Morgunblaðið - 21.05.2021, Side 36
L
inda hefur upp á síðkastið verið að
gera það gott sem lífsþjálfi þar
sem hún hjálpar konum að breyta
um lífsstíl.Andleg líðan skiptir
miklu máli að mati Lindu og
heimilið leikur stórt hlutverk í því að líða
vel.
„Ég hef ætíð lagt áherslu á að hafa fallegt
og heimilislegt í kringum mig. Það skiptir
mig miklu máli að umhverfið mitt sé glæsi-
legt. Ég vel hlutina inn á heimilið af kost-
gæfni, og tók nýverið eftir því að litapallett-
an á heimilinu er nánast eins og í
fataskápnum mínum! Það var ekki planað
en það er augljóst að ákveðnir litir heilla
mig.
Ég kýs að hafa fallega hluti í kringum
mig og eitt af því sem dæmi er að hafa alltaf
afskorin blóm í vasa. Þau eru svo mikið
augnayndi.“
Drottningarstóllinn vinsæll
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn
heima?
„Það er ákveðinn stóll sem við mæðgur
köllum í gamni drottningarstólinn. Ég sit
þar alltaf á morgnana, drekk sítrónuvatnið
mitt og kaffi og skrifa í dagbókina mína. Á
borðinu við hliðina á stólnum er stór gyllt
búddastytta. Úr stólnum hef ég einnig út-
sýni út á hafið þar sem ég sæki mína
orku.“
Ertu mikið í eldhúsinu?
„Já, það hefur aukist til muna nú á tím-
um kórónuveirunnar. Ég er farin að elda
meira en áður, alls kyns dýrindisrétti, fisk,
grænmeti og einstaka sinnum pasta. Oft-
ast útbý ég rétti úr því sem til er án þess
að fara eftir sérstakri uppskrift. Ég hef
gaman af því að elda góða rétti.“
Gerir góða drykki í glæsilegu eldhúsi
Ertu til í að gefa okkur góða uppskrift
að heilsuþeytingi sem þú drekkur dag-
lega?
„Ég mæli heilshugar með græna
drykknum mínum. Ég drekk hann sjálf
flesta daga. Hann er stútfullur af næringu
fyrir líkama og sál. Það er upplagt að bæta
Heimilið í stíl við fataskápinn
Linda Pétursdóttir veit
fátt betra en að vera með
falleg blóm í vasa og
góðan drykk við höndina
þegar hún er heima hjá
sér. Heimili hennar státar
af fallegum hlutum sem
hún hefur sankað að sér í
gegnum tíðina.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eitt uppáhaldshúsgagn Lindu
er skeljakommóðan sem hún
festi kaup á í Kanada.
Það er vinsælt að
sitja í prinsessu-
stólnum og hug-
leiða með Búdda
fyrir framan sig.
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐAMÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
Fjólublár og
grár fara fal-
lega saman í
stofunni.