Fréttablaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 16
Húsið og vinnan við að reisa það var hræbillegt. Ég vil helst ekki nefna töluna en hún er vel undir verði ódýrr- ar tveggja herbergja íbúðar í höfuðstaðnum. Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg @frettabladid.is „Mér finnst ég hvern dag stödd í æðislegum draumi. Þetta er draumahúsið og allt innanstokks og utan er eins og ég vil hafa það; við gátum leyft okkur það,“ segir Ragn- hildur Hanna Finnbogadótt- ir leikskólakennari í Vogum á Vatnsleysuströnd. Ragnhildur er nýflutt í höll drauma sinna; glæsilegt einbýlis- hús frá einingahúsaverksmiðj- unni Tivo í Lettlandi. „Við maðurinn minn, Rúnar Vigfússon, tókum ákvörðun um að f lytja til Voga fyrir tuttugu árum síðan. Við erum bæði fædd og uppalin á höfuðborgarsvæðinu en þegar börnin voru orðin þrjú þurftum við að stækka við okkur og sáum að í Vogum gætum við keypt einbýlishús fyrir íbúðar- verð í bænum,“ upplýsir Ragn- hildur. „Hér er dásamlegt að vera og við höfum aldrei séð eftir því að taka þetta skref og f lytja í Voga. Því fylgdi í raun mikill léttir, hér er miklu minna stress en í bænum og náungakærleikurinn allsráðandi, hér er yndislegt að ala upp börn og allir hjálpast að í góðu sam- félagi þar sem allir skipta máli.“ Yndislegt að búa í Vogum Þegar Ragnhildur og Rúnar fluttu með börnin sín í Voga keyptu þau gamalt hús sem þau gerðu upp en þegar tvö af þremur börnum þeirra voru flogin úr hreiðrinu var kominn tími til að minnka við sig. „Þá kom aldrei annað til greina en að vera áfram í Vogum. Við ætl- uðum bara að minnka við okkur og kaupa lítið parhús, en það var ekki til og skortur á húsnæði til sölu í Vogum. Fólki líður svo vel hér suður með sjó og margir sem eru að flytja hingað úr bænum,“ greinir Ragnhildur frá. Þau Rúnar seldu fljótt gamla húsið sitt og þurftu að hafa hraðar hendur með framtíðarhúsnæði. „Við gátum ekki beðið lengi og fluttum inn á tengdaforeldra okkar í millitíðinni á meðan nýja húsið reis. Þegar upp var staðið minnkuðum við ekki við okkur nema um níu fermetra. Við sáum fallegt einingahús rísa við sömu götu og nýja húsið okkar stendur nú við og leist afar vel á; þetta var ódýr kostur og innflytjandinn, Verslunarfélagið Emerald, bauð upp á flottar lausnir, svo við ákváðum að kaupa okkur lóð og byggja einingahús sem uppfyllti okkar óskir og drauma,“ segir Ragnhildur. Sér gosið út um eldhúsgluggann í draumahúsinu Í stórri stofunni er bjart, hátt til lofts og vítt til veggja. Framkvæmdir hófust í byrjun febrúar og nú er einungis vinna utanhúss eftir. Í nýja húsinu er eldhúsið í mestu dálæti hjá Ragnhildi Hönnu. Það er stórt og rúm- gott, með nægu vinnuplássi fyrir bakstur og matargerð, og umfram allt fallegri umgjörð sem umvefur stórfjölskyld- una. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Baðherbergið er einstaklega hlýlegt og glæsilegt. hjálpaði okkur mikið við húsbygg- inguna og benti á hvað við gætum gert sjálf í frágangi hússins, ef við vildum. Það er skemmtileg stemn- ing og upplifun að gera þetta sjálfur, þótt ég sé ekki viss um að langa til að gera það aftur. Húsbyggingum fylgja ótal handtök sem maður gerir sér ekki grein fyrir í byrjun, og alls konar byggingarreglugerðir sem ekki má hvika frá í nýbyggingum.“ Sterkbyggð og vel einangruð hús Þessa dagana eru Ragnhildur og Rúnar að koma sér fyrir í drauma- húsinu, sem er nánast fullbúið. „Það er óneitanlega stór kostur að geta eignast nýtt hús og heimili á jafn skömmum tíma. Ég er ekki viss um að hlutirnir hefðu gerst svona hratt ef við hefðum farið hefðbundna leið og látið steypa nýtt einbýlishús,“ segir Ragnhildur, sæl í draumahúsinu sínu. „Þetta eru sterkbyggð hús sem þola íslenska veðráttu, vel einangr- uð og byggð samkvæmt ströngum, íslenskum byggingarstöðlum. Ef slíkt væri ekki fyrir hendi fengist ekki leyfi til að byggja þessi hús hér á landi og byggingarstjórinn setti ekki nafn sitt né ábyrgð við það,“ segir Ragnhildur. Lettar kunna húsagerðarlist vel Nýja húsið Ragnhildar og Rúnars er 191 fermetri að stærð. „Húsbyggingin tók ótrúlega stuttan tíma. Framkvæmdir hófust 5. febrúar og í byrjun maí fluttum við inn í þrjú herbergi. Steyptur var húsgrunnur og menn frá Lettlandi komu til að reisa húsið og setja í það glugga, úti- og innihurðir. Vinnu- brögðin voru fumlaus og vönduð og ljóst að Lettarnir kunna þetta upp á tíu, enda eru þeir nú að byggja þriðja Tivo-húsið í götunni okkar. Þetta eru glæsileg og sterkbyggð hús og mikill kostur að kaupendur geta teiknað húsið sitt sjálfir, útlit þess, innra skipulag og allt sem vill. Svo taka við arkitektar og verkfræð- ingar, sem Emerald hefur á sínum snærum, að fullvinna teikningar, reikna út burðarþol og fleira sem þarf,“ útskýrir Ragnhildur. Unnið var út frá teikningu sem Emerald átti og var breytt að þörfum hjónanna. „Við vorum líka með íslenskan byggingarstjóra sem sá um alla aðra iðnaðarmenn, rafvirkja, pípu- lagningamenn og múrara. Hann Lóðina keyptu þau í nýju hverfi á vegum sveitarfélagsins í Vogum. „Við vorum heppin að fá eina af síðustu lóðunum í nýju hverfi, en hér eru nýjar lóðir mun ódýrari en á höfuðborgarsvæðinu. Við borg- uðum sex milljónir fyrir lóðina en sambærilegar lóðir í bænum kosta 20 milljónir,“ upplýsir Ragnhildur, en vegna vinsælda Voga hafa lóðir verið af skornum skammti. „Í undirbúningi er nýtt hverfi í skipulagi Voga en það er í eigu einkaaðila en ekki sveitarfélagsins og aðallega selt til verktaka, allt að 2.000 manna byggð.“ Húsið frá Tivo og vinnan við að reisa það var hræbillegt, eins og Ragnhildur orðar það. „Ég vil helst ekki nefna töluna en hún er vel undir verði ódýrrar tveggja herbergja íbúðar í höfuð- staðnum. Innfalið var hús með gluggum og hurðum, og vinna við uppsetningu þess. Því fylgdi fæði og húsnæði fyrir smiðina frá Lett- landi, og var alls ekki hár kostn- aður þegar á heildina er litið.“ Spennandi garðrækt fram undan Þau hjónin eru ein í nýja kotinu, en einn sona þeirra er enn með annan fótinn heima. „Það fer ákaflega vel um okkur og í raun er allt tilbúið fyrir utan smotterí sem við bíðum eftir frá Ikea í eldhúsinnréttinguna. Nú erum við í frágangi á lóðinni og svo tekur við að rækta upp garðinn. Við vorum með yndislegan garð við gamla húsið, en okkar helsta áhugamál er einmitt garðrækt og við erum spennt fyrir því,“ segir Ragnhildur, þar sem hún horfir dreymin út um eldhúsgluggann. „Ég er ánægðust með eldhúsið, sem ég vildi hafa stórt með góðri vinnuaðstöðu og nægu plássi fyrir stórfjölskylduna. Alrýmið er líka dásamlegt og býður upp á skemmti- legar samverustundir með börnum og barnabörnum. Það er það sem við vildum. Þá er staðsetningin algjörlega frábær og við sjáum gosið út um eldhúsgluggann.“ n STERKARI EININGAHÚS www.steypustodin.is 4 kynningarblað 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGUREININGAHÚS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.