Fréttablaðið - 21.09.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 21.09.2021, Síða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Sara Lind stýrir þrýstingsmeð- ferðadeild Stoðar. Hún segir að margir upplifi að hafa öðlast nýtt líf við að nota þrýstingssokka eða annan þrýstingsfatnað. „Ein kona sagði að hún hefði líklega verið komin í hjólastól, ef hún hefði ekki fengið þessa sokka,“ segir Sara, en hún hefur fengið margar ánægju- legar reynslusögur frá þakklátum viðskiptavinum. „Margir hafa einnig lýst minni verkjum og segja að geta til hreyfinga og daglegra starfa hafi stóraukist,“ heldur Sara áfram. „Þrýstingsmeðferðir eru ekki eingöngu fyrir fólk sem hefur undirliggjandi sjúkdóma heldur henta þær einnig fólki sem stendur mikið við vinnu eða fólki sem er í mikilli kyrrstöðu. Margir þjást af fótapirringi eða fótaóeirð, eins og það er oft kallað, og geta þrýst- ingsmeðferðir verið góð leið til að vinna bug á þeim hvimleiða vanda. Einnig hafa þrýstingsmeðferðir hjálpað ófrískum konum sem oft hafa tilhneigingu til að fá bjúg. Ekki má gleyma íþróttafólkinu og öðrum sem hreyfa sig eða ferðast mikið, en Stoð býður upp á íþrótta- og flugþrýstingssokka sem geta aukið blóðflæði og flýtt endurheimt eftir erfiðar æfingar, löng hlaup, golf, göngur eða flug,“ segir Sara. „Hjá Stoð fást líka sokkaífærur, en það er hjálpartæki til að komast í sokkana,“ heldur Sara áfram. „Erfitt getur verið að komast í þrýstingssokka, enda er mikilvægt að sokkarnir veiti góðan þrýsting. Stoð býður upp á nokkrar gerðir af sokkaífærum, einnig fyrir fólk með skerta hreyfifærni sem á til dæmis erfitt með að beygja sig niður til að klæða sig í sokka.“ Hvað er bjúgur? Margir þekkja það að hafa bjúg, oft í fótum og ökklum og er þetta hvimleiður vandi þar sem þroti eða bólga er í vefjum líkamans. Bæði tímabundin heilsufars- vandamál og sjúkdómar geta haft áhrif á blóðrásar- og sogæðakerfi líkamans og geta þessi vandamál valdið bjúg og verkjum í útlimum. Þrýstingsmeðferð er einföld og gagnleg leið til að meðhöndla slík einkenni. Bjúgurinn stafar af vökvasöfnun í vefjum og margt getur valdið því að vökvi safnist þar upp. Fyrir utan sjúkdóma getur bjúgur til dæmis verið aukaverkun ákveðinna lyfja, einnig getur mataræði, hreyfingar- leysi, þröngur fatnaður og fleira haft áhrif á bjúgmyndun í líkam- anum. Réttar þrýstingsmeðferðir veita aðhald og minnka samsöfnun blóðs í æðum og koma þannig í veg fyrir að vökvi leki úr æðunum og valdi bjúg. Þrýstingsmeðferðir hafa einnig góð áhrif á sogæða- kerfi líkamans, en sogæðakerfið er hluti af ónæmiskerfi líkamans og má finna sogæðar um hann allan. Í líkamanum erum við með um 18 lítra af sogæðavökva og það er í raun ekkert hjarta sem pumpar þeim vökva, eins og hjartað sem pumpar blóðinu. Til að koma hreyfingu á sogæðavökva líkam- ans skiptir djúpöndun og hreyfing miklu máli, en einnig geta þrýst- ingsmeðferðir haft mjög jákvæð áhrif á þetta kerfi líkamans. Hverjir þurfa á þrýstings­ meðferðum að halda? Fólk með æðahnúta, bjúg, sogæða- bjúg, lélegt sogæðakerfi eða blá- æðasjúkdóma og einnig þeir sem hafa fengið blóðtappa fá mikinn ávinning af þrýstingsmeðferðum. Slíkar meðferðir gagnast einnig fólki með taugasjúkdóma á borð við MS, Parkinson, hreyfihamlaða eða einstaklinga með hjartabilun, Margir finna fyrir minni verkjum og að geta til hreyfinga hafi stóraukist eftir meðferð, segir Sara Lind. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Þrýstingssokkarnir frá MEDI eru með þrepaþrýstingi, þar sem þrýstingurinn er mestur við ökkla en dregur svo jafnt úr þrýstingi upp legginn. MYND/AÐSEND Þrýstingssokk- arnir eru ein- staklega klæði- legir og líkjast hefðbundnum nælonsokkum. MYND/AÐSEND nýrnasjúkdóma eða þá sem eru með þrálát fótasár. Fólki sem er að koma úr aðgerð á fótum, til dæmis liðskiptaaðgerð, gagnast þessi meðferð líka. En eins og fram hefur komið geta flestir haft not af þrýst- ingsmeðferðum í sínu daglega lífi, hvort sem það er íþróttafólk, fólk sem stendur í vinnunni og kyrr- setufólk, svo eitthvað sé nefnt. Hentar samt ekki öllum Við mælum ekki með að fólk með undirliggjandi sjúkdóma á borð við æðakölkun, útæðasjúkdóm eða slagæðasjúkdóm noti þrýst- ingssokka eða aðrar þrýstingsmeð- ferðir, nema ef læknir hefur ráðlagt slíka meðferð. Ef grunur leikur á að ofangreindir sjúkdómar séu að valda einkennum í útlimum, mælum við með að fólk ráðfæri sig við lækni áður en slíkar meðferðir eru valdar. Niðurgreitt af Sjúkratryggingum Margir eiga rétt á að fá niður- greiddar þrýstingsmeðferðir frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Algengast er að fólk sé með niðurgreiðslu á fjórum pörum af þrýstingssokkum á ári. Læknar eða sjúkraþjálfarar þurfa að sækja um niðurgreiðslu í upphafi, enda þurfa þeir að ganga úr skugga um að ein- staklingar eigi rétt á niðurgreiðslu, en staðfesta þarf undirliggjandi orsök einkenna með réttri sjúk- dómsgreiningu. Stoð getur sótt um framhald á niðurgreiðslu meðferða ef um slíkt er að ræða. Það getur tekið allt að fjórar vikur að fá niðurstöðu umsóknar frá SÍ og mælum við með að ein- staklingar panti tíma hjá sérfræð- ingum Stoðar eftir að beiðni hefur verið samþykkt. Sérfræðingar Stoðar framkvæma mælingar og gera athuganir sem á þarf að halda til að kanna hvort einstaklingur þurfi hefðbundna þrýstingsmeð- ferð eða sérhannaða. Mjög mikil- vægt er að þrýstingsfatnaðurinn veiti réttan þrýsting fyrir með- ferðaraðilann. Ef um sérsaum er að ræða eru mælingar sendar til Þýskalands, þar sem fatnaðurinn er svo framleiddur og tekur það um 2-3 vikur að fá þá pöntun afgreidda frá Stoð. Hefðbundnar vörur fær fólk með sér heim sama dag og mælingar fara fram. MEDI – hágæða þrýstingssokkar Sokkarnir frá Stoð koma frá fyrir- tækinu MEDI sem er brautryðjandi í framleiðslu á sjúkrasokkum og þrýstingsfatnaði. Það sem ein- kennir þeirra sokka sérstaklega er hversu vel þeir lofta. 90% rakans frá húðinni smjúga út um sokkana og kemur þannig í veg fyrir svita og kláða. Útlitið á sokkunum er líka í stöðugri þróun og hefur leitt til þess að varla er hægt að sjá mun á sjúkrasokkum og venjulegum sokkum. Þrýstingssokkarnir frá MEDI eru með þrepaþrýstingi, þannig að þrýstingurinn er mestur við ökklann en dregur svo jafnt úr þrýstingi upp legginn. Þessi eigin- leiki tryggir að vökvinn flæðir alltaf upp á við. Þetta er mikilvægt atriði, því þrýstingssokkar sem hafa sama þrýsting við ökkla og til dæmis kálfa geta þrýst vökva í báðar áttir; upp til hjartans, eins og á að gera eða niður í fætur, sem skal forðast. Þjónusta Stoðar Í dag er Stoð með tvær verslanir, eina í Hafnarfirði og aðra á Bílds- höfða. Hefðbundnir þrýstings- sokkar fást í báðum verslunum, ásamt íþrótta- og flugsokkum. Þrautþjálfað starfsfólk starfar í afgreiðslu Stoðar og getur aðstoð- að fólk sem þarf á hefðbundnum þrýstingssokkum að halda, er að leita eftir þrýstingssokkum fyrir íþróttaiðkun eða fyrir flugið. Ef um sérsaum er að ræða er best að panta tíma hjá Söru Lind, en sérsaumur er eingöngu í boði í Hafnarfirði. n Hægt er að panta tíma í mælingu á heimasíðu Stoðar, senda póst á saras@stod.is eða hringja í síma Með því að fara í þrýst­ ingssokka strax á morgnana kemur fólk í veg fyrir að það fái bjúg í fæturna yfir dag­ inn. 2 kynningarblað A L LT 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.