Fréttablaðið - 21.09.2021, Page 10

Fréttablaðið - 21.09.2021, Page 10
Vinstri­ flokk arnir vaða uppi í fjölmiðlum undir for­ ystu skæru­ liða þeirra vinstri­ manna, Gunnars Smára. Og þar lofa þeir öllu fögru. Brey ting um í átt t il g rænna atvinnulífs og umhverfisvænna samgangna fylgir margvíslegur ávinningur fyrir land og þjóð. Þótt mest sé horft á loftslags- málin þarf vart að tíunda hver gjaldeyrissparnaðurinn verður af því að keyra allar innlendar sam- göngur á grænni innlendri orku í stað innfluttra og mengandi orku- gjafa. Fyrirséð er að á næstu árum þurfum við að taka enn stærri skref en áður í átt til grænnar atvinnu- starfsemi og grænna samfélags. En ef allt þetta á að verða að veru- leika þarf að framleiða alla þessa grænu orku. Það er því forgangsmál að skoða hvaða möguleikar eru fýsilegir til að útvega aukna græna orku og mikilvægt að greina og velja hagkvæmustu kostina. Við megum ekki vera feimin við að ræða málin, spyrja erfiðra spurninga og taka fumlausar ákvarðanir til hagsbóta fyrir umhverfið og komandi kyn- slóðir. Hér á Íslandi eru vatns-, jarð- varma- og vindorka þeir möguleikar sem vænlegastir eru. Orkan er ein stærsta auðlind Íslendinga og hana þarf að nýta. En ef við ætlum að vera forystuþjóð á sviði grænnar orku – þá þurfum við að afla hennar. Það liggur í augum uppi. Íslendingar hafa sýnt það í gegnum árin að við höfum þekk- ingu og reynslu í að virkja nátt- úruna og á sama tíma umgangast landið okkar og jörðina af virðingu og varfærni. Nú þarf að ræða hvar, hvernig og hversu hratt. Traustir orkuinnviðir um land allt eru lykillinn að árangri í loftslagsmálum og þeirri grænu umbreytingu í atvinnu og sam- göngumálum sem er í burðar- liðnum. Það er mikilvægt að hugsa og nálgast málin af skynsemi, vega og meta þá kosti sem eru í boði og taka ákvarðanir sem koma sér vel fyrir framtíðarkynslóðir í landinu til lengri tíma. n Það þarf að afla grænu orkunnar Hressandi áminning var að hitta fyrir kjósendur á Eskifirði um dag- inn þar sem menn höfðu áhyggjur af uppgangi vinstrif lokkanna í komandi kosningum. Ótti manna er skiljanlegur. Hætta á fjölf lokka v instr ist jór n er raunver u leg. Vinstri f lokk arnir vaða uppi í fjöl- miðlum undir forystu skæruliða þeirra vinstrimanna, Gunnars Smára. Og þar lofa þeir öllu fögru. Hvers kyns upphlaup yrði til að skapa sundrung og ósætti í sam- félaginu. Óstöðug fjölflokka vinstristjórn? Það er auðvitað rökrétt, að fólkið í landinu hafi áhyggjur af komandi kosningum. Blöðin greina þessa dagana frá könnunum um að fylgi framboða sé í járnum, mjótt á mun- um og smá vægi leg ustu fylg is breyt- ing ar hefðu tölu verðar af leiðing ar, bæði á þing mannafjölda og niður- stöðu. Við gætum setið uppi með fimm eða sex f lokka ríkisstjórn til vinstri þar sem stöðugt ósamlyndi knýr á dyr stjórnarslita. Þar væri efnahagslegur árangur og stöðugleiki síðustu ára lagður að veði. Um það vitna vinstrislys fyrri ára. Hafa menn gleymt óða- verðbólgu vinstristjórnanna frá 1978-1983 þegar niðurrifsöf lin réðu ríkjum? Og rökkurheimar Jóhönnustjórnar hræða enn. Þær þúsundir sem koma að atvinnulíf i landsbyggðar hafa skiljanlega áhyggjur. Sjávarút- vegur, fiskeldi, landbúnaður, álver, orku- og iðnaðaruppbygging sæta stöðugum árásum vinstrimanna með hótunum um sífellt auknar takmarkanir, hindranir og álögur. Borgarsysturnar Sundrung og Ósætti Öllum er hollt að horfa til óstjórnar og hneykslismála hjá Reykjavíkur- borg þeirra Samfylkingarmanna og fylginauta, þar sem hvert tækifæri er nýtt til að hnýta í landsbyggðina. Þar hefur landsbyggðin þurft ítrek- að slá skjaldborg um flugvöll allra landsmanna. Undir slíkum kringumstæðum hlýtur atvinnurekstur að velta fyrir sér efnahagslegum stöðug- leika. Spor vinstrif lokkanna hræða vegna áætlana um stóraukna skatt- heimtu á atvinnustarfsemi, meira og f lóknara regluverk og aukin ríkisafskipti og miðstýringu. Áfram land tækifæra! Við sjáum nú að íslenskt efnahags- líf er á góðum vegi til efnahags- legrar endurreisnar. Jafnvel nú á tímum heimsfaraldurs hefur hag- kerfið sýnt sterkan viðnámsþrótt og vöxt í öðrum útf lutningi en ferðaþjónustu. Heimilin og fyrir- tækin hafa verið varin áföllum og útlit er fyrir meiri hagvöxt en áður var reiknað með. Við Eskfirðinga og aðra segi ég: Hlustum ekki á sundurlyndisöflin. Full ástæða er til bjartsýni ef haldið er áfram að fylgja efnahagsstefnu sem Sjálfstæðisf lokkurinn hefur góðu heilli haft forystu um síðustu árin. Einungis þannig verður Ísland áfram land tækifæranna. n Stefnir í fjöldaflokka vinstristjórn? Ragnar Sigurðsson skipar 4. sætið á framboðslista Sjálfstæðis- f lokksins í Norð- austurkjördæmi Þegar skýrslan var loksins birt vant­ aði alveg í hana upp­ lýsingar um tiltekn­ ar fjárfest­ ingar, það er í hvaða fyrir­ tækjum og atvinnu­ greinum útgerðar­ risarnir hafa fjár­ fest í. Ingibjörg Isaksen oddviti Fram- sóknarflokksins í Norðaustur- kjördæmi Orkan er ein stærsta auðlind Íslendinga og hana þarf að nýta. Af hverju má ekki upplýsa almenn- ing um eignarhald stærstu útgerð- arfyrirtækja Íslands í íslensku atvinnulífi? Þessi spurning brennur á mörgum nú í aðdraganda kosn- inga vegna þess dæmalausa felu- leiks sem stjórnvöld settu á svið í kringum skýrslubeiðni sem við í Viðreisn höfðum forgöngu um að leggja fram undir lok síðasta árs. Alþingi samþykkti einróma í des- ember síðastliðnum beiðni mína um að sjávarútvegsráðherra ynni skýrslu um eignarhald 20 stærstu útgerðar- félaganna í íslensku atvinnulífi. Markmiðið var meðal annars að veita almenningi mikilvægar upp- lýsingar um hvernig hagnaði af sam- eiginlegri auðlind þjóðarinnar hefur verið varið og sýna ítök stórútgerðar- innar í íslensku samfélagi í krafti nýt- ingar hennar á fiskveiðiauðlindinni. Nýtingar sem ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks, VG og Framsóknar ver með kjafti og klóm að verði ótímabundin þvert á vilja yfirgnæfandi meirihluta almennings. Hvað þá að markaður- inn fái að ráða verðinu fyrir aðgang útgerðanna að auðlindinni okkar. Þegar skýrslan var loksins birt vantaði alveg í hana upplýsingar um tilteknar fjárfestingar, það er í hvaða fyrirtækjum og atvinnu- greinum útgerðarrisarnir hafa fjárfest í. Þar með er ekki verið að upplýsa almenning um krosseigna- tengsl eða ítök útgerðarinnar í til- teknum kimum íslensks samfélags eins og við fórum fram á, og Alþingi samþykkti. Það er miður. Víst má fólk vita Sjávarútvegsráðherra Sjálfstæðis- flokksins ber fyrir sig lög um per- sónuvernd. Að samkvæmt þeim megi almenningur ekki fá upp- lýsingar um hvernig þeir sem hafa auðgast gríðarlega á ótímabundnu einkaleyfi á veiðum úr sjávarauð- lind þjóðarinnar hafa fjárfest í fjöl- miðlum og fasteignum, matvæla- markaði og heilbrigðisgeiranum, ferðaþjónustu og veitingahúsum. Svo fátt eitt sé talið. Hvað má almenningur ekki vita um sjávarútveginn? Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar og í 1. sæti í Reykjavíkur- kjördæmi suður Staðreyndin er hins vegar sú að þetta eru opinberar upplýsingar þó f lækjustigið sé slíkt að það er ekki einfalt fyrir hvern sem er að draga þessar upplýsingar saman. Enda gerir Persónuvernd alvar- legar athugasemdir við skýrsluna, ekki síst við vinnslu hennar þar sem ekki var haft samband við Persónu- vernd sem hefði getað leiðbeint og leiðrétt þann „misskilning“ að allt væri þetta mjög mikið leyndarmál. Það sem var í skýrslunni Þrátt fyrir þessa ótrúlegu brotalöm á skýrslunni koma þar engu að síður fram mikilvægar upplýsingar um að á árunum 2017, 2018 og 2019 jukust fjárfestingar stórútgerðarinnar í íslensku atvinnulífi um tæpa 60 milljarða. Þetta eru upplýsingar sem eru gefnar í bókfærðu verði en raunverulegt verð sem byggir á markaðsverðmæti þeirra fyrirtækja sem er fjárfest í, er alla jafna tölu- vert hærra. Þó svo að bara sé miðað við bókfærða verðið þá eru árlegar fjárfestingar í óskyldum atvinnu- rekstri fjórfalt meiri en veiðigjöldin sem ríkisstjórnin telur þessi sömu útgerðarfyrirtæki ráða við að greiða íslenskri þjóð fyrir af laheimildir, fyrir afnot af sjávarauðlindinni. Svo því sé til haga haldið. Sátt um þessa mikilvægu stoð Sjávarútvegur er ein mikilvægasta stoð íslensks efnahagslífs. Eiginfjár- staða sjávarútvegsfyrirtækja hefur batnað verulega frá hrunsárunum og stóð bókfært eigið fé þeirra í 276 milljörðum króna við lok árs 2018. Vísbendingar eru um að fjár- festingar þeirra út fyrir sjávarút- veginn hafi aukist í samræmi við það. Það er jákvætt að því leyti að það dreifir áhættu félaganna sjálfra en þessi þróun getur að sama skapi hæglega leitt til verulegrar uppsöfn- unar eigna og áhrifa á fárra hendur og dregið úr virkri samkeppni á mörkuðum. Smæð íslensks atvinnulífs gerir okkur sérstaklega viðkvæm fyrir fákeppni. Vegna þessarar stöðu töldum við í Viðreisn mikilvægt að upplýsingar um eignarhluti 20 stærstu útgerð- arfélaganna og tengdra aðila í óskyldum atvinnurekstri hérlendis yrðu teknar saman. Með þeim upp- lýsingum sem við báðum um, með stuðningi þingmanna úr f lestum f lokkum, væri nefnilega hægt að varpa ljósi á raunveruleg áhrif aðila sem hafa einkaleyfi til nýtingar fiskveiðiauðlindarinnar á íslenskt atvinnulíf og samfélag. Við töldum að slík skýrsla gæti orðið mikil- vægt framlag til umræðunnar um dreifða eignaraðild útgerðarfélaga og skráningu þeirra á markað en það er rétt að minna á það hér að nýleg Gallupkönnun sýnir að tæp 77 prósent þjóðarinnar vilja að útgerðin greiði markaðsgjald fyrir af laheimildir. Þeir sem verja núverandi fyrir- komulag við greiðslu fyrir nýtingu á sjávarauðlindinni gera það gegn allri skynsemi, gegn allri sanngirni – og gegn vilja yfirgnæfandi meiri- hluta þjóðarinnar. Þessu ætlum við í Viðreisn að breyta. n 10 Skoðun 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.