Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.5. 2021
LESBÓK
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk Greinaklippur
frá 595
695
Strákústar
á tannbursta ve
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Laufhrífur
frá999
SandkassagrafaÚðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Garðslöngur
í miklu úrvali
Hrífur
MORÐ Tökur eru hafnar vestur í Oklahoma á nýjustu
kvikmynd hins virta leikstjóra Martins Scorseses.
Killers of the Flower Moon kallast hún og fjallar um
hrinu morða sem skóku ættbálk Osage-indíána á
þriðja áratug seinustu aldar eftir að olía fannst á
verndarsvæði þeirra. Myndin byggist á metsölubók
Davids Granns og meðal leikenda eru Leonardo DiCap-
rio, Lily Gladstone, Robert De Niro og Jesse Plemons. Svo
óvenjulega vill til að DiCaprio óskaði eftir því að skipta um
hlutverk eftir að hafa lesið handritið; upphaflega var hann ráð-
inn til að leika lögreglumann en grátbað um að fá hlutverk
óbreytts borgara sem fléttast inn í málið. Það var látið eftir
honum. Killers of the Flower Moon er fyrsta mynd hins
78 ára gamla Scorseses eftir The Irishman 2019.
Skipti um hlutverk
FRÆGÐ Hin breska Olivia Williams er ekki
frægasta leikkonan í bransanum – og er af-
skaplega þakklát fyrir það. Williams, sem m.a.
lék í Sixth Sense og An Education, kveðst í sam-
tali við The Guardian hafa staðið nógu nálægt
frægðinni til að skynja hversu hræðileg hún sé.
Þannig var hún einu sinni við tökur í Róm ásamt
Antonio Banderas og langaði að heimsækja
gallerí með honum. Það sagði spænski leikarinn
á hinn bóginn útilokað mál. Þess í stað snæddu
þau hádegisverð alein á veitingastað. Að því
loknu var Banderas fylgt á brott vafinn
inn í teppi. „Hversu ömurlegt er það?“
spyr Williams.
Lifandis fegin að vera ekki frægari
Olivia Williams tekur list fram yfir frægð.
AFP
Bassafanturinn David Ellefson.
Myndum af
Ellefson lekið
BOBBI David Ellefson, bassaleik-
ari þrassbandsins Megadeth, er í
bobba eftir að myndbandi af óvið-
urkvæmilegum samskiptum hans
við konu sem hann er ekki giftur
var lekið á samfélagsmiðlum. Sam-
skiptin fóru fram í netheimum og
var lekið af þriðja aðila til að koma
höggi á Ellefson, að því er hann
segir sjálfur. Konan sem um ræðir
viðurkennir að hafa tekið sam-
skiptin upp og verið svo „barnaleg“
að deila þeim með vini sínum. Kon-
an segir jafnframt allt hafa farið
fram með hennar samþykki og að
hún sé yfir lögaldri. Megadeth hef-
ur sent frá sér yfirlýsingu, þar sem
bandið kveðst munu fylgjast grannt
með framvindu mála.
Meðan hann lék knattspyrnugeislaði hann af sjálfs-öryggi, sjarma og gleði.
Eftir að hann gerðist sparkskýrandi
í sjónvarpi hefur hann geislað af
sjálfsöryggi, sjarma og gleði. Hvar
sem hann kemur er Ian Wright
hvers manns hugljúfi og hrókur alls
fagnaðar. Þannig hefur það þó frá-
leitt alltaf verið; æska hans var gífur-
lega erfið, lituð af grimmd og ofbeldi,
andlegu sem líkamlegu. „Ian, ég vildi
óska þess að ég hefði látið eyða þér,“
sagði móðir hans blákalt við hann
átta ára gamlan. Á því augnabliki
vissi hann ekki hvað hún var að fara
en komst fljótlega að því.
Sjálf var móðir hans fórnarlamb
heimilisofbeldis, sambýlismaður
hennar og stjúpfaðir Wrights lagði á
hana hendur. „Ég man hvað ég hat-
aði hann innilega,“ segir Wright í
myndinni, „og var hræddur við hann.
Hann var svo stór og röddin ógn-
vekjandi.“ Í eitt skiptið reyndi stjúp-
inn að kyrkja móður hans. „Hún var
að reyna að biðjast afsökunar meðan
hann var með hendurnar utan um
hálsinn á henni. Og maður spyr sig
hvort henni sé óhætt, hún sem er svo
Margur leggur við
hlustir þegar Ian
Wright tekur til máls.
Ég vildi óska
að ég hefði
látið eyða þér!
Ný heimildarmynd Ians Wrights um heimilis-
ofbeldi, Home Truths, þykir í senn áhrifamikil og
einlæg en þar leggur knattspyrnumaðurinn
fyrrverandi út af erfiðri eigin reynslu sem barn.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ian Wright í kunnuglegri stöðu; að skora mark fyrir Arsenal á tíunda áratugn-
um. Hann segir knattspyrnuna hafa breytt og mótað líf sitt fram á þennan dag.
AFP
Heimildarmyndin Home Truths hef-
ur fengið prýðilega dóma í enskum
blöðum í vikunni; þykir einlæg og
áhrifamikil; fær til að mynda fjórar
stjörnur af fimm mögulegum í bæði
Independent og The Guardian. Auk
þess að segja eigin sögu ræðir
Wright við annað fólk sem ýmist hef-
ur orðið fyrir eða sjálft beitt ofbeldi
gegnum tíðina.
„Á yfirborðinu er hin mjög svo
áhrifamikla og persónulega heimild-
armynd Ians Wrights um heimilisofbeldi, samfélagsmein sem við
erum fyrst núna að byrja að taka á af þeirri alvöru sem það á skilið.
En um leið er hún stúdía í hugrekki, bæði þeirra sem gengið hafa
gegnum þessa eldraun – eins og Wright sjálfur – og gerendanna
sem hafa horfst í augu við það sem þeir hafa gert fjölskyldum sínum
og sjálfum sér,“ segir í umsögn Independent og The Guardian kall-
ar myndina „fallega“ og „mikilvæga“.
Í senn um hugrekki og ofbeldi
AFP
Leonardo
DiCaprio er
fylginn sér.