald-
ast. Ég var ekki að sækjast eftir neinu gam-
aldags „lúkki“ enda er þetta ný innrétting,“
segir hún og brosir.
Dreymir þig um að eignast eitthvað inn á
heimilið?
„Ég er alltaf að reyna að vanda mig við að
njóta þess sem við eigum en ef ég á að nefna
eitthvað eitt er myndlist ofarlega á listanum,
hefur lengi langað í stóra mandölu eftir Rann-
veigu Helgadóttur.“
Er eitthvað sem vantar?
„Mér finnst mjög gaman að kaupa fallega
hluti en viðurkenni að það vantar nú ekki
neitt. Ég á þetta samtal reyndar mjög oft við
sjálfa mig þegar ég sé eitthvað fallegt. Held að
það sé svigrúm fyrir endurbætur á sjálfsaga
þarna,“ segir hún og hlær.
Reynir að þrífa minna
Hvað gerir þú heima hjá þér þegar þú ert
ekki að vinna?
„Ég geri mögulega allt of mikið af því að
taka til og er að reyna að bæta mig í því. Einu
sinni spurði mamma mig hvort ég héldi að ein-
hver sem liti yfir farinn veg óskaði sér þess að
hafa eytt meiri tíma í tiltekt og þrif heima hjá
sér. Þannig að ég er að reyna að gera meira af
því sem nærir sálina og veitir gleði, hvort sem
þar er að horfa á eitthvað skemmtilegt, lesa,
elda eða hreinlega bara horfa út um
gluggann.“
Hefur þú haft sama smekk síðan þú fórst að
hafa áhuga á hönnun?
„Ég held að ég hafi alltaf verið með frekar
svipaðan smekk. Hlutir og húsgögn með sögu
og sál heilla mig. Mér finnst klassísk tímalaus
hönnun yfirleitt fallegust, sér í lagi ef það er
áhugaverð saga á bak við hönnunina sjálfa.“
Hvað varð til þess að þú ákvaðst að læra
arkitektúr?
„Á menntaskólaárunum var ég ekki alveg
að finna mig í bóknáminu, það endurspeglaði
ekki áhugasvið mitt sem sneri að list-
greinum. Á þriðja ári skipti ég því yfir í
Tækniskólann og fór á hönnunarbraut þar
sem ég lærð meðal annars lista- og hönn-
unarsögu, teikningu, módelgerð o.fl. Þar
fann ég mitt svið og fór í kjölfarið í nám í
arkitektúr.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Baðherbergið er gert upp í stíl við
húsið. Fallegar hvítar flísar fá að
njóta sín og flísarnar á gólfinu
færa rýmið upp á hærra plan.
„Mér fannst mikilvægt að útlitið á henni væri ein-
falt þar sem umgjörðin er frekar skrautleg. Þar sem
allt er hvítmálað vildi ég hafa hana í lit, „cashmere
grey“ varð því fyrir valinu, hann er mjúkur, hlýr
og tónar vel við reyktu eikina og hvítu veggina.
Inngangurinn í íbúðina var það sem
Alma féll fyrir. Á íbúðinni er fallegt
fiskibeinaparket sem fer vel við hús-
gögn og listaverk sem prýða heimilið.