Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.09.2021, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 21.09.2021, Qupperneq 2
Áfram Ísland! Þetta er geggjaður hópur og allar stelpurnar með sjálfstraust til að mæta í þennan leik. Við ætlum okkur sigur, sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, á fréttamannafundi í hádeginu í gær. Liðið freistar þess nú að komast á heimsmeistaramót í fyrsta sinn og mætir Evrópu- meisturum Hollands í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland er í riðli með Hollandi, Tékklandi, Hvíta-Rússlandi og Kýpur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Grensásdeild Landspítala mun taka stakkaskiptum á næstu árum en búið er að samþykkja um fjögur þúsund fermetra nýbyggingu og Holl­ vinasamtökin ætla að borga fyrir sérhannaðan garð þar sem sjúklingar geta æft undir berum himni. benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG „Þeir sem eru staddir á Grensásdeild eru staddir þar vegna áfalla. Þau hafa misst mikið í líf­ inu og við þurfum að gera staðinn eins fallegan og vistlegan og hægt er,“ segir Guðrún Pétursdóttir, for­ maður stjórnar Hollvina Grensás­ deildar, en samtökin brosa út að eyrum þessa dagana. Annars vegar vegna þess að nýverið var samþykkt breyting á deiliskipulagi og mun um fjögur þúsund fermetra nýbygging rísa vestan megin við núverandi aðal­ byggingu og hins vegar mun fal­ legur garður verða búinn til þar sem skjólstæðingar verða þjálfaðir úti við. Garðurinn kostar um 66 millj­ ónir króna sem Hollvinasamtökin borga meðal annars úr sínum sjóði. Guðrún segir að nýbyggingin sé eitthvað sem sé búið að undirbúa vel í töluverðan tíma enda henti húsnæðið ekki lengur fyrir starf­ semina. Þar er gert ráð fyrir 19 nýjum einstaklingslegurýmum. Meðferðarstofur sjúklinga verða ekki færri en 32 á deildunum tveimur, 13 í núverandi húsnæði legudeildar og 19 í nýbyggingu. Núverandi húsnæði Grensás­ deildar stenst ekki grundvallar­ kröfur til endurhæfingar, auk þess sem ný þekking í endurhæfingu mænuskaðaðra og mikið slasaðra einstaklinga kallar á aukin hjálpar­ tæki og búnað sem ekki rúmast í núverandi húsnæði. Guðrún bendir á að það sé mat þeirra sem gerst þekkja til að best sé að byggja nýtt og sérhæft húsnæði sem styður við starfsemina. Birgir Ingimarsson, sem einn­ ig situr í stjórn, segir að garðurinn verði ekki minni bylting. „Þetta er verkefni upp á 66 milljónir sem við kostum. Þarna fara skjólstæðingar út með þjálfurum. Ég sjálfur fékk heilablóðfall 2011 og var inni á Grensásdeildinni í heilt sumar og hrökk í gang af starfsfólkinu,“ segir hann þakklátur. „Þeir sem hafa notið þessarar þjónustu vita að á Grensásdeild gerast kraftaverkin.“ E ndu rhæ f i ng a rdei ld i n va r opnuð árið 1973 en húsnæðið var upphaf lega hannað sem hjúkr­ unarheimili. Heildarkostnaður við nýbygginguna er áætlaður þrír milljarðar króna. Birgir bendir á að það sé áhugamál Hollvinanna að stórbæta húsnæði deildarinnar, því Grensásdeild hafi búið við allt­ of þröngt húsnæði, sem hamli allri starfsemi. „Við erum búin að hanga á húninum hjá heilbrigðisráðherra í mörg ár og loksins er draumurinn að verða að veruleika.“ n Grensásdeild fær loksins þá andlitslyftingu sem þurfti Garðurinn verður með blómarækt og æfingatækjum fyrir sjúklinga. Þeir sem hafa notið þessarar þjónustu vita að á Grensásdeild gerast kraftaverkin. Birgir Ingimarsson bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL „Það hefur ekkert breyst, við og Sjálfstæðismenn eigum enga samleið. Ástæðan er málefnaleg fjar­ lægð milli þessara tveggja flokka,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þing­ maður Samfylkingarinnar, vegna þráláts orðróms um að flokkurinn hafi nýverið opnað á möguleika um ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki. Síðast í umræðuþættinum Silfr­ inu á RÚV um helgina var því haldið fram að mögulega hefði Samfylking­ in breytt fyrri afstöðu sinni til sam­ starfs með Sjálfstæðisflokki. Helga Vala segir slíkt tal hreinan spuna: „Það eru hlutir sem nauðsynlegt er að fara í á næsta kjörtímabili og við vitum að Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki, heilbrigðiskerfið er þar efst á blaði.“ Mikið er rætt um möguleg stjórn­ armynstur en samkvæmt könnun Fréttablaðsins er þriggja f lokka meirihluti mjög ólíklegur vegna dreifingar fylgisins. Framsóknar­ flokkurinn virðist í góðri stöðu og er enginn flokkur líklegri til að fá inni í nýrri ríkisstjórn. Spurð hvort útilokun samstarfs við Sjálfstæðis­ flokk þrengi möguleika f lokksins um of, lítur Helga Vala ekki svo á. Full samstaða sé um afstöðuna í forystu flokksins. „Það er bara enginn séns á að við getum unnið saman,“ segir Helga Vala. n Ekki séns að Samfylking muni vinna með Sjálfstæðisflokki eftir kosningar Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar- innar Næstu íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verða haldin sem hér segir: • Akureyri: Fimmtudaginn 18. nóvember 2021, kl. 13.00 hjá Símey. • Reykjavík: Vikuna 22. til 26. nóvember 2021, kl. 9.00 og 13.00 hjá Mími. Skráning er hafin á www.mimir.is. Síðasti skráningardagur er 1. nóvember 2021. Ekki er hægt að skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur. Prófgjaldið er 35.000 kr. Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt haustið 2021 kristinnhaukur@frettabladid.is KOSNINGAR Miðflokkurinn hefur eytt mestu í auglýsingar á Face­ book undanfarinn mánuð, tæpum 2,9 milljónum króna, sem að lang­ mestum hluta hefur verið notað undanfarnar tvær vikur. Fram að þessu hafði Flokkur fólksins leitt í auglýsingakapp­ hlaupinu á miðlinum en auglýsingar hans hafa verið jafndreifðari yfir lengra tímabil. Hefur f lokkurinn eytt mestu á einu ári, 4,9 milljónum. Þegar horft er til 30 daga hefur Flokkur fólksins eytt tæpum 2,2 milljónum króna líkt og og Sjálf­ stæðisflokkurinn hefur gert. Tveir flokkar hafa eytt yfir milljón. Fram­ sóknarf lokkurinn hefur eytt 1,9 milljónum króna og Samfylkingin sem hefur eytt 1,2 milljónum. Sósíalistaflokkurinn hefur eytt 650 þúsund krónum, Viðreisn 590 þúsundum, Píratar 580 þúsundum, Vinstri græn 480 þúsundum og Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn 150 þúsundum. n Miðflokkur tekur yfir á Facebook Fylgi Miðflokksins er lítið í könn- unum skömmu fyrir kosningar. 2 Fréttir 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.